Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu DJÚPIVOGUR EFTIR SÓLNÝJU PÁLSDÓTTUR FRÉTTARITARA Nú er janúar liðinn og dagarnir orðnir lengri og bjartari. Hér á Djúpavogi er janúar dálítið sérstakur mánuður því hann nota bæjarbúar til að undirbúa hið árlega þorra- blót. Þorrablót sem hver einasti maður með mönnum mætir að sjálfsögðu á. Um leið og jólaljósin slokkna tekur fólkið til starfa sem árinu áður hefur verið kosið í nefnd. Það er mikil ábyrgð að vera í þorrablótsnefnd, þetta er jú hápunktur skemmtanalífsins á staðnum og því mikilvægt að vel takist til. Nú og svo verður auðvitað að toppa blótið frá því í fyrra þó svo að þeir sem að því stóðu telji það ekki hægt svo frábært hafi það verið.    Ákaffihúsunum sitja menn og rifja upp at- burði síðasta árs. Keppast við að muna eftir einhverju sem einhver lenti í. Einhverju fyndnu og jafnvel neyðarlegu sem hægt er að taka fyrir á blótinu. Muna samt að fara ekki yfir strikið, bannað að særa svo grann- inn fari ekki í fýlu. Passa að taka ekki neinn sérstakan fyrir en mikilvægast er þó að gleyma ekki neinum. Það er nefnilega það versta sem hægt er að lenda í. Að enginn muni eftir manni og minnist ekki á mann þegar hátíðin hefst. Um síðustu helgi rann svo stóra stundin upp. Troðfullt hús og mikil stemning. Ótrú- legasta fólk söng og dansaði á sviðinu við mikinn fögnuð áhorfenda. En auðvitað tókst nefndinni ekki að toppa síðasta þorrablót. Það fannst Jónasi allavega. En það er kannski ekki að marka. Hann var formaður í fyrra.    Já, það er gaman að vera til á Djúpavogi. Hér búa um 500 manns en samt er hér mikil kaffihúsamenning. Ef mig langar í kakó og heimabakaðar kökur fer ég í Löngubúð, ef mig langar í humar og flottheit fer ég á Hótel Framtíð og ef mig langar í hamborgara og kók fer ég á Við Voginn en þar slær hjarta bæjarins. Þar ræða menn atvinnumálin. Ástandið hefur verið ágætt og flestir haft vinnu.    Loðnan berst að landi og fullt af fiski. Framundan eru endurbætur við báðar hafn- irnar á staðnum og tjaldstæðið á að taka í gegn með vorinu. Og það á að fara að byggja nýjan leikskóla. Ekki eru allir sammála um hvar hann eigi að rísa en búið er að skipa byggingarnefnd sem tekur endanlega ákvörðun. Leikskólinn á að vera 220 fer- metrar og rúma 30 börn. Það er því nóg að gera í litla þorpinu undir hömrunum háu. Hér þarf engum að leiðast. Og það er um að gera að taka þátt í því sem er um að vera. Garðyrkjuskólinn,Félag blóma-skreyta og Félag blómaverslana standa að Íslandsmeistarakeppni í blómaskreytingum laug- ardaginn 28. febrúar í tengslum við sýninguna, „Matur 2004“, sem fer fram í Smáranum í Kópa- vogi helgina 26.–29. febr- úar. Keppnin er öllum op- in en þetta er annað árið í röð sem hún er haldin. Keppt verður í frístand- andi skreytingu og blóm- vendi. Line Christiansen, danskur blómaskreyt- ingameistari verður yf- irdómari í keppninni. Tilkynna þarf þátttöku í Íslandsmeistarakeppnina fyrir 10. febrúar og greiða þarf 10.000 króna þátt- tökugjald við skráningu. Skreyting Ný stjórn var kjörin á aðalfundi MyndlistarfélagsÁrnessýslu sem haldinn var í Listasafni Árnes-inga í Hveragerði um helgina. Kristján Finns- son var kjörinn formaður í stað Kára Jónssonar og Kristín Konráðsdóttir var kjörin gjaldkeri í stað Ellisifjar Bjarnadóttur. Í skýrslu stjórnar kom fram að námskeiðahald hefði legið niðri allt síðasta ár vegna húsnæðisleysis og fjárskorts en félagið hélt þó tvær sýningar á árinu. Fyrir dyrum stendur að halda olíu- málunarnámskeið sem haldið verður á tíu laug- ardögum fram til vors og mun