Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 25
Fitulítil
og freistandi
Skráning á skrifstofu KFUM og K í síma 588 8899 á milli kl. 9.00 og 16.00 eða á kfum@kfum.is
FJÖLSKYLDUFLOKKUR
13. til 15. febrúar Fjölskylduflokkur
að vetri í Vatnaskógi. Tilvalið helgarfrí
fyrir fjölskylduna saman, dagskrá fyrir
alla aldurshópa.
Brottför: Rútuferðir eru frá Holtavegi 28
kl. 17.30 á föstudeginum fyrir þá sem þess óska.
Dagskráin í Vatnaskógi
hefst á föstudeginum
kl. 19:00 með kvöldverði.
Verð: 5.200 kr., frítt fyrir
3 ára og yngri, hámark fyrir
fjölskyldu er 19.000 kr.
VETRARSTARF Í VATNASKÓGI
VETRARFLOKKUR
20. til 22. febrúar
Fyrir drengi og stúlkur
á aldrinum 10 til 13 ára.
Þetta er í fyrsta sinn sem Skógarmenn
bjóða upp á vetrarflokk fyrir bæði stráka
og stelpur.
Brottför: Föstudaginn 20. febrúar 2004
kl. 17.30 frá Holtavegi 28.
Heimkoma: Sunnudaginn 22. febrúar 2004
kl. 16.30 að Holtavegi 28.
Verð: 5.900 kr. m/ferðum.
Íþróttir
Kassabílar
Gönguferðir
Listasmiðja
Fræðslustundir
Kvöldvökur
Hrunamanahreppur | Flúðaskóli
hefur bæst í hóp þeirra sjö skóla
sem taka að sér skólaþróunarverk-
efnið „Lesið í skóginn – með skól-
um“. Þetta er skólaþróunarverkefni
Skógræktar ríkisins og íslenskra
skólastofnana. Skipuleg fræðsla
grunnskólanemenda um vistfræði
skógarins og skógarnytjar.
Allir nemendur og kennarar voru
kallaðir á sal í vikunni þar sem Guð-
jón Árnason, settur skólastjóri, út-
skýrði verkefnið fyrir nemendum
ásamt Ólafi Oddssyni, fræðslufull-
trúa Skógræktar ríkisins.
Í rauninni má segja að verkefnið,
sem nú fer að stað í sjö skólum
landsins megi rekja til Flúðaskóla
en Guðmundur Magnússon, fyrrum
smíðakennari, dvaldi um tíma er-
lendis og kynnti sér þar gamlar
hefðir og vinnuaðferðir við viðarnýt-
ingu úr skógum. Þeir Guðmundur og
Ólafur hrundu af stað verkefni undir
yfirkriftinni „Lesið í skóginn – Tálg-
að í tré“ sem hófst með tálgunar-
námskeiðum og sérstökum skógar-
dögum þar sem fólki var kennt hvað
hægt væri að gera við viðinn, hvern-
ig nýta mætti hann beint úr skóg-
inum. Samvinna Guðmundsr og
Ólafs og þær athuganir og tilraunir
sem þeir gerðu er grunurinn af
þeirri samþættingu sem verkefnið
„Lesið með skóginn – með skólum“
felur í sér.
Samstarfssamningur
undirritaður
Guðjón Árnason skólastóri undir-
ritaði samninginn fyrir hönd Flúða-
skóla, Ólafur Oddsson fyrir Skóg-
rækt ríkisins, Kennaraháskólann,
Námsgagnastofnun og Kennara-
sambands Íslands, Sigríður Jóns-
dóttir f.h. Skógræktarfélags Hruna-
manna og Margrét Óskarsdóttir f.h.
Kvenfélags Hrunamanna. Grennd-
arskógur Flúðaskóla sem er margra
áratuga gamall og í eigu Kvenfélags-
ins er skógarreitur rétt við Flúðir og
mun félagið afhenda skólanum skóg-
arreitinn í þessum tilgangi.
Eins og fram hefur komið er til-
gangur verkefnisins „Lesið í skóg-
inn- með skólum“ að safna reynslu
og þekkingu um skipulega fræðslu
um skóga og skógarnytjar í grunn-
skólum. Það verður m.a. gert með
því að efla útinám sem nær til allra
námsgreina og aldursstiga í skólan-
um. Markmiðið er m.a. að nemendur
fræðist um vistfræði skógarins og
skógarnytjar en einnig að efla sam-
þættingu útináms við sem flestar
námsgreinar sem kenndar eru í
skólanum, segir í fréttatilkynningu.
Verkefnið stendur í tvö ár eða til
loka ársins 2005. Að því loknu er
vonast til að byggst hafi upp reynsla
og þekking í samvinnu við þessa
skóla sem svari því hvernig best sé
að standa að skipulegu útinámi í
grenndarskógi. Einnig er þess
vænst að námsefni verði tiltækt til
að auðvelda þeim sem velja að leggja
áherslu á samþætta fræðslu um
skóga og skógarnytjar í útinámi.
Námsgagnastofnun hyggst nýta sér
afrakstur verkefnisins til námefnis-
gerða, en Kennaraháskóli Íslands
mun meta starf móðurskólanna
kennslufræðilega og mun Kennara-
samband Íslands veita faglegan
stuðning.
Jóhannes Sigurðsson skógarvörð-
ur mun taka á móti hópum skóla-
nemenda sem koma til að skoða
skógana á Suðurlandi. Skógarvörður
á Suðurlandi er Hreinn Óskarsson.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Guðjón Árnason skólastjóri (l.t.v.), Hreinn Sveinsson og Ólafur Oddsson.
Flúðaskóli verður
„skógarskóli“
Þórshöfn | Þorrablót var haldið með
pompi og pragt hér á Þórshöfn
fyrsta laugardag í þorra. Líkt og
undanfarna laugardaga var hríð-
arveður og kuldi en það beit ekki á
blótsgesti sem fjölmenntu eins og
ávallt á þessa stærstu skemmtun í
byggðarlaginu.
Þorrablótsnefnd flutti skemmti-
dagskrá sína við góðar undirtektir
blótsgesta en atburðir og málefni
liðins árs voru dregnir fram í dags-
ljósið í nýjum búningi, líkt og hæfir á
slíkum samkomum. Þorramaturinn
frá Fjallalambi var vel úti látinn og
rann ljúflega niður í samkomugesti,
með tilheyrandi drykkjarföngum.
Hljómsveitin Von frá Sauðárkróki
hélt uppi dunandi dansi langt fram
eftir nóttu og lagði sitt af mörkum til
að gera þetta þorrablót að eft-
irminnilegri skemmtun.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þorrinn blótaður
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.