Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 53
Svona lítur plötuumslag nýrrar útgáfu Halldórs
Laxness út, sem væntanleg er 9. febrúar.
FROSTI Logason, gítarleikari hljómsveitarinnar
Mínuss, er mikill aðdáandi fótboltaliðsins Leeds og
þá sér í lagi Alans Smiths, sem er ein helsta hetja
liðsins. Í tilefni af því að Mínus spilaði í Leeds síð-
astliðinn fimmtudag ákvað Frosti að bjóða Alan á
tónleikana. „Við buðum honum á tónleika en hann
afþakkaði það með þökkum. Hann gat ekki komið
á tónleika svona stuttu fyrir leik. Hann bauð
okkur í staðinn að koma á völlinn og hitta
sig,“ segir Frosti sem þáði boðið – þrjá miða
– með þökkum og mætti á svæðið ásamt
Bjössa trommuleikara og Mána Péturssyni,
umboðsmanni sveitarinnar hérlendis.
Þetta er í fyrsta skipti sem Frosti fer á
leik með Leeds en hann hefur lengi verið
aðdáandi og segist vera gallharður
stuðningsmaður. Leikurinn var á laug-
ardaginn og mætti liðið Middles-
brough. Leikurinn fór þrjú-núll fyrir
gestina. „Við skíttöpuðum reyndar
og erum að fara að falla um deild.
Það er eiginlega öll von úti. En það
kemur annað tímabil eftir þetta,“
segir Frosti sem bætir við að
óhagstæð úrslit hafi ekkert
skyggt á daginn, sem var hin
besta skemmtun. „Þetta
skemmdi ekkert fyrir, það
að hitta sjálfan Alan Smith
sló allt út.“
Alan er bindindismaður
á áfengi og tóbak og góð
fyrirmynd að því leyti en að
sama skapi mikill harðjaxl.
„Alan Smith er svona holdgerving-
ur rokksins í enska fótboltanum,“
segir Frosti. Hann segir Alan hafa
komið sérlega vel fyrir og
hafa verið almennilegan og
skemmtilegan. „Hann var
mjög hress og opinn.“
Fékk geisladisk og nærbuxur
Strákarnir vilja launa greiðann og buðust til að
kynna Ísland fyrir fótboltakappanum ef hann
kæmi hingað og var hann áhugasamur um landið.
Alan fékk líka áritaðan disk og Mínus-g-streng
fyrir kærustuna.
„Við erum búnir að láta gera g-strengi
fyrir stelpurnar. Okkur fannst nauðsyn-
legt að hafa eitthvað að bjóða þeim.
Stelpur koma í auknum mæli á Mínus-
tónleika til að skemmta sér. Umboðsmað-
urinn okkar breski stakk upp á þessu og
við erum búnir að selja upp fyrsta
upplagið. En það verður prentað
meira.“
Tónleikaferðalagið hefur
gengið vel og er sveitin búin að
heimsækja borgir um allt
Bretland. „Við erum búnir að
spila á hverju kvöldi síðan við
fórum út 22. eða 23. janúar.
Á heildina litið er búið að
vera mjög góð mæting. Við
erum búnir að skemmta
okkur rosa vel sjálfir og
fullt af fólki í leiðinni. Við
höfum farið til allra þess-
ara helstu borga eins og
London, Manchester, Liv-
erpool og Glasgow,“ rifjar
Frosti upp.
Æfa fimm tíma á dag
Þeir komu aftur til
London í gærmorgun.
„Við erum núna í æfinga-
stúdíói að vinna að nýju
efni og æfa. Við höldum tón-
leika hérna næstu helgi. Við
erum skikkaðir til þess að
æfa fimm tíma á dag en að öðru leyti höfum við það
gott í London,“ segir Frosti en tvennir tónleikar
eru eftir af tónleikaferðalaginu.
Smáskífan Angel in Disguise kom út í gær og er
Frosti glaður yfir því. „Það er skemmtilegt að vera
kominn með fyrstu smáskífuna sína,“ segir hann
en skífan inniheldur samnefnt lag auk „Nice
Boys“, sem Rose Tattoo flutti upprunalega og
Guns N’Roses hefur líka tekið, og órafmagnaðrar
útgáfu af „Insomniac“.
