Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 26
AUSTURLAND 26 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Mýrargötu 2-8 // 101 Reykjavík símar 534 5577 // 694 5577 E R U M B Ú I N A Ð O P N A Lægstu æfi ngagjöldin í borginni 1 4 4 4 Ertu að leita þér að nýjum skóm? 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Tilboð í grunnskóla | Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samykkt að taka tilboði Eikarsmiðjunnar ehf. í framkvæmdir við Grunnskólann á Reyðarfirði. Tilboðið nam tæpum 428,5 milljónum króna, en kostn- aðaráætlun hönnuða gerði ráð fyrir að framkvæmdin myndi kosta tæpar 424 milljónir. Sex tilboð bárust og var tilboð Eikarsmiðjunnar lægst. Téverk bauð hæst, eða rúmar 505,5 milljónir króna.    Jarðvegsgerð | Sorpstöð Héraðs hefur sótt um starfsleyfi fyrir jarð- vegsgerð úr lífrænum úrgangi í landi Fossgerðis í Eiðaþinghá. Um er að ræða tilraunaverkefni þar sem lífrænum úrgangi verður safn- að úr ákveðnum hverfum á Egils- stöðum til að kanna magn og gæði slíks úrgangs sem og að leita sem bestra leiða til að jarðgera í gryfj- um á svæðinu. Er afgreiðsla máls- ins nú í meðförum heilbrigð- isnefndar, að því er kemur fram í fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands.    Lóðaúthlutun á Reyðarfirði | Smáragarði ehf. hefur verið út- hlutuð lóð undir þrjú þúsund fer- metra þjónustu- og verslunarhús- næði á Reyðarfirði. Ekki er ljóst hvaða verslanir eða þjónusta eiga að fara í húsið, en rætt hefur verið um matvöruverslun í þessu samhengi. Smáragarður er hluti af Norvík- samstæðunni sem á m.a. Byko, Elkó og Nóatúnsverslanirnar. Egilsstaðir | Miklar breytingar eru að verða á austfirskum vinnumark- aði og eru þær sjáanleg- astar á Fljótsdalshéraði og í Fjarðabyggð. Um er að ræða störf sem bein- línis tengjast virkj- unarframkvæmdum og afleidd störf. Þetta kom fram á há- degisfundi um jafnréttis- og atvinnumál kvenna, sem haldinn var á Egils- stöðum á dögunum. Ólöf Guðmundsdóttir, forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Austurlands var meðal framsögumanna og segir hún breytingar á vinnumarkaði eystra hafa verið töluverðar að undanförnu. „Má þar nefna endurskipulagn- ingu í sjávarútvegi, og landbúnaði. Sláturhús hafa lokað og matvælaframleiðsla dregist saman. Sérhæfing starfa eykst og gerð er meiri krafa til verkkunnáttu. Menn taka ógjarnan fólk án menntunar eða starfsfærni eins og gert var áður fyrr þegar fyrirtæki ólu starfskrafta sína nánast upp. Þá er það staðreynd hér eins og annars staðar í heim- inum, að störfum verkamanna og ófaglærðra er að fækka. Ef við vísum í þessu samhengi til fyrirhugaðs álvers í Reyðarfirði mun vera talað um tvo tugi ófaglærðra verkamanna sem þar verða ráðnir inn,“ segir Ólöf. Ný fyrirtæki Ólöf segir jafnframt breytingar á aust- firskum vinnumarkaði mestar á Fljótsdals- hérði og í Fjarðabyggð. Um sé að ræða störf sem beinlínis tengist virkjunarfram- kvæmdum og afleidd störf sem þeir sem búi á þessum stöðum hafa mest orðið varir við enn sem komið er. „Við höfum líka orðið vör við aðflutning nýrra fyrirtækja, það er mjög greinilegt á þessum tveimur svæðum. Svo er stækkun og efling þjónustufyrirtækja áber- andi, bæði þeirra sem komið hafa ný inn og þeirra sem fyrir eru,“ segir Ólöf. Fram kom í erindi Ólafar að íbúar á Aust- urlandi voru í árslok 2003 11.889 talsins og hafði þá fjölgað um 138 á einu ári. Í