Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 48
ÍÞRÓTTIR
48 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKA landsliðið í tennis er komið til Kaunas í
Litháen þar sem það leikur í Evrópuriðli 3. deild-
arinnar í Davis-bikarnum, heimsbikarmóti landsliða.
Keppnin hefst í dag en átta lið eru í riðlinum í Kaun-
as. Auk Litháens og Íslands eru það Andorra,
Aserbaídsjan, Kýpur, Eistland, Makedónía og Móna-
kó. Ísland sigraði í 4. deildarkeppninni í fyrra og
leikur því í fyrsta skipti í 3. deild í ár.
Íslenska liðið skipa þeir Arnar Sigurðsson, Andri
Jónsson, Jón Axel Jónsson og Raj Bonifacius, sem
jafnframt er þjálfari liðsins.
Reikna má með að lið Mónakó sé sterkt en það lék
í 2. deild í fyrra. Þá töpuðu Eistland, Litháen, Kýpur
og Aserbaídsjan öll úrslitaleikjum um sæti í 2. deild á
síðasta ári.
Í Davis Cup er leikið í fimm deildum. Sextán þjóðir
eru í heimsdeildinni þar sem leikið er um sjálfan
Davis-bikarinn. Síðan eru 24 þjóðir í 1. deild, 32 í 2.
deild, 32 í 3. deild og aðrar þjóðir leika í 4. deild.
Tennislandsliðið
í Litháen
ÞÝSKA handknattleiksliðið
Grosswallstadt vill fá Einar
Hólmgeirsson, vinstrihandar
stórskyttuna í liði ÍR-inga, til
liðs við sig fyrir næstu leiktíð.
Einar kemur til landsins í dag
en hann hefur dvalið und-
anfarna daga við æfingar hjá
Grosswallstadt sem bauð hon-
um til reynslu.
„Grosswallstadt ætlar að
bjóða mér samning og vænt-
anlega senda þeir mér tilboð í
næstu viku. Mér gekk mjög
vel á þeim æfingum sem ég
æfði með liðinu og eftir sam-
tal við þjálfarann fékk ég að
vita að þeir vilja fá mig. Ég
hef ekki tekið neina ákvörðun
hvað ég geri. Ég þarf fyrst að
skoða tilboðið en mér leist
mjög vel á liðið og alla um-
gjörðina hjá því og það kemur
vel til greina að semja við lið-
ið,“ sagði Einar við Morgun-
blaðið en hann gekkst undir
læknisskoðun hjá félaginu í
gær og stóðst hana.
Einar er 22 ára gamall sem
leikið hefur með ÍR allan sinn
feril og lék sína fyrstu leiki
með íslenska A-landsliðinu á
síðasta ári. Hann hefur verið í
hópi efnilegustu handbolta-
manna landsins undanfarin ár
en meiðsli hafa sett töluvert
strik í reikninginn hjá honum
og var hann töluvert frá
vegna þeirra á síðustu leiktíð.
Grosswallstadt er í 11. sæti
í þýsku Bundesligunni en með
liðinu leikur landsliðsmað-
urinnn Snorri Steinn Guð-
jónsson sem gekk í raðir liðs-
ins frá Val síðastliðið sumar.
Einar fær tilboð
frá Grosswallstadt
Einar Hólmgeirsson
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
ÍS – ÍR............................................... 90:49
Stig ÍS: Stella Kristjánsdóttir 22, Alda
Leif Jónsdóttir 21, Guðrún S. Baldurs-
dóttir 13, Svandís Sigurðardóttir 13,
Guðríður S. Bjarnadóttir 8, Lovísa Guð-
mundsdóttir 7, Hrafnhildur Kristjáns-
dóttir 5, Eva Emilsdóttir 1.
Stig ÍR: Kristín Þorgímsdóttir 13, Eva
Grétarsdóttir 12, Kristrún Sigurjóns-
dóttir 8, Hrafna Gunnarsdóttir 6, Anna
J. Kjartansdóttir 4, Ragnhildur Guð-
mundsdóttir 4, Bryndís Bragadóttir 2.
