Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 11 ÁTTA Íslendingar af hverjum tíu ferðuðust innanlands á síðasta ári og um 70% vildu ferðast meira innan- lands. Nærri 60% sögðust ekki hafa tíma til að ferðast eins mikið og þeir vildu og um 30% töldu hátt verðlag hamla ferðum. Ríflega helmingur landsmanna ferðaðist til útlanda á síðasta ári og um 60% ætla að ferðast bæði innanlands og utan í ár. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í könnun Gallups fyrir Ferðamála- ráð á ferðavenjum Íslendinga og kynnt var í gær. Könnunin fór fram 2. til 29. desember sl. og náði til 1.400 manna slembiúrtaks 18–80 ára fólks úr þjóðskrá á landinu öllu. Svörun var 60,2%. Ferðamálaráð hefur látið kanna ferðavenjur Íslendinga reglulega síð- ustu árin og segir Einar K. Guðfinns- son, formaður ráðsins, að niðurstöður þeirra varpi margvíslegu ljósi á ferðir Íslendinga og sé könnunin ferðaþjón- ustunni mikilvæg leiðbeining í öllu markaðsstarfi. Meðal þess sem Einar segir athyglisvert er að Netið sé mik- ið notað vegna upplýsingaleitar, mun meira en í könnun árið 2000. Hátt í 40% þeirra sem leita upplýsinga gera það á Netinu og ívið færri fá þær úr bæklingum og upplýsingaritum. Fjölgað hefur í þeim hópi sem leitar upplýsinga áður en lagt er upp í ferð innanlands úr 24,8% í 34,1%. Um 5% í skipulögðum hópferðum Heldur færri Íslendingar ferðuð- ust innanlands í fyrra en í könnun ár- ið 2000 eða 80,6% á móti 84,1%. Fóru landsmenn að jafnaði í fjórar ferðir í fyrra en nærri fimm árið 2000. Með- aldvalarlengd var 12 nætur. Um 88% ferðuðust á eigin vegum og 5% í skipulögðum hópferðum. Langmest var um ferðir í júní til ágúst en innan við 10% voru á ferð janúar til mars og í nóvember en um 20% voru á faralds- fæti í desember. Sund var algengasta afþreyingin sem ferðamenn nýttu sér og gerðu það tæp 80% ferðalanga, um 20% stunduðu golf og kringum 15% veið- ar. Þriðjungur landsmanna hafði að- gang að sumarbústað í einkaeign og fóru menn að jafnaði níu ferðir í bú- stað og dvöldu þar í um 17 nætur alls. Þá fór rúmlega helmingur Íslendinga í dagsferðir innanlands í fyrra, sex ferðir að jafnaði. Meðalútgjöld vegna ferðalaga inn- anlands voru að jafnaði 97 þúsund krónur. Um þriðjungur eyddi innan við 50 þúsund krónum og 14,8% eyddi 200 þúsund krónum eða meiru. Um helmingur ferðalanga gisti hjá ætt- ingjum eða vinum og um 27% á hóteli eða gistiheimilum. Tæplega 20% gistu í tjaldvögnum eða húsvögnum og rúmlega 20% í tjöldum. Mætti nýta upplýsingarnar betur Í könnun Ferðamálaráðs var einn- ig spurt hvaða landsvæði væri mest spennandi til ferðalaga og sögðu 28,6% það vera Vesturland og Vest- firði. Austurland kom í öðru sæti en 15,1% hafði mestan áhuga á þeim. Þá var spurt hvaða þrjá staði menn langaði mest til að heimsækja og nefndu nærri 50% Vestfirði og ein- staka staði þar og svipaður fjöldi nefndi hálendið. Alls nefndu svarend- ur 212 staði í könnuninni. Magnús Oddsson ferðamálastjóri segir mikil- vægt að fyrirtæki í ferðaþjónustu nýti sér upplýsingar sem fram koma í könnuninni í markaðsstarfi sínu. Sagði hann kannanir sem þessar í raun ekki hafa verið nýttar sem skyldi í ferðaþjónustunni og að svo virtist sem forráðamenn ferðaþjón- ustufyrirtækja gerðu sér ekki grein fyrir að slíkar upplýsingar væru fyrir hendi. Sagði hann ráðgert að kynna könnunina