Morgunblaðið - 03.02.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, segist líta það mjög
alvarlegum augum að hvorki hann
né embætti forseta Íslands hafi
verið látið vita af fundi sem haldinn
var í ríkisráði á sunnudag, á 100
ára afmæli heimastjórnar. „Ég
hafði ekki hugmynd um að það
stæði til að halda fund í ríkisráði
og það hafði aldrei verið á það
minnst, hvorki við mig né við skrif-
stofu forsetaembættisins og ég
vissi ekki af honum fyrr en hann
hafði verið haldinn,“ sagði Ólafur
Ragnar, sem staddur er í Banda-
ríkjunum, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Þau rök ríkisráðsritara að for-
setinn hafi ekki verið við störf og
því ekki látinn vita af fundinum
segir Ólafur Ragnar ekki gild. „Ef
mér hefði verið tilkynnt [um fund-
inn] hefði ég að sjálfsögðu komið
til landsins og stýrt fundinum. Það
er ein af æðstu embættisskyldum
forsetans að stjórna fundum í rík-
isráði og ég tek þá skyldu mjög al-
varlega.“
Má ekki verða fordæmi
Ólafur segir fundi í ríkisráði
haldna sjaldan og að til þeirra sé
boðað með löngum fyrirvara.
„Ég tel að það megi ekki verða
fordæmi að það séu boðaðir
skyndifundir í ríkisráði og forset-
inn ekki látinn vita af þeim. Það er
búinn að vera langur tími til að
undirbúa dagskrá þessa dags [af-
mæli heimastjórnar] og í öllum
þeim mikla undirbúningi var aldrei
minnst einu orði á fund í ríkisráði.“
Ólafur segist hafa átt fund með
Davíð Oddssyni forsætisráðherra í
síðustu viku þar sem rætt var um
viðburði í tengslum við afmæli
heimastjórnar en „í því samtali var
ekki minnst einu orði á það að hug-
myndir væru að halda fund í rík-
isráði“.
Ólafur segir að hafa beri í huga
að ríkisráðið sé æðsta stofnun lýð-
veldisins og forsetinn
sé þar í forsæti og
stýri fundum ríkis-
ráðs. „Það ber ekki að
halda fundi í ríkisráði
án forsetans nema að
mjög illri nauðsyn, eða
mjög brýnt sé og gjör-
samlega sé ófram-
kvæmanlegt að hafa
samand við forsetann.
En á þessari öld fjar-
skipta og annarra
tengsla þá hefði verið
hægur vandi að láta
mig eða forsetaemb-
ættið og skrifstofu
forseta vita að það
stæði til að halda rík-
isráðsfund.“
Ólafur Ragnar segir þau rök
Ólafs Davíðssonar ríkisráðsritara í
Morgunblaðinu í gær að ekki hafi
verið haft samband við forsetann
þar sem hann hafi ekki verið við
störf og handhafar forsetavalds
gegnt störfum hans á
meðan, ekki standast.
Þó að forsetinn hafi
verið erlendis sé það
engin afsökun fyrir
því að láta hann ekki
vita. „Því ef það ætti
að beita þeim rökum
þá væri hægt að kalla
ríkisráðsfundi í skyndi
saman hvenær sem
forsetinn væri erlend-
is án þess að láta
hann vita. Það sér það
hver heilvita maður að
það væri ekki heil brú
í slíkri stjórnskipan.“
Spurður um hvort
forsetinn eða skrif-
stofa forsetaembættisins muni
bregðast á einhvern hátt við mál-
inu segir Ólafur að hann muni
ræða málið m.a. við forsætisráð-
herra. „Við ræðum mörg mál og ég
mun að sjálfsögðu ræða þetta eins
og önnur.“
Forsetinn fékk vitneskju um ríkisráðsfund þegar hann var afstaðinn
Ólafur Ragnar
Grímsson
Engin afsökun að forset-
inn hafi verið erlendis
HALLDÓR Blöndal,
forseti Alþingis, sem
sat í forsæti ríkisráðs-
fundar á sunnudag í
fjarveru forseta Ís-
lands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, segir við-
brögð forsetans í fjöl-
miðlum vegna fundar-
ins hafa komið sér
verulega á óvart. „Mér
finnst fundurinn hafa
verið það sjálfsagður
að forsetinn hefði get-
að sagt sér það sjálf-
ur,“ sagði Halldór í
samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann tel-
ur að boðað hafi verið til fundarins
með eðlilegum fyrir-
vara.