Staðan:
Keflavík 15 12 3 1227:942 24
ÍS 15 10 5 987:867 20
KR 15 9 6 997:945 18
Grindavík 15 6 9 931:968 12
Njarðvík 15 6 9 904:1069 12
ÍR 15 2 13 858:1113 4
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Washington – Cleveland .............. 100:104
Toronto – LA Lakers....................... 83:84
Minnesota – Philadelphia............. 106:101
Staðan:
AUSTURDEILDIN:
Atlantshafsriðill:
New Jersey 45 25 20 55,6%
New York 49 22 27 44,9%
Boston 49 22 27 44,9%
Miami 48 21 27 43,8%
Philadelphia 48 20 28 41,7%
Washington 46 14 32 30,4%
Orlando 49 13 36 26,5%
Miðriðill:
Indiana 48 35 13 72,9%
Detroit 48 32 16 66,7%
New Orleans 47 26 21 55,3%
Milwaukee 47 26 21 55,3%
Toronto 45 21 24 46,7%
Cleveland 47 18 29 38,3%
Atlanta 48 15 33 31,3%
Chicago 48 13 35 27,1%
VESTURDEILDIN:
Miðvesturriðill:
Minnesota 46 33 13 71,7%
San Antonio 49 31 18 63,3%
Dallas 47 29 18 61,7%
Denver 49 28 21 57,1%
Houston 46 26 20 56,5%
Memphis 46 25 21 54,3%
Utah 47 24 23 51,1%
Kyrrahafsriðill.
Sacramento 45 33 12 73,3%
LA Lakers 44 28 16 63,6%
Seattle 45 22 23 48,9%
Portland 45 21 24 46,7%
LA Clippers 45 20 25 44,4%
Golden State 45 20 25 44,4%
Phoenix 49 14 32 34,7%
KNATTSPYRNA
Afríkukeppnin
Burkina Faso – Kenýa..........................0:3
Senegal – Mali .......................................1:1
LYFTINGAR
Íslandsmótið í bekkpressu
Laugardalshöll 31. janúar 2004.
KONUR
56 kg flokkur:
Addý Kjartansdóttir ..................... 47,5 kg
67,5 kg flokkur:
María Guðsteinsdóttir ................. 87,5 kg.
75 kg flokkur:
Margrét Sigurðardóttir .................. 85 kg.
+90 kg flokkur:
Freyja Kjartansdóttir...................77,5 kg.
KARLAR
75 kg flokkur:
Ómar Örn Semlali ......................... 140 kg.
Friðrik Örn Sigurðsson ................130 kg.
82,5 kg flokkur:
Ísleifur Árnason ............................185 kg.
Sævar Ingi Borgarsson ................ 170 kg.
Domenico Alex Gala ..................... 170 kg.
Óttar Karlsson ..............................145 kg.
90 kg flokkur:
Jón Gunnarsson ............................210 kg.
Jón Trausti Gylfason .................182,5 kg.
Freyr Bragason .............................180 kg.
Vilhjálmur Hernandez .................. 175 kg.
Valgeir Ólason ...............................170 kg.
Egill B. Jónsson ............................ 125 kg.
100 kg flokkur:
Hermann Hermannsson ............... 205 kg.
Brynjar Karl Guðmundsson .........195 kg.
Jón Randver Guðmundsson .........195 kg.
Karl Jóhann Hafliðason ...............190 kg.
110 kg flokkur:
Björgúlfur Stefánsson .................. 205 kg.
Svavar Smárason .......................197,5 kg.
Bjarki Þór Sigurðsson ............... 192,5 kg.
Þórir Borg ..................................... 180 kg.
Guðjón Gíslason ............................ 180 kg.
Vilhjálmur Stefánsson ..................180 kg.
125 kg flokkur:
Auðunn Jónsson .........................267,5 kg.
Ingvar Jóel Ingvarsson ................ 265 kg.
Jón Björn Björnsson ..................252,5 kg.
+125 kg flokkur:
Magnús Ver Magnússon ............272,5 kg.
Magnús H. Magnússon .................260 kg.
Kristinn Óskar Haraldsson ..........240 kg.
Jens Andri Fylkisson .................202,5 kg.
