Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 17 fjárhagsvanda Landspítalans.“ Elsa bætir við að reyndar liggi fyrir ein samþykkt Alþingis í tengslum við forgangsröðun. „Al- þingi hefur samþykkt samhljóða Heilbrigðisáætlun til ársins 2010. Þar er lögð sérstök áhersla á 7 at- riði, þ. á m. geðheilbrigði, hjarta- og heilavernd. Hvorugt þessara sviða hefur sloppið við niðurskurð í aðgerðunum á Landspítalanum að undanförnu. Heilbrigðisáætlun virðist þannig aðeins vera fínt plagg uppi í hillu.“ Lengst gengið í Oregon Elsa var spurð að því hvort það bæri vott um kjarkleysi stjórn- valda að hafa ekki tekið umræðuna um forgangsröðunina föstum tök- um. „Já, að vissu leyti. Samkvæmt siðareglum heilbrigðisstarfsfólks og læknaeiðnum ber heilbrigðis- starfsfólki að varðveita líf sjúk- lings eins lengi og hægt er. Þar eru í raun engar bremsur og með nýjustu tækni er sífellt hægt að lengja líf fólks. Sú spurning getur komið upp hvaða gæði felist í því lífi. Við erum því að tala um afar erfiðar siðfræðilegar spurningar. Sannleikurinn er auðvitað sá að þessi umræða er pólitískt mjög erfið þó hún sé bráðnauðsynleg. Ef við höfum takmarkað fé á milli handanna segir sig sjálft að við verðum að velja á milli þess að eyða mjög miklu fé í meðferð eins einstaklings til að framlengja kannski líf hans í 2 mánuði eða sama fé í að meðhöndla og auka til muna lífsgæði 10 til 20 manns. Við verðum einfaldlega að fara í gegn- um þessa umræðu á einhverjum tímapunkti.“ Er sá tímapunktur runninn upp eða getum við beðið? „Nei, ég held að við getum ekki beðið lengur með að fara í þessa umræðu. Stjórnvöld virðast hafa tekið ákvörðun um að ekki verði gengið lengra í fjárveitingum til heilbrigð- iskerfisins. Þá er eins gott að fara að skilgreina hverju við ætlum að sinna og hverju ekki.“ Elsa segir að víða hafi verið far- ið út í forgangsröðun í heilbrigð- iskerfinu, m.a. í Danmörku, Hol- landi og mörgum ríkjum Bandaríkjanna. „Einna lengst hef- ur verið gengið í Oregon í Banda- ríkjunum. Ég get nefnt að þar hafa verið lagðar ákveðnar línur í sam- bandi við beinmergsskipti. Hið op- inbera greiðir aðeins fyrir bein- mergsaðgerðir á börnum. Full- orðnum er hafnað á þeim forsend- um að aðgerðirnar séu dýrar og árangurinn takmarkaður. Fleiri ríki hafa fetað svipaða slóð og Oregon.“ Andlegt reiptog á spítulum Sigurbjörn tekur undir með Elsu um að stjórnmálamenn eigi að mæla fyrir um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Hann hefur í grein í Lækna- blaðinu (1. tbl. 2001) vakið athygli á því að samfélagið sé ekki lengur reiðubúið að mæta framförum í læknavísindum með auknum fjár- framlögum. Hið andlega reiptog sé hafið. Eitt birtingarform þess sé umræðan um forgangsröðun í heil- brigðisþjónustunni. „Og menn veigra sér við að taka á þeim spurningum sem varpað er fram,“ segir hann í greininni. „Þjóðfélagið virðist ætlast til þess, að læknar svari þeim í kyrrþey eins og þeir hafa gert fram að þessu og svo mjúklega, að það snerti helst eng- an nema að tjaldabaki. Læknar og hjúkrunarfólk hafa þess í stað tek- ið á móti með háværum hætti og krafizt svara um það, hvernig fara eigi með takmarkaða fjármuni. Og öllum reynist erfitt að fóta sig við þessar nýju aðstæður og leiðin sýnist torsótt með brauðið dýra út úr þokunni.