„Það er ósköp eðlilegt
að fundur sé haldinn í
ríkisráði í tilefni af því
að það eru 100 ár liðin
síðan við fengum ís-
lenskan ráðherra og
þingræði var staðfest á
Íslandi, aðeins þremur
árum síðar en í Dan-
mörku. Þetta eru mikil
tímamót og ég var satt
að segja undrandi þeg-
ar mér var sagt frá því í
janúar að forseti Ís-
lands hygðist vera í
Bandaríkjunum næstu
vikur. Mér finnst óhjákvæmilegt
annað en að halda hátíðarfund í rík-
isráði af þessu tilefni og staðfesta
þar reglugerð um Stjórnarráð Ís-
lands.
Undrandi á viðbrögðum
forsetans
Þessi fundarboð voru alveg með
eðlilegum fyrirvara. Við handhafar
forsetavalds göngum auðvitað í þau
verk hverju sinni sem falla undir
embætti forseta Íslands. Við förum
með vald forseta Íslands þegar hann
er erlendis og við tökum það svo al-
varlega á Alþingi að jafnvel þótt for-
setinn sé hér á landi þá er föst regla
að ævinlega skuli einhver úr forsæt-
isnefnd vera á landinu ef eitthvað
óvænt kæmi upp á.“
Halldór segir viðbrögð Ólafs
Ragnars í fjölmiðlum vegna málsins
koma sér mjög á óvart. „Það gerðist
ekki nokkur skapaður hlutur fyrsta
febrúar sem hann átti ekki að geta
séð fyrir af reynslu sinni og þekk-
ingu, bæði á íslenskum stjórnarhátt-
um og líka getur honum ekki komið á
óvart að þess sé minnst í ríkisráði að
100 ár eru síðan þingræði var stað-
fest.
Ég veit ekki betur en honum hafi
verið kynntar fyrir einhverjum vik-
um þær hugmyndir sem þá voru
uppi um það um hvernig haldið yrði
upp á þennan dag. Ég er undrandi á
því að hann skuli tala eins og hann
hefur gert vegna þess að ég sé ekki
að það sé tilefni til þess.“
Halldór Blöndal um ummæli forsetans vegna ríkisráðsfundarins
Hefði átt að geta séð fund
á þessum tímamótum fyrir
Halldór Blöndal
TVEIR menn voru í gær handteknir
vegna ráns í verslun 10–11 við Bar-
ónsstíg á sunnudagskvöld. Annar
mannanna rændi verslunina rétt fyrir
kl. 23 vopnaður kylfu. Hann hótaði af-
greiðslumanni með kylfunni og barði
með henni í kassaborðið til að undir-
strika orð sín. Komst hann á brott
með óverulegar fjárhæðir og lagði á
flótta í bíl. Hinn maðurinn ók bílnum.
Starfsmaðurinn var með öryggis-
hnapp og náði að kalla til öryggisvörð
með því að ýta á hnappinn og kom
hann á staðinn eftir örfáar mínútur.
Öryggisvörðurinn sá ræningjann
hverfa á brott í bíl og varð það til þess
að lögregla náði ræningjanum og vit-
orðsmanni hans.
Fjórir menn voru í fyrstu hand-
teknir, allir um og yfir þrítugt og hafa
komið við sögu lögreglunnar áður í
fíkniefna- og auðgunarbrotamálum.
Rannsókn var haldið áfram um nótt-
ina sem leiddi að lokum til þess að
málið var upplýst.
Náðu aðeins skiptimynt
Ræninginn hafði einungis skipti-
mynt upp úr krafsinu, segir Guð-
mundur K. Reynisson, framkvæmda-
stjóri 10–11-verslananna, og þakkar
hann það nýjum seðlageymslum sem
teknar hafa verið í notkun í öllum
verslunum 10–11. Seðlageymslurnar
eiga að tryggja að aldrei sé eftir miklu
að slægjast fyrir ræningja.