betur og hún yrði aðgengi- leg á vefsíðu Ferðamálaráðs. Magnús sagði ferðaþjónustuna orðna mikilvæga atvinnugrein. Um 90% landsmanna ætluðu sér að ferðast innanlands í sumar en fyrir 30 árum hefði kannski helmingur lands- manna ferðast innanlands. Sagði ferðamálastjóri ljóst að ferðalög væru mjög ofarlega í neyslumynstri Íslendinga. Ferðavenjur kannaðar á vegum Ferðamálaráðs Íslands Um 70% Íslendinga vilja ferðast meira innanlands Morgunblaðið/Brynjar Gauti Samkvæmt könnun á vegum Ferðamálaráðs vilja um 70% Íslendinga ferðast meira um landið en telja sig skorta til þess tíma. Myndin er frá Skaftafelli.                                       ! "# $#" %&''(      )  ) GUÐNI Ágústsson landbúnaðar- ráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd sem fara á yfir gildandi lög og reglugerðir um varnir gegn dýrasjúkdómum ásamt framkvæmd þeirra m.a. með hliðsjón af alþjóð- legum samningum. Ástæðan er sú að alvarlegir dýrasjúkdómar hafa verið að gera vart við sig víðsvegar um heiminn á undanförnum árum. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að Alþjóðaheilbrigðisstofnun- in, WHO, hafi ekki enn séð ástæðu til að amast við ferðum til Asíul- anda vegna fuglaflensunnar. Enn sé ekki staðfest hvort veikin smit- ast milli manna. Hann segir áherslu lagða á að læknar manna og dýra starfi saman þar sem vand- inn er uppi, m.a. vegna forvarna þeirra sem meðhöndla þurfa sýkta fugla. Í frétt frá landbúnaðarráðuneyt- inu segir að sérstök ástæða sé til að varast þá dýrasjúkdóma sem borist geta í menn í gegnum snertingu við dýr og neyslu matvæla. „Komast þarf eins og frekast er unnt fyrir þá hættu sem steðjar að heilsu manna og dýra af dýrasjúkdómum og sýktum matvælum og er nefnd- inni falið að gera tillögur þar að lút- andi. Verður jafnframt að telja það mikið kappsmál að varðveita það góða heilbrigðisástand búfjár sem hér ríkir í þágu íslenskra neytenda og hérlendrar matvælafram- leiðslu,“ segir einnig Nefndina skipa: Halldór Runólfs- son yfirdýralæknir, formaður, Har- aldur Briem sóttvarnarlæknir, Eggert Gunnarsson dýralæknir og Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir lög- fræðingur. Nefndin á að skila áliti til ráðherra ásamt tillögum eigi síð- ar en 1. september 2004. Skoða varnir gegn dýrasjúk- dómum FJÓRIR prestar komu saman í Hallgrímskirkju til að minnast þess að um 40 ár eru síðan bætt var við sex stöðum presta í Reykjavík og þeir ráðnir auk tveggja annarra. „Þetta var mesta breyting á þessu sviði í borginni en fyrir voru 8 prestar,“ segir Ólafur Skúlason biskup sem kallaði í félaga sína eft- ir að séra Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur hafði ákveðið að bjóða þeim í kaffi og kökur í kirkjunni. Árið 1963 tilkynnti Bjarni Bene- diktsson, þáverandi kirkjumála- ráðherra, Sigurbirni Einarssyni biskupi að ríkisstjórnin hefði sam- þykkt að veita fé til að launa sex stöður presta og tóku þeir við emb- ættum sínum í ársbyrjun 1964. Séra Grímur Grímsson var kjörinn sóknarprestur í nýrri sókn, Ás- sókn, en hann er látinn. Séra Felix Ólafsson, sem býr í Danmörku, var kjörinn í annarri nýrri sókn, Grensássókn. Séra Ólafur Skúlason tók við Bústaðasókn sem var að hluta til ný sókn, en Bústaða- prestakalli var skipt í þrennt, Grensássókn, Bústaðasókn og Kópavogssókn. Í Háteigssöfnuði var einn prestur og séra Arn- grímur Jónsson var kjörinn við hlið hans. Séra Frank M. Halldórsson var kjörinn annar prestur við Nes- kirkju og séra Sigurður Haukur Guðjónsson annar prestur í Lang- holtssókn. „Sigurður Haukur hringdi í mig og spurði hvort ekki ætti að gera eitthvað á þessum tímamótum,“ segir Ólafur. „Ég hringdi þá í pró- fastinn og bar upp erindið, að bjóða okkur í kaffi, og hann sam- þykkti það með glöðu geði.