Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSIR þrír diskar eiga það sam-
eiginlegt að vera að mestu teknir
upp í fyrra, útgefnir í ár og skarta
frábærum hljóðfæraleikurum. Allir
eru þeir gefnir út af aðstandendum
og eru tveir þeirra tónleikadiskar.
Ég heyrði tríóið B3 fyrst í Múl-
anum á Sóloni Íslandusi fyrir tveim-
ur árum. Þá nefndist það tríó Ás-
geirs Ásgeirssonar. Efnisskráin var
að mestu djassstandarðar, margir
eftir Wes Montgomery, sem er í
miklu uppáhaldi hjá Ásgeiri. Á því
herrans ári 2001 leit maður á Agnar
Má sem píanista fyrst og fremst, en
hann hafði lært fleira í New York hjá
Larry Goldings, enda Goldings einna
fremstur þeirra djassorgelista er
leika bassann með vinstri hendi. Stíll
hans er líka eins ólíkur stíl Jimmy
Smiths og stíll Agnars ólíkur stíl
Þóris Baldurssonar. Þessi tvö ár sem
B3 hefur starfað eru ár mikilla fram-
fara og á Jazzhátíð Reykjavíkur fóru
þeir á kostum með kanadíska tromp-
etleikaranum Ingrid Jensen. Á þess-
um diski er kannski helsti gallinn
hve rýþminn er veikur á stundum,
sérí lagi í hraðari ópusum. Trommu-
leikur Eriks og vinstri hönd Agnars
vantar oft herslumuninn uppá
sveiflustyrkinn. Afturá móti er tríóið
best í ballöðunum og þær eru marg-
ar sérdeilis fínar einsog Og hvað svo
eftir Ásgeir. Þarna má finna eitt af
snilldarverkum Agnars af 01, Open
Door, og svo eru ýmsir samkvæm-
isleikir iðkaðir einsog í Fes es blús
Ásgeirs. Fals Ásgeirs er grípandi og
Leeloo Agnars nýbopplína af bestu
sort. Sólólínur Agnars og Ásgeirs
eru margar hverjar sérdeilis fínar,
fullar af ferskum hugmyndum og
næmri lýrík. Það verður gaman að
heyra hvað þeir bjóða uppá á næsta
ári og orgeltríó er þetta þó ekki leiki
það í hinum klassíska stíl Jimmy
Smiths og félaga.
Tónar og hugleiðsla
Tónlistin á Tónn í tómið er frá tón-
leikum er píanósnillingarnir Agnar
Már Magnússon og Ástvaldur
Traustason Zen-búddisti héldu í boði
Félags íslenskra tónlistarmanna í
tilefni af sjötugasta starfsári FÍH í
nóvember í fyrra. Það voru ansi
magnaðir tónleikar þar sem kerta-
ljós juku á stemmninguna er tengja
skyldi huga áheyrenda innsta kjarna
þeirra og fá hann til að íhuga tilvist
sína. Ekki veit ég hvort það tókst en
magnað var upphafið er þeir gengu
um með málmskálar skreyttar og
neru með tréstautum; mögnuðu
smámsaman titrandi hljóð og settust
síðan við píanóin og spunnu impress-
jónískt tónaljóð, sem þó leitaði á
stríðari slóðir áðuren yfir lauk: Form
er tóm, tóm er form. Síðan hugleiddu
þeir tónaljóð Chick Corea: Barna-
söngur númer fjögur, sem var oft vel
rýþmískur. Stórskemmtilegur var
ópus Ástvaldar: Huglægt, þar sem
þeir nálguðust nýboppið á stundum.
Síðan má heyra jafn ólíka tónlist og
búlgarskt þjóðlag og íslenska sálma;
Heyr himna smiður og Faðir vor eft-
ir Þorkel Sigurbjörnsson, sem voru
sérdeilis fallega fluttir. Svo lauk
þessu einsog það byrjaði, Form er
form, tóm er tóm og félagarnir
struku skálarnar. Mér þykir þetta
hljóma nokkuð vel á geislaplötunni,
en ekki er ég viss um að mér veitist
auðvelt að tengja mig innsta kjarna
mínum við hlustunina. Þetta er fyrst
og fremst fínn píanódjass.
