Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 46

Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ GUÐNÝ Hildur Pétursdóttir sigraði á fjöl- bragðaglímumóti sem fram fór í Flórída í Bandaríkjunum s.l. laugardag, en þar tóku þátt nemendur úr menntaskólum í Flórída- fylki. Keppt var í Oscelola menntaskólanum í Kissimmee og tóku 135 keppendur þátt frá 43 skólum. Guðný Hildur keppti í þungavigt, 100-128 kg., og átti í höggi við Bezenson frá Ocala Forest í úrslitaglímunni. Glíma þeirra var jöfn í upphafi en undir lokin í annarri lotu náði Guðný armveltutaki á Bezenson og tryggði sér sigur í kjölfarið. Guðný stundar nám við menntaskólann í Lake Mary sem er í Mið-Flórída og lýkur hún námi þar næsta vor. Þetta er annað árið sem hún æfir fjöl- bragðaglímu og á síðasta ári varð hún í sjötta sæti á sama móti en varð að hætta keppni vegna meiðsla í hné. Á yfirstandandi keppn- istímabili hefur Guðný ávallt glímt til úrslita í þeim mótum sem hún hefur tekið þátt í. Sigursæl í fjöl- bragðaglímu Guðný Hildur Pétursdóttir NJARÐVÍKINGAR eiga í nokkrum vandræð- um með leikmannahóp sinn fyrir bikarúr- slitaleikinn gegn Keflvíkingum um næstu helgi en ljóst er að Páll Kristinsson, fram- herji liðsins, verður í leikbanni í þeim leik. Páli var vísað af leikvelli í leik Njarðvíkinga gegn Hamarsmönnum á sunnudaginn og tek- ur aganefnd KKÍ málið fyrir á fundi sínum í dag. Séu engir formgallar á kæru dómara leiksins mun Páll verða úrskurðaður í leik- bann sem tekur gildi föstudaginn 6. janúar. Þess ber að geta að Páll hefur skorað að með- atali 16,6 stig í leik og tekur 8,6 fráköst og er einn af lykilmönnum liðsins. Að auki eru Brandon Woudstra og Brenton Birmingham meiddir en sá fyrrnefndi hefur skorað um 25 stig að meðaltali í leik en ís- lenski landsliðsmaðurinn Brenton, er með tæp 18 stig í leik. Ekki er vitað hvort þeir verða klárir í slaginn gegn grannaliðinu á laugardag. Birmingham er meiddur á kálfa og verður frá í nokkrar vikur til viðbótar. Woudstra sneri sig á ökkla gegn Keflavík sl. föstudag og er óvíst með framhaldið hjá hon- um. Nýr Bandaríkjamaður á leiðinni? Forráðamenn Njarðvíkur hafa sótt um keppnisleyfi fyrir Bandaríkjamanninn Larry Fletcher, en hann er 27 ára gamall bakvörð- ur/framherji og 1,99 metrar á hæð. Hann hefur leikið víða á ferli sínum en nú síðast í Belgíu með liðinu Daktro Aartselaar. Hann hefur einnig leikið sem atvinnumaður með þýsku liðunum Bremerhaven og Heidelberg og einnig með Cuidad Bolivar í Kólumbíu. Fletcher var boðið að æfa með NBA-liðunum Houston Rockets og Charlotte (New Orleans) Hornets árið 1998 en náði ekki að komast í leikmannahóp liðanna. Páll Kristinsson líklega í banni í bikarrimmunni gegn Keflavík „MIG grunaði að annaðhvort færi flestallt upp eða lítið sem ekk- ert,“ sagði Auðunn Jónsson eftir mótið en hann bætti Íslandsmetið í bekkpressu um 18 kíló, úr 255 í 273. Ýmislegt hrjáði hann fyrir mótið, hann fór í aðgerð á hnéi í haust og fékk síðan flensu en tók samt 260 kíló á síðustu æfingu fyrir mótið. „Svo fékk ég mikla flensu í tvær vikur í miðjum und- irbúningi fyrir þetta mót og missti fyrir vikið af nokkrum æf- ingum svo að ég var svolítið smeykur að hafa misst of mikið úr en síðasta æfing fyrir mótið gekk mjög vel, hvíldin virtist koma sér vel og það er svakalega gaman að byrja svona. Við vorum í mikilli baráttu og því sér- staklega gaman að sigra minn flokk með síðustu lyftu og fyrst Magnús Ver náði upp 272,5 kíló en tókst ekki að taka upp 280 var mikil ögrun að bæta um betur. Ég held að þetta