Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 44
DAGBÓK
44 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg 5.
Fataúthlutun kl. 16–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulín.
Verslunarferð í Hag-
kaup miðvikud. kl.10.
Rútuferð frá Granda-
vegi og Aflagranda.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað, kl. 10
samverustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa 9–16.30, leikfimi
kl. 10–11, verslunarferð
í Bónus kl. 12.40, bóka-
bíllinn kl. 13.15–13.45.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellsbæ, Hlað-
hömrum. Kl. 13–16
föndur, spil og bók-
band, kl. 16–17 leikfimi
og jóga, kl. 16 spænska,
tölvunámskeið í Lága-
fellsskóla, kl. 16–17.30.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Leir kl. 10,
kínversk leikfimi kl. 12
karlaleikfimi og málun
kl. 13, tréskurður kl.
13.30. Lokað í Garða-
bergi e.h. en opið hús í
Kirkjuhvoli. Í samstarfi
við Félag eldri borgara
í Garðabæ verður farið í
rútuferð í Garðinn
föstud. 6. feb. Lagt af
stað frá Garðabergi kl.
13, ekki verður fé-
lagsvist í Garðabergi
þann dag. Skráning í s.
525 8590 eða 820 8553.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Opnað kl. 9, billjardsal-
urinn opinn til kl. 16,
leikfimi í Bjarkarhúsinu
kl. 11.30, bridge kl. 13,
saumar kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13, alkort kl.
13.30. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar ganga
frá Ásgarði kl. 10.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna, kl.
9.30 gler og postulíns-
málun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 10.50
róleg leikfimi, kl. 14
ganga, kl. 14.45 boccia,
kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.05 og 9.55 leik-
fimi, kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handavinnu-
stofan opin, kl. 13 brids-
kennsla.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list og línudans, kl. 15
línudans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–10 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 9.45
baknaþjónusta, kl.
13.30 helgistund.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun, miðvikudag,
„gaman saman“ Mið-
garði kl.14.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 13 hand-
mennt, og postulín, kl.
14 félagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
almennt föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Leshópur FEBK í Gull-
smára 13. Eldri borg-
arar lesa eigin ljóð og
laust mál, „heima-
brugg“, í kvöld, kl. 20–
21.30.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12,
kl. 20 bingó.
Bókasafn Kópavogs
Tóvinnu- og kvæða-
stund kl. 17.30, tó-
vinnukonur frá Heim-
ilisiðnaðarfélagi Íslands
og kvæðamenn frá
Kvæðamannafélaginu
verða á staðnum.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10 ganga,
kl.13 boccia
Í dag er þriðjudagur 3. febrúar,
34. dagur ársins 2004, Blas-
íumessa. Orð dagsins: Vakna þú,
sál mín, vakna þú harpa og gígja,
ég vil vekja morgunroðann.
(Sl. 57, 9.)
Hér og þar hafa pistla-höfundar stungið
niður penna í tilefni af
hundrað ára afmæli
heimastjórnar á Íslandi.
Ætli það sé nokkurtsvið, já nema
kannski andagift skálda,
þar sem framfarirnar
hafa ekki verið ævintýri
líkastar á Íslandi þá öld
sem liðin er frá því Ís-
lendingar fengu heima-
stjórn, íslenskan ráð-
herra, áðurnefndan
Hannes Hafstein?“ segir
m.a. í Vefþjóðviljanum.
„Auðvitað ræðst ekki allt
af því hver situr inni í
stjórnarráðinu hverju
sinni. Það hefðu orðið
framfarir á Íslandi þó ör-
lögin hefðu gert aðrar
ráðstafanir að þessu
leyti. Og hversu til-
komumiklir eða gagns-
lausir sem æðstu menn
eru hverju sinni, þá hlýt-
ur auðvitað mest að ráð-
ast af hinum almenna
manni, vinnu hans, hug-
myndaflugi og atorku.
En það var Hannes Haf-
stein sem sló kordurnar
þegar sókn Íslendinga
hófst fyrir alvöru og eng-
inn einn maður á meiri
þátt í því hvernig upphaf-
ið tókst. Fyrir það, eins
og fleira, er Íslendingum
óhætt að minnast Hann-
esar með virðingu. Hann-
esi var reyndar sýnd mis-
mikil virðing á
stjórnmálaferli sínum.