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Kennaraháskólinn: ÍS - Selfoss............19.30
Í KVÖLD
TJALDIÐ féll í Slóveníu á sunnu-
daginn með því að sterkir Þjóð-
verjar tryggðu sér Evrópumeist-
aratitlinn í handknattleik í
Ljubljana. Danir skutust fram í
sviðsljósið og sýndu frábæra
takta – léttleikinn réð ferðinni hjá
þeim og þeir fengu brons á öðru
EM í röð, en eins og menn muna
þá lögðu Danir Íslendinga í
keppni um þriðja sætið á EM í
Svíþjóð fyrir tveimur árum. Slóv-
enar komu skemmtilega á óvart
með léttleikandi handknattleik,
fengu silfurverðlaun og tryggðu
sér rétt til að leika á ÓL í Aþenu.
Danir hafa verið jafnt og þétt
að byggja upp öflugt lið og hafa
þeir verið með tvo til þrjá lands-
liðshópa á ferðinni – gefið ungum
leikmönnum tækifæri til að
spreyta sig. Það gekk ekki allt að
óskum hjá Dönum í HM í Portú-
gal fyrir einu ári, eftir að þeir
höfðu staðið sig vel í leikjum fyrir
keppnina – voru ósigrandi. Dönsk
blöð sögðu þá að danska lands-
liðið væri heimsmeistarar í æf-
ingaleikjum. Fyrir EM í Slóveníu
skellti íslenska landsliðið því
danska á æfingamóti í Danmörku
og sögðu blöðin þá að leikmenn
danska liðsins hefðu verið eins og
naut í flagi í viðureign sinni við
Íslendinga.
Torben Winther, þjálfari Dana,
var ófeiminn að gera breytingar á
liði sínu og vakti mikla athygli
þegar hann valdi heimamanninn
Kasper Nielsen, GOG, í staðinn
fyrir leikstjórnandann Lasse Boe-
sen, sem leikur með Portland San
Antonio á Spáni. Þá fór hann ekki
með hinn stóra Lars Möller Mad-
sen, 2,05 m leikmann hjá Skjern,
til Slóveníu, þar sem hann var lít-
illega meiddur. Winther sagði að
hann tefldi aðeins fram leikmönn-
um sem væru fullfrískir og til-
búnir í erfiða baráttu.
Á sama tíma áttu nokkrir leik-
menn Íslands við þrálát meiðsli
að stríða og gátu ekki tekið þátt í
undirbúningi landsliðsins á fullum
krafti. Menn áttu erfitt með að
sætta sig við það og réð þrá-
hyggja því að leikmennirnir fóru
með til Slóveníu – það átti að láta
reyna á þá þegar slagurinn hófst.
Það reyndist vægast sagt röng
ákvörðun.
Margir leikmenn íslenska
landsliðsins voru langt frá því að
vera tilbúnir í slaginn á EM –
bæði andlega og líkamlega.
Landsliðsþjálfari Íslands batt
vonir of mikið við ákveðna leik-
menn – fámennan hóp. Margir af
lykilmönnum Íslands á EM í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum voru ekki
þeir sömu og þá, en það var eins
og menn sættu sig ekki við það og
viðurkenndu staðreyndir.
Þegar Íslendingar léku þrjá æf-
ingaleiki við Pólverja hér á landi
fyrir áramót var keyrt á nær
sömu leikmönnunum og einnig
þegar leiknir voru þrír leikir gegn
Sviss og tekið þátt í fjögurra
þjóða móti í Danmörku og Svíþjóð
rétt fyrir EM. Gamla Bogdan-
taktíkin réð ríkjum. Fullfrískir og
góðir handknattleiksmenn sátu
leik eftir leik á bekknum og
horfðu á aðra leika. Þeir horfðu
jafnvel á að meiddum mönnum
var teflt fram – teknir fram yfir
þá. Er hægt að reikna með að
fullfrískir leikmenn sitji ánægðir
á varamannabekknum og horfi
upp á þannig gjörninga?
Þráhyggja
réð ferðinni
HEINER Brand, landsliðsþjálfari
Þýskalands í handknattleik, er
breyttur maður eftir EM í Slóveníu.
Vörumerki hans hefur verið mikið
og þykkt yfirvararskegg, en eftir
að strákarnir hans urðu Evr-
ópumeistarar var það þeirra fyrsta
verkefni að bregða skærum og rak-
vél á loft og raka skeggið góða af.
