Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 24
AKUREYRI 24 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ GREIFAMÓT KA í knattspyrnu fyr- ir fjórða flokk drengja verður haldið í fyrsta skipti í Boganum á Akureyri nú um komandi helgi, dagana 6. og 7. mars. Mótið er haldið að frum- kvæði foreldra drengja í fjórða flokki KA í samvinnu við ungling- aráð KA í knattspyrnu. Um er að ræða tólf liða hraðmót, liðunum er skipt í fjóra þriggja liða riðla, hver leikur verður 2x15 mín- útur og verða ellefu leikmenn í liði og því spilað á öllum vellinum í Bog- anum. Mótið hefst kl. 9 að morgni laugardags og því lýkur um kl. 16 á sunnudag með verðlaunaafhend- ingu. Auk liða frá KA og Þór á Ak- ureyri taka þátt í mótinu lið af Norð- urlandi, Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Með þjálf- urum og fararstjórum verða þátt- takendur í þessu fyrsta Greifamóti KA á þriðja hundrað manns. Ef vel tekst til er það von aðstand- enda Greifamótsins að það verði ár- viss viðburður í framtíðinni.    Greifamót í Boganum Opið hús í VMA | Í tilefni af 20 ára starfsafmæli Verkmenntaskólans á Akureyri er almenningi boðið í heimsókn í skólann á laugardag, 6. mars, kl. 13–16. Dagana á undan, 4. og 5. mars, verður tekið á móti nemendum 9. og 10. bekkjar grunnskólanna á Ak- ureyri og í nágrenni og þeim kynnt sú fjölbreytta starfsemi sem fram fer í skólanum. Starfsemi hinna ýmsu starfs- og verknámsbrauta verður kynnt og nemendur og kennarar verða að störfum á verk- stæðum og í öðrum kennslurýmum skólans. Verk nemenda bæði í bók- og verknámi verða til sýnis. Gestum verður boðið upp á veitingar í Þrúð- vangi, hinu nýja og glæsilega hús- næði matvæladeildar.Skemmti- dagskrá verður í Gryfjunni og hefst kl. 13.30, 14.30 og 15.30    SAMKVÆMT tillögu að bættri gönguleið á milli miðbæjarins og Glerártrogs, þarf að færa Akureyrarvöll um 6,5 metra til suðurs, þannig að hægt verði að gera boðlega gönguleið austan við völlinn. Kostnaður við færslu vallarins er áætlaður tæpar 6 milljónir króna. Þetta er ein þriggja tillagna sem Verkfræðistofa Norðurlands og Landplan ehf. leggja til en fyrirtækin fengu það verkefni að skil- greina bestu gönguleiðirnar milli áðurnefndra staða. Hinar tillög- urnar eru annars vegar um gönguleið meðfram Brekkugötu og Klapparstíg og hins vegar upp Brekkugötu, niður stíg framhjá Baldurshaga og í undirgöngum undir Þórunnarstræti. Helst er horft til tillögu númer 1, þ.e. gönguleiðar meðfram Gler- árgötu, austan Akureyrarvallar, að sögn Bjarna Reykjalíns deild- arstjóra umhverfisdeildar. Málið hefur þó aðeins verið kynnt innan bæjarkerfisins en engin ákvörðun verið tekin um framhaldið. Bjarni sagði það tilltölulega lítið mál að færa Akureyrarvöll til suð- urs en hins vegar hefðu menn ekki tekið afstöðu til þess hvort byggja ætti þar upp völl í framtíðinni. Landsmót UMFÍ verður hald- ið á Akureyri 2009 og vel fyrir þann tíma þurfi menn að ákveða hvar eigi að byggja upp framtíðaríþróttaaðstöðu. Samkvæmt leið 1 er í skýrslu VN og Landplan gert ráð fyrir að Akureyrarvelli sé rennt eftir hlaupabrautinni en með því móti þarf aðeins að þökuleggja 6,5 metra ræmu sunnan við völlinn, færa bog- ana í hlaupabrautinni og kast-/stökkaðstöðu aftan við völlinn beggja vegna. Leið 2, meðfram Brekkugötu og Klapparstíg, er mikið gengin og sennilega þægilegasta gönguleiðin en gera þarf smávægilegar end- urbætur á örfáum stöðum á leiðinni. Leið 3, gönguleið í und- irgöngum undir Þórunnarstræti, hefur það fram yfir hinar að mati skýrsluhöfunda, að hún tengir Glerártorg fyrir gangandi og hjól- andi umferð úr öllu íbúðahverfinu á neðri Brekkunni og tengist jafnframt stoð-/aðalstíg sem á að liggja umhverfis Akureyri, svo- kölluð Hringleið út í útivistarsvæðin sunnan og norðan við bæinn. Líklegasta tillagan að bættri gönguleið milli miðbæjar og Glerártorgs er meðfram Glerárgötu Færa þyrfti Akur- eyrarvöll til suðurs Bestu gönguleiðirnar: Hugmynd um tengistíga milli miðbæjarins og Glerártorgs en samkvæmt þessum tillögum er m.a. gert ráð fyrir færslu Akureyrarvallar til suðurs og göngum undir Þórunnarstræti. MJÖLL hf. hefur selt rekstur á þvottahúsi sínu og fatahreinsun til einkahlutafélagsins Slétt og fellt ehf. Samhliða því hafa Þórunn Sif Harð- ardóttir, Laufey Árnadóttir, Tómas Ingi Jónsson og