Eins og menn vita þá er
drengskapur, einlægur
vilji til góðra verka og
góður árangur engin
trygging fyrir því að
nema hluti manna hafi
stjórnmálamann í háveg-
um. Slíkir eiginleikar
virðast meira að segja
iðulega ná að magna upp
heift og jafnvel hatur
ákveðinna afla.“
Ekki er sama hátíð-arstemmning í skrif-
um Eiríks Bergmanns
Einarssonar á Kreml: „Í
gær var minnst hundrað
ára afmælis heimastjórn-
arinnar, enda sosum
ástæða til, nokkuð merki-
legur dagur í sögu þjóð-
ar, eins og margir aðrir.
Heimastjórnin var sann-
arlega heillaspor í sögu
Íslands, en mikið var
samt eitthvað hjákátlegt
að fylgjast með rík-
ishátíðardagskránni í
gær. Þetta var hátíð
Flokksins. Flokksmenn í
hverju rúmi, hvort sem
var í Sjónvarpinu eða
Þjóðmenningarhúsinu.
Mann klígjar við.“
Áfram heldur Eiríkur:
„Verra þykir mér þó að
forsætisráðherrann hefur
undanfarið hamast við að
endurskrifa Íslandssög-
una. Ekki aðeins með því
að færa persónudýrkun í
hærri hæðir en áður, með
slepjulegri dýrlingagerð í
endurhönnun sinni á
minningu Hannesar Haf-
stein, en ef marka má
ummæli Davíðs virðist
sem Hannes hafi einn og
óstuddur fært Ísland frá
örbirgð til bjargálna.
Ekki dettur mér í hug
að gera lítið úr hlut
Hannesar Hafstein, en
hann var jú bara einn af
mörgum sem hafa tekið
þátt í að móta þetta þjóð-
félag.“
STAKSTEINAR
Hundrað ára
heimastjórn
Víkverji skrifar...
Víkverji tekur hatt sinn ofan fyrirIan Walker markverði Leicest-
er City í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Mitt í því að leikmenn
Aston Villa létu flóðbylgju marka
ganga yfir aumingja manninn á
laugardag réðst einhver ósiðaður
stuðningsmaður Leicester inn á
völlinn og lét skammirnar dynja á
honum. Walker lét vitaskuld ekki
bjóða sér þetta, keyrði dónann í
grasið og þjarmaði hressilega að
honum uns Jeff Winter dómari
leiksins gekk í milli.
Einhverjum brá við þetta. Meðal
annars voru sparkspekingar Sýnar,
Guðni Bergsson og Heimir Karls-
son, fölir af skelfingu þegar þeir
sýndu atvikið í þætti sínum. Vildu
helst senda markvörðinn í langt
keppnisbann. Þvílíkur misskiln-
ingur. Ian Walker gerði það eina
rétta í stöðunni. Hlaup áhorfenda
inn á knattspyrnuvelli, klæddra
sem allsberra, eru óþolandi ljóður á
hinum göfuga leik og þau ber að
uppræta með öllum tiltækum ráð-
um. Reglurnar eru í raun afar ein-
faldar: Leikmenn eiga að vera inni
á vellinum, áhorfendur uppi í
stúku. Menn sem skilja þetta ekki
á hiklaust að taka miðaldatökum.
Og ef öryggisverðir eru ekki snarp-
ari en þetta er eðlilegt að leikmenn
taki málin í sínar hendur. Öryggi
þeirra er í húfi.
x x x
Eitt ógeðfelldasta atvikið í enskuknattspyrnunni á síðustu leiktíð
átti sér svipaðan aðdraganda. Peter
Enckelman, þáverandi markverði
Aston Villa, urðu þá á skelfileg
mistök í leik gegn Birmingham svo
af hlaust mark. Hljóp þá ekki einn
slápurinn inn á og geiflaði sig
framan í aumingja Enckelman.
Eins og smán hans væri ekki nóg
fyrir. Enckelman lét kauða raunar
afskiptalausan og hlaut lof fyrir.
Hann hefði þó vel mátt skella hon-
um flötum. Líklega hefði Walker
gert það.
Svo eru þessi atvik sýnd aftur og
aftur í sjónvarpi og menn hlæja að
þessu út um bæi. Einkum ef inn-
rásarmennirnir böðlast um á besef-
anum. Þvílík kímnigáfa! Nei, takk.
Hegðun af þessu tagi er ósvinna og
henni ber að útrýma. Ferfalt húrra
fyrir Ian Walker!
x x x
Fyrir utan þetta skemmti Víkverjisér vel yfir ensku knattspyrn-
unni á laugardag. Leikir Manchest-
er United og Southampton annars
vegar og Liverpool og Everton
hins vegar voru svo hraðir og
skemmtilegir á að horfa að Víkverji
var hreinlega móður – ef ekki bara
sveittur – þegar hann steig upp úr
stólnum. Á eftir dugði ekkert ann-
að en köld sturta.
