Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ RÉTTI HNÍFURINN Rannsókn á hnífnum, sem fannst í sjónum við netabryggjuna í Nes- kaupstað fyrr í vikunni, hefur leitt í ljós að öruggt þykir að hann hafi verið notaður til að veita stungu- áverkana sem fundust á líki Vaidas Jucivicius. Stjórnarskrá undirrituð Íraska framkvæmdaráðið hyggst í dag undirrita bráðabirgðastjórn- arskrá sem á að gilda a.m.k. út næsta ár og er sögð marka tímamót í sögu Íraks. Öryggisviðbúnaðurinn var aukinn í landinu vegna hættu á að hryðjuverk yrðu framin í dag til að mótmæla stjórnarskránni. Hönnun að mestu lokið Hönnun rafskautaverksmiðju í landi Kataness í Hvalfirði er nánast lokið og vinna við gerð umhverf- ismats og tilboða í vélbúnað langt komin. Skipulagsstofnun hefur sam- þykkt matsáætlun á umhverfisáhrif- um og búist er við að matsskýrsla verði tilbúin í vor. Auglýsingum Bush mótmælt Ættingjar fórnarlamba hryðju- verkanna í Bandaríkjunum 11. sept- ember 2001 mótmæltu í gær sjón- varpsauglýsingum Bush Banda- ríkjaforseta vegna þess að notaðar voru myndir af rústum World Trade Center og af slökkviliðsmönnum að bera þaðan líkkistu. Ættingjarnir sökuðu Bush um að notfæra sér hryðjuverkin í pólitískum tilgangi en ráðgjafi hans neitaði því. Fundur um Laxárvirkjun Skiptar skoðanir voru á fundi Landeigendafélags Laxár og Mý- vatns um ágæti frumvarps umhverf- isráðherra sem kveður á um heimild til að hækka stíflu í Laxá. Andstaða var við að Alþingi veitti heimild til framkvæmda sem gildir til tíu ára. Markmiðið með framkvæmdunum er að leysa vandamál sem tengjast rekstri Laxárvirkjunar. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 38/41 Viðskipti 12/14 Minningar 42/47 Erlent 16/18 Dans 48 Höfuðborgin 22/23 Kirkjustarf 49 Akureyri 24 Bréf 52 Suðurnes 25 Dagbók 54/55 Austurland 26 Íþróttir 56/59 Landið 27 Leikhús 60 Listir 29/31 Fólk 61/65 Daglegt líf 32/33 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Viðhorf 38 Veður 67 * * * Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er dreift á landsbyggðinni. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is  Litli svarti kjóllinn  Níutíu og þrjár hugdettur  Útrás tveggja systra  Heimili við hafið  Lúxusjeppar  Fígaró bak við tjöldin  Á rauða dreglinum  Harvey Pekar í American Splendor Á SUNNUDAGiNN Sunnudagur 07.03.04 SYSTURNAR SIGYN OG SIGNÝ HÖFÐU ALDREI KOMIÐ NÁLÆGT LEIKHÚSREKSTRI ÞEGAR ÞÆR TÓKU ÞÁTT Í AÐ STOFNA LEIKHÚSMÓGÚLINN litli SVARTI KJÓLLINN Kraftmiklir lúxusjeppar: Draumur með leðri í hólf og gólf og stútfullur af alls konar tæknibúnaði og brellum SAMTÖK atvinnulífsins telja brýnt að ráðist verði í að endur- skoða lög um Félagsdóm eftir að Hæstiréttur sneri við dómi Hér- aðsdóms í máli með vísan til þess að dómar Félagsdóms séu lögum samkvæmt endanlegir og verði ekki áfrýjað og dómurinn því ekki bær til þess að fjalla efnislega um málið. Þetta kemur fram í grein eftir Hrafnhildi Stefánsdóttir, yfirlög- fræðing Samtaka atvinnulífsins, í fréttabréfi Samtakanna. Segir hún að Félagsdómur hafi þannig end- anlegt úrskurðarvald um túlkun á félagafrelsisákvæðum stjórnar- skrár þegar meta þurfi áhrif þeirra á efni kjarasamninga. Nið- urstaða í slíkum málum verði ekki endurskoðuð á æðra stjórnstigi. „Draga verður í efa að slík skip- an sé réttlætanleg þegar um er að ræða mál sem ekki krefjast skjótr- ar úrlausnar og varða mikilsverða hagsmuni, eða í þeim tilvikum að önnur löggjöf en lög um stéttar- félög og vinnudeilur kann að hafa afgerandi áhrif á niðurstöðu máls. Í þeim tilvikum verður heldur ekki séð að röksemdir um sérþekkingu Félagsdóms eigi við. Styrkur Fé- lagsdóms er á hinn bóginn að þar má fá skjóta úrlausn þegar nið- urstaða þolir ekki bið og mikil verðmæti eru í húfi, svo sem í deil- um um lögmæti verkfalla,“ segir ennfremur. Fram kemur að Félagsdómur hafi starfað með svipuðum hætti frá stofnun dómsins árið 1938 og skilað góðu starfi. „Þjóðfélagshættir hafa gjör- breyst á þessum tíma, aðstæður á vinnumarkaði orðið margbreyti- legri og meðferð mála fyrir dóm- stólum breyst, t.d. með mögu- leikanum á flýtimeðferð. Það er jafnframt viðurkennd meginregla að menn skuli eiga kost á að fá dóma endurskoðaða á æðra dóm- stigi, a.m.k. þegar um mikilsverða hagsmuni er að ræða. Það er óvið- unandi að niðurstöður dómsins í mikilvægum málum