Hér á myndinni fyrir ofan er
Brand, skeggprúður, að leggja sín-
um mönnum ráðin í landsleik gegn
Íslandi í Laugardalshöll, en á
myndinni til hliðar má sjá hann
skegglausan við komuna til Þýska-
lands frá Slóveníu. Reuters
Brand
skegglaus
Morgunblaðið/Ásdís
Leikurinn, sem fram fer á River-side-vellinum í Middles-
brough, átti að fara fram í síðustu
viku en þar sem heimavöllur
„Boro“ þótti varasamur vegna ís-
ingar var honum frestað.
Í fyrri leiknum á Highbury hafði
Middlesbrough betur, 1:0, en það
er eini tapleikur Arsenal í keppn-
unum þremur á Englandi, deild-
arkeppninni, bikarkeppninni og
deildabikarkeppninni.
„Ég er bara mjög ánægður með
að hafa verið valinn í hópinn og
vonandi tekst okkur að slá Middl-
esbrough út og það yrði ekki leið-
inlegt að fá tækifæri í leiknum,“
sagði Ólafur Ingi við Morgunblað-
ið í gærkvöld en Ólafur er einn
fjögurra í varaliði félagsins sem er
í hópnum hjá Arsene Wenger,
stjóra Arsenal.
Wenger verður með nokkra
reynslubolta í liði sínu í kvöld,
leikmenn á borð við Kolo Toure,
Martin Keown, Pascal Cygan,
Ashley Cole, Patrick Vieira, Ray
Parlour og Edu. Thierry Henry og
Robert Pires verða hins vegar
hvíldir en Spánverjinn Jose Anton-
io Reyes leysir Henry af hólmi og
verður í fyrsta sinn í byrjunarliði
Arsenal. Þessi geysiefnilegi leik-
maður, sem gekk í raðir Arsenal
frá Sevilla um liðna helgi, lék síð-
ustu mínúturnar í sigurleik Arsen-
al á Manchester City í fyrradag og
verður spennandi að sjá hverning
honum tekst upp gegn sterkum
varnarmönnum Middlesbrough.
„Við erum að tefla fram sterk-
ara liði en fyrr í keppninni og
Wenger hefur greinilega mikinn
hug á að koma liðinu í úrslitaleik-
inn. Það er töluvert í húfi fyrir fé-
lagið enda gefur úrslitaleikurinn í
Cardiff góðan pening í kassann og
maður heyrir á stuðningsmönnum
að þeir vilja fara þangað,“ segir
Ólafur.
Spurður út í nýja liðsmanninn,
Spánverjann Jose Antonio Reyes,
segir Ólafur: „Hann lítur mjög vel
út. Ég er búinn að vera með hon-
um á þremur æfingum og hann er
hrikalega góður. Hann er mjög
fljótur, teknískur, sparkviss og
góður í að plata menn en það eina
sem maður getur kannski gagn-
rýnt hann fyrir er að hann virkar
stundum full latur. Ég er ekki í
nokkrum vafa um að hann á eftir
að gera það gott fyrir Arsenal.
Menn mega ekki gleyma því að
hann er ungur. Hann er jafnaldri
minn en hann hefur náð sér í góða
reynslu á Spáni og á að mínu mati
framtíðina fyrir sér.“
Ólafur segir að koma Reyes til
Arsenal hafi verið mikið fjölmiðla-
fár enda langt síðan Arsenal hefur
keypt nýjan leikmann. „Kaupin
komu töluvert á óvart og hversu
miklum peningum Arsenal eyddi
til að fá Reyes. Wenger hefur ekki
verið frægur fyrir að eyða miklu fé
í leikmenn og þess vegna vakti
koma hans til okkar mikla at-
hygli,“ sagði Ólafur Ingi.
Ólafur Ingi
er í hópi
Arsenal
ÓLAFUR Ingi Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er í 16
manna leikmannahópi Arsenal sem mætir Middlesbrough í síðari
viðureign liðanna í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í
kvöld. Bolton er þegar búið að tryggja sér sæti í úrslitaleikinn sem
fram fer á þúsaldarvellinum í Cardiff og í kvöld kemur í ljós hver
andstæðingar þeirra verða, Middlesbrough eða Arsenal.