Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ TAP varð af rekstri Medcare Flögu hf. árið 2003 sem nam 1.285 þúsund dollurum, eða jafnvirði 91 milljónar íslenskra króna. Vænt- ingar höfðu staðið til þess, að því er segir í tilkynningu, að félagið skilaði hagnaði á árinu, sem var fyrsta heila reikningsár félagsins frá yfirtöku Flögu á Medcare Diagnostics. Frávik frá áætlunum félagsins eru sögð skýrast af 700 þúsund dollara leiðréttingu á mati birgða og 800 þúsund dollara lægri fram- legð á fjórða ársfjórðungi vegna ofmats birgða. Tekjur Medcare Flögu á árinu 2003 námu rúmlega 19 milljónum dollara samanborið við rúmar 10 milljónir árið áður, og nemur tekjuaukningin 88%. Innri vöxtur félagsins er 23%, sé tillit tekið tekna Medcare fram að yfirtöku 2002. Mestur hluti sölutekna Medcare Flögu, eða 57%, var vegna sölu í Bandaríkjunum. Innri vöxtur á Bandaríkjamarkaði nam 12%, segir í tilkynningu. Eignir Medcare Flögu námu 29,6 milljónum dollara í árslok, þar af voru veltufjármunir 13,3 millj- ónir. Skuldir námu 9,9 milljónum dollara, þar af voru skammtíma- skuldir 4,8 milljónir. Í nóvember- mánuði sl. var hlutafé félagsins aukið með breytingu víkjandi lána í hlutafé og hlutafjárútboði. Skuld- ir félagsins lækkuðu því um 12,9 milljónir dollara á milli ára. Eigið fé hækkaði um 17,9 milljónir doll- ara á árinu og nam 19,7 milljónum í lok árs. Eiginfjárhlutfall í árslok var 66% en var í byrjun árs 7%. Veltufjárhlutfall félagsins batnaði einnig mikið og var 2,75 um ára- mót. Veltufé var neikvætt um 579 þúsund dollara og handbært fé frá rekstri var neikvætt um tæplega 4,5 milljónir dollara. Frávik frá væntingum Sem fyrr segir hafði félagið gert ráð fyrir að skila hagnaði á árinu 2003. Frávik sem námu 1,5 millj- ónum dollara höfðu hins vegar áhrif á afkomu ársins. „Ein af lokafærslum samstæðu- uppgjörs er að færa til baka álagn- ingu á vörum sem seldar hafa ver- ið frá móðurfélaginu og liggja í birgðum dótturfélaga. Við frágang ársuppgjörs fyrir árið 2003 kom í ljós að það mat sem lagt hafði ver- ið á þessa álagningu í birgðum dótturfélags í Bandaríkjunum var rangt og lækka þurfti birgðirnar um 700 þúsund dollara í sam- stæðuuppgjörinu,“ segir í tilkynn- ingu. Ennfremur segir að framan- greint ofmat á verðmæti birgða hafi leitt til þess að fyrri uppgjör sýndu hærri framlegð af vörusölu en raunin var. Þannig hafi verið reiknað með hærra framlegðar- hlutfalli í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi. Þær áætlanir hafi ekki gengið eftir og dótturfélagið í Bandaríkjunum skilað 800 þúsund dollara lakari afkomu á ársfjórð- ungnum en gert hafði verið ráð fyrir. Leiðréttingar komnar fram að fullu Svanbjörn Thoroddsen, forstjóri Medcare Flögu, segir leiðréttingar vegna þessara mála að fullu fram komnar og komist hafi verið fyrir að slíkt geti endurtekið sig. Félag- ið hafi tekið í notkun nýtt upplýs- ingakerfi bæði á Íslandi og í dótt- urfélögum í Bandaríkjunum og Þýskalandi en innleiðingu þess hafi lokið um síðustu áramót. Jafnframt segir hann að gripið hafi verið til ýmissa aðgerða sem eigi að tryggja að rekstrarafkomu félagsins verði snúið til betri vegar og hagnaður verði af rekstri ársins 2004. Í tilkynningu segir að aðgerðir félagsins sem miði að því að bæta afkomu með aukinni framlegð og lækkun kostnaðar eigi að getað skilað árangri á næstu mánuðum. Reiknað er með tapi á fyrsta árs- fjórðungi ársins 2004, sem geti numið allt að 1 milljón dollara, en að hagnaður verði frá og með þriðja ársfjórðungi. Horfur varðandi sölu árið 2004 eru sagðar góðar og gerir félagið ráð fyrir að innri vöxtur tekna verði áfram yfir 20% þegar litið er á árið í heild. Tap Medcare Flögu 90 milljónir króna 2003 Væntingar um hagnað brugðust vegna frávika sem námu yfir 100 milljónum króna                                 !   "# !     $!%    $!%  & '  %  $! " ! %'$  %  $! (&)*+,%  - -- /   -     -            . -  0  $ 1 '  '  0 $2        ! 3$!4$2 +  ' '   5  "   #$ %        &' ()    ! " &' ()     #$% &'&     &' * HAGNAÐUR SÍF minnkaði um 86% milli ára og var 639 þúsund evr- ur í fyrra, jafnvirði um 55 milljóna króna. Hagnaður árið áður var 4,6 milljónir evra, en fyrirtækið gerir upp í evrum. Örn Viðar Skúlason, forstjóri SÍF, segir að skýringarnar á minni hagn- aði í fyrra en árið 2002 séu marg- þættar. Að hluta til sé skýringanna að leita í verri afkomu í Frakklandi, Kanada og á Íslandi. Þó að sölu- markmið hafi náðst í Frakklandi hafi framlegðarmarkmið ekki gert það vegna mikillar samkeppni. Í Kanada hafi markmið um sölu og framlegð ekki gengið eftir, meðal annars vegna óhagstæðs skiptigengis bandarísks og kanadísks dollara. Þá hafi afurðir frá Íslandi lækkað um- talsvert í verði og minna umfang hafi verið í saltfisksölu. Í Japan og Brasilíu segir Örn að fallið hafi til kostnaður vegna lokun- ar söluskrifstofa SÍF, en ákveðið hafi verið að sinna þeim viðskiptum frá Íslandi. Hagnaður af sölu eigna hafi einnig minnkað mikið milli ára, en árið 2002 hafi félagið selt og endurleigt tækja- búnað sem skýri óvenjulega mikinn söluhagnað það ár. Loks sé inni í reikningnum upp- gjör við fyrrum forstjóra félagsins. Samkvæmt skýringu í ársreikningi hafa 936 þúsund evrur verið færðar til gjalda vegna þessa uppgjörs. Bjart útlit Örn segist nokkuð bjartsýnn á út- litið. Markaðsaðstæður hafi verið fremur erfiðar í fyrra, en nú virðist markaðir, sérstaklega í Evrópu, vera að taka heldur við sér og eftirspurn muni því líklega aukast. Hann segir einnig að þær breytingar sem unnið hafi verið að eigi að draga úr kostn- aði og efla sölu félagsins. Að sögn Arnar fela breytingarnar meðal ann- ars í sér aukna áherslu á framlegð af sölu. Sölutekjur SÍF drógust saman um 4% milli ára og námu 671 milljón evra, eða um 58 milljörðum króna. Framlegð af vörusölu jókst hins veg- ar um 13% og nam jafnvirði 5,7 millj- arða króna. Framlegðarhlutfall af vörusölu hækkaði úr 9,9% í 8,4% milli ára. Eignir SÍF um áramót námu 295 milljónum evra og jukust um 4%. Eigið fé dróst saman um 11% og eig- infjárhlutfall lækkaði milli ára og nam 13,7% í árslok 2003. Stjórn SÍF mun leggja til við aðal- fund, sem haldinn verður 19. þessa mánaðar, að hluthöfum verði ekki greiddur arður vegna ársins 2003. Hagnaður SÍF minnkar um 86%       (  2 $ 1 '  ' +, #  64     $ "   2   +     "   #$ % # %#% +   "   #$ % #-. % % 3$!4  "   #$ %    "   4  %  + 2   4     -  -- /   -               -     !     $!%    $!%  + 4    $!   4 $2 -  . /    /    -  -       --      .     &' 0    ! " &' 0     #$% &'&     FJÓRIR af fimm stjórnarmönnum Medcare Flögu, allir þeir stjórnar- menn sem ekki koma að daglegum rekstri félagsins, hafa sent frá sér yf- irlýsingu samhliða ársuppgjöri þess. Þar segir að afkoma ársins 2003 sé óviðunandi en um leið er lögð áhersla á traust stjórnarinnar á fram- kvæmdastjórn félagsins. Medcare Flaga birti afkomuvið- vörun 19. febrúar síðastliðinn, þar sem sagði að gert væri ráð fyrir allt að 1,5 milljóna dala tapi af rekstri síð- asta árs, í stað hagnaðar eins og áætl- að hafi verið í útboðslýsingu, en út- boðið fór fram í nóvember í fyrra. Yfirlýsing stjórnarmannanna er svohljóðandi: „Rekstrarniðurstaða Medcare Flögu hf. fyrir árið 2003 veldur mikl- um vonbrigðum. Félagið náði mark- miðum sínum um vöxt tekna, en væntingar markaðarins og stjórn- enda um að félagið skilaði hagnaði brugðust. Sameiginlega eigum við og félög í okkar eigu um 20% eignarhlut í félaginu og tveir okkar tóku þátt í nýlegu hlutafjárútboði félagsins. Við erum eins og aðrir hluthafar óánægð- ir með afkomu félagsins og teljum hana óviðunandi. Við vitum jafnframt að stjórnendur og starfsmenn félags- ins eru afar ósáttir við þessa afkomu. Hins vegar viljum við leggja áherslu á traust okkar á fram- kvæmdastjórn félagsins. Við álítum að Medcare Flaga hf. hafi á að skipa sterkum hópi stjórnenda og fyrir- tækjabrag sem byggist á frumkvæði, drifkrafti og sterkri siðferðiskennd. Gripið hefur verið til aðgerða til þess að takast á við þann vanda sem upp kom og höfum við falið framkvæmda- stjórn að taka þau skref sem þeir telja nauðsynleg til þess að tryggja að rekstrinum verði snúið í hagnað á þessu ári. Medcare Flaga hf. er leiðandi félag á hratt vaxandi markaði og við höfum staðfasta trú á að félagið muni hafa burði til að vaxa ört og skila góðri af- komu í framtíðinni. Peter Farrell, Eggert Dagbjarts- son, Rögnvaldur J. Sæmundsson, Pétur Guðjónsson.“ Vildu sýna stuðning Rögnvaldur J. Sæmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að með þessu hafi stjórnin viljað sýna að hún standi á bakvið framkvæmda- stjórnina og hafi trú á að hún geti tek- ist á við þann vanda sem er við að etja. Yfirlýsing frá stjórn- armönnum í Medcare Flögu NÆRRI helmingur hluthafa í banda- ríska afþreyingarfyrirtækinu Walt Disney studdi ekki við bakið á Mich- ael Eisner, forstjóra félagsins, þegar kosið var í nýja stjórn félagsins á aðal- fundi á miðvikudag. Stjórn Disney hittist eftir aðalfund- inn og ákvað að skilið yrði á milli for- stjórastarfsins og stjórnarfor- mennsku í fyrirtækinu. Eisner mun því áfram starfa sem forstjóri Disney en hefur látið af stjórnarformennsku. George Mitchell hefur verið kjörinn formaður stjórnarinnar. Nokkrir stórir hluthafar í Disney hafa gagnrýnt einræðistilburði Eisn- ers við stjórnun félagsins. Þeir aðilar sem harðast hafa gengið fram í að koma Eisner frá, fyrrum stjórnar- mennirnir Stanley Gold og Roy E. Disney, segjast áfram munu berjast fyrir því að bola honum í burtu. Eisner víkur sem stjórnar- formaður Disney ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.