Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 21
3ja-4ra í Fellum
eða Bergum óskast
Nánari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson
hjá Heimili fasteignasölu í síma 530 6500.
sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson
löggiltur fasteignasali
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Vantar nauðsynlega 3ja-4ra herbergja íbúð í Fell-
um eða Bergum sem næst Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Þarf ekki að vera laus til afhendingar
fyrr en um mitt sumar. Allar frekari upplýsingar
veitir Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali í
síma 895 1098.
Finnbogi Hilmarsson,
lögg. fasteignasali.
Reykjanesbær | Skilti með nafni
Reykjanesbæjar sem komið hefur
verið upp á Vogastapa hefur verið
lýst upp. Var það gert við sérstaka
athöfn undir kvöld í gær, á kynd-
ilmessu. Mannvirkið kostar tæpar
þrjár milljónir kr.
Skiltið er á mörkum Vatnsleysu-
strandarhrepps og Njarðvíkur. Það
á að vera nokkurs konar bæjarhlið,
sýna vegfarendum um Reykjanes-
braut að þeir séu komnir til Reykja-
nesbæjar. Skiltið er liður í að lífga
upp á umhverfi bæjarins. Komið
hefur fram að fleira er í bígerð í
sama tilgangi. Nú hefur grjóti verið
raðað upp í vörður á nokkrum stöð-
um á bæjarmörkunum.
Við athöfn í gær þakkaði Árni
Sigfússon bæjarstjóri iðn-
aðarmönnunum sem unnu verkið.
Stafir sem mynda nafn Reykjanes-
bæjar eru smíðaðir úr stáli hjá Vél-
smiðju Ásmundar Sigurðssonar.
Þeir eru um tveir og hálfur metri á
hæð og nafnið sjálft um 22 metrar.
Stöfunum er raðað á vegg sem hlað-
inn er úr steinum úr Helguvík þar
sem Íslenskir aðalverktarar vinna
við grjótnám fyrir Reykjaneshöfn.
Rafmiðstöðin sá um lýsingu og Guð-
mundur Jónsson arkitekt aðstoðaði
við hönnun mannvirkisins.
Ljósmynd/Jóhannes Kr.
Gestum var boðið upp á heitt kakó í kuldanum á Vogastapa í gærkvöldi þegar kveikt var á skilti Reykjanesbæjar.
Kveikt á lýsingu bæjarhliðs
Reykjanesbær | „Haustið hefur
farið í að þróa starfið og vinnan við
að gera gott starf betra heldur
áfram,“ segir Ragnar Örn Pét-
ursson, verkefnisstjóri Frístunda-
skóla Reykjanesbæjar, sem hófst í
september og er tekinn til starfa
aftur eftir jólafrí.
Frístundaskólinn er fyrir nem-
endur fyrsta til fjórða bekkjar
grunnskólanna í Reykjanesbæ.
Tekur hann við af svokallaðri skóla-
gæslu og er ýmsu starfi nú fléttað
inn í hann, meðal annars íþróttum.
Í fréttabréfi sem sent hefur verið
öllum foreldrum barna á þessum
aldri kemur fram að meirihluti
nemenda sem taka þátt í starfi Frí-
stundaskólans stundar íþróttir.
Vakin er athygli á því að nokkuð sé
um að börn hafi farið á íþrótta-
æfingar fyrir áhrif frá félögum sín-
um í Frístundaskólanum. Hins veg-
ar er þátttaka í íþróttum nokkuð
mismunandi eftir skólum. Hlutfallið
er 75% í Holtaskóla í Keflavík en
47% í Myllubakkaskóla.
Þátttaka jókst í Frístundaskól-
anum eftir því sem leið á veturinn.
Þegar mest var voru 130 nemendur
skráðir til þátttöku allan mánuðinn
og að auki 50 nemendur sem tóku
þátt í starfinu að hluta. Alls eru um
630 nemendur á þessum aldri í
Reykjanesbæ. Ragnar Örn segir að
þátttakan sé heldur minni nú eftir
áramótin en vonast sé til að hún ná-
ist fljótlega upp á sama stig og var
fyrir jól.
Fyrirhugað er að gera könnun
meðal foreldra síðar í vetur og efna
í framhaldi af því til málstofu með
samstarfsaðilum til þess að meta
árangur starfsins.
