Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 35
myndi vinna verk saman. Mér leist
ágætlega á það og setti saman
þennan hóp sem byrjaði að vinna í
júlí. Ég vildi að við ynnum eitt
heildstætt verk saman, sem hefði
einn karakter, þannig að áhorf-
endum fyndust þeir vera að koma
og sjá eitt verk, en ekki fimm ólík
verk eftir fimm einstaklinga,“ seg-
ir Egill Sæbjörnsson spurður um
samvinnuna. „Það má segja að við
séum að vinna með mörk leikhúss
og myndlistar, þar sem við blönd-
umsaman myndböndum, hljóði,
tónlist og rýmishugleiðingum,“
segir Egill sem hefur búið og
starfað í Berlín síðustu fimm ár.
Spurður hvers vegna hann telji
Berlín jafn heillandi borg fyrir
listafólk og raun ber vitni nefnir
Egill að afar hagstætt sé að búa í
borginni auk þess sem mikil
gróska sé í listalífinu.
Skoðar samfélagið
með hjálp barna
Aðspurð um verk sitt á sýning-
unni Berlin North segir Ósk Vil-
hjálmsdóttir það hluta af stærra
verkefni sem hún hafi verið að
vinna að í nokkur ár sem kalla
megi landnám. „Fyrir þessa sýn-
ingu tók ég viðtöl við íslensk-þýsk
börn upp á myndband þar sem ég
fékk þau til að lýsa draumahúsi
sínu. Börn endurspegla samfélagið
sem þau búa í á svo skemmtilegan
hátt. Þannig er ég í og með að
skoða samfélagið með hjálp
barnanna. Ég smíðaði síðan hús í
samræmi við hugmyndir barnanna
og varpa myndbandinu með þeim
inn í húsið. Auk þessa sýni ég líka
myndir frá Reykjavík, en síðustu
ár hef ég verið að skrásetja bygg-
ingaræðið sem greip um sig í borg-
inni kringum aldamótin. Ég er
með þrjár stórar myndir úr þeirri
myndaseríu sem virka sem
gluggar á húsið. Með þessu móti
stilli ég upp annars vegar draumi
barnanna gagnvart veruleikanum,“
segir Ósk, en hún bjó sjálf um ára-
bil í Berlín.
Að sögn Óskar hefur Berlín ver-
ið mikið í tísku síðustu ár. „Eitt af
því sem heillar við Berlín er að
hún er ekki eitthvað eitt, eins og
París og Lundúnir, þar sem borgin
er svo fjölbreytt og um leið óút-
reiknanleg. Falli múrsins fylgdi
mikið breytingarskeið sem hefur
haft afar örvandi áhrif á þessa
skapandi orku sem hér má finna. Í
dag er Berlín algjör suðupottur
allra lista og höfðar fyrir vikið afar
sterkt til listafólks í öllum grein-
um.“
Þess má geta að samhliða sýn-
ingunni í Hamburger Bahnhof
verður opnuð helgarsýning yngra
listafólks í þremur litlum galleríum
í nýja miðbæjarkjarnanum í Berlín
sem ber heitið Signals in the
Heavens og skipulögð er af Bryn-
dísi Ragnarsdóttur, Geirþrúði
Finnbogadóttur Hjörvar og Hugin
Þór Arasyni. Hafa þau fengið til
liðs við sig 17 unga myndlist-
armenn og hóp tónlistarmanna.
silja@mbl.is