Sunna í Tékklandi
Þessi fjórða geislaplata Sunnu
Gunnlaugsdóttur er tekin upp á tón-
leikum í Reduta-djassklúbbnum í
Prag í mars í fyrra. Þá tónleikaför
hóf hún á Íslandi og lék m.a. í Kaffi-
leikhúsinu þar sem ég heyrði kvart-
ettinn. Mikið var hann betri mörgum
tónleikum síðar í Prag. Sérí lagi
Ohad saxófónleikari sem var einsog
útúr kortinu í Kaffileikhúsinu.
Fyrsta lagið er eftir Sunnu og nefn-
ist A Sleeping in The Grass, ekta
New York djassslagari í nýju hefð-
inni, sem líklegur er til vinsælda í
djasssamfélaginu. Afturá móti blikn-
aði hann, einsog flestir ópusarnir á
diskinum, í samanburði við A Gard-
en Someday. Einstaklega fögur ball-
aða og vel leikin sem býr yfir sterkri
dramatík í lokin. Sóló Sunnu er tær
og töfrandi og henni tókst oft vel upp
í einleiksköflum sínum þetta mars-
kvöld í Prag og bassaleikur Pavolka
fínn, meirað segja þegar hann brá
fyrir sig boganum. Eftir dálítið stirð-
an sóló Talmors í Shifting Sessions
leikur Sunna við hvern sinn fingur
og tekst að magna upp góða sveiflu.
Afturá móti finnst mér dálítið skorta
uppá slíkt í Upp á himins bláum
boga, eða Upon Heaven’s Blue Bow
einsog þjóðlagið okkar nefnist á
ensku og er gjarnan á efnisskrá
Sunnu. Ekki var ég heillaður af út-
setningu Sunnu á þessum húsgangi,
en það er virðingarvert að kynna
þjóðararfinn á erlendri grund.
Sólóspil Sunnu og bassaleikur
Pavolka er það besta á þessari plötu,
en Lemore er traustur trommari og
einstaka sinnum hefur Talmor sig
yfir meðalmennskuna í sólóum sín-
um.
Sunna er óhemju duglegur tónlist-
armaður og í janúar leggur hún að
nýju land undir fót og heldur frá
New York í tónleikaför um Evrópu.
Hún mun koma hér við á leiðinni
vestur yfir haf og leika á Hótel Borg
með nýjum kvartetti sínum þarsem
Loren Stillman saxisti og Eivind
Opsvik bassaleikari ganga til liðs við
hana og Scott. Maður er strax farinn
að hlakka til.
Hljómborðssveifla
og hugleiðsla
DJASS
Geisladiskar
B3: FALS
Agnar Már Magnússon orgel, Ásgeir Ás-
geirsson gítar og Erik Qvick trommur.
FLÝGLADÚETT: TÓNN Í TÓMIÐ
Agnar Már Magnússon og Ástvaldur
Traustason píanó.
SUNNA GUNNLAUGSDÓTTIR:
LIVE IN EUROPE
Ohad Talmor altósaxófón, Sunna Gunn-
laugsdóttir píanó, Matt Pavolka bassa
og Scott McLemore trommur.
Vernharður Linnet
ÞAÐ virðist næsta lygilegt þegar
hlustað er á þessa frambærilegu
frumraun hljómveitarinnar Doctuz
að liðsmenn hennar skuli einungis
vera 14 ára gamlir. En sú er nú raun-
in og varð ég fyrst vitni að þessum
gríðarlegu efnum er þeir tóku þátt í
Músíktilraunum í ár, þar sem Doctuz
höfnuðu í öðru sæti keppninnar og
var með réttu valin efnilegasta sveit-
in. Til að kóróna árangurinn var
sólógítarleikari sveitarinnar Gabríel
Markan Guð-
mundsson valinn
besti gítarleikari
Músíktilraunanna
í ár, enginn smá
heiður það fyrir
þetta ungan hljóð-
færaleikara í svo
fjölmennri og harðri keppni. En góð-
ur árangur í slíkri hljómsveitakeppni
verður marklaus með öllu ef honum
er ekki fylgt eftir með frekari fram-
förum, næstu skrefum í lífi efnilegr-
ar hljómsveitar, sem vitaskuld er að
láta á samstarfið og afraksturinn
reyna með því að gefa hann út. Og þá
prófraun hafa Doctuz-drengir tekist
á við óbangnir og standast hana í of-
análag með bravúr.
Friendship of 1 er sex laga plata
sem tekin var upp í ágúst fyrir stúd-
íótímana sem sveitin fékk að launum
fyrir annað sætið. Þetta er mikið
rokk. Mikill gítar. Mikil dramatík.
