Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 1
SUÐUR-afrískur piltur dansar hefðbundinn dans súlúa við setn- ingu ráðstefnu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO) í Jó- hannesarborg í gær. Framkvæmdastjóri FAO, Jacques Diouf, sagði á ráðstefnunni að alvarlegur matvælaskortur væri í tæpum helmingi ríkja Afríku, eða 23 af 53, einkum vegna þurrka. Reuters Illa horfir í Afríku STOFNAÐ 1913 64. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Fólkið í dag Tvíhöfði: Sjötta aflið í íslensku samfélagi  Keðjusagan  Klink og Bank  Lífið í London Íslendingar söngelskir 30 ára afmæli Söngskólans fagnað með stórtónleikum | Listir 30 Kom sá og sigraði Elín Arnarsdóttir skíðakona komin á́ fulla ferð eftir veikindi | Íþróttir 56 Þráttað um Trabanta London. AFP. GÓÐBORGARAR í ensku þorpi hafa skorið upp herör gegn 49 Traböntum sem einn íbúanna hefur safnað og lagt í garði á bak við hús sitt. Eigandi Trabantanna, Graham Goodall, 58 ára fyrrverandi bifvélavirki, kveðst vera stoltur af þeim. „Ég tel að þeir séu fallegir bílar, hluti af menningararfleifð heimsins.“ Yfirvöld í þorpinu Middleton-by- Youlgreave eru á öndverðum meiði og krefjast þess að Goodall fjarlægi að minnsta kosti 40 bílanna eftir að nágrannar hans kvörtuðu yfir þeim. Goodall neitar að verða við kröfunni og kveðst ætla að leita til Mannréttinda- dómstóls Evrópu ef nauðsyn krefur. Trabantar eru eftirsóttir á Vest- urlöndum og Trabant, sem seldur var nýr á andvirði 235.000 króna árið 1991, getur nú kostað 920.000 krónur ef hann er í góðu ástandi. Aristide vill snúa aft- ur til Haítí París. AFP. JEAN-Bertrand Aristide sakaði í gær frönsk stjórn- völd um að hafa tekið þátt í samsæri með Banda- ríkjastjórn um að koma honum frá völdum á Haítí og knýja hann til að flýja þaðan. Aristide er nú í Bangui, höfuðborg Mið-Afríku- lýðveldisins, og kveðst vilja snúa aftur til Haítí. Hann segist ekki hafa sagt formlega af sér sem forseti lands- ins. Stjórn Suður-Afríku hvatti í gær til þess að efnt yrði til rannsóknar á tildrögum þess að Aristide flúði frá Haítí en bandaríska ut- anríkisráðuneytið hafnaði því í gærkvöldi.  Neyðarástandi/16 Aristide ÆTTINGJAR fórnarlamba hryðju- verkanna í Bandaríkjunum 11. sept- ember 2001 mótmæltu í gær sjón- varpsauglýsingum George W. Bush forseta þar sem notaðar voru myndir af rústum World Trade Center í New York og slökkviliðsmönnum að bera þaðan líkkistu sem var sveipuð bandaríska fánanum. Ættingjarnir sögðu auglýsingarn- ar smekklausar og sökuðu Bush um að notfæra sér hryðjuverkin í póli- tískum tilgangi. Formaður samtaka bandarískra slökkviliðsmanna tók í sama streng, sagði auglýsingarnar smánarlegar og krafðist þess að hætt yrði að sýna þær. „Mér býður við þessu,“ sagði Col- leen Kelly, sem missti bróður sinn í árásunum á World Trade Center og fer fyrir Friðsamlegri framtíð, hreyfingu ættingja fórnarlambanna. „Myndu menn fara að gröf einhvers og nota hana í pólitískum tilgangi? Ég lít svo sannarlega á rústirnar sem gröf.“ Ráðgjafi Bush, Karen Hughes, varði auglýsingarnar, sagði þær við- eigandi í kosningabaráttu sem sner- ist einkum um öryggismál og stríðið gegn hryðjuverkum. „Við syrgjum auðvitað öll fórnarlömb þessara skelfilegu árása, en 11. september gerbreytti stefnu okkar á margan hátt og ég tel mikilvægt að næsti for- seti geri sér grein fyrir því.