Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 52

Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍKJAMENN eru reiðir Jan- et Jackson fyrir að hafa berað annað brjóst sitt á meðan hún flutti lag ásamt Justin Timberlake í hléi úr- slitaleiksins, Super Bowl, í banda- ríska fótboltanum NFL. Undir lok lagsins „Rock Your Body“ svipti Justin á brott leðurbrjóstahaldara öðrum megin um leið og þau sungu: „Gonna have you naked by the end of this song“ eða „ég ætla að klæða þig úr öllu áður en lagið er úti.“ Búast má við því að um hundrað milljónir manna hafi fylgst með þessu atviki. Þótti mörgum það auka enn á hneykslunina að geirvarta Jackson var skreytt með skartgrip er minnti á sól. Það má þó segja henni til varn- ar að gripurinn skyggði á geirvört- una og gerði þetta bærilegra fyrir viðkvæmustu áhorfendurna. Sjónvarpsstöðin CBS sem var með þessa beinu útsendingu frá leiknum í Houston hefur beðist afsökunar á at- vikinu. „CBS þykir þetta mjög leitt. Við fylgdumst með æfingum í vik- unni og aldrei var gefið til kynna að neitt þessu líkt myndi gerast. Við biðjum alla þá sem tóku þetta nærri sér afsökunar.“ Úrslitaleikur þessi er með vinsælasta sjónvarpsefni í land- inu og hringdu fjölmargir reiðir áhorfendur og kvörtuðu við stöðina. Haft er eftir bæði Janet og Justin að þessi sýning á holdi hafi verið al- veg óvart. En á vef MTV var ýjað að því að eitthvað hneykslanlegt myndi eiga sér stað í flutningum hjá Janet. Tónlistarsjónvarpsstöðin sá um þessa útsendingu en MTV er í eigu Viacom, sem er móðurfyrirtæki CBS. Ólíklegt þykir að MTV eigi aft- ur eftir að sjá um skemmtun í hléi í úrslitaleiknum, samkvæmt tilkynn- ingu frá NFL. Sýning í hléi úrslitaleiksins í bandaríska fótboltanum Janet berar sig Reuters Nektarsýning Jackson og Timberlakes féll ekki öllum áhorfendum í geð. FLUGAN er sveit frá Suðurnesj- um og eiga meðlimir rætur í Sand- gerði. Háaloftið er þeirra fyrsti hljómdiskur, æði misjafn að gæðum og hallar reyndar meira niður á við en upp, því miður. Á ferðinni er órætt, íslenskt melódískt popprokk sem dregur áhrif frá hinu og þessu en enginn einn áhrifavaldur er ráðandi og má svo sem líta á það sem kost. Vel frambærilegt og fagmannlega unnið umslagið, saman með þekkt- um gestum blekkir mann í fyrstu (Guðmundur Kristinn Jónsson, Fálki með meiru, kemur mikið að plötunni og Ragnheiður Gröndal, sem var næsta óþekkt er platan var gerð, syngur bakraddir). Innihaldið er nefnilega að mestu leyti hvorki fugl né fiskur, mestanpart vegna laga- smíðanna sem eru fremur óásjáleg- ar. Platan byrjar reyndar á jákvæðu nótunum, „Stillimynd“ hefst á kröft- ugum tæknótöktum en leiðist svo út í hressan popp/rokkara sem er ágæt- lega yfir meðallagi. Strax á eftir kemur „Drama“ sem er andvana fætt og kraftlaust. Titillagið setur Fluguna aftur á loft með skemmti- legu, nánast sérkennilegu gítarmilli- spili. „Í draumi“ er svo sem ágætt lag, en afskaplega illa sungið. Þar erum við komin að öðrum, frekar stórum lesti sem hrjáir plötuna. Söngvarinn er með afskaplega mátt- litla rödd og einkar litlausa. Restin af plötunni eru svo rislitlar og lítt eftirminnilegar poppsmíðar. Ragnheiður Gröndal er sögð radda hér í einum fjórum lögum. Samt heyrist nánast ekkert í henni?! Það hefði kannski bjargað einhverju ef það hefði verið hækkað dálítið í stúlkunni. Spilamennskan er ágæt út í gegn, sérstaklega á trymbillinn oft góða spretti. Samkvæmt upplýsingum mínum byggist Flugan upp í kring- um gamlan vinahóp sem hefur haft gaman af því að djamma saman og spila í gegnum árin. Í raun hefði ver- ið mun skynsamlegra að halda þess- um smíðum enn um sinn í æfinga- herberginu. Því þótt meiningin sé góð er Háaloftið varla barn í brók. Tónlist „Og þó ég ei til annars mætti duga …“ Flugan Háaloftið Geimsteinn Fluguna skipa Guðmundur Skúlason, Kristinn H. Einarsson, Ólafur Þór Ólafs- son og Smári Guðmundsson. Þeim til að- stoðar voru Guðmundur Kristinn Jónsson, Guðmundur Freyr Vigfússon, Ágúst Þór Benediktsson, Heiðmundur B. Clausen, Karl Óttar Geirsson, Ragnheiður Gröndal og Vilberg Ólafsson. Öll lög eru eftir með- limi utan að Guðrún Lára Baldursdóttir á hlut í einu lagi. Upptökustjórn var í hönd- um Guðmundar Kristins Jónssonar og Flugunnar. Guðmundur tók upp. Arnar Eggert Thoroddsen Flugan nær ekki flugi á Háaloftinu. ÞAÐ voru Svíar sem sópuðu að sér flestum verðlaununum í lokahófi kvikmyndahátíðarinnar í Gauta- borg, sem fram fór á laugardags- kvöldið. Þar sem norræn kvik- myndagerð er í brennidepli á söludeildardögum