Morgunblaðið - 05.03.2004, Side 10

Morgunblaðið - 05.03.2004, Side 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks Stofnað skuli hluta- félag um rekstur RÚV PÉTUR H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir frumvarpi um breytingu á útvarps- lögum á Alþingi í gær en í því er m.a. lagt til að stofnað skuli hlutafélag um rekstur Ríkisútvarpsins hinn 1. júlí nk. Meðflutningsmenn frumvarpsins eru Birgir Ármannsson og Sigurður Kári Kristjánsson, þingmenn Sjálf- stæðisflokksins. „Megininntak þessa frumvarps er að útvarpsgjald verði aflagt,“ sagði Pétur er hann mælti fyrir frumvarp- inu, „þar er gert ráð fyrir því að lög um Ríkisútvarpið falli úr gildi 1. jan- úar 2005. Þar með fellur skyldu- áskrift landsmanna að Ríkisútvarp- inu úr gildi.“ Hann sagði að til þess að afla tekna á móti væri lagt til að persónu- afsláttur yrði lækkaður um eitt þús- und krónur á mánuði eða tólf þúsund krónur á ári. „Það á að gefa sömu tekjur samkvæmt útreikningum og útvarpsgjaldið gefur í dag eftir kostnað.“ Þær tekjur eiga síðan, skv. frumvarpinu, að renna til útvarps- ráðs, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að það starfi áfram og verði áfram skipað af Alþingi. „Útvarps- ráð fær þannig sömu peninga til ráð- stöfunar en dreifir þeim út með út- boðum. Það geti allir boðið í þau verk [sem Ríkisútvarpið hefur sinnt hing- að til] þar á meðal Ríkisútvarpið hf.“ Í frumvarpinu er, eins og áður sagði, lagt til að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag og selt. Pétur sagði að í því ferli ætti að gæta hags- muna starfsmanna RÚV að fullu. Þeir ættu að njóta forgangs við kaup á hlutabréfum í Ríkisútvarpinu hf. á lækkuðu verði. Fáir þingmenn tóku til máls í um- ræðunni, fyrir utan flutningsmenn. Nokkrir þingmenn Samfylkingar- innar spurðu flutningsmenn út í ein- stök atriði en tóku fram að þeir væru ekki hlynntir því að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra ítrekaði á Alþingi í gær að með eflingu sérdeildar lögreglunnar á næstu árum væri verið að gera ráð- stafanir til að treysta öryggi hins al- menna lögreglumanns og þar með al- mennt öryggi í landinu. „Ég vona að háttvirtir alþingismenn séu mér sam- mála um nauðsyn þess að gera skipu- legar ráðstafanir til að sporna við of- beldi sem ógnar öryggi hins almenna borgara.“ Björn sagði að þessi ráðstöfun, sem hann hefði beitt sér fyrir með samþykki ríkisstjórnarinnar, lyti ekki að því að stofna íslenskan her. Með henni væri heldur ekki verið að stofna leyniþjónustu. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hélt því hins veg- ar fram í umræðunni að ráðherra væri með umræddri ráðstöfun að stofna íslenskan her. Ögmundur Jón- asson, þingmaður Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs og málshefj- andi umræðunnar, ýjaði að því sama. „Ekki verður fram hjá því litið að Björn Bjarnason hefur lengi verið mikill áhugamaður um að koma á fót íslenskum her,“ sagði Ögmundur. Ráðherra vísaði fullyrðingum í þessa átt hins vegar á bug. „Ég virði það að menn hafi önnur sjónarmið varðandi þetta,“ sagði hann, „en bið þá um að ræða það á hlutlægum, mál- efnalegum forsendum en ekki láta mína persónu villa sér sýn og eitt- hvert ruglutal um það hvaða hug- myndir þeir hafa um viðhorf mitt til einstakra mála. Þetta eru viðfangs- efnin sem við stöndum frammi fyrir, háttvirtir þingmenn, að gera þjóðfé- lagið betra og öruggara. Því miður eru aðstæður þannig að það er nauð- synlegt að grípa til þessara ráðstaf- ana.“ Á síðu dómsmálaráðuneytisins kemur fram að efling sérsveitar lög- reglunnar á þessu ári felist í því að 16 sérsveitarmanna hjá lögreglunni í Reykjavík muni heyra undir embætti ríkislögreglustjóra. Kom sú breyting til framkvæmda um mánaðamótin. Til að mæta því verður lögreglu- mönnum í Reykjavík fjölgað um tíu hinn 1. júní nk. Fjölga á sérsveitar- mönnum enn frekar á næsta ári, að því er fram kemur á síðunni, og er stefnt að því að þeir verði rúmlega fimmtíu innan fárra ára. Ögmundur sagði í framsöguræðu sinni í gær mikilvægt að ræða eflingu sérdeildarinnar. Hann spurði síðar hvernig efla ætti og auka öryggi borgaranna og lögreglunnar. „Ég tel að það eigi að gera með því að efla forvarnir og almenna löggæslu úti á meðal almennings í hverfum borgar- innar, ef við lítum á höfuðborgar- svæðið,“ sagði þingmaðurinn og bætti því við að staðan þar væri ekki nógu góð. Aðrir þingmenn Vinstri grænna, sem þátt tóku í umræðunni, tóku í sama streng. Atli Gíslason, varaþing- maður VG, sagði m.a. að forvarnir og barátta gegn fíkniefnabölinu væru brýnustu verkefni lögreglunnar um þessar mundir. „Af hverju eru sér- sveitarpeningarnir ekki lagðir í þá málaflokka og vegið að rótum vand- ans í staðinn fyrir að hanga í afleið- ingunum?,“ spurði hann. Þá sagði Jón Bjarnason, þingmaður VG, að umræddar áherslur dómsmálaráð- herra væru rangar. „Grenndarlög- gæslan, sem við í orði kveðnu leggj- um áherslu á, hefur verið að skreppa saman og ég óttast að hún muni halda áfram að skreppa saman ef stefna dómsmálaráðherra nær fram að ganga.“ Fagnar áherslum ráðherra Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fagnaði á hinn bóginn þeim áherslum og þeim breytingum sem dómsmálaráðherra hefði boðað í löggæslumálum. „Ég tel engan vafa leika á því að í ljósi vax- andi hörku í afbrotum er brýnt að efla sérsveitarlöggæslu á landinu öllu,“ sagði hún. „Við þurfum ekki annað en að horfa á fréttatíma í sjón- varpinu og það fer kannski hálfur þáttur í að fjalla um glæpi, afleiðing- ar þeirra og dómana. Þetta er því miður hluti af því þjóðfélagi sem við búum í, hluti sem við kærum okkur ekki um. Við viljum ekki búa við það að bankarán séu daglegt brauð, að fólk treysti sér ekki orðið út eitt á kvöldin af ótta við að verða fyrir árás eða að menn keyri um landið þvert og endilangt til þess eins að fela lík. Við þessu öllu og fleira til eru stjórnvöld að bregðast.“ Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, var ekki á sama máli og sagði að ákvörðun ráð- herra um eflingu sérsveitarinnar væri illa rökstudd skyndiákvörðun. Þá væri forgangsröðun ráðherrans vægast sagt sérkennileg. „Hæstvirt- ur ráðherra skuldar þjóðinni útskýr- ingar á þessari forgangsröðun. Var efling sérsveitarinnar brýnna verk- efni en t.d. að tryggja skilvirkni dóm- stóla, en dómarar landsins hafa séð sig knúna til að benda á fjárskort dómstóla?“ spurði hann. Í máli Einars Odds Kristjánsson- ar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og varaformanns fjárlaganefndar þingsins, kom fram að hann drægi ekki í efa rök dómsmálaráðherra um að mikilvægi þess að efla sérsveit lögreglunnar. Einar taldi hins vegar rétt að minna á að það mikla verk biði ríkisstjórnarinnar að stemma stigu við samneyslunni í þjóðfélaginu. „Þess vegna segi ég hér og nú að ég ætla að vona að svo gott mál sem hér er borið upp af dómsmálaráðherra verði ekki til þess að menn slaki á að- alverkefninu, að standa vörð um rík- isfjármálin.“ Þingmaður Samfylkingarinnar, Helgi Hjörvar, túlkaði þessi orð Ein- ars Odds á þann hátt að dómsmála- ráðherra fengi ekki peninga til efl- ingar sérsveit lögreglunnar. „Það er fagnaðarefni að varaformaður fjár- veitinganefndar skuli hafa lýst því yf- ir að dómsmálaráðherra fái ekki pen- inga almennings í þennan leiðangur sinn,“ sagði hann. Í máli Helga kom aukinheldur fram að önnur verkefni væru meira knýjandi en þau sem ráð- herra hefði lagt áherslu á. „Verkefn- in í íslensku samfélagi eru knýjandi í almennri löggæslu, í eflingu fíkni- efnalögreglunnar, í því að koma sýslumannsembættinu í Keflavík út úr gámunum, í því að tryggja dóm- stólunum starfsskilyrði. En í stað þess að fara í skýluna og sinna þess- um aðkallandi verkefnum stekkur dómsmálaráðhera fram með stórefl- ingu sérsveitanna, Víkingasveitar- innar.“ Vaxandi ofbeldishneigð Kristinn H. Gunnarsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins, sagði að erfitt væri að mæla á móti því, sem fram kæmi hjá dómsmálaráðherra, að tilefni væri til að taka þessi mál til endurskoðunar. „Það er vaxandi of- beldishneigð í þjóðfélaginu og glæpir verða alvarlegri með hverju árinu sem líður. Það er hlutverk dóms- málaráðherra sem yfirmanns lög- reglumála í landinu að skoða þessi mál og gera tillögur um breytingar eftir því sem hann telur þörf á.“ Þing- maðurinn lagði hins vegar áherslu á að heimilda fyrir útgjöldum til um- rædds verkefnis yrði leitað á Alþingi. „Fjárveitingavaldið er hér á Alþingi en ekki hjá ríkisstjórninni.“ Undir lok umræðunnar sagði Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að efla sérsveit lögreglunnar væri skynsamleg og nauðsynleg. „Við landsmenn þurfum að takast á við ný verkefni á sviði lög- reglumála af ábyrgð og festu. Þróun í tegundum afbrota innan lands og auknar kröfur til okkar í alþjóðasam- félaginu gera kröfu til þess að við högum skipulagi lögreglumála þann- ig að við stöndum undir þeim vænt- ingum sem þessir aðilar gera til okk- ar. Þær ákvarðanir sem núna hafa verið teknar tryggja það að við get- um staðið undir þessum væntingum.“ Þingmenn ræða ákvörðun dómsmálaráðherra um eflingu sérsveitarinnar Miðar að því að treysta öryggi almennra borgara Morgunblaðið/Sverrir Björn Bjarnason varði ákvörðun sína um að efla sérsveit lögreglunnar. GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins, gerir athugasemdir við fjölmörg efn- isatriði í raforkufrumvörpum iðnað- arráðherra, sem nú eru til umfjöllun- ar í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Beinist gagnrýni Guðlaugs Þórs og fleiri þingmanna Sjálfstæðisflokksins m.a. að því að breytingin gæti leitt til hækkunar á orkuverði. Ekki hluti af innri markaði Evrópu Hann kveðst einnig vera ósáttur við að tekin skuli upp tilskipun Evr- ópusambandsins um innri markað raforku í Evrópu eins og gert er í frumvörpunum. „Það segir sig sjálft að við erum ekki hluti af innri mark- aði Evrópu með sama hætti og löndin á meginlandinu og aðstæður hér á landi eru þess eðlis að ég er því miður svartsýnn á að við sjáum alvöru sam- keppni á þessu sviði, þrátt fyrir þess- ar breytingar,“ segir Guðlaugur Þór. „Nú er til staðar ákveðin samkeppni um orku til stóriðju og vonandi munu þessar breytingar leiða til samkeppni um stærri notenda en um aðra samkeppni verður vart að ræða.