“ „Með og á móti í öllum málum“ Bush gagnrýndi John F. Kerry, forsetaefni demókrata, í ræðu í fyrrakvöld og sakaði hann um óstað- festu í mikilvægum málum. „Frá því að hann kom fyrst til Washington hefur hann verið með og á móti í öll- um málum,“ sagði forsetinn um Kerry sem hefur átt sæti í öldunga- deild þingsins frá 1984. Rústamyndum í auglýsingum Bush mótmælt Washington. AP. ÖRUGGT þykir eftir rannsókn á hnífnum, sem fannst í sjónum við netabryggjuna í Neskaupstað fyrr í vikunni, að hann hafi verið notaður til að veita stungurnar sem fundust á líki Vaidas Jucivicius. Um er að ræða veiðihníf í slíðri og staðfesti Arnar Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn við Morgunblaðið í gær að lögreglan teldi að um rétta vopnið væri að ræða. Hnífurinn er með um 12 cm löngu, tenntu blaði og með stærstu hnífum sem leyfilegir eru hérlendis sam- kvæmt vopnalögum. Rannsókn lög- reglunnar hefur leitt í ljóst að hnífs- blaðið passar við sárin á líki Jucivicius en rannsókn á hnífnum er þó ekki lok- ið að fullu. Eftir er að rannsaka lífsýni á honum sem verður gert hér, en að því loknu verður ákveðið hvort hann verði sendur til DNA-greiningar í Noregi. Lögreglan hefur ekki greint neinum þeirra þriggja sakborninga sem sitja í gæsluvarðhaldi frá fundi hnífsins eða tengslum vopnsins við sárin á hinum látna. Að sögn Arnars er ekki komið að þeim þætti í rann- sókn málsins en það verði gert síðar. Ekki fékkst upplýst hvort sakborn- ingunum hefðu verið kynntar niður- stöður rannsóknar lögreglu á BMW- bifreið eins sakborninganna þar sem blóð úr hinum látna og umræddum sakborningi fannst með DNA-grein- ingu. Rannsókninni miðar vel, að sögn Arnars, og hefur vitnum í málinu fjölgað jafnt og þétt. Rætt hefur verið við hátt á annað hundrað vitni. Lögregla með réttan hníf MIKILL meirihluti félagsmanna í Landeig- endafélagi Laxár og Mývatns sem haldinn var í gærköld á Narfastöðum í Reykjadal samþykkti að hafna viðræðum við Landsvirkjun um hækk- un á stíflu Laxárvirkjunar nema bráðbirgða- ákvæði sem sett var inn í nýtt frumvarp um vernd Laxár og Mývatns félli út. Ályktun þessa efnis var samþykkt með 97 atkvæðum gegn 8. Í ályktun frá stjórn félagsins lýsir fundurinn „vonbrigðum með þá viðleitni til brota á sam- komulagi félagsins við stjórn Landsvirkjunar og ríkisvaldið sem undirritað var 19. maí 1973, sem í því felst“. Miklar umræður voru um hið umdeilda bráðabirgðaákvæði sem sett var inn í frumvarp- ið, en í því segir að Umhverfisstofnun geti heim- ilað hækkun stíflu við inntak Laxárstöðva eftir að gert hefur verið mat á umhverfisáhrifum og að fengnu samþykki Landeigendafélagsins. Í áðurnefndri sáttargjörð er skýrt kveðið á um að hækkun á vatnsborði Laxár til raforkufram- leiðslu sé ekki heimil. Atli Vigfússon á Laxa- mýri, formaður Landeigendafélagsins, las á fundinum bréf frá Landsvirkjun þar sem óskað er eftir að félagið tilnefndi tvo menn í viðræðu- nefnd til að fara yfir þann vanda sem við rekstri Laxárvirkjunar blasir. Kári Þorgrímsson í Garði og stjórnarmaður í Landeigendafélaginu flutti tillögu um að félagið yrði við þessu erindi að því tilskildu að bráðabirgðaákvæðið yrði fellt úr lögunum. Hann sagði Landsvirkjun verða að koma með nýja nálgun á málið, „hún verður að lækka seglin, sætta sig við eitthvað minna,“ sagði Kári, en í meir en áratug hefði einungis verið horft til þess að hækka stífluna í Laxá um 12 metra. Tillaga Kára var samþykkt með 97 at- kvæðum gegn 8. Þrír sátu hjá. Í ályktun Landeigendafélagsins kemur fram að fráleitt sé að halda því fram að bann í lögum við vatnsborðsbreytingum gangi lengra en sam- ið var um ’73, „þótt í samningnum sé áskilnaður um samþykki Landeigendafélagsins hafður í þeim augljósa tilgangi að gera því kleift að stöðva hugsanleg brot á samningnum, til dæmis með breytingu á lögunum af því tagi sem nú hef- ur verið lagt til af umhverfisráðherra.“ Mikill meirihluti fundarmanna samþykkti til- lögu Kára Þorgrímssonar þess efnis að áform Landsvirkjunar um allt að 12 metra hækkun stíflunnar í Laxá væru „algjörlega ósamþýðan- leg samningi félagsins við stjórn Laxárvirkjun- ar og ríkisstjórn Íslands sem gerður var 19. maí 1973 og lýsir sig andvígt þeim.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjölmennt var á félagsfundi í Landeigenda- félagi Laxár og Mývatns í gærkvöld. Hafna viðræðum nema bráðabirgðaákvæðið falli út Narfastöðum. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.