Morgunblaðið - 03.02.2004, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 37
Elskulegur sonur minn og bróðir okkar,
ARTHUR ÓLAFSSON,
(Grímur),
er látinn.
Sigríður Guðný Sigurðardóttir,
Þórir Ólafsson,
Ingibjörg Auðunsdóttir,
Sigríður Auðunsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
frá Burstafelli
í Vestmannaeyjum,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks þjónustumiðstöðvarinnar Hvassaleiti
56-58 og starfsfólks heimahjúkrunar.
Árndís L. Óskarsdóttir, Friðrik J. Sigurðsson,
Óskar S. Óskarsson, Kirsti H. Óskarsson,
Ólafur Óskarsson, Fanney Valgarðsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjöl-
mörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför systur okkar, mágkonu
og frænku,
SIGRÚNAR ÁRNADÓTTUR,
Mýrarási 2,
Reykjavík.
Sigurður K. Árnason, Vilborg Vigfúsdóttir,
Ragnar Árnason,
Magnea Árnadóttir, Jakob Marteinsson,
Helga Árnadóttir,
Ragnhildur Árnadóttir og
systkinabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför
bróður, mágs og móðurbróður okkar,
KRISTJÁNS JÓHANNESSONAR,
Reykjum.
Heiðbjört Jóhannesdóttir,
Sigurjón Sigurbergsson,
Jóhannes Sigurjónsson,
Ingigerður Sigurjónsdóttir,
Elin Helga Sigurjónsdóttir
og fjölskyldur.
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HELGU PÉTURSDÓTTUR
frá Skammbeinsstöðum,
Hæðargarði 33,
Reykjavík.
Guðný Hulda Í. Waage,
Skúli Ísleifsson, Guðlaug Hallgrímsdóttir
og ömmubörnin.
Þökkum af alhug öllum þeim sem heiðruðu
minningu
JÓNS ÓLAFS ÓLAFSSONAR
fyrrv. skólastjóra í Garði,
og auðsýndu okkur hluttekningu og vináttu
við andlát hans og útför.
Guðrún Jónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Guðjón Sigbjörnsson,
Jón Guðmann Pétursson, Kristín Magnúsdóttir,
Lúðvík Börkur Jónsson, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir,
Snjólaug María Guðjónsdóttir, Sigfús Þorvaldsson,
Íris Jónsdóttir,
Jón Ólafur Guðjónsson
og önnur barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
MARGRÉT ÁRMANNSDÓTTIR,
Deildartúni 2,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn
1. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju, föstudaginn
6. febrúar kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Sjúkrahús Akraness og
Krabbameinsfélagið.
Sigurður Ólafsson,
Ólafur Frímann Sigurðsson, Anna Jakobsdóttir,
Margrét Sólveig Sigurðardóttir,
Emelía Petrea Sigurðardóttir, Ragnar Már Sveinsson,
Ólína Ása Sigurðardóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sonur og
bróðir,
SVEINN KONRÁÐSSON,
Háagerði 25,
lést á heimili sínu sunnudaginn 1. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Konráð Ragnar Sveinsson, Arna Eir Einarsdóttir,
Gunnar Örn Sveinsson, Sara Kristjánsdóttir,
Jón Arnar Sveinsson,
Konráð Ragnar Sveinsson,
Guðbjörg Jóna Jónsdóttir
og systkini hins látna.
Elsku afi.
Þegar ég sest niður
og skrifa þessi orð
rifjast upp allar góðu
stundirnar sem við
áttum saman. Ég man
þegar pabbi var með verkstæðið á
Stórhöfðanum, þá varst þú með
smíðaaðstöðu þar og kom ég oft til
þín eftir skóla til að mála girðingar,
leiktæki og annað sem þú hafðir
smíðað.
Eftir þig liggja fjöldamörg lista-
verk af ýmsum toga sem þú hafðir
dundað þér við, og sýna þau best
hversu hæfileikaríkur þú varst.