“ Hann segist m.a. vilja að tryggt yrði að tekið verði tillit til raunkostnaðar í flutn- ingskerfinu. „Það er dýrara að flytja orku um langan veg, sem hefur m.a. í för með sér orkutöp. Ég tel að við verðum að byggja upp kerfi sem tekur tillit til þessa. Það eru heimild- arákvæði um það í þessum frum- varpsdrögum en ég hefði viljað að það lægi alveg ljóst fyrir að það væri ekki aðeins heimilt, heldur skylt að taka tillit til raunkostnaðarins,“ segir hann. „Mikilvægt er að átta sig á að mið- að við þær forsendur sem liggja fyrir munu breytingar á lögunum hækka verð til viðskipta- vina OR um 1%. Það þýðir ekki að forstjóri Orkuveitunnar hafi farið með rangt mál. Ef breyt- ingarnar ná fram að ganga þarf OR að gera arðsemiskröfur til dreifi- kerfisins sem fram til þessa hefur ekki skilað arði og hefur í raun verið greitt niður af fram- leiðsluþætti fyrirtæks- ins. Það er hins vegar ekkert sem bannar Orkuveitunni að halda áfram að greiða þann þátt niður þrátt fyrir að slíkt verði að vera sýnilegt. Ef arðsemi á nýja flutningsfyrirtækið eða flutningskerfið verður hækkað getur það valdið hækkun ef að engin hagræðing næst en ákvörðun um hækkun arðseminnar er í höndum eigendanna, orkufyrirtækjanna,“ segir hann. Allt að 30 milljarða styrkir Guðlaugur Þór segir einnig mikil- vægt að ekki verði tekinn inn hinn svokallaði sokkni eða félagslegi kostnaður, þ.e. vegna hinna ýmsu styrkja ríkisins til orkukerfisins á um- liðnum árum, þegar meta á eignir sem lagðar verða skv. frumvörpum um inn í fyrirtækið, sem mun annast flutning raforkunnar til dreifiveitna. „Það liggur fyrir að ef litið er langt aftur er hægt að framreikna að rík- isvaldið hafi með yfirtöku skulda og framlögum styrkt framleiðslu- og dreifikerfið upp á allt að 30 milljarða króna. Þá er ekki tekið tillit til nið- urgreiðslna sem eru nú um 870 millj- ónir kr. á ári,“ segir hann. „Ef allur sá kostnaður verður reiknaður inn hefði það þær afleiðingar að verðið hækk- aði á flutningnum hjá þessu flutnings- fyrirtæki og það myndi koma niður á öllum landsmönnum og þá sérstak- lega íbúum höfuðborgarsvæðisins,“ segir hann. Mikilvægt að skilgreina betur hlutverk orkufyrirtækja Guðlaugur Þór telur einnig að þeg- ar ráðist er í breytingar af þessu tagi þurfi að skilgreina betur hlutverk orkufyrirtækja. „Við erum að horfa upp á að teknar hafa verið hátt í 20 þúsund milljónir á núvirði út úr okkar öfluga fyrirtæki Orkuveitu Reykja- víkur á síðustu tíu árum, sem hafa far- ið í að reyna að rétta við stöðu borg- arsjóðs, Línu-Net og Tetra ævintýrið, byggingu orkuhúss o.fl. Það er auðvit- að ekki hægt að láta stjórnmálamenn nota orkufyrirtækin með þessum hætti í gæluverkefni, á borð við risa- rækjueldi og ævintýri á fjarskipta- markaði, og senda svo reikninginn til Orkuveitunnar,“ segir hann. „Ég vil ekki að hagsmunir Reyk- víkinga og íbúa suðvesturhornsins verði fyrir borð bornir,“ segir Guð- laugur Þór að lokum. Guðlaugur Þ. Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, um raforkufrumvörpin Guðlaugur Þór Þórðarson Gerir allmargar athugasemdir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.