Morgunblaðið - 05.03.2004, Page 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Breiðholt | Krakkarnir í Hólabrekkuskóla
iðkuðu lýðræði á þemadögum í skólanum í
gær. Öllum krökkunum í skólanum var skipt í
hópa og fékk hver hópur það verkefni að búa
til sína eigin lýðræðislegu þjóð og land.
Þegar blaðamaður og ljósmyndari litu í
heimsókn í gærmorgun var nóg um að vera,
og krakkar á öllum aldri unnu saman í hóp-
um. Hver hópur bjó til sitt eigið land, fána,
mynd af landinu, þjóðbúning, þjóðlag, þjóð-
dans og fleira. Samtals voru þjóðirnar 18, og
mikið lagt upp úr lýðræði. Hvert land kaus
sér m.a. umhverfisráðherra, sem sat ráð-
stefnu á sal skólans þar sem rætt var um hvað
hægt væri að gera fyrir umhverfið við Hóla-
brekkuskóla. Meðal þess sem fram kom á ráð-
stefnu ráðherranna voru hugmyndir um að
fjölga ruslatunnum og ruslabílum, hætta að
henda rusli á götuna og flokka sorp meira en
gert er.
Stofnuðu 18 ný lýðræðisríki á þemadögum
Morgunblaðið/Ásdís
Æfðu þjóðdansinn: Þessar hressu stelpur voru í óða önn að æfa þjóðdans ríkisins Mokosova.
Þjóðbúningagerð: Hvert ríki verður að sjálfsögðu að eiga sinn eigin þjóðfána og þjóðbúning. Í
landinu Sólmarínó er trúlega alltaf sól og þjóðbúningurinn því eðlilega sundföt og hálsmen.
Reykjavík | Breiðholtsskóli bar sig-
ur úr bítum í úrslitaviðureign spurn-
ingakeppninnar Nema hvað? 2004,
sem haldin var á miðvikudagskvöld í
Útvarpshúsinu við Efstaleiti. Lið
Breiðholtsskóla atti kappi við lið
Laugalækjarskóla, og sigraði með 22
stigum gegn 16 og hlaut að launum
farandgripinn Mímisbrunn.
Viðureignin var hörð og voru lið
beggja skóla gríðarlega sterk, en
hvorugt liðið hefur áður keppt í úr-
slitum „Nema hvað?“.
Alls voru 26 grunnskólar voru
skráðir til leiks í „Nema hvað?“ í ár
og hafa því um níutíu unglingar á
aldrinum 13–16 ára lagt á sig
ómælda vinnu við undirbúning
keppninnar og keppt fyrir hönd
sinna skóla. Þetta er í þriðja skiptið
sem spurningakeppnin Nema hvað?
er haldin og hefur mikil ánægja verið
með þessa skemmtilegu nýbreytni
jafnt meðal nemenda, foreldra og
skóla. Segja aðstandendur hennar að
þrátt fyrir að keppnin hafi ekki feng-
ið jafnmikla umfjöllun og Gettu bet-
ur, sé þarna um að ræða frábært fé-
lagsstarf fyrir skólana sem þrýstir
saman fólki og bætir liðsandann.
Óttarr Hrafnkelsson, verkefna-
stjóri hjá ÍTR, segir keppnina höfða
til mjög breiðs hóps. „Það er ljóst að
spurningakeppnir eiga almennt
miklu fylgi að fagna á Íslandi,“ segir
Óttarr og bætir við að það sé kannski
til marks um aukinn hróður keppn-
innar að Ríkisútvarpið útvarpaði nú í
fyrsta sinn einnig undanúrslita-
kvöldum hennar.
Sigurliði Breiðholtsskóla, þeim
Vigni Má Lýðssyni, Ara Gunnari
Þorsteinssyni og Hafsteini Birgi
Einarssyni var vel fagnað að lokinni
keppni, en einnig keppti fyrir hönd
skólans Árný Rut Jónsdóttir, sem
flutti ræðu og henni til aðstoðar var
Vilmar Þór Bjarnason.
Hörkuspennandi úrslitaviðureign í spurningakeppni grunnskólanna Nema hvað? árið 2004
Sannfærandi sigur
Breiðholtsskóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurinn í höfn: Liðsmenn sigurliðs Breiðholtsskóla, Vignir Már Lýðsson,
Ari Gunnar Þorsteinsson og Hafsteinn Birgir Einarsson, fögnuðu vel.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
21
02
1
0
5/
20
03
Þú segir takk fyrir!
Auglýstu í Fermingablaði
Morgunblaðsins
Fermingablað fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 13. mars. Meðal
efnisþátta eru: Fatnaður, hárgreiðsla, matur, blóm og skreytingar.
Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00 mánudaginn 8. mars!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á
auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða augl@mbl.is