Enska knattspyrnan er engu lík!
AP
Maður helgarinnar, Ian Walker,
sýnir dónanum hvar Davíð
keypti ölið.
Öryrki eða ekki
ÞAÐ er mikið talað um ör-
yrkja í dag sem oft áður og
öryrkjar eru allra góðra
gjalda verðir, svo sannar-
lega. En í fyrsta skipti um
daginn varð ég sammála
Davíð Oddssyni þegar hann
talaði um breytt mat á ör-
orku. Það eru ekki allir ör-
yrkjar sem ganga undir því
nafni. Það eru margir sem
vilja vera það en sem sigla
undir svarta fánanum. Sem
sagt, vinna á þessum litlu
vinnustöðum sem enginn
fylgist með hvort þar séu
menn á vinnuskrá eða ekki.
Og þar með er það svartur
vinnustaður að mínu mati.
Þetta fólk borgar ekki í
lífeyrissjóð eða verkalýðs-
gjöld og þar með ekki
vinnuveitandi. Þegar þetta
fólk fer á aldur fær það ekki
greitt úr neinum sjóðum en
það skilur heldur ekki af
hverju það fær ekki
greiðslur úr kerfinu sem
það kallar svo. Og er sára-
óánægt með frammistöðu
ríkisins að greiða því ekki
hærri laun á elliárunum.
Ég tel að sá maður eða
kona sem er 75% öryrki og
getur ekki unnið fullan
vinnudag geti ekki frekar
unnið undir svarta flagginu
bara af því að hann eða hún
er búin að láta dæma sig ör-
yrkja. Af hverju getur hún
eða hann ekki unnið sama
tíma án nafnbótarinnar?
Á maður ekki að vera
ánægður yfir því að vera
heilbrigður og geta stundað
vinnu eins og heilbrigður
sé? Það er enginn öfunds-
verður sem er raunveruleg-
ur öryrki.
Kristjana
Vagnsdóttir
Frammíköll
skemma fyrir
ÉG vil aðeins tjá mig um
þættina Ísland í dag og Ís-
land í bítið, þætti sem ég er
nú eiginlega hætt að horfa
á. Ástæðan fyrir því er að
mér finnst umsjónarmenn
grípa svo mikið frammí
fyrir viðmælendum að þeir
ná ekki almennilega að tjá
sig um það sem þeir eru
spurðir um. Ég horfi helst
ekki á Ísland í dag nema
Þórhallur sé einn. Þetta
eru þættir sem gaman get-
ur verið að horfa á en þessi
frammíköll skemma mikið
fyrir.
Sigrún Guðmundsdóttir.
Tapað/fundið
Hanskar í óskilum
HANSKAR úr leðri fund-
ust fyrir utan Háskólabíó
11. janúar. Upplýsingar í
síma 552 5422.
Rúskinnsalpahúfa
týndist
SVÖRT rúskinnsalpahúfa
týndist á Vesturgötu sl.
mánudag. Húfan er eiganda
mikils virði. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
861 4553.
Dýrahald
Sebrafinkur eða
finkur óskast gefins
GETUR einhver gefið mér
sebrafinkur og búr? Upp-
lýsingar í síma 567 2694.
Kettlingar
fást gefins
ÞRÍR 7 vikna, gullfallegir
og kassavanir kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í
síma 866 6349.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 sjóðvitlaus, 8 sporið, 9
svali, 10 endir, 11 setja í
óreiðu, 13 niðurfelling,
15 viðlags, 18 reiðar, 21
streð, 22 ósönnu, 23 smá-
gerði, 24 handavinna.
LÓÐRÉTT
2 ákvað, 3 ávöxtur, 4
tæla, 5 snaginn, 6 ólmar,
7 tölustafur, 12 hrós, 14
illmenni, 15 gleðskap, 16
ráfa, 17 frétt, 18 dugleg-
ar, 19 dáni, 20 sleit.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 Sævar, 4 borða, 7 féllu, 8 lagin, 9 fes, 11 ræða,
13 saur, 14 kaggi, 15 fána, 17 frek, 20 fró, 22 lifur, 23 lof-
ar, 24 sætum, 25 Ránar.
Lóðrétt: 1 sófar, 2 volað, 3 rauf, 4 bols, 5 rugga, 6 agnar,
10 elgur, 12 aka, 13 Sif, 15 felds, 16 nefnt, 18 rófan, 19
kærar, 20 fróm, 21 ólar.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16