180 tóku þátt í Frístundaskólanum
Haldið er áfram
að þróa starfið
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Keflavíkurflugvöllur | Flugþjónust-
an á Keflavíkurflugvelli (IGS) ræð-
ur 20–25 fleiri starfsmenn í sum-
arafleysingar í ár en á síðasta ári.
Hefur fyrirtækið nýlega auglýst
ýmis störf.
Verkefni Flugþjónustunnar eru
árstíðabundin. Á vorin eykst mjög
flug til og frá landinu og þá fjölgar
starfsmönnum fyrirtækisins um
meira en tvö hundruð. Útlit er fyrir
aukna flugumferð í sumar, miðað
við síðasta ár. Kjartan Már Kjart-
ansson, starfsmanna- og gæðastjóri
Flugþjónustunnar, segir að við
hverja brottför og lendingu skapist
verkefni sem þurfi að sinna, hvort
sem fáir eða margir farþegar séu
með. Nú sé vitað um aukningu á
fluginu og þurfi Flugþjónustan að
ráða fólk í 10–15 fleiri stöðugildi en
á síðasta ári. Vegna þess að allt eru
þetta hlutastörf þarf 20–25 starfs-
menn til að sinna þeim. Kjartan
Már bætir því við að einnig megi
búast við auknum farþegagjölda og
þá þurfi að bæta enn við starfs-
mannafjöldann. Það skýrist þó ekki
fyrr en síðar.
Störfin sem ráða þarf í fyrir sum-
arið er í öllum deildum fyrirtæk-
isins, það er að segja við farþega-
þjónustu, flugeldhús, fraktmiðstöð,
hlaðdeild, hleðslueftirlit, ræstingu
og veitingadeild. Kjartan Már segir
að umsóknir streymi inn og byrjað
sé að ráða fólk en allar umsóknir
séu áfram vel þegnar, ekki síst frá
traustu og góðu fólki með reynslu.
Flugþjónustan bætir við
20–25 starfsmönnum
Sandgerði | Hallbjörn V. Rúnarsson
var kosinn formaður framkvæmda-
stjórnar Bæjarmálafélags Sandgerð-
islistans á stofnfundi félagsins sem
haldinn var um helgina.
Sandgerðislistinn bauð í fyrsta
skipti fram við síðustu bæjarstjórn-
arkosningar í Sandgerði og fékk einn
mann kjörinn, Ólaf Þór Ólafsson.
Fram kemur í fréttatilkynningu að
þeir sem stóðu að framboðinu hafi
verið staðráðnir í því að halda starfi
Þ-listans áfram og vissu um leið að til
þess þyrfti bakland. Þrír efstu menn á
framboðslista hafa unnið að undir-
búningi stofnunar bæjarmálafélags.
Ákveðið var að fela stjórn félagsins að
leggja drög að lögum fyrir félagið
fram á aðalfundi sem haldinn verði
eigi síðar en 1. nóvember. Einnig láti
hún hanna merki félagsins og merki
með listabókstaf framboðsins.
Hallbjörn V. Rúnarsson varabæj-
arfulltrúi var kjörinn formaður Bæj-
armálafélags Sandgerðislistans og
með honum í stjórn eru Thelma Björk
Jóhannesdóttir ritari og Linda Björk
Holm gjaldkeri.
Stofnað félag Sandgerðislistans
Hallbjörn V. Rúnarsson
kosinn fyrsti formaður
Röng notkun ljósa | Lögreglan í
Keflavík tók þátt í umferðarátaki
lögregluliðanna á Suðvesturlandi
um helgina. Beindist það að ljósa-
búnaði. Aðfaranótt síðastliðins
sunnudags kærði lögreglan níu öku-
menn fyrir vanbúnað ljósa eða ranga
notkun ljósa á bifreiðum, að því er
fram kemur á vef lögreglunnar.
Ekið á járnarusl | Ökumenn nokk-
urra bifreiða óku á járnarusl á
Reykjanesbrautinni í fyrrinótt. Lá
járnið á miðri akbrautinni skammt
vestan við vegamót Reykjanes-
brautar og Grindavíkurvegar. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar í
Keflavík urðu minniháttar skemmd-
ir á tveimur fólksbifreiðum.