kennslan fara fram í vinnustofu Listasafnsins í Hveragerði. Morgunblaðið/Kári Jónsson Ný myndlistarstjórn Jón Ingvar Jónssonlenti í því á dög-unum að buxurnar blotnuðu og fékk hann lánaðar buxur hjá Hjálm- ari Gíslasyni. Mikið eru málin röng, mér finnst allt of lítill básinn, hægri skálmin helst til þröng, hef því opinn rennilásinn. Í framhaldi af vísum um Smjörvatnsheiði var bent á að Heljardalsheiði, gam- all fjallvegur milli Svarf- aðardals og Heljardals, hefði einnig þótt erfið yf- irferðar og menn lent þar í hrakningum: Heljardals er heiðin níð haldin með allskyns lýti. Fjandinn hefur á fyrri tíð flúið þaðan í Víti. Einar Kolbeinsson hvetur hagyrðinga til dáða. Yrkið ljóðin, glæðið glóð, geymið slóða háttinn. Styrkið móðinn, eflið óð, egnið fróða máttinn. Básinn lítill Akranes | Fæðingum á Sjúkrahúsi Akraness fjölgaði um 50 milli áranna 2002 og 2003, en á nýliðnu ári fæddust þar 208 börn, 103 stúlkur og 105 drengir, á móti 158 börnum árið 2002. Það ár fæddust reyndar færri börn á sjúkrahúsinu en að jafnaði. Fjölgunin á milli áranna 2002 og 2003 nemur ríflega 30%. Framkvæmdir við nýja kvennadeild á Sjúkrahúsi Akraness eru nú á lokastigi en þær hafa staðið yfir undanfarna 12 mánuði. Gert er ráð fyrir að starfsemi á deildinni hefjist í mars nk. Nýja deildin fær nú aukið rými til afnota sem skap- aðist við flutning skurðdeildar í aðra álmu stofnunarinnar haustið 2000. Deildin skiptist í fæðingardeild, þar sem rými verður fyrir sex sængurkonur í senn, og kvensjúkdómadeild, þar sem rúm verða fyrir fjóra sjúklinga. Fæðingum fjölgar á Sjúkrahúsi Akraness BÆJARÁÐ Árborgar tók fyrir erindi frá Tónlistarskóla Reykjavíkur 29. janúar. Um var að ræða beiðni um endurskoðun ákvörðunar varðandi greiðslu fyrir tónlistar- nám í Reykjavík. Á fundinum voru lagðar fram nýjar upplýsingar í málinu. Með tilvísun til þeirra samþykkir bæj- arráð áframhaldandi stuðning við þá nem- endur sem nú eru í námi, og uppfylla skilyrði reglnanna. Ákvörðunin gildir til loka yfirstandandi skólaárs og miðar að því að nemendurnir geti lokið önninni. Endurskoðun á vinnureglum um út- hlutun lóða í Árborg var tekin fyrir á sama bæjarráðsfundi. Á fundinum sam- þykkti bæjarráð nýjar vinnureglur með þeirri breytingu að fulltrúi sýslumanns verði viðstaddur útdrátt á lóðum. Stuðningur við tón- listarnám ♦♦♦ Mývatnssveit | Veiði er heim- iluð í Mývatni frá 1. febrúar. Þá er sumum orðið mál að komast á vatn með netin sín og þann bún- að sem til þarf að koma þeim undir ís. Þeir frændurnir Jón Ingi Hinriksson og Jakob Stef- ánsson, bændur í Vogum, eru með þeim fyrstu til að leggja að þessu sinni og ferðast þeir á vél- sleða því ekki er bílfært um vatnið nú vegna snjódyngju. Þeir sögðu ísinn um 40 cm þykk- an sem telst ekki mikið. Febr- úar heilsaði með fegursta veðri í Mývatnssveit í 11° frosti. Sveitin öll þakin mjöll svo betra getur það ekki orðið. Morgunblaðið/BFH Heimilt að hefja veiðar Mývatn NÝLEGA heimsótti áhöfn björg- unarbátsins Ásgríms S. Björnssonar og sjóflokkur björgunarsveitar Ár- sæls flugdeild Landhelgisgæslunnar og kynnti sér starfsemi hennar og tækjakost. Góð samvinna hefur verið milli Landhelgisgæslunnar og áhafn- ar björgunarbátsins og sjóflokksins. Daginn sem heimsóknin átti sér stað hafði áhöfn björgunarbátsins að- stoðað áhöfn TF-LÍF við þjálfun í notkun björgunarnets. Björg- unarbáturinn var hafður tiltækur ásamt áhöfn ef eitthvað færi úrskeiðis en það er nauðsynleg örygg- isráðstöfun við slíkar aðstæður. Í heimsókn hjá flugdeild
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.