Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 42

Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Clifton - Kóbrukossinn Svinið mitt framhald ... UPP MEÐ HENDUR GRINGÓ NEIII ... ELSKAN EKKKI!!! © DARGAUD © DARGAUD VIÐ HÖFUM VÖRUNA, KÓBRA, KOMUM OKKUR ÚR LANDI. FÖRUM FRAM Á AÐ FÁ FLUGVÉL OG KOMUM OKKUR Í SKJÓL. HVERT SEM ÞIÐ FARIÐ ÞÁ FINNUR HARALDUR FRÆNDI YKKUR ... OG ÞÁ VERÐUR FJÖR TRÚIÐ MÉR ÞAGGAÐU NIÐUR Í HONUM SÍGAUNI, HANN TRUFLAR EINBEITINGUNA! HEYRIRÐU ÞETTA STUBBUR? ÞÚ FERÐ Í TAUGARN- AR Á OKKUR! NÚ JÆJA? ÉG VISSI ÞAÐ EKKI! ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ SJÁ EFTIR ÞESSU HORTITTUR! FYNDIÐ EÐA ÞANNIG ... ÞORIR ÞÚ EKKI Í MIG ... VILTU FREKAR VERA AÐ SKJÓT GAMLINGJA EINS OG HANN TAKK FYRIR ELSKAN ... EN ÉG ER EKKI GAM ... EKKI TALA RAUÐ- SKINNI ÞESSI LEIKUR ÞEIRRA ER AÐ FARA ILLA Í TAUGARNAR Á MÉR!!! ÉG MINNI ÞIG Á AÐ ÞAÐ VARST ÞÚ SEM VILDIR GEFA ÞEIM VATNS- BYSSURNAR HVERT ERTU AÐ FARA? JÆJA, NÚ SKULU ÞIÐ FÁ AÐ SJÁ HVAR DAVÍÐ KEYPTI ÖLIÐ GRINGÓAR!! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ENGINN gerir svo öllum líki. Sam- kvæmt nýlegum breytingum hækk- ar nú skattmat á hlunnindi vegna bifreiða og fasteigna um 25-40%. Vandi er öllum vel að gera og víst eru ýmsir sem telja þessari hækkun hlunnindamats á afnotum starfs- manna af bíl fyrirtækis lítt í hóf stillt. Hækkunin er skýrð sem leið- rétting á skattalögum. Eðlilega má þá reikna með að dæmi leiðrétting- anna verði klárað og leiga pr km. til þeirra starfsmanna sem nota eigin bíl í þágu ríkis eða fyrirtækis, verði hækkuð um lítil 30-40%. Þetta kíló- metragjald er svo lágt að tæpast dugar fyrir eldsneytiskostnaði og smurningsviðhaldi. Ég treysti Geir Haarde til að láta reikna þetta dæmi frá A-Ö. Annað óklárað mál er að hætta innheimtu þungaskatts dísilbíla í nú- verandi mynd og færa skattinn inn í verð dísilolíunnar. Þá lagfæringu átti að gera fyrir mörgum árum. Betra er seint en aldrei. Í olíu- málinu er ég það róttækur að ég vil binda ábyrgðartryggingu bíla við eldsneytið. Bifreið sem er í gangi er þá alltaf tryggð fyrir skemmdum sem af henni hljótast. Í dag eiga margir um sárt að binda vegna tjóns sem ótryggður bíll olli og ökumaður að nafni til ábyrgur, en í raun ábyrgðarlaus og stundum í fríu hús- næði Fangelsisstofnunar ríkisins. Væri tryggingin sett í tengsl við eldsneyti myndi ábyrgðin deilast á ríkið og olíufélögin í réttu hlutfalli við ágóða hvors um sig. Í dag er það ca 60% ríkið og olíufélögin 40%. Kaskótrygging væri eftir sem áður hjá tryggingarélögunum. Ég vona að ráðherrarnir Björn og Geir taki þessa gömlu tillögu mína til vinsamlegrar skoðunar. Leggjum saman tvo og tvo, táli enginn beitti. Árið nýja okkur svo ást og gæfu veitti. Með bestu nýársóskum til þjóðar- innar. PÁLMI JÓNSSON, Sauðarkróki. Nýárshugleiðing Frá Pálma Jónssyni ÉG vil nota tækifærið og þakka Árna Gunnlaugssyni hrl. í Hafnarfirði fyrir skelegga grein í Morgunblaðinu fyrir nokkru, þar sem hann bendir á hve löggjafinn er sofandi yfir brotum á lögum um bann við áfengisauglýsing- um í fjölmiðlum og víðar, og