Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Látið þið nú sjá að þið kunnið almenna borðsiði, hákarlarnir ykkar. Réttur barna til öryggis á Netinu Stilla þarf sam- an strengina Réttur barna til ör-yggis á Netinu eryfirskrift ráð- stefnu sem haldin verður í Borgarleikhúsinu nk. föstudag. Það eru for- eldrasamtökin Heimili og skóli sem standa að ráð- stefnunni, en í forsvari fyrir hana er Sigurþór Gunnlaugsson. Morgun- blaðið ræddi við Sigurþór á dögunum. – Hver er tilurð þessar- ar ráðstefnu? „Tilurðin er sú að verk- efninu SAFT er að ljúka núna í apríl. SAFT stend- ur fyrir Safety, Aware- ness, Facts and Tools og er verkefni sem Evrópu- sambandið stendur fyrir og miðar að því að koma á öruggri netnotkun barna. Alls hafa fimm lönd í Evrópu verið þátttakendur í SAFT-verkefninu, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Dan- mörk og Írland.“ – Og hver er tilgangurinn með ráðstefnunni? „Tilgangur hennar er að kynna stöðuna í þessum málum í dag og koma af stað umræðu um mál- efnið. Varpa fram spurningunni hvernig viljum við hafa þessi mál á Íslandi?“ – Hvað mun vega þungt á ráð- stefnunni? „Það, að við höfum fengið upp á yfirborðið hvað er að gerast hjá börnunum á Netinu. Ég get nefnt að við munum leggja nokkuð út af tveimur könnunum sem við létum gera fyrir okkur í tilefni af verk- efninu. Í öðru tilvikinu voru for- eldrar spurðir hvað þeir teldu að börn sín væru að gera á Netinu og í hinni könnuninni eru börnin sjálf spurð hvað þau séu að gera á Netinu. Þarna fengust athyglis- verðar niðurstöður sem verið er að vinna úr og er stefnt að því að í haust verði grunnskólunum af- hent kennsluefni byggt á þessum könnunum.“ – Reyndist vera mikill munur á því sem foreldrar álitu og börnin sögðu? „Já, það var ansi mikill munur þar á og ein helsta niðurstaðan eftir þessa athugun er einmitt sú að það er svo sannarlega grund- völlur fyrir því að opna umræður. Krakkar eiga helmingi fleiri tölvupóstföng en foreldrar gerðu sér grein fyrir, þeir skoða það sem við getum kallað óviðeigandi efni mun oftar en foreldrar hafa gert sér grein fyrir og það hefur farið vaxandi að krakkar hitti ókunnuga eftir samtöl á Netinu, svo dæmi séu tekin.“ – Er ekki hætta á að börn leyni foreldra upplýsingum? „Það virðist ekki vera vanda- mál. Athugunin bendir til þess að börnin séu tilbúin að sýna for- eldrum sínum hvað þau eru klár og ennfremur kemur fram að þau óska þess að fá meiri leiðsögn varðandi Netið frá foreldrum sín- um en þau fá nú þegar. Það virð- ist því ljóst að það að tala við börnin er full- komlega raunhæf staða.“ – Hvað erum við að tala um gömlu börn? „Könnunin náði til 9 til 16 ára, en rannsóknir sýna okkur að börn eru í flestum til- vikum að byrja að skoða sig um á Netinu 8–9 ára gömul, en dæmi eru um það hér á landi að allt nið- ur í 5 ára börn eru að fikra sig þar áfram. Þau er heldur yngri hér á landi heldur en þekkist ytra og börn eru tiltölulega fljót að læra á Netið.“ – Og hvernig eiga foreldrar að koma að málinu? „Könnunin leiðir í ljós að krakkarnir eru mest að fara á Netið heima hjá sér og þess vegna er ábyrgðin mjög á herðum foreldra þó að aðrir aðilar beri einnig ábyrgð, t.d. stofnanir, skól- ar og aðilar sem koma að Netinu. En heima fyrir þurfa foreldrar að sýna aðhald og veita ráðgjöf. Eitt sem þarf t.d. að huga að er sið- ferðið, hvað má og hvað má ekki, t.d. verður að gera börnum það skiljanlegt að það sem sagt er um aðra á Netinu getur sært þá jafn- mikið og jafnvel meira heldur en þegar það er sagt augliti til aug- litis. Einelti á Netinu hefur því miður aukist mjög og þá skákað í skjóli nafnleyndar.“ – Hvað tekur svo við? „Það hefst nýtt framhaldsverk- efni í maí og Evrópusambandið hefur þegar auglýst það. Við höf- um áhuga á því að halda áfram á þessari braut og verðum með. Hins vegar liggur ekki ljóst fyrir hvaða stefna verður tekin í nýja verkefninu. Í þeim efnum bíðum við þess að Evrópusambandið setji eitt land yfir verkefnið og þegar það liggur fyrir mun við- komandi land skipuleggja vinn- una og þá fara hjólin að snúast.