“ Seinna í greininni segir Sigur- björn að hugsanlega megi komast með brauðið dýra út úr þokunni. „Vafalítið eru þegar fyrir hendi mannauður, athafnaþrá og sköp- unarmáttur innan heilbrigðisþjón- ustunnar til að bæta úr þeim skorti sem allsnægtaþjóðfélagið býr við. Það þarf einungis að leysa þetta afl úr læðingi,“ segir hann og bæt- ir við að meðulin séu til. „Hvað lækna varðar þá byggjast þau á því að treysta forræði þeirra yfir sjálfum sér og gera þá öllum óháða nema sjúklingum sínum og yfir- boðurum í læknastétt. Þetta verð- ur bezt gert með fjárhagslegu sjálfstæði þeirra innan sjúkrahúsa og utan. Því miður hefur þróunin verið andsælis þessari hugsun á síðustu áratugum fyrri aldar og hafa læknar jafnt sem aðrir dansað með í því miðstýringarkarnívali. Því er það jafn nauðsynlegt þeim eins og öðrum að leggja alvarlegan skerf til endurskoðunar þessara sjónarmiða. Við þurfum að opna augu handhafa ríkisvaldsins, kaup- anda þjónustunnar, fyrir þeim möguleikum, sem felast í aukinni verktöku heilbrigðisstarfsmanna, í stað þess að ríkið reki þjónustuna sjálft. Er það engin nýlunda.“ Aldraðir ekki með minni rétt Anna Elísabet segir varasamt að halda því fram að aldraðir hafi ein- hvern minni rétt heldur en ungt fólk eins og ýjað sé að í greininni. „Aldraðir geta lifað fullkomlega heilbrigðu og góðu lífi og eiga að sjálfsögðu jafnmikinn rétt á sér eins og allir aðrir. Við skulum heldur ekki gleyma því að árang- ursríkar forvarnir skila samfélag- inu sífellt hraustara fullorðnu fólki. Heilbrigður, 70 til 75 ára einstak- lingur, getur alveg ef hann vill skilað heilmiklu út í atvinnulífið. Á hinn bóginn er það athyglisverður punktur hjá höfundi að ekki sé endilega eftirsóknarvert að lifa sem lengst ef heilsan er farin. Flestum þykir miður að vera alveg upp á aðra komnir sökum elli og/ eða veikinda. Hins vegar má ekki gleyma því að lífslöngun fólks er yfirleitt mjög mikil, jafnvel í mikl- um veikindum.“ Anna Elísabet viðurkennir að einn angi af lífsgæðakapphlaupinu felist í auknum kröfum fólks til heilbrigðiskerfisins. „Við gerum sí- fellt meiri kröfu um bætta þjón- ustu og þar af leiðandi blæs kostn- aður heilbrigðiskerfisins stöðugt út. Ég ætla ekki að taka afstöðu til þess hvenær komið er að þeim mörkum að ekki eigi að verja meiri fjármunum til heilbrigðiskerfisins. Hlutverk stjórnvalda hlýtur í senn að vera að setja mörkin og taka ákvörðun um hvernig beri að for- gangsraða innan þeirra í heilbrigð- iskerfinu. Ég get þó sagt að mér finnst eðlilegt að ný tækni og jafnvel rán- dýr fari í gegnum gagnrýnið ábata- mat áður en hún er tekin upp,“ segir hún og leggur áherslu á gildi góðrar heilsu. „Við megum ekki gleyma því að þegar öllu er á botn- inn hvolft er góð heilsa mikilvæg- asti þátturinn í lífi hvers manns. Ef maður hefur ekki góða heilsu getur maður síður notið þeirra ver- aldlegu gæða sem maður er að elt- ast við.“ Stuðlað að kostnaðarvitund Formenn Læknafélags Íslands og Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga eru sammála um að nauð- synlegt sé að heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um kostnað við ákveðna þætti heilbrigðisþjónust- unnar. Sigurbjörn segir í samtali við Morgunblaðið fulla ástæðu til að stuðla að aukinni kostnaðarmeðvit- und lækna í tengslum við nýja tækni/lyf. „Það eru engin rök fyrir því að halda læknum illa upplýst- um um verð þeirrar meðferðar, sem þeir velja. Til eru dæmi um lækna, sem rekið hafa lyfjabúðir um árabil fyrir eigin reikning og hagnaðarvon, en lyfjareikningur- inn samt sem áður dregist saman í héruðum þeirra miðað við lands- meðaltal. Ein skýring þess gæti verið hin sífellda snerting læknanna við verð lyfjanna. Á hinn bóginn er fráleitt að nota kostn- aðinn sem svipu á lækna til að sveigja faglegar skoðanir þeirra og að þær fái ekki að koma fram í al- mannaþágu.“ Elsa segir að heilbrigðisstarfs- fólk og sérstaklega það sem er við stjórnvölinn hverju sinni verði að vera meðvitað um hvað þjónustan kosti. „Ég get nefnt að ef ný tækni/lyf eru dýrari en fyrri úr- ræði verður að vera alveg skýrt að ávinningur sé af því að taka þau inn, þ.e. ávinningurinn verður að réttlæta kostnaðaraukann. Spurn- ingin er hvort við höfum ekki stundum verið aðeins of nýjunga- gjörn á þessu sviði. Á hinn bóginn finnst mér stundum gleymast hversu mikil framleiðni felst í heil- brigðiskerfinu. Við erum auðvitað að búa til ákveðna vöru/afurð, þ.e. heilbrigðan einstakling. Sá maður getur farið aftur í vinnu, skilað sköttum til samfélagsins o.s.frv.