hans góðu rökum fyrir gildi þeirra. Það er alveg stórkostlegt hversu auglýsing- ar hafa mikið gildi í viðskiptum og öðru. Ég hefi oft bent á hið sama. Við höfum orðið margsinnis vitni að því gegnum árin hversu öll tilslökun á áfengislöggjöfinni hefur haft nei- kvæða verkun á að minnka eða út- rýma hinu geigvænlega áfengis- og vímuefnaflóði á landinu gegnum árin. Allt það tjón, bæði andlega og verald- lega, sem nú er ríkjandi í landinu minnir alltaf meira og meira á sig og veldur mörgum manninum þeim sár- um sem seint eða jafnvel aldrei gróa. Við sjáum daglega hversu vímu- efnin eyðileggja framtíð ungra og gamalla og þar virðist ekkert lát á. Meðferðarstofnanir hafa ekki við að taka á móti þeim sem hafa orðið vímuefnum að bráð, efnilegu fólki, og alltaf verið að bæta við fleirum. Ég hefi bent á hve bannlögin gerðu mik- ið gagn á sínum tíma. Þá þurfti ekki þessar stofnanir sem nú eru að taka við fólki sem misst hefur jafnvægi í átökum við vímuefni. Þá kom hin ramma rödd upp í þjóðfélaginu sem reyndi að brjóta niður varnargarðana, og benti á að lögin væru meingölluð og þyrfti að afnema þau. Frelsi þyrfti að vera í neyslu áfengis og hver gæti séð um sig. Ekki var nú bróðurkærleikurinn meiri en það. Menn æptu og sögðu: Burt með öll bönn og höft. Að end- ingu náði þessi ráma rödd, sem bein- línis sagði eins og farísearnir í gamla daga: Hvað varðar mig um náung- ann? Og enn eru þessar rámu raddir á ferðinni. En hvað eru boð og bönn annað en varnir við hættu eins og við setjum umferðarljós á vegunum? Hvers vegna erum við að setja þessi ljós? Getur ekki maðurinn haft leyfi til að aka eftir geðþótta sínum? Og hvað felst í lögum landsins annað en bönn við hinu og þessu? Má ekki al- veg eins afnema lög um rán og grip- deildir? Já, og hvers vegna bannar löggjafinn hitt og þetta sem er skerð- ing á persónurétti mannsins? Má t.d. ekki afnema lögreglu eða löggæslu sem er ekkert annað en bann við bæði umferðinni og öllu sem miðar til hins verra í þjóðfélaginu? Skiptir það nokkru þótt allt fari á ringulreið í hinu daglega lífi mannsins, ef bara frelsið verður innleitt á alla skapaða hluti? Svona mætti lengi tala um frelsið og áhrif þess á almenning. Nauðsyn krefst þess að lög séu til í landi voru. Ég er viss um að ef í stað þess að leyfa allt verði fólki kennt að gera sitt til að framfylgja áfengislög- gjöfinni og herða hana frekar, myndi þjóðfélagið batna og velgengni og heiðarleiki fá góðan sess í mann- heimi. Og hve þjóðinni myndi líða betur ef hún gæti losað sig og fólkið við öll þau eiturefni sem nú ógna heilsu og hreysti. Og væri ekki gam- an að vakna upp á ný og vera á þeim gullaldardögum, ef allir gætu sam- einast um að bægja þessu vímuefna- böli frá landi og þjóð. Megi hamingjan varðveita land og þjóð og gefa fagurt og gott mannlíf fyrir samfélagið vissulega, og þetta er hægt ef við viljum sjálf. Guð gefi okkur að slíkir tímar komi. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Hvað eru boð og bönn annað en varnir við hættu? Frá Árna Helgasyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.