Rúnar Sigurpálsson keypt Slétt og fellt ehf. af Mjöll hf. Mjöll hf. hóf rekstur þvottahúss ár- ið 2002 þegar fyrirtækið tók yfir rekstur þvottahúss Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Í framhaldinu keypti Mjöll rekstur og tækjabúnað Fatahreinsunarinnar ehf., Höfða ehf., Fatahreinsunina Slétt og fellt og nú síðast rekstur þvottahúss Heilbrigð- isstofnunar Þingeyinga á Húsavík. „Eins og áður mun Slétt og fellt ehf. reka þvottahús og fatahreinsun í Sjafnarhúsinu, Austursíðu á Akur- eyri og þar er jafnframt afgreiðsla fyrir hvorttveggja. Jafnframt er Slétt og fellt með afgreiðslu í stórmarkaði Úrvals við Hrísalund. Slétt og fellt er eitt stærsta fyrir- tæki landsins á þessu sviði, með 23 starfsmenn,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Þórunn Sif Harðardóttir og Laufey Árnadóttir, sem munu stýra rekstri Slétts og fellds, hafa verið lykilstarfs- menn hjá Mjöll undanfarin ár, Þór- unn Sif sem rekstrarstjóri og Laufey sem fjármálastjóri. Þórunn segir að nýir eigendur að Sléttu og felldu sjái mikil sóknartæki- færi fyrir félagið, en rekstur þess hef- ur vaxið verulega á síðustu misserum með auknum verkefnum fyrir heil- brigðisstofnanir og matvælafyrir- tæki, auk þjónustu við einstaklinga. Þórunn segir nýja eigendur einnig sjá tækifæri í að auka og efla þjónustu við viðskiptavini sína með auknu þjón- ustuframboði á einstaklings- og fyr- irtækjasviði. Mjöll selur þvotta- hús og hreinsun Menningartorg | Guðmundur Jónsson, arkitekt í Osló, sem hefur sérhæft sig í byggingum fyrir menningartengda ferðaþjónustu, heldur fyrirlestur á Menning- artorgi Háskólans á Akureyri í dag, föstudag, kl. 16.15 í stofu 14 í Þing- vallastræti 23. Byggingar eftir teikningum Guðmundar hafa risið víða í Noregi og aðrar eru í und- irbúningi. Mun hann kynna helstu verk sín. ALLA þessa viku hafa loðnuhrogn verið fryst í vinnslustöð Útgerðar- félags Akureyrar á Grenivík. Um er að ræða samvinnuverkefni með fiski- mjölsverksmiðjunni í Krossanesi, að því greint er frá á heimasíðu ÚA. Loðnan er flokkuð og kreist í Krossanesi og hrognin síðan flutt í kerum til Grenivíkur. Undanfarin ár hafa loðnuhrogn verið fryst í töluverðum mæli á Greni- vík. Í fyrra hófst frystingin raunar ekki fyrr en 9. mars og varð heldur endaslepp. En nú stefnir í að óvenju- mikið af hrognum verði fryst í bænum og er unnið allan sólarhringinn, á tveimur tólf tíma vöktum. „Við höfum verið að frysta þessi svokölluðu iðn- aðarhrogn. Í nótt munum við ljúka við að frysta þau hrogn sem við erum nú með og þá verður smáuppihald hjá okkur. Ég var að fá fréttir af næsta skipi og því geri ég ráð fyrir að við byrjum aftur um hádegi á laugardag og við getum þá hafið frystingu fyrir Japansmarkað. Við vonumst til þess að nóg verði að gera í þessu alla næstu viku,“ er haft eftir Sigrúnu Valdimarsdóttur verkstjóra á heima- síðu ÚA í gær. „Þetta er auðvitað heil- mikil törn, en ágætistilbreyting frá fiskinum. Við fengum smáliðsstyrk frá Akureyri og einnig hafa menn hér á staðnum, sem eru í grásleppu á vor- in, lagt okkur lið,“ sagði Sigrún. Frysta allan sólarhringinn á Grenivík ♦♦♦ Ein með öllu Spektro www.islandia.is/~heilsuhorn SENDUM Í PÓSTKRÖFU Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889, fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Árnesapóteki Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Multivitamín, steinefnablanda ásamt spirulínu, Lecthini, Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum.                                                          !    "#  "$               %     &          '                       (            )   "**+ ,              (       -  .  /   0(   -     (   1     2 3   .   .      4 (       (   5   2  (    2     6.  -  .   4 (   /  ,              . /    .      4 (              3 (      7*** "       3           !     . 3 ,           3         (    .         2 !  (   3 (      . / ! 3  (         (- - 6       6.  (              0(        5          !          (  2  -  8 2- 9       .     -  52- 5           2   ( 32.   2! :   ;!   !   $     3    ! 3    $ ( "**7!    3  3 .     3     3     5       (   2&   &              <            -   $**    $ ( "**7         '     2! :   ;! +   4                3       3          
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.