„Alan Smith er svona holdgervingur
rokksins í enska fótboltanum,“ segir
Frosti í viðtalinu.
Mínus á tónleikaferðalagi um Bretland
Boðið á leik með Leeds
Smáskífan Angel in Disguise er komin út á
geisladiski og 7" vínyl í takmörkuðu upplagi.
Ný útgáfa breiðskífunnar Halldórs Laxness
með fjórum myndböndum sveitarinnar kemur
út hjá Sony 9. febrúar í Bretlandi, Írlandi og Ís-
landi.
www.smekkleysa.net
ingarun@mbl.is
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 53
UNGLINGAHLJÓMSVEITIN B2K,
sem hefur reyndar gefið upp önd-
ina, er stjarna myndarinnar Dans-
keppnin (You Got Served) sem var
mest sótta mynd helgarinnar í
Bandaríkjunum. Aðrar myndir
byrjuðu ekki eins vel enda er hefð
fyrir því að aðsókn sé ekki mikil í
kvikmyndahús helgina sem úrslita-
leikurinn í bandaríska fótboltanum,
Super Bowl, fer fram.
Fullt hús stiga (The Perfect
Score) með Scarlett Johansson og
Eriku Christensen segir frá ung-
mennum, sem eru að kljást við sam-
ræmd próf, fór beint í fimmta sætið
við dræma aðsókn. Hún var eina
önnur nýja myndin sem náði inn á
topp tíu.
Báðar þessar myndir hlutu frem-
ur slæma dóma en það bitnaði ekki í
sama hlutfalli á aðsókninni. Vin-
sældir B2K virðast vera það miklar
að sveitin fékk unglingana í bíó um
helgina. Myndinni gekk mun betur
en Sony bjóst við en undirfyrirtæki
þess, Screen Banner stendur á bak
við myndina.
Stjörnur myndarinnar, Omari
„Omarion“ Grandberry, sem yf-
irgaf B2K fyrir mánuði og ætlar að
starfa sóló, og aðrir fyrrverandi
sveitarmeðlimir Jarell „J-Boog“
Houston, DeMario „Raz-B“ Thorn-
ton og Dreux „Lil’ Fizz“ Frederic
leika götudansara í Los Angeles.
Segir myndin frá danskeppnum
milli hópa í borginni.
Tilnefningar til Óskars-
verðlaunna höfðu líka áhrif. Loka-
kafli Hringadróttinssögu er þar
fremstur í flokki en myndin er í
fjórða sætinu og er orðin vinsæl-
asta myndin í þessum þríleik.
Búið er að fjölga á ný kvik-
myndahúsum sem sýna mynd Clints
Eastwoods, Dulá (Mystic River),
sem hreppti líka margar tilnefn-
ingar. Er hún í níunda sæti en 17
vikur eru síðan hún var frumsýnd.
„Svo virðist sem fólki finnist það
hafa misst af einhverju og ákveði
að fara á myndina í bíó í stað þess
að bíða eftir að hún komi á mynd-
band,“ útskýrir Jeff Goldstein sölu-
stjóri myndarinnar.
Dansað á toppnum
!
" #
$ %
&
' (
#
)
*
% +
,-./
,/.,
,/./
0.1
0./
2.-
2.0
2.0
2.2
2.,
,-./
--.3
14.2
120.1
0./
00.2
53.3
,1.2
-2.6
,45.3
Unglingahljómsveit leikur í kvikmynd
31.01. 2004
8
5 8 1 1 3
3 8 6 6 5
30 32 33 38
27
28.01. 2004
5 8 12
13 36 39
24 47
FJÓRFALDUR
1. VINNINGUR
Í NÆSTU VIKU!
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
4741-5200-0002-5562
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
SMS
tónar og tákn
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Enskt. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 3.50. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Forsýning kl. 4 og 6. Ísl. tal.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
ÁLFABAKKI
kl. 3.40. Ísl. tal.
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Stórskemmtileg og sprenghlægileg
gamanmynd með Eddie Murphy sem
kemst í hann krappann ásamt fjölskyldu
sinni þegar þau gista á gömlu
draugasetri!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15.
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
GH. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.isHJ.MBL
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
FORSÝNING