Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 27
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 27
Húsavík | Undirritaður hefur verið
verkefnissamningur um rafrænt
samfélag milli þriggja sveitarfé-
laga við Skjálfanda annars vegar
og Byggðastofnunar hins vegar.
Undirritun samningsins fór fram
í sjóminjasafni Safnahússins á
Húsavík. Fyrir hönd sveitarfélag-
anna þriggja sem að verkefninu
standa skrifuðu undir þau Rein-
hard Reynis-son bæjarstjóri á
Húsavík, Ólína Arnkelsdóttir odd-
viti Aðaldælahrepps og Jóhann
Guðni Reynisson sveitarstjóri
Þingeyjarsveitar. Fyrir hönd
Byggðastofnunar skrifaði undir
samninginn Aðalsteinn Þorsteins-
son forstjóri hennar. Viðstaddir
voru einnig fulltrúar samstarfs-
aðila verkefnisins, Örn Tryggvi
Johnsen frá ANZA, Dagbjört
Jónsdóttir frá Sparisjóði Þingey-
inga og Friðfinnur Hermannsson
frá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Auk þeirra er Auðkenni hf. sam-
starfsaðili við framkvæmd verkefn-
isins og ráðgjöf hefur verið í hönd-
um ADMON ehf.
Verkefnið ber heitið Skjálfandi í
faðmi þekkingar – Rafrænt sam-
félag við Skjálfanda og eru ein-
kunnarorð þess Virkjum alla. Vísa
þau orð til þess megintilgangs að
virkja alla íbúa svæðisins til að
nýta sér kosti upplýsinga- og tölvu-
tækninnar til að bæta aðstæður
sínar á öllum sviðum, hvort sem
um er að ræða aðgengi að stjórn-
sýslu, varðandi atvinnu, til upplýs-
ingaöflunar, fræðslu og náms eða
til skemmtunar og afþreyingar.
Auglýst var á dögunum eftir
framkvæmdastjóra til að stýra
verkefninu og að sögn Reinhards
Reynissonar bárust sex umsóknir
um starfið. Ráðið er í starfið til
þriggja ára. Reinhard sagði að
stefnt væri að því að ráða í starfið
sem fyrst, en áður en að því kæmi
mundu fagaðilar fara yfir og leggja
mat á umsóknirnar. Vonir stæðu
þó til að framkvæmdastjórinn gæti
tekið til starfa með vorinu.
Rafrænt samfélag
við Skjálfanda
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Reinhard Reynisson, Aðalsteinn Þorsteinsson, Ólína Arnkelsdóttir og Jóhann Guðni Reynisson undirrituðu samn-
inginn í Sjóminjasafninu á Húsavík á dögunum. Að baki þeim standa Örn Tryggvi Johnsen, Dagbjört Jónsdóttir og
Friðfinnur Hermannsson. Samningurinn nær til þriggja sveitarfélaga við Skjálfanda.
Bílasýning á
Sauðárkróki
ÁKI bílasala, umboðsaðili B&L á
Sauðárkróki, stendur fyrir bílasýn-
ingu á Sauðárkróki um helgina.
Sýndir verða bílarnir Renault Meg-
ane, Getz, Starex, Santa Fe og
Terracan frá Hyundai og BMW X5.
Starfsmenn frá B&L verða á
staðnum til að kynna öryggi
Renault-bílanna og tæknibúnað
sem er í BMW X5.
Boðið er upp á kaffi og glaðning
fyrir börn.
Búið að opna
Lágheiði
Fljótum. Morgunblaðið.
LÁGHEIÐIN milