Morgunblaðið - 05.03.2004, Side 25
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 25
LIÐ SEM nefnir sig Tjöruhreins-
unarkarlana sigraði í Fjörleik Fjör-
heima. Þeir fengu yfir tólf þúsund
stig í leiknum sem er nýtt met hjá.
Liðið skipa þrír nemendur úr 8.
og 9. bekk Njarðvíkurskóla, Her-
mann Sigurjón Sigurðsson, Jóhann
Bragason og Jón Ásgeir Þorvalds-
son. Þeir hafa verið vinir frá því í
leikskóla og lá því beint við að
mynda lið þegar Fjörleikurinn hófst
síðastliðið haust. Þeir segjast hafa
verið í vandræðum með að finna
nafn á liðið en þeir hafi rekið augun
í veggspjald um reykingavarnir þar
sem orðið tjöruhreinsun hafi komið
fyrir og ákveðið að nota það.
Strákarnir segjast hafa unnið sér
inn stigin með því að mæta sem oft-
ast í Fjörheima og bjóðast til að
vinna þau verk sem starfsfólkið
þyrfti að fá aðstoð við. Þannig hafi
þeir oft farið út með ruslið, sópað og
pússað spegla og rúður. Síðan fengu
þeir mörg stig fyrir að skipuleggja
og sjá um eitt kvöld. Byggðist það á
borðtennismóti. Áttu þeir að fá 250
stig fyrir að sjá um kvöldið en gátu
búist við að dregið yrði frá ef eitt-
hvað færi úrskeiðis. Hins vegar hafi
starfsfólkið sagt að þeir hafi staðið
sig vel að bætt hafi verið við stigin
og þeir unnið sér inn 300 stig fyrir
kvöldið.
Strákarnir eru ánægðir með sig-
urinn í Fjörleiknum. Sigurlaunin
eru ókeypis þátttaka í Fjörferðinni
til Vestmannaeyja um helgina. Þá
segjast þeir tvisvar hafa verið út-
nefndir lið mánaðarins og unnið
pítsuveislu. „Ég held að við séum
búnir að græða fimmtán þúsund kall
á mann,“ segir Hermann.
Tjöruhreinsunarkarlarnir eru all-
ir í knattspyrnu og æfa mörgum
sinnum í viku. Þeir segjast oftast
fara í Fjörheima á daginn, á æfingu
síðdegis og svo aftur í Fjörheima á
kvöldin þegar eitthvað er um að
vera.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tjöruhreinsunarkarlarnir: Hermann Sigurjón Sigurðsson, Jón Ásgeir
Þorvaldsson og Jóhann Bragason sigruðu í Fjörleiknum.
Tjöruhreinsunar-
karlarnir sigruðu
Reykjanesbær | Fjörleikurinn sem
Fjörheimar hafa staðið fyrir undan-
farin ár gengur eins og rauður þráð-
ur í gegnum allt starf félagsmið-
stöðvarinnar. Hefur hann fyrir löngu
sannað gildi sitt, að sögn Hafþórs
Barða Birgissonar forstöðumanns.
Markmið Fjörleiksins er að
þroska unglinginn til að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir og skapa ung-
lingalýðræði innan veggja fé-
lagsmiðstöðvarinnar. Hafþór segir
að hann sé byggður á breskri hug-
mynd sem félagsmiðstöðin Bústaðir
í Reykjavík þýddi og staðfærði.
Leikurinn gengur út á það að ung-
lingarnir fá stig fyrir að taka þátt í
starfi félagsmiðstöðvarinnar. Þau
eru verðlaunuð sérstaklega fyrir að
koma með hugmyndir að starfi á
opnum kvöldum og framkvæma þær
í samstarfi við starfsfólk Fjörheima.
Nilsína Larsen Einarsdóttir tóm-
stundaleiðbeinandi er umsjónarmað-
ur Fjörleiksins.
Krakkarnir skipta sér í þriggja
manna lið og liðið sem fær flest stig
yfir veturinn telst sigurvegari.
Þannig reynir einnig á samstarfið í
hópnum. Hafþór vekur athygli á því
að á þessum mótunarárum geti ým-
islegt komið upp á í samskiptum
unglinganna en leikurinn sé ákorun
um að menn vinni vel saman heilan
vetur.
Þau lið sem ná 2000 stigum eða
meira yfir veturinn fá að fara í verð-
launaferð að vori. Í ár er farið til
Vestmannaeyja og er það einmitt nú
um helgina. Um 35 krakkar sigla
þangað með Herjólfi í dag og
skemmta sér vafalaust konunglega.
Skemmtilegt að ferðast
Mikill spenningur var fyrir ferð-
inni meðal krakkanna sem mætt
voru í félagsmiðstöðina, sem er í fé-
lagsheimilinu Stapa í Njarðvík, í
fyrrakvöld. „Það er svo gaman að
ferðast með öðrum krökkum,“ sagði
Bettý Díana Combs. Samkeppnin
milli liðanna er skemmtileg. Þannig
hélt Sigurður Björn Teitsson því
fram að hann væri mesta „fjörfríkið“
en varð að viðurkenna að Ævar Már
Ágústsson hefði kannski mætt betur
í vetur, þegar Ævar benti honum á
það. Þeir voru hins vegar svo
óheppnir að liðsfélagar þeirra tóku
ekki eins virkan þátt í starfinu og lið-
in þeirra náðu því ekki að sigra.
Krakkarnir úr Njarðvík eru dug-
legastir að sækja Fjörheima enda
stutt fyrir þau. Fjörheimar verða
fluttir í nýtt húsnæði á Hafnargötu
88, miðsvæðis í Reykjanesbæ, og er
áformað að gera það í haust. Þau
segja að það leiði vonandi til þess að
unglingar úr Keflavík verði duglegri
að sækja félagsmiðstöðina. Aðstaðan
verður mun betri í nýja húsnæðinu
og bíða fjörkálfarnir spenntir eftir
að komast þangað.
Fjörleiknum í Fjörheimum lýkur með Eyjaferð
Hvetur til lýðræðis og
sjálfstæðra ákvarðana
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Mestu „fjörfríkin“: Sigurður Björn Teitsson, Bettý Díana Combs og Ævar
Már Ágústsson, í góðum hópi félaga, eru virkir þátttakendur.