Við áttum margar góðar stundir í
sumarbústaðnum ykkar og sérstak-
lega þegar ég fékk að fara með
ykkur ömmu í Borgarfjörðinn á
undan mömmu og pabba. Sumarbú-
staðurinn ykkar og allt sem í hon-
um er sýnir vel hversu samstiga þú
og amma voruð í áhugamálinu ykk-
ar, handavinnunni. Þegar við fórum
upp í sumarbústað á veturna viss-
um við að þið voruð mætt á svæðið
ef við sáum gönguskíðaförin í
snjónum, en það var eitt af þeim
áhugamálum sem þið stunduðuð
saman.
Fyrir rúmum átta árum, þegar
leiðir okkar Maríu lágu saman,
fengum við að nota hjólhýsið sem
var á lóðinni ykkar við sumarbú-
staðinn og áttum við þar góðar
stundir ásamt allri fjölskyldunni.
Alltaf var gaman að koma í heim-
sókn til ykkar, hvort sem það var í
Hrauntunguna, Sléttuveginn eða í
Núpalindina, vel var tekið á móti
okkur með bros á vör og einhverju
góðgæti. Þó að þú hafir verið mikill
rólyndismaður var ávallt stutt í
brosið og húmorinn hjá þér. Sér-
staklega síðastliðin þrjú ár, eftir að
Eydís Ósk fæddist, þótti þér gaman
að fylgjast með henni og læddist
ávallt fram bros hjá þér þegar hún
skottaðist í kringum þig eins og
henni einni er lagið.
Þegar ég heimsótti þig á spít-
alann fann ég að þú vissir af mér
þegar þú tókst þétt í höndina á mér
þegar ég hélt í þína.
Nú kveð ég þig afi með söknuð í
hjarta, minningin um þig lifir ávallt
hjá mér.
Þinn
Ágúst.
Elsku Guðjón.
Ég hitti þig fyrst fyrir rúmum 13
árum þegar ég var að passa Hildi
sonardóttur þína. Ég kynntist þér
ekki mikið heldur hitti þig bara af
og til. Það var ekki fyrr en mörgum
árum seinna, eða fyrir rúmum átta
árum, sem leiðir okkar lágu saman
á ný, það var þegar ég og Ágúst
sonarsonur þinn fórum að vera
saman. Á þeim tíma bjugguð þið
Gústa á Sléttuveginum og ég man
þegar ég kom þangað í fyrsta sinn,
ég átti ekki til orð yfir því hversu
flink þið voruð í handavinnunni,
hvert sem ég leit voru listaverk
eftir ykkur hjónin. Eftir því sem
tíminn leið sá ég það betur og betur
hversu mikill listamaður þú varst.
Ég fór upp í sumarbústað og þar er
handverkið ykkar áberandi eins og
á fallega heimilinu ykkar í
GUÐJÓN ÁSBERG
JÓNSSON
✝ Guðjón ÁsbergJónsson fæddist
á Akranesi 24. ágúst
1931. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 11. janúar
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Digraneskirkju 16.
janúar.
Núpalindinni.
Fyrir um þremur
árum fæddist dóttir
okkar, Eydís Ósk, og
þótti þér alltaf jafn
gaman að sjá hana,
enda eina langafa-
barnið þitt. Þó svo að
þú hafir ekki sagt mik-
ið þá læddist alltaf
fram bros hjá þér þeg-
ar hún trítlaði og söng
í kringum þig.
Elsku Guðjón. Ég
vil þakka þér fyrir
þann tíma sem ég átti
með þér, Guð geymi
þig.
Elsku Gústa, Markús, Hrönn,
Gestur, Beta og fjölskyldur, ég
votta ykkar mínu dýpstu samúð.
Guð veri með ykkur.
María Ómarsdóttir.
Elsku langafi.
Ég sakna þín.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Guð geymi þig.
Þín langafastelpa,
Eydís Ósk.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is.