Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MÁLIÐ ALVARLEGT Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segist líta það alvarlegum augum að hann hafi ekki verið boð- aður til ríkisráðsfundar sem haldinn var sl. sunnudag. Hann segir það enga afsökun að hann hafi ekki verið boðaður sökum þess að hann var er- lendis. Halldór Blöndal, sem sat í forsæti fundarins í fjarveru Ólafs, segir viðbrögð forsetans koma sér á óvart. Bíður aftur eftir nýju hjarta Helgi Einar Harðarson, rúmlega þrítugur Grindvíkingur, bíður þess öðru sinni að fá grætt í sig hjarta en í júní árið 1989 var hann annar Ís- lendingurinn á eftir Halldóri Hall- dórssyni sem fór í hjartaígræðslu á Brompton-sjúkrahúsinu í London. Útilokar kaup KB á SPRON Einar Oddur Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, hefur feng- ið heimild þingflokks sjálfstæðis- manna til að leggja fram frumvarp sem útilokar að KB banki eignist SPRON. Þingflokkur Samfylkingar hefur samþykkt að styðja frum- varpið sem verður rætt í viðskipta- og efnahagsnefnd og á ríkisstjórn- arfundi í dag. Rannsaka leyni- þjónustugögn George W. Bush Bandaríkja- forseti hyggst láta hefja víðtæka og óháða rannsókn á gögnunum sem bandarískar leyniþjónustustofnanir lögðu fram fyrir innrásina í Írak. Þetta er gert í ljósi þess að engin gereyðingarvopn hafa fundist þar. Landtökubyggðir rýmdar Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað að rýma skuli 17 landtökubyggðir á Gaza- svæðinu. Talsmenn landtökumanna eru æfir vegna þessa og hóta að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fella stjórnina. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 28 Viðskipti 14 Viðhorf 32 Erlent 15/17 Minningar 34/37 Heima 18 Kirkjustarf 39 Höfuðborgin 19 Bréf 42 Akureyri 20 Dagbók 44/45 Suðurnes 21 Sport 46/49 Austurland 22 Kvikmyndir 50 Landið 23 Fólk 50/53 Daglegt líf 24 Bíó 50/53 Listir 25/26 Ljósvakar 54 Umræðan 27/32 Veður 55 * * * Kynning – Með blaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið Sparimagasín. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is KUONI nemur land! Straumhvörf í íslenskri ferðaþjónustu Kíktu í heimsókn BANASLYS varð í umferðinni í Reykjavík þegar fólksbíll og stór sendiferðabíll lentu saman á Höfðabakka við Árbæjarsafn rétt fyrir 10 í gærmorgun. Hinn látni hét Viðar Óskarsson, til heim- ilis í Glæsibæ 14. Viðar var 63 ára gamall og lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Bílarnir voru að koma hvor úr sinni átt- inni þegar þeir lentu saman. Ökumaður fólksbílsins lést í slysinu, en hann var einn í bílnum. Ökumaður sendiferðabílsins slasað- ist einnig og var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku, en hann var að sögn lögreglu ekki talinn alvarlega slasaður. Tildrög slyssins eru óljós og eru þau í rannsókn hjá rannsóknarnefnd umferðar- slysa. Höfðabakki, milli Bæjarháls og Stekkjarbakka, var lokaður í um tvær klukkustundir eftir slysið. Morgunblaðið/Júlíus Fólksbíllinn sem lenti í slysinu var gjörónýtur eftir harðan árekstur. Lést í umferðar- slysi á Höfðabakka Viðar Óskarsson SINNEPSGAS hefur fundist í sprengikúlu á Íslandi þó langt sé um liðið og olli hún slysi á sínum tíma. Talið var í fyrstu að sinnepsgas væri í sprengikúlunum sem Íslendingar fundu í Írak 9. janúar síðastliðinn. Síðar kom þó í ljós að sprengikúl- urnar innihéldu ekki eiturefni. Sinnepsgas var í sprengikúlu sem kom upp af botni Faxaflóa 1959–60 þegar dælt var upp skeljasandi til nota í Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi. Sprengikúlan sprakk þeg- ar unnið var með sandinn í verksmiðj- unni og slasaði einn mann. Sigmundur Guðbjarnason prófess- or, sem var fyrsti framleiðslustjóri Sementsverksmiðjunnar, sagði, að skeljasandi fyrir verksmiðjuna hefði verið dælt upp af botni Faxaflóans. Með sandinum hefði komið upp lítill hlutur sem hefði farið með sandinum á færibandi inn í verksmiðjuna. Þar hefði hluturinn stíflað kvörn sem hefði haft það hlutverk að mala grjót sem var of stórt en hafði komist í gegnum þar til gerða síu. Einn starfs- manna hefði reynt að losa hlutinn úr kvörninni og þá hefði