hátíðarinnar voru margir alþjóðlegir gestir í hófinu. Átta myndir um hituna „Kvikmyndarefurinn“ hét styttan eftir listamanninn Ernst Billgren, tákn norrænu kvikmyndaverðlauna kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg um árabil. Í ár er það dreki sem leysir refinn af og það var Carl Johan de Geer sem tók á móti fyrsta „Kvikmyndadrekanum“ fyrir myndina Myndavélin huggar mig, annar kafli (Med kameran som tröst, del 2.) sem frum- sýnd var á hátíðinni og kynnt sem heimildarmynd. Mynd barónsins de Geer var ein af þremur myndum Svía sem tók þátt í keppn- inni í ár og allar slógu þær í gegn hjá norrænu dóm- nefndinni sem sá til að Hipp hipp húrra! (Hip Hip Hora! ), unglingamynd eftir nýlið- ann Teresa Fabik hlyti Ca- nal+ verðlaunin og að myndatökumaðurinn Leif Benjour hlyti Kodak Nordic Vision verðlaunin fyrir bestu myndatöku í Fjögur afbrigði af brúnum (Fyra Nyanser av brunt), en leik- stjóri hennar er Tomas Alfredson. Tvær síðarnefndu myndirnar voru einnig frumsýndar á hátíðinni. Eins og áður hefur komið fram kepptu átta myndir til úrslita um norrænu kvikmyndaverðlaun hátíð- arinnar sem eru peningaverðlaun upp á 200 þúsund sænskar krónur (um tvær milljónir íslenskar) ásamt svo Kvikmyndadrekanum. Í dóm- nefnd sátu norrænir menningarvit- ar og listamenn: Moniika Tunbäck- Hanson kvikmyndagagnrýnandi var formaður nefndarinnar og með henni norski kvikmyndaleikstjórinn Nina Grünfeld; finnski kvikmynda- leikstjórinn Johanna Vuoksenmaa; danski kvikmyndagerðarmaðurinn Andres Refn og íslenski rithöfund- urin Steinunn Sigurðardóttir. Myndirnar voru auk sænsku verðlaunamyndanna og íslensku myndarinnar Kaldaljós sem var jafnframt vígslumynd föstudaginn 23. janúar: norska heimildarmyndin Gunnar tekur því rólega (Gunnar Goes Comfortable) eftir Gunnar Hall Jensen; framlag Dana voru myndirnar Tvíburarnir (Gemini) eftir Hans Fabian Wullenweber og heimildarmyndin Tinni og ég (Tint- in and I) eftir Anders Östergaard, og finnska myndin Ungir guðir (Hymipoika) eftir JP Siili var sýnd á áttunda degi eða föstudaginn 30. janúar, daginn áður en úthlutunin fór fram. Draumaleyfi Í fyrra sópaði Nói albínói að sér þrennum verðlaunum sem í ár voru veitt þrem ólíkum myndum: Kvik- myndaverðlaun sænsku kirkjunnar hlaut Fjögur afbrigði af brúnum og alþjóðlegu gagnrýnendaverðlaunin runnu í ár til Ungu guðanna, fyrir frumlegan frásagnarmáta og lýs- ingu á nútímaharmleik meðal ung- linga. Stuttmyndaverðlaunin – sem eru ekki lengur norræn, heldur tak- mörkuð við sænska stuttmyndagerð – hlaut Niklas Rådström fyrir myndina Eiffelturninn (Eiffeltorn- et). Rådström, sem er þekktur rit- og handritshöfundur þakkaði stutt og laggott: að vinna kvikmynda- verðlaun sem fimmtugur nýliði er mjög skemmtilegt, það góða við rit- höfundarstarfið er að maður þarf ekki að biðja um leyfi til að láta drauma sína rætast. Refurinn sem breyttist í Dreka Gautaborg. Morgunblaðið. Úr vinningsmyndinni. Laufey Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, ásamt fram- kvæmdastjóra Kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg, Jannike Åhlund. Morgunblaðið/Kristín Bjarnadóttir HJ. MBL  ÓHT. Rás2 Tónlist myndarinnar er eftir Hilmar Örn Hilmarsson MEG RYAN JENNIFER JASON LEIGH Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“ JANE CAMPION Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.  VG DV Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.  Roger Ebert Erótísk og örgrandi. Leikur Óskarsverðlaunahafanna er magnþrungin. Byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Philip Roth. í i i l f i . l l f i ili . Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. EPÓ Kvikmyndir.com Roger Ebert  AE. Dv  Skonrokk FM909 The Rolling Stone SV. Mbl 6 Tilnefningar til óskarsverðlauna m.a. besta mynd ársins Sýnd kl. 8. B.i. 16. 4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna Kvikmyndir.is DV  ÓHT Rás2 Sýnd í Stóra Salnum kl. 6 og 8. Heimur farfuglanna „l´auberge espagnole“ - Evrópugrautur Sýnd kl. 8 „l´adversaire“ - Óvinurinn Sýnd kl. 5,30 „la machine de mort Khmer“ - Drápsvél rauðu Khmeranna Sýnd kl. 10,30 „la faute á Voltaire“ - Skellum skuldinni á Voltaire Sýnd kl. 5,30 KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8 og 10. b.i. 14 ára. Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra dóma og viðtökur um allan heim. Tom Cruise hefur aldrei verið betri! EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8. Kvikmyndir.is DV  ÓHT Rás 2 i i .i 4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.