Lagasmíðarnar eru einfaldar en
uppbyggingin þeim mun marg-
snúnari og útpældari hjá þeim
drengjum, hvar melódían hvílir að
mestu í spennandi samspili tveggja
afar efnilegra gítarleikara. Hrynpar-
ið gefur þeim þó lítið eftir og heldur
vel um taumanna svo úr verða vel
uppbyggð og frambærileg lög. Best
eru upphafið og endirinn; hin tilfinn-
ingaríku „Angel’s Pond“ og „Friend-
ship of 1“, sérdeilis fínar og aflmiklar
rokkballöður sem ættu að vekja
áhuga flestra sem áhuga hafa á slíku.
Eðli málsins samkvæmt þarfnast
tónlistin vissrar slípunar og meiri
aga til þess að verða markvissari en
það er nokkuð sem ætti að lagast að
sjálfum sér með meiri spilamennsku
og frekari þroska. Ef þið standið
saman drengir, haldið ykkur við
efnið og vinnið áfram í því að finna
ykkar eigin hljóm þá er framtíðin
björt.
Tónlist
Efnilegar
músík-
tilraunir
Doctuz
Friendship of 1
Eigin útgáfa
Hljómsveitina Doctoz skipa: Oddur Júl-
íusson gítar og söngur, Sævar S. Guð-
mundsson bassi, Gabríel Markan sólógít-
ar og Júlíus Ó. Björgvinsson trommur.
Skarphéðinn Guðmundsson
Doctuz er tvímælalaust meðal mestu efna í íslensku rokki.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
CHICAGO eftir J.Kander og F.Ebb
Frumsýning su 18/1 kl 20 - UPPSELT
2. sýn fi 22/1 kl 20 - gul kort
3. sýn lau 24/1 kl 20 - rauð kort
4. sýn su 25/1 kl 20 - græn kort
5. sýn fi 29/1 kl 20 - blá kort
Fö 30/1 kl 20 - UPPSELT
Fö 6/2 kl 20,
Lau 7/2 kl 20
Miðasala: 568 8000
Opið í dag Þorláksmessu 10:00 - 20:00
Opið á aðfangadag: 10:00-12:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Meira (en) leikhús!
SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams
Forsýning fö 26/12 kl 20 - kr. 1.500
FRUMSÝNING lau 27/12 kl 20 - UPPSELT
Su 28/12 kl 20, Fö 2/1 kl 20, Lau 3/1 kl 20
Lau 10/1 kl 20, Su 11/1 kl 20
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fö 9/1 kl 20, Fö 23/1 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau 27/12 kl 14 - UPPSELT, Su 28/12 kl 14 - UPPSELT
Lau 3/1 kl 14 - UPPSELT, Su 4/1 kl 14,- UPPSELT
Lau 10/1 kl 14, Su 11/1 kl 14 Su 18/1 kl 14 - UPPSELT,
Lau 24/1 kl 14, Su 25/1 kl 14 - UPPSELT,
Lau 31/1 kl 14, Su 1/2 kl 14,
Lau 7/2 kl 14 - TÁKNMÁLSTÚLKUÐ SÝNING
TIL SÖLU ALLA DAGA:
*****************************************************************
LÍNU-LYKLAKIPPUR, LÍNU-GEISLADISKAR,
*********************************************************************
HERRA NÍELS, HESTURINN
*********************************************************************GJAFAKORT Á LÍNU LANGSOKK KR. 1.900
****************************************************************
GJAFAKORT Á CHICAGO KR. 2.900
****************************************************************
ALMENN GJAFAKORT - GILDA ENDALAUST
MÁN. 29/12 - KL. 19 UPPSELT
AUKASÝNING SUN. 4/1 - KL. 19 LAUS SÆTI
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Frumsýning 27. des. kl. 19.
- UPPSELT
2. sýn. lau. 3. jan. kl. 20
- laus sæti
3. sýn. sun. 11. jan. kl. 20
- laus sæti
Miðasala í síma 552 3000
Loftkastalinn
Sun. 28. des. kl. 20.00 laus sæti
Lau. 10. jan. kl. 20.00 laus sæti
Lau. 17. jan. kl. 20.00 laus sæti
Sveinsstykki
Arnars Jónssonar
Nýr einleikur
eftir Þorvald Þorsteinsson