febrúarlok voru 145 atvinnulausir á Austurlandi, 72 konur og 73 karlar. Fyrir ári voru atvinnulausir 254 talsins, 130 konur og 124 karlar. Atvinnuleysi hefur verið mest áberandi á Hornafirði, í Fjarðabyggð og á Fljótsdals- héraði. Samfélagið kalli eftir jöfnum tækifærum kynjanna Ólöf ræddi í framsögu sinni um menntun í samhengi við atvinnuleysi og vísaði til talna frá janúar á þessu ári. Kom m.a. fram að þegar borin er saman menntun atvinnu- lausra kvenna á Austurlandi við menntun kvenna á svæðinu almennt, kemur í ljós að 80% atvinnulausu kvennanna hafa einvörð- ungu grunnskólanám. Til samanburðar hafa 36% atvinnulausra karla einvörðungu grunn- skólapróf. 77% af atvinnulausum íbúum Austurlands hafa því eingöngu grunnskóla- menntun. „Það sem mér finnst skipta miklu máli til að breyta stöðunni fyrir konur til framtíðar er aukin menntun kvenna og starfsrétt- indanám,“ segir Ólöf. „Barnagæsla á leik- skólum og gæsla eftir skólatíma er ekki síð- ur mikilvæg. Þá á ég ekki við að börn eigi að fara á stofnanir, hins vegar hefur það verið greinilegt í mínu starfi að þjónusta bæjar- og sveitarfélaga og vinnutími fyrirtækja rekst stundum harkalega á.“ Fulla atvinnuþátttöku kvenna á heima- markaði og úttrás þeirra í óhefðbundin kvennastörf nefnir Ólöf einnig sem veiga- mikil atriði í að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Þá sé mjög áríðandi að samfélagið sjálft kalli eftir því að þeir aðilar sem nú byggja upp stóriðju á Austurlandi hugi meðvitað að því að konur hafi þar jöfn atvinnutækifæri á við karla. Miklar breytingar á vinnumarkaði Um 80% atvinnulausra kvenna á Austurlandi hafa einvörðungu grunnskólamenntun Ólöf Guðmundsdótt- ir, forstöðumaður Svæðisvinnumiðl- unar Austurlands. Eskifjörður | Þessi litla stúlka, sem horfir hálfhissa á hina litlu stúlkuna í speglinum, heitir Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir og er tuttugu mánaða gömul Reykjavíkurmær. Hún á ættir að rekja til Eskifjarðar og heimsækir staðinn eins og mögulegt er. Draumurinn er að flytja til Eskifjarðar með mömmu og pabba eins fljótt og auðið er. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Spegill, spegill, herm þú mér Egilsstaðir | Erfiðlega gekk að ráða niðurlög- um elds sem kviknaði í líkkistuverkstæði á Eg- ilsstöðum á miðvikudag. Brunavarnir á Héraði voru kallaðar út um kl. 14 þegar reykur sást liðast út úr iðnaðar- skemmu við Miðás á Egilsstöðum, en þar rekur Kristinn Krist- mundsson líkkistu- vinnustofu. Eldur hafði komið upp í viðbyggingu við skemmuna, þar sem eldiviðarofn er nýttur til að hita upp bygg- inguna. Læstist eldur í skemmuvegg og klæðn- ingu og að sögn Baldurs Pálssonar slökkviliðs- stjóra var mjög erfitt að komast að eldinum vegna þess að skemman var full af timbri og öðr- um eldsmat. Rjúfa þurfti þekju frá stafni og aftur úr til að komast að glæðum í klæðningu en Baldur sagði plast vera í einangrun og lagði af því eitr- aðan reyk. Að sögn Kristins Kristmundsson- ar er skemman tryggð og ekki hafa orðið skemmdir á efnivið innan- stokks. Þó mun um nokkurt tjón að ræða þar sem rífa þurfti þekjuna sundur til að komast að eldinum. Tjón í bruna á verkstæði Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Erfiðlega gekk að ráða niðurlögum elds sem kraumaði í þekju líkkistuvinnustofu á Egils- stöðum. Nokkurt eignatjón varð í brunanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.