„Þetta er fyrsta ránið í verslunum
okkar eftir að við settum upp seðla-
geymslurnar. Nú trúum við ekki öðru
en að þessum ófögnuði fari að linna
þegar menn sjá að það er ekkert að
hafa hjá okkur,“ segir Guðmundur.
Tveir menn
handteknir
vegna ráns
í 10–11
SAMTÖK verslunar og þjónustu,
SVÞ, telja brýnt að bæta meðferð lög-
reglu og dómsvalda vegna þjófnaða í
verslunum. Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, segir að
kærur séu oft látnar falla niður nema
um sé að ræða alvarleg og endurtekin
brot og því komist ítrekað upp með
búðarþjófnaði. Hann segir forráða-
menn margra aðildarfyrirtækja SVÞ
hafa upplýst sig um að vart væri við
vaxandi fjölda þessara brota.
Sigurður kveðst þó ekki hafa tölur
á hraðbergi en hann segir að svo virð-
ist sem nokkrir hafi samvinnu um til-
raunir til þjófnaða og gengið sé skipu-
legar til verks í þessum efnum en
fram til þessa.
„Flestar verslanir hafa þá reglu að
kalla til lögreglu í hvert sinn sem þjóf-
ur er staðinn að verki, hvort sem um
er að ræða starfsmenn, viðskiptavin
eða aðra óboðna gesti,“ segir m.a. á
vefsíðu SVÞ. „Mörgum stjórnendum
verslana þykir hins vegar viðbrögð og
öll málsmeðferð lögregluyfirvalda
vera seinvirk og flest mál af þessu
tagi sem koma til kasta saksóknara
eru látin niður falla án refsingar. Slík
skilaboð dómsmálayfirvalda til þjófa
eru frekar til þess fallin að fjölga af-
brotum af þessu tagi en fækka þeim,“
segir einnig.
Framkvæmdastjóri SVÞ segir til
skoðunar hjá samtökunum að kanna
leið sem Bretar hafa farið til að mæta
þessum vanda. Felst hún í því að
starfsmönnum verslana er heimilt að
skrá nafn og aðrar upplýsingar um
meintan þjóf og krefja hann um
greiðslu fyrir skaða sem hann hefur
valdið. Afrit af skránni fari til lög-
reglu og ekki sé kært nema hinn
meinti þjófur neiti ásökunum og fall-
ist ekki á hina borgaralegu sátt sem
svo er kölluð.
Vilja breytta
meðferð
vegna búða-
þjófnaða
ÚTIBÚSSTJÓRI KB banka í Borg-
arnesi, Kristján B. Snorrason, hætti
í gær störfum eftir að hafa verið boð-
aður í höfuðstöðvar bankans í
Reykjavík á föstudag og honum til-
kynnt þar fyrirvaralaust uppsögn.
Kristján staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið og sagði hann tíð-
indin hafa komið sér verulega á
óvart. Hann sagði rekstur útibúsins
hafa gengið vel, en Kristján hefur
stýrt því frá stofnun þess í Borgar-
nesi fyrir tólf árum.
Ekki náðist í bankastjóra KB
banka en Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður bankans, sagði
ekkert óeðlilegt við það að bankinn
gerði breytingar á stjórnun þeirra 38
útibúa sem starfrækt væru um allt
land. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá
sig um málið.
KB banki
segir upp
útibús-
stjóra í
Borgarnesi
MENN og dýr gerðu sér glaðan dag
á Rauðavatni í gær. Kalt var í veðri
en logn og því tilvalið að skella sér
á skauta eða á hestbak á ísilögðu
vatninu. En skjótt skipast veður í
lofti. Búist var við stormi víða um
land í nótt, snjókomu á norð-
anverðu landinu og slyddu eða
rigningu austanlands. Veðurstofan
spáir því að víða verði frostlaust
sunnan- og austanlands en annars
staðar vægt frost.
Morgunblaðið/Þorkell
Spáð stormi og hlýnandi veðri
♦♦♦