“ Félagarnir eru sammála um að mikil breyting hafi orðið í kirkju- málum fyrir 40 árum og við hæfi að minnast þess, þó þeir séu allir komnir á eftirlaun nema Frank. Sigurður Haukur rifjar upp að vegna 95 ára reglunnar hafi hann hætt störfum árið 1991 en sinnt aukaþjónustu í eitt ár. „Ég hef lengi haft áhuga á hestum, en er reyndar orðinn ákaflega lélegur í hestamennsk- unni,“ segir hann. „En ég skrifa enn.“ Arngrímur hætti sem prestur í Háteigskirkju 1993 en þjónaði síð- an á Austfjörðum og Suðurnesjum til 1996. „Það var heilmikið lán,“ segir hann, „en nú eyði ég tím- anum í að skrifa. Það er mín dægrastytting.“ Nýr prestur tekur til starfa í Neskirkju 1. maí en Frank gerir ráð fyrir að starfa út febrúar. „Ég læt hverjum degi nægja sína þján- ingu,“ segir hann spurður um hvað taki við á þessum tímamótum. Ólafur hætti prestskap í Bú- staðakirkju 1989 er hann var kjör- inn biskup og gegndi því embætti til 1998. „Síðan hef ég verið lausa- maður, ef svo má orða“ segir hann. „Ég geri mest lítið, les og skrifa, sinni einhverjum prestsverkum og stunda líkamsrækt.“ 40 ár síðan bætt var við sex nýjum stöðum presta í Reykjavík Hafði í för með sér mikla breytingu á kirkjustarfi Morgunblaðið/Golli Ólafur Skúlason, Arngrímur Jónsson, Frank M. Halldórsson og Sigurður Haukur Guðjónsson í Hallgrímskirkju. JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, segir að gengið hafi verið frá því að þeir sem þurftu að greiða lækniskostnað meðan á deilu Tryggingastofnunar og sér- fræðilækna stóð í upphafi ársins muni fá þann kostnað endurgreidd- an með sama hætti og hefði verið ef deilan hefði ekki staðið yfir. Í Morgunblaðinu á fimmtudag var sagt frá ungu fólki sem þurfti að greiða að fullu fyrir eyrnabólguað- gerð sem sjö ára sonur þess fór í 7. janúar síðastliðinn. Foreldrarnir þurftu að greiða 21 þúsund kr. fyrir aðgerðina og höfðu fengið þau svör frá TR að aðgerðin yrði ekki end- urgreidd. Morgunblaðið hefur upp- lýsingar um annað slíkt tilfelli, en þar var um að ræða aðgerð sem framkvæmd var 5. janúar síðastlið- inn og kostaði 168 þúsund kr. og höfðu einnig fengist þau svör frá TR að um engar endurgreiðslur yrði að ræða. Jón sagði spurður að ekki hefði þurft að gefa út sérstaka reglugerð vegna þessarar endurgreiðslu, held- ur giltu þær reglugerðir sem þegar hefðu verið gefnar út vegna þessa. Reglugerð um afsláttarkort myndi gilda í þessum efnum með sama hætti og hefði verið ef engin deila hefði staðið yfir milli TR og sér- fræðilækna og fólk fengi endurgreitt í samræmi við þær reglur. Í því fæl- ist engin viðurkenning á greiðslu- skyldu heldur væri hér um sérstaka aðgerð að ræða til að koma til móts við þá sem hefðu haft tilfinnanleg út- gjöld vegna lækniskostnaðar á þess- um tíma. Jón sagði að áætlað væri að út- gjöld vegna þessa gætu numið 6–7 milljónum króna. Fá læknis- kostnað end- urgreiddan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.