Morgunblaðið - 05.03.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 11
TVÖ ALÞJÓÐLEG skákmót, Reykjavík-
urskámótið og í framhaldi af því Reykjavík
Rapid 2004, verða haldin í Reykjavík í mars.
Mikil og spennandi skákveisla er því fram-
undan frá og með sunnudeginum, en þá hefst
Reykjavíkurskákmótið, og allt fram til 21.
mars þegar teflt verður til úrslita á Reykjavik
Rapid 2004, en þar verða bæði Garrí Kasp-
arov, sterkasti skákmaður heims og Anatolí
Karpov, fyrrum heimsmeistari, meðal þátttak-
enda.
Reykjavíkurskákmótið verður haldið í Ráð-
húsi Reykjavíkur dagana 7.–16. mars en nú
eru 40 ár liðin frá því fyrsta Reykjavík-
urskámótið var haldið og verður mótshaldið nú
sérstaklega veglegt af því tilefni. Nú þegar
hafa um 30 erlendir skákmenn tilkynnt þátt-
töku sína en keppendur verða að öllum lík-
indum á bilinu 70 til 80. Tefldar verða níu um-
ferðir og hefst fyrsta umferðin kl. 17 á
sunnudaginn en síðasta umferðin fer fram
þriðjudaginn 16. mars.
Stærsta mótið á vegum
Skáksambandsins frá 1972
Helgi Ólafsson, stjórnarmaður í Skák-
sambandi Íslands, sem hefur unnið að und-
irbúningi Reykjavik Rapid 2004, sem Atlantsál
styrkir, segir undirbúning hafa gengið vel.
Þetta sé þó mikið verkefni og fyrirtæki og
sambandið hafi ekki haldið „stórt mót“ frá því
heimsmeistaraeinvígið fór hér fram árið 1972.
„Þetta er eitt af stærstu verkefnum sem Skák-
sambandið hefur verið með. Það er engin
spurning og þetta er viðburður sem við erum
mjög stoltir af. Ég hef líka verið að benda sér-
staklega á 40 ára afmæli Reykjavíkurskák-
mótsins; eftir því sem ég veit best er það fyrsti
reglulegi alþjóðlegi íþrótta- eða menningar-
viðburðurinn sem tengist nafni Reykjavíkur.
Skáksambandið er stolt af þessari hefð og
sögu og mótið verður geysilega sterkt og vel til
þess vandað,“ segir Helgi.
Hermann Gunnarsson
kynningarstjóri mótsins
Erlendu skákmennirnir sem tefla á Reykja-
vík Rapid 2004 eru, auk Kasparovs og Karp-
ovs, Nigel Short frá Englandi, Alexei Drejev
frá Rússlandi, Peter Heine Nielsen, Dan-
mörku, og Emil Sutovsky frá Ísrael. Íslend-
ingarnir, sem boðið hefur verið á mótið, eru
Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson.
Þá gefa þrjú efstu sætin á Reykjavík-
urskámótinu rétt og sá Íslendingur sem stend-
ur sig best á Reykjavíkurskákmótinu ávinnur
sér einnig þátttökurétt. Teflt verður á veit-
ingastaðnum NASA við Austurvöll og verður
bein útsending á RÚV síðustu tvo dagana auk
þess sem sjónvarpið verður með sérþætti alla
dagana en kynningarstjóri verkefnisins er
Hermann Gunnarsson, sem þekktur er fyrir
áhuga sinn á skák.
„Við erum komnir með keppendalistann að
öllu öðru leyti en því,“ segir Helgi, „að það eru
tvö sæti laus, og það eru ýmsir möguleikar í
stöðunni. Menn hafa jafnvel verið að velta því
fyrir sér hvort það gæti komið til greina að
bjóða norska undrabarninu Magnúsi Karls-
syni. En við höfum verið að stíla inn á að þetta
verði menn með kringum 2.700 stig og erum að
skoða þetta,“ segir Helgi, en það mun skýrast
fljótlega hverjir fylli þessi tvö sæti.
Mótið hefst 17. mars en Helgi segir að Kasp-
arov og Karpov verði komnir deginum áður.
„Árangur Kasparovs er alveg ótrúlegur.
Það má eiginlega segja að þau skipti sem hann
er ekki í efsta sæti á móti séu bara teljandi á
fingrum annarrar handar. Það er ekkert flókn-
ara en það, alveg frá árinu 1981. Hann er alveg
ótrúlegur með þetta,“ segir Helgi.