hafi verið fjöl- mennasta mót sem ég hef keppt í hér á Íslandi og það munaði mik- ið um að stemningin í salnum var frábær enda mjög vel að þessu móti staðið. Margir lyftu yfir 250 kíló, sem var skemmtilegt og gott fyrir keppnina, auk þess að Ingv- ar Jóel náði að gera mig hálf- brjálaðan svo að hann á þátt í þessu meti,“ bætti Auðunn við og hyggur á frekari afrek. „Í vor er Íslandsmeistaramót og Evr- ópumót á svipuðum tíma, ég fer á fullu í annaðhvort þeirra en svo er alltaf blessaður draumurinn að ná einhverju á heimsmeist- aramóti, sem verður í nóvember. Ætli ég reyni ekki að vera á toppnum þegar kemur að því en það var mjög gott að taka 273 kíló núna, það hækkar árangur minn í samanlögðu mjög mikið því hnébeygjan og réttstöðulyftan hafa alltaf verið mínar sterkustu greinar.“ Auðunn í vígamóði FÓLK  VALA Flosadóttir, stangar- stökkvari úr Breiðabliki stökk 4,25 metra á móti í Zweibrücken í Þýskalandi í sunnudag. Vala reyndi síðan við 4,35 m sem er lágmark á heimsmeistaramótið innanhúss og átti ágætar tilraunir við þá hæð, en lánaðist ekki að komast yfir, eftir því sem greint er frá á vef Frjáls- íþróttasambands Íslands. Vala og Carolina Hingst, frá Þýskalandi, voru jafnar í fyrsta sæti. Vala keppir á nýjan leik í dag á móti í Gautaborg.  ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangar- stökkvari úr FH, hefur þegar náð lágmarksárangri til þátttöku á HM innanhúss í Búdapest í næsta mán- uði. Hún stökk 4,36 m á móti í Þýskalandi á fimmtudag. Um leið náði hún einnig B-lágmarki fyrir Ól- ympíuleikana í Aþenu í sumar.  GAUTI Jóhannesson, hlaupari úr UMSB, bætti sig um rúmar 5 sek- úndur í 1.500 m hlaupi innanhúss á móti í Stokkhólmi um helgina. Gauti kom fimmti í mark á 3.54,53 mín., en sigurvegarinn kom í mark á rúm- lega 3,47 mín. Tími Gauta er nærri hans besta í greininni utanhúss.  DAGNÝ Skúladóttir skoraði 2 mörk þegar lið hennar, TV Lützel- linden tapaði 28:23, fyrir DJK MJC Trier í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik. TV Lützellinden er nú í 9. sæti deildarinnar af tólf liðum með 15 stig.  KÖLN hefur tryggt sér miðju- manninn Vladan Grujic, 22 ára, að láni frá Borac Banja Luka. Grujic verður hjá Köln fram til sumarsins 2005.  SPÁNSKA liðið Real Zaragoza hefur fengið Dani, 29 ára, frá Barce- lona. Dani kom til liðsins á frjálsri sölu, en samningur hans við Barce- lona er útrunninn. Hann hefur ekki náð að vinna sér sæti í Barcelonalið- inu undir stjórn Frank Rijkaard, þjálfara.  FRANCESCO Totti fyrirliði ítalska liðsins Róma segir við ítalska fjölmiðla að leikmenn liðsins séu óánægðir með hve illa gangi að gera upp laun þeirra á réttum tíma. Segir Totti að óvissa um fjárhagsstöðu liðsins hafi bein áhrif á afrek þeirra úti á vellinum og spennuþrungið andrúmsloft ríki í búningsherbergj- um liðsins fyrir og eftir leiki.  UM helgina tapaði Róma gegn Brescia og er liðið fimm stigum á eftir efsta liðinu, AC Milan. „Við munum ekki svelta þó að launin okk- ar komi ekki á réttum tíma, en við viljum að forráðamenn liðsins geri grein fyrir stöðu mála. Það ríkir mikil óvissa um framtíðina og það eina sem við vitum er það sem við lesum og heyrum í fjölmiðlum um fjárhagsstöðu liðsins,“ segir hinn 27 ára gamli framherji og landsliðs- maður Ítalíu. Fyrir mótið voru allar líkur á aðÍslandsmet myndu fjúka því menn og konur höfðu lyft nægilega miklu á æfingum fyrir mótið. Kon- urnar gáfu tóninn þegar komið var á hólminn, í 75 kílóa flokki tvíbætti Margrét Sigurðar- dóttir Íslandsmetið, tók fyrst upp 85,5 kíló og síðan tveimur