“ – Hvernig sérð þú fyrir þér framhaldsvinnuna hér á landi? „Ég sé hana þannig fyrir mér að í ljósi fenginna upplýsinga úr rannsóknunum sem ég nefndi hér áðan liggi beinast við að leiða saman þá aðila sem eiga að axla ábyrgð í sameiningu, þ.e.a.s. foreldra, skóla, stofn- anir og þá sem koma tæknilega að Netinu. Fá þessa aðila til að stilla saman strengina.“ – Nokkur orð um ráðstefn- una … „Hún verður í Borgarleikhús- inu á föstudaginn klukkan 13 til 16.30. Hún er öllum opin og kost- ar ekkert. Þarna verða afar at- hyglisverð erindi. Dagskrána geta menn kynnt sér á vefnum og skráð sig á www.saft.is.“ Sigurþór Gunnlaugsson  Sigurþór Gunnlaugsson er fæddur í Reykjavík 1968. Lauk viðskiptafræðinámi í Bandaríkj- unum árið 1994 og er nú að ljúka MBA-námi við Háskólann í Reykjavík. Hefur mest unnið við markaðsstörf, var t.d. kynning- arstjóri hjá Sjóvá-Almennum og markaðsstjóri Kringlunnar, auk starfa hjá Háskólanum í Reykja- vík. Samhliða náminu hefur hann starfað fyrir Heimili og skóla og er m.a. í forsvari fyrir ofan- greinda ráðstefnu. Maki Sig- urþórs er Roald Viðar Eyvinds- son. Sýna for- eldrum sínum hvað þau eru klár NEYÐARLÍNAN hefur nú form- lega tekið að sér að taka við tilkynn- ingum til barnaverndanefnda á öllu landinu og hefur samtals borist 71 tilkynning frá áramótum, jafnvel þótt verkefnið hafi ekki hafist form- lega fyrr en um mánaðamótin jan- úar-febrúar. Nú geta þeir sem þurfa að til- kynna barnaverndaryfirvöldum eitt- hvað hringt í eitt númer, 112, í stað þess að hringja í númer viðkomandi barnaverndarnefndar. Starfsmenn Neyðarlínunnar sjá svo um að koma málunum áleiðis til réttra aðila. „Almenningur í landinu er til- kynningarskyldur, það er að segja fólki ber að gera barnaverndaryf- irvöldum viðvart verði það þess áskynja að velferð barna sé ekki gætt eða að uppeldisaðstæðum sé áfátt. Einnig ef grunur er um að börn sæti illri meðferð eða van- rækslu af einhverju tagi,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Samtals eru 34 barnaverndar- nefndir hér á landi, og segir Bragi að áður en þetta samstarf hófst hafi fólk oft átt í erfiðleikum með að átta sig á því í hvaða nefnd ætti að hringja og hvaða númer ætti að nota. Eins væru fæstar nefndirnar með bakvakt og því aðeins hægt að hringja í meirihluta þeirra á dag- vinnutíma. Vonast eftir fjölgun tilkynninga „Markmiðið með þessu er að skapa skilyrði til þess að unnt sé að grípa fyrr inn í mál barna sem eru í hættu. Það getur skipt sköpum. Því fyrr sem unnt er að koma til hjálpar barni, því meiri líkur eru á að við drögum úr þeim skaða sem af því hlýst þegar um er að ræða barn í að- stæðum sem ógna velferð þess,“ segir Bragi. Vonast er til að eftir að Neyð- arlínan tekur að sér símsvörunina muni tilkynningum fjölga, og er þá sér í lagi horft til tilkynninga frá al- menningi og jafnvel börnunum sjálf- um, segir Þórhallur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Samtals berast um 75% af öllum til- kynningum til barnaverndarnefnda frá opinberum aðilum, svo sem lög- reglu, skólum og heilbrigðisstofnun- um, en vonast er til að með þessu samstarfi muni almenningur í aukn- um mæli tilkynna mál til barna- verndaryfirvalda. Frumkvöðulsstarf í Evrópu Þetta samstarf Neyðarlínunnar og Barnaverndarstofu er hið fyrsta sinnar tegundar í Evrópu, og þótt víðar væri leitað, og því spennandi að sjá hver árangurinn verður, segir Bragi. Hann segir að verkefnið verði kynnt fyrir þjóðum í Eystra- saltsráðinu, en í því eru Norðurlönd- in, Eistland, Lettland, Litháen, Þýskaland, Pólland og Rússland, og segist hann eiga von á því að það verði til eftirbreytni víða ef vel gengur hér. Kristján Hoffmann, sviðsstjóri hjá Neyðarlínunni, segir að ekki hafi þurft mikla vinnu við að koma þessu samstarfi inn hjá Neyðarlínunni, enda falli þetta vel að starfseminni. Hann segir að starfsfólk hafi farið á námskeið hjá Barnaverndarstofu og það sé tilbúið í starfið. Neyðarlínan tekur við tilkynningum um barnaverndarmál Komin 71 tilkynning það sem af er árinu Morgunblaðið/Sverrir Samstarfsverkefni Neyðarlínunnar og Barnaverndarstofu var kynnt fjölmiðlum í húsnæði Neyðarlínunnar í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.