Veglegt Reykjavíkurskákmót verður haldið í þessum mánuði á 40 ára afmæli mótsins
Mikil og spennandi
skákveisla framundan
Kasparov og Karpov koma til landsins 16. mars
Morgunblaðið/Ómar
Helgi Ólafsson: „Þetta er eitt af stærstu verkefnum sem Skáksambandið hefur verið með. Það
er engin spurning og þetta er viðburður sem við erum mjög stoltir af.“
VEXTIR byrja að safnast á við-
bótarlán hjá Íbúðalánasjóði strax
eftir að fasteignaveðbréf hafa ver-
ið gefin út, en lánin eru ekki
greidd út fyrr en búið er að þing-
lýsa fasteignaveðbréfið og koma
því til sjóðsins. Íbúðarkaupandi
hefur gert athugasemd við þetta
fyrirkomulag, en vegna þess að
þinglýsing bréfsins tafðist voru um
12.000 króna vextir komnir á lánið
þegar það var greitt út. Lögfræði-
álit er nú í vinnslu fyrir Íbúðalána-
sjóð um þetta atriði, en niðurstaða
þess er einkum mikilvæg að því er
varðar hvernig staðið verður að
málum eftir að sjóðurinn byrjar að
afgreiða peningalán frá og með 1.
júlí.
Hallur Magnússon, sérfræðing-
ur stefnumótunar og markaðsmála
Íbúðalánasjóðs, segir að yfirleitt
séu áfallnir vextir á viðbótarlán
áður en þau eru greidd út ekki
miklir. Þeir geti verið um 500–
1.000 krónur á 1,5 milljóna króna
lán, svo dæmi sé tekið. Yfirleitt
taki það um tvo sólarhringa að
þinglýsa fasteignaveðbréfi og þá
sé unnt að afgreiða lánið í sam-
ræmi við skilmála bréfsins um leið
og búið sé að koma því aftur til
Íbúðalánasjóðs.
„Hins vegar gerist það stundum
að fasteignaveðbréfi er ekki skilað
hingað fyrr en eftir dúk og disk, í
þessu tilfelli [kaupanda sem gerði
athugasemd] voru það um tveir
mánuðir. Þá er greiðandinn að
greiða vexti og verðbætur fyrir
tímabilið frá því fasteignaveðbréfið
er gefið út og þar til við greiðum
út peningafjárhæðina,“ segir Hall-
ur og leggur áherslu á að þetta
vandamál komi ekki upp í hús-
bréfakerfinu sjálfu, heldur ein-
göngu þegar um viðbótarlán er að
ræða.
„Þetta er eðlilegasta leiðin, en
þegar við greiðum peningana,
kann að vera að við ættum að
greiða lánið að viðbættum þeim
vöxtum sem hafa lagst á lánið á
því tímabili sem fasteignaveðbréfið
hefur verið úti,“ segir Hallur.
Einnig verði skoðað í hvaða til-
fellum vextirnir ættu að bætast við
lánið, verði það niðurstaðan, og
loks hvort sjóðurinn eigi að inn-
heimta lántökugjald af þeirri upp-
hæð sem bætist við.
Mikilvægt vegna
fyrirhugaðra breytinga
Lögfræðiálitið verður tilbúið eft-
ir helgina og lagt fyrir stjórn
Íbúðalánasjóðs á fimmtudag. Hall-
ur segir að þetta sé í fyrsta skipti
sem sjóðnum berist athugasemd
um þetta fyrirkomulag, frá því við-
bótarlán voru tekin upp árið 1999.
Það sé mikil tilviljun að einmitt þá
sé sjóðurinn að athuga þetta atriði.
Í raun hafi sjóðurinn ákveðið að
skoða þetta ofan í kjölinn vegna
þeirra breytinga á skuldabréfaút-
gáfu sem sjóðurinn stendur
frammi fyrir. Þann 1. júlí næst-
komandi verður afgreiðslu hús-
bréfa hætt og verða lán sjóðsins
þess í stað almenn peningalán.
Hallur segir að spurningin hvenær
fyrsti vaxtadagur ætti að vera hafi
komið upp við undirbúning þess-
arar breytingar og ákveðið hafi
verið að hafa fyrirkomulagið það
sama og verið hefur fyrir viðbótar-
lánin. „Þá sáum við það að ef við
erum að tala um fjárhæð sem er
kannski 10 milljónir og ef það líður
tími [frá því fasteignaveðbréf er
gefið út og þar til búið er að þing-
lýsa því] hættir upphæðin að vera
örfá hundruð króna og gæti farið
að hlaupa á þúsundum,“ segir
Hallur.