kílóum betur. Freyja Kjartansdóttir gaf henni ekkert eftir þegar hún hafði upp 77,5 kíló og síðan áttatíu í +95 kílóa flokki. Hjá körlunum dró ekki til tíð- inda fyrr en kom að 90 kílóa flokki og Jón „bóndi“ Gunnarsson hóf upp 210 kíló í fyrstu tilraun og bætti þar með met Hermanns Her- mannssonar um tvö kíló. Jón sagð- ist hafa langað til að keppa í 100 kg flokki en sér hafi ekki tekist að halda þyngdinni fram að mótinu. Öðru máli gegndi um Hermann, sem yfirleitt keppir í 90 kg flokki en 400 grömm þyngdu hann nægi- lega til að það gengi ekki upp. Stemningin í salnum óx mikið er leið á mótið og að síðustu kepptu saman 125 og +125 kílóa flokkur, sem inniheldur helstu berserki landsins. Áhorfendur voru með á nótunum og keppendur sperrtust heldur svo að von var á góðri skemmtun, kórónaðri með Íslands- metum. Það gekk rækilega eftir. Að venju hleypti Ingvar Jóel fjöri í leikinn og lýsti því yfir að hér ætl- aði hann að sigra enda átti hann Íslandsmetið í 125 kg flokki, 255 kíló. Auðunn gaf ekkert eftir Auðunn sagði ekki mikið á með- an hann bætti það um hálft kíló í fyrstu lyftu og í næsta þyngar- flokki lét Magnús Ver vita af sér þegar hann svipti upp 262,5 kílóum í fyrstu tilraun. Magnús H. Magn- ússon fylgdi á hæla honum með 260 kíló og var til alls vís. Auðunn vildi ekki láta sitt eftir liggja og sló nýtt met með 265 kílóum en fékk aðeins að njóta þess í nokkrar mín- útur því Ingvar Jóel fylgdi eftir stóru orðunum og tók 266 kíló. Meiri ögrun þurfti Auðunn ekki því öðrum nokkrum mínútum síðar bætti hann met Ingvars Jóels um 1,5 kíló en þrátt fyrir góða tilburði Ingvars Jóels náði hann ekki upp 268 kílóum. Magnús Ver hóf upp 272,5 kíló og reyndi án árangurs við 280 en þar sem Auðunn fékk aukalyftu með því að slá met í þriðju lyftu gerði hann sér lítið fyr- ir og lét setja 273 kíló á stöngina. Áhorfendur hvöttu hann allt hvað af tók og fjörugur þulurinn, Hjalti „Úrsus“ Árnason, stökk á fætur þegar Auðunn náði þyngdinni upp. Metin stráféllu í Höllinni Morgunblaðið/Stefán Stefánsson María Guðsteinsdóttir og Benedikt Magnússon með verðlaun sín fyrir að vera útnefnd bestu kraftlyftingamenn ársins. STERKUSTU menn Íslands kepptust hver um annan þveran að slá met í bekkpressu á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór í Laugar- dalshöll á laugardaginn og þá er ekki að sökum að spyrja, metin stráféllu og nokkur lifðu aðeins í tæpar tvær mínútur. Auðunn Jóns- son átti samt síðasta orðið þegar hann lyfti 273 kílóum en það hefur engum tekist áður. Athygli vakti að fimm kappar tóku upp meira en 250 kíló og eflaust hefur hjálpað uppá að rúmlega 300 áhorfendur voru mættir til leiks og hvöttu keppendur ákaft áfram auk þess að lífleg framkoma Ingvars Jóels Ingvarssonar og Magnúsar Ver Magnússonar hleypti lífi í mótið. Verðlaun fyrir bestan stigaárangur á mótinu, sem er reiknað hlutfall eigin þyngdar og kíló sem fóru upp, komu í hlut Magnúsar Ver og Maríu Guðsteinsdóttur. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Auðunn fagnar sigri. Stefán Stefánsson skrifar Ian Walker ekki refsað IAN Walker, markverði Leic- ester City, verður ekki refsað af aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins eftir að hann gekk í skrokk á stuðn- ingsmanni Leicester um ný- liðna helgi þegar Leicester steinlá fyrir Aston Villa. Stuðningsmaðurinn er hins vegar ekki búinn að bíta úr nálinni með atvikið því hann hefur verið settur í ævilangt bann frá heimsóknum á Walker-völlinn í Leicester.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.