sem hafa al- mennt gildi, eins og á við í því máli sem hér er til umfjöllunar, fáist ekki endurskoðaðar,“ segir einnig í grein Hrafnhildar Stefánsdóttur lögfræðings. SA vilja endurskoða lög um Félagsdóm ÞAÐ var glatt á hjalla og dragspils- tónar fylltu gangana á fjórðu hæð- inni á Hrafnistu í Hafnarfirði í gær, þegar Yngvi Kristjánsson frá Stykkishólmi fagnaði 100 ára af- mæli sínu í hópi góðra vina og ætt- ingja. Yngvi er fæddur og uppalinn á Snæfellsnesinu. Fyrstu árin dvaldi hann í Pétursbúð á Arn- arstapa en síðan flutti hann á Kald- árlæk í Staðarsveit þar sem hann bjó lengi vel. Helsta dægradvöl Yngva þessa dagana er neftóbakið og lumar hann alltaf á tóbakspontu í hendinni. „Það var sérstök sort af neftóbaki sem ég var spenntur fyrir hér áður fyrr en nú tek ég bara íslenskt nef- tóbak,“ segir Yngvi með votti af söknuði í röddinni, en skopskynið er aldrei langt undan, því hann þakkar langlífi sitt því að hafa verið illa upp alinn. Hann drekkur kaffi og kók, borðar sykurmola, brjóstsykur og kandís og tæpti á brjóstbirtunni þar til fyrir nokkrum árum. Yngvi segist enginn gikkur vera á mat, enda sé allt í uppáhaldi hjá sér sem hann fær að borða. Hann var líka í eina tíð hinn öflugasti glímu- kappi og trónaði yfir Snæfellsnesinu á þeim vígvelli og var um hann kveðin þessi vísa: Glímur skvaldur hríðarhöld hjá hlynum skjaldafræknum, en alla taldi ofan af jörð hann Yngvi af Kaldárlæknum. Morgunblaðið/Eggert Yngvi Kristjánsson ásamt barnabarni sínu, Sigríði Haraldsdóttur. Hundrað ára glímu- kappi af Snæfellsnesi LÆKKUN Bandaríkjadals síðustu mánuðina hefur ekki skilað sér til neytenda í formi lækkaðs vöruverðs á morgunkorni að því er fram kemur á heimasíðu Neytendasamtakanna, en samtökin könnuðu verð í versl- unum 23. febrúar síðastliðinn og báru saman við aðra slíka könnun sem gerð var í júlí á síðasta ári. Fram kemur að samtökin hafi haft samband við Nathan og Olsen, sem er innflytjandi morgunkorns frá General Mills sem framleiðir til dæmis Cheerios og Cocoa Puffs, í framhaldi af því að ábending hafi borist um að lækkunar á dal gætti ekki í verði á morgunkorni. Í svari heildsalans hefði komið fram að verð til smásala hefði lækkað um 5,5% síð- an í júní í fyrra og í framhaldi af því var verðkönnunin gerð. Hún leiddi í ljós að sú verðlækkun hefði ekki skil- að sér til neytenda nema að litlu leyti. Flestar verslanir hefðu þvert á móti hækkað verð á þessum vörum á tímabilinu, en einungis fjórar versl- anir hefðu lækkað verðið. Fram kemur á heimasíðunni að mesta lækkunin sé að meðaltali 4% í 10–11, 3% í 11–11, 2% í Spar og 1% í Fjarðarkaupum. Mesta hækkunin var hins vegar 6% í Nettó, 4% í Nóa- túni og 3% í Strax og Samkaupum. Lækkunar dals gætir ekki í verði á morgunkorni HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær rúmlega tvítugan karlmann af ákæru ríkissaksóknara sem gaf ákærða að sök kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli frænku ákærða í desem- ber 2001. Ákærði var m.a. sakaður um að hafa sumpart notfært sér það að stúlkan gat ekki spornað við kyn- mökunum sökum ölvunar. Með framburði þriggja vitna þótti sannað að kynferðismökin hefðu átt sér stað og að ákærði hefði greint rangt frá athöfnum á milli hans og stúlkunnar. Í forsendum héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti, segir að dóm- urinn hafi staðið frammi fyrir þeim vanda að meta hvort ákærði hefði beitt frænku sína þvingun. Ljóst væri að hann hefði beitt yfirburðum sínum í krafti aldurs og stöðu sem eldri frændi og trúnaðarvinur og einnig vegna ölvunar stúlkunnar. Segir dómurinn að þótt ekki sé ve- fengd sú frásögn hennar að hún hafi streist á móti, þá yrði ekki framhjá því litið að þrjú vitni að atvikinu treystu sér ekki til þess að staðfesta að þvingun hefði átt sér stað. Var það því niðurstaða dómsins að ákærði yrði að njóta vafa um það hvort þvingun hefði átt sér stað. Dómur Hæstaréttar var kveðinn upp af hæstaréttardómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Garðari Gíslasyni, Guðrúnu Erlendsdóttur, Hrafni Bragasyni og Pétri Kr. Haf- stein. Verjandi ákærða var Sveinn Andri Sveinsson hrl. og sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari hjá rík- issaksóknara. Sýknaður af ákæru fyrir kyn- ferðisbrot
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.