hluturinn sprungið framan í hann og í ljós hefði komið að um sinnepsgassprengju var að ræða. Maðurinn hefði lifað af en hefði þurft að vera á sjúkrahúsi dá- góðan tíma. Sigmundur sagði að talið hefði ver- ið að um sprengju hefði verið að ræða sem komið hefði hingað til lands með Bretum í síðari heimsstyrjöldinni og hefðu þeir fleygt henni í Faxaflóann þegar þeir fóru héðan af landi brott. Sinnepsgassprengja sprakk í Sementsverk- smiðjunni fyrir 40 árum VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist í pistli á vefsíðu sinni meta það svo að fyr- irtækið Atlantsál, sem ráðgert hefur byggingu ál- vers við Húsavík, uppfylli ekki þær kröfur sem gera verði til þeirra fyrirtækja sem ráðuneytið eigi samstarf við um stóriðjukosti. Fram kemur að stjórnvöld hafi lagt umtalsverða fjármuni í rann- sóknir vegna þessa verkefnis og beinn kostnaður MIL, Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar, hafi verið um 37 milljónir króna. „Að mínu mati hefur fyrirtækið hvorki fjárhags- lega burði né tæknilega getu til verkefnisins og hefur samstarfinu því verið slitið. Forsvarsmönn- um fyrirtækisins hefur verið gerð grein fyrir þessu. Fjárhagsstaða Altech réði engu um afstöðu ráðuneytisins enda um annan aðila að ræða,“ segir Valgerður m.a. og er þar að svara frétt sem birtist í Morgunblaðinu sl. föstudag. Segir hún að þar hafi verið gefið í skyn að það standi á samþykki iðn- aðarráðuneytisins svo Atlantsál geti haldið áfram undirbúningi við byggingu álvers við Húsavík. Öll- um sé frjálst að undirbúa byggingu álvers, til þess þurfi ekki samþykki eða leyfi frá ráðuneytinu. Valgerður rifjar upp að fyrir tveimur árum hafi verið gerðir samningar við Atlantsál um hag- kvæmniathugun á álvinnslu í Eyjafirði eða við Húsavík og súrálsvinnslu við Húsavík. Síðla árs 2002 hafi vaknað efasemdir hjá MIL um getu Atl- antsáls til að koma verkefninu í höfn. Efasemd- irnar hafi leitt til þess að MIL óskaði eftir endur- skoðun á samningum við Atlantsál í ársbyrjun 2003. Skilyrðum MIL fyrir endurnýjun samninga hafi Atlantsál ekki náð að fullnægja. Síðan segir Valgerður að um mitt síðasta ár hafi fulltrúar Atl- antsáls ákveðið án samráðs við ráðuneytið og MIL að fresta frekari undirbúningi að súrálsverk- smiðju en lagt áherslu á að flýta undirbúningi ál- vers svo það gæti tekið til starfa á undan álveri Al- coa. Ráðherra segir að sú tímasetning hafi að mati orkufyrirtækja verið „með öllu óraunhæf“. „Ráðuneytið metur það svo að ekki sé verið að kynna fjárfestahóp, heldur hóp aðila sem lýsa yfir áhuga á verkefninu. Allar skuldbindingar af hálfu fyrirtækjanna vantar, auk þess sem reynsla þeirra af áliðnaði er mjög takmörkuð. Ráðuneytið metur það svo að þessi hópur sé ekki líklegur til þess að ná samningum við banka um fjármögnun verkefn- isins,“ segir Valgerður á vefsíðu sinni. Iðnaðarráðherra um fyrirtækið Atlantsál sem vill reisa álver við Húsavík Hefur hvorki fjárhagslega burði né tæknilega getu ELSTI núlifandi Íslendingurinn, Guðfinna Einarsdóttir, varð 107 ára í gær, 2. febrúar. Hún býr í Reykjavík á heimili dóttur sinnar, Jóhönnu Þorbjarnar- dóttur, og að sögn Jóhönnu var heitt á könn- unni í gær fyrir þá sem litu í heimsókn. Að öðru leyti hefði ekki verið haldið sérstaklega upp á daginn. Jóhanna segir móður sína við þokkalega heilsu, sjónin sé farin að daprast en hún fari daglega á fætur og gangi um íbúðina með göngu- grind við hönd. Að öðru leyti sé hún sæmilega ern og kippi sér ekki mik- ið upp við það að vera orðin elst Ís- lendinga. Guðfinna er fædd á Leysingja- stöðum í Dalasýslu 2. febrúar árið 1897 og ólst upp þar um slóðir. Hún var um tíma í vist í Reykjavík og gekk í kvennaskólann á Blönduósi. Í rúm 20 ár var hún hússtýra á heimili Sigurðar Sigurðssonar í Hvítadal en undanfarna rúma þrjá áratugi hefur hún búið á heimili Jó- hönnu, dóttur sinnar, í Reykjavík. Auk Guðfinnu er önnur kona á lífi sem fædd er árið 1897 en hún verður 107 ára í ágústmánuði næst- komandi, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Elsti Ís- lendingur- inn 107 ára Guðfinna Einarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.