Vinna lögfræðilegt álit
Á grundvelli lögfræðiúttektar-
innar verður ákveðið hvernig að
málum verður staðið hér eftir.
Hallur segir að oft geti verið
margar ástæður fyrir því að þetta
ferli tefst. Töfin eigi sér ekki stað
innan Íbúðalánasjóðs. Stundum
þurfi seljandi að létta af lánum áð-
ur en hægt sé að þinglýsa skulda-
bréfinu og einnig komi það fyrir að
fólk dragi það að koma bréfinu til
sjóðsins. Þannig sé sök tafarinnar
oft seljandans, en kaupandi beri
kostnaðinn sem af töfinni hljótist
samkvæmt núverandi fyrirkomu-
lagi.
Vextir byrja að safnast upp áð-
ur en viðbótarlán eru greidd út
Fyrirkomulagið í skoðun vegna
breytinga hjá Íbúðalánasjóði í sumar
ÍSLAND tekur sæti í kvennanefnd
Sameinuðu þjóðanna (The Commiss-
ion on the Status of Women – CSW)
til næstu fjögurra ára að loknum
fundi í nefndinni sem lýkur í næstu
viku.
Hjálmar W. Hannesson sendi-
herra, fastafulltrúi Íslands hjá SÞ,
flutti ræðu 3. mars sl. við almenna
umræðu í nefndinni. Fjallaði hann
annars vegar um hlutverk karla og
drengja í jafnréttismálum og þátt-
töku kvenna í friðarviðræðum, frið-
argæslu og friðaruppbyggingu.
Þessi tvö þemu voru valin sem aðal-
umræðuefni yfirstandandi fundar en
auk þess er ráðgert að ákveða með
hvaða hætti haldið verður upp á 10
ára afmæli kvennaráðstefnunnar í
Beijing á næsta ári.
Fyrir hönd íslenskra stjórnvalda
taka fulltrúar félagsmálaráðuneytis,
utanríkisráðuneytis og fastanefndar
Íslands hjá SÞ í New York þátt í
fundinum sem áheyrnarfulltrúar.
Ísland tekur
sæti í kvenna-
nefnd SÞ
AÐ ÖLLUM líkindum verða ekki
eftirmál vegna miðlunar mynda af
kynlífsathöfnum þriggja ungmenna í
sundlaug Bolungarvíkur síðastliðið
haust. Málið hefur ekki komið til
kasta lögregluyfirvalda samkvæmt
upplýsingum frá sýslumannsemb-
ættinu í Bolungarvík en Persónu-
vernd úrskurðaði á dögunum að
miðlun myndanna hefði verið ólögleg
og krafðist þess að myndbandinu
yrði eytt og að starfsfólk sundlaug-
arinnar yrði látið sæta ábyrgð fyrir
brot á trúnaðar- og þagnarskyldum
sínum.
Hjá bæjaryfirvöldum í Bolungar-
vík fengust þær upplýsingar að mál-
inu væri í reynd lokið, ekki kæmi til
uppsagna þar sem sá sem í hlut átti
hefði verið afleysingamaður og væri
nú ekki lengur í starfi.
Miðlun mynda af kyn-
lífsathöfnum í sundlaug
Ekki kært
til lögreglu
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráðherra heimsótti
Heilbrigðisskólann, sem er sérstök deild innan
Fjölbrautaskólans við Ármúla í vikunni en í skól-
anum hafa staðið yfir Árdagar þar sem hefð-
bundið skólastarf er lagt niður en bryddað er upp
á ýmsum fræðandi og skemmtilegum viðfangs-
efnum.
Heilbrigðisráðherra ræddi við nemendur skól-
ans á fundi sem var mjög vel sóttur. Um 300
manns stunda nám í Heilbrigðisskólanum, þar
sem áhersla er lögð á nám í heilbrigðisgreinum.
Að sögn Sölva Sveinssonar skólameistara er
þetta í fyrsta skipti sem Jón Kristjánsson heim-
sækir skólann. Á fundinum svaraði ráðherrann
spurningum nemenda og að sögn Sölva voru brýn
mál á borð við mikla notkun þunglyndislyfja hér á
landi og málefni heimahjúkrunar efst á baugi. Morgunblaðið/Jim Smart
Heimsótti
Heilbrigðisskólann
♦♦♦