“ Kemur ekki upp togstreita í huga heilbrigðisstarfsfólks við að eiga að spara og halda um leið siðareglur/læknaeið um að halda lífinu í fólki eins lengi og hægt er? „Jú, jú, auðvitað kemur upp tog- streita. Ég held að við séum komin einna lengst í því að huga bæði að lengd og gæðum lífsins í meðferð krabbameinssjúklinga. Heilbrigð- isstarfsfólk leggur sig fram við að lækna eða koma í veg fyrir að sjúkdómurinn haldi áfram að þróast. Ef illa gengur er síðan orð- in sátt um að á ákveðnu stigi verði ekki lengra gengið. Þá sé mest um vert að sjúklingurinn geti átt góð- an og þokkalega verkjalausan tíma með sínum nánustu. Viðkomandi geti fengið þjónustu heim, o.s.frv. Við erum ekki komin jafn langt á þessari braut í öðrum greinum. Þessa umræðu hefur kannski á vissan hátt skort í nám heilbrigð- isstéttanna. Annars er auðvitað mest um vert að farið verði í op- inbera stefnumörkun í forgangs- röðun.“ ago@mbl.is Ég get tekið undir með greinarhöfundium að við verðum að gera okkurgrein fyrir því hvað við viljum – kröf- um og kostnaði. Hins vegar er ég alls ekki sammála því að aldraðir eigi ekki að fá sömu fullkomnu heilbrigðisþjónustuna og aðrir eins og ýjað er að í greininni,“ segir Margrét Frí- mannsdóttir, talsmaður Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum. Margrét var spurð að því hvort hún teldi að þjóðin væri sammála stjórninni um að ekki ætti að leggja meira fjármagn til heilbrigð- iskerfisins í bili. „Ég held að þjóðin vilji að stjórnmálamenn skilgreini heilbrigðiskerfið betur en gert er. Hver eigi að gera hvað innan stofnananna. Engin vafi leikur á því að hægt er að ná utan um heilbrigðiskerfið og þá fjármuni sem þangað fara með því að skýra betur hlutverk hverrar stofn- unar fyrir sig,“ sagði hún og bætti við að forsendan fyrir því að hægt yrði að ná ut- an um kostnaðinn væri að heilsugæslan væri í lagi. „Ég er ekki í vafa um að hægt er að nýta peningana í kerfinu miklu betur. Þess vegna er ekkert víst að við þurfum að setja svo miklu hærri fjárhæðir, mikið stærri hluta af kökunni, í heilbrigðiskerfið til þess að viðhalda þeirri góðu þjónustu sem við höfum haft.“ Finnst þér að stjórnvöld ættu að setjast niður og ræða forgangsröðun? „Ef menn setjast niður og skilgreina hlutverk hverrar stofnunar verða þeir náttúrulega um leið að velta því fyrir sér hversu langt á að ganga á hverjum tíma.“ Hægt að nýta fjármuni betur Margrét Frímannsdóttir Ég tek sérstaklega eftir því aðCallahan segir að hægt sé aðrekja 40% af hagstæðri þróun í heilbrigðismálum til tækniframfara. Hin 60% endurspegli bættar félagslegar- og efnahagslegar aðstæður. Samkvæmt því virðast árangursríkustu forvarnirnar því felast í því að halda áfram að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður almennings,“ segir Jónína Bjartmarz, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. Forvarnir ofarlega á blaði Jónína segir að ekki hafi verið mótuð löggjöf um forgangsröðun af hálfu íslenskra stjórnvalda. „Nefnd um forgangsröðun skilaði frá sér skýrslu um forgangsröðun árið 1998. Ég tel að flestir geti verið sammála nefndinni um fyrstu þrjá forgangsflokkana í skýrslunni, t.d. bráðatilvikin og lífshættulegu sjúkdóm- ana. Deildari meiningar hljóta alltaf að vera um „gagn- semina“ í fjórða flokknum. Sú gagnrýni hefur heyrst að nefndin hefði átt að skýra betur hvað átt væri þar við. Áherslur stjórnvalda koma hvað best fram í Heilbrigð- isáætlun. Rétt eins og hjá Callahan eru forvarnir þar of- arlega á blaði og rík áhersla er lögð á ábyrgð fólks á eigin heilsu. Heilbrigðisáætlun er ekki forgangsröð- unarstefna heldur stefnumörkun þingsins. Hvað við stefnum á að fækka mikið tilteknum tilfellum innan heil- brigðiskerfisins.“ Jónína segir skýrt hvaða áherslur stjórnvöld leggi í tengslum við aðhaldsaðgerðirnar á Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi nú. „Í mínum huga er alveg ljóst að staðinn er vörður um meginhlutverk spítalans, sem er bráðaþjónustan og einnig um hlut spítalans í menntun heilbrigðisstéttanna. Við skulum ekki gleyma því að hópur þeirra sjúklinga sem liggja á spítalanum hefur lokið meðferð þar og bíður eftir öðrum og hentugri úr- ræðum. Í fjárlögunum er verið að létta ákveðnum vanda af spítalanum með því að leggja einn milljarð í fjölgun hjúkrunarrýma og hálfan milljarð í eflingu heilsugæsl- unnar,“ segir hún og bendir á að með uppbyggingu heilsugæslunnar sé létt álagi af bráðadeildum spítalans og uppbygging hjúkrunar- og öldrunarþjónustu sé ein helsta forsenda aukinna afkasta hátæknisjúkrahússins. Við umræðu um þær hagræðingaraðgerðir sem nú eru að koma til framkvæmda sé rétt að líta til þess að jafn- framt sé nú um helgina verið að taka í notkun nýja heilsugæslustöð og nýtt hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, sem hvort tveggja dragi úr álagi á sjúkrahúsið og skapi jafn- framt þörf fyrir ný störf sérmenntaðs heil- brigðisstarfsfólks. „Stjórn Læknaráðsins hefur m.a. bent á að óhagkvæmt sé að reka 3 dauðhreins- unardeildir, 2 eldhús og 5 bráðaþjónustur eins og gert er á spítalanum,“ segir Jónína og bætir við að þjónustan eigi ekki að versna þótt slíkar einingar séu sameinaðar og í raun megi spyrja til hvers ráðist hafi verið í sameininguna ef ekki til að leita hag- kvæmni í sameiningu af því tagi. Jónína vekur athygli á því að Callahan sé tíðrætt um fjölgun aldraðra í greininni. „Ég get ekki séð að þó hann sé að tala um að öldruðum fjölgi með tilheyrandi kostn- aði haldi hann því fram að þeir hafi einhvern minni rétt en þeir yngri. Aftur á móti verður því ekki neitað eins og kemur skýrt fram í greininni að hækkandi með- alaldur þjóða hefur afgerandi áhrif á kostnaðaraukningu innan heilbrigðiskerfisins,“ segir hún og minnir á að fleiri þættir hafi áhrif á kostnaðaraukninguna. „Hér á Ís- landi er meðalaldur fólks ekki jafn hár og víða í ná- grannalöndunum. Hins vegar hafa aðrir þættir afgerandi áhrif á kostnað innan heilbrigðiskerfisins, t.d. fámennið og dreifbýlið. Erlendis hefur því stundum verið haldið fram að milljón manns þurfi til að standa undir einu Há- skólasjúkrahúsi. Hér erum við innan við 300.000 sam- tals.“ Framboð og eftirspurn eftir þjónustu ráði ekki ferðinni „Callahan segir réttilega að framboð kyndi undir eft- irspurn,“ segir Jónína og bendir á að slíkt geti ekki gengið til lengdar. „Við getum hvorki látið framboð heil- brigðisþjónustu né eftirspurn, sem framboðið kyndir alltaf undir, ráða magninu. Með því erum við að stofna réttlætinu og félagslegum stöðugleika í hættu. Eins finnst mér athyglisvert að Callahan heldur því fram að úrræði eins og aukin kostnaðarþátttaka og einkavæðing grunnkerfisins hafi ekki mikil áhrif þegar fram líða stundir. Við þurfum að gera róttæka breytingu á því hvernig við hugsum um læknisfræði og heilbrigðisþjón- ustu – ekki aðeins finna nýja leið til að endurskipuleggja fyrra skipulag. Þess vegna fer hann að tala um þetta sjálfbæra og auðvitað getur enginn neitað því að ellin og dauðinn sigri alltaf að lokum.“ Framboð kyndir undir eftirspurn Jónína Bjartmarz Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ! Tilboðsdagar TIL 7. FEBRÚAR 10-60% afsláttur Rúmfatnaður, barnasett, sloppar, dúkar o.fl. 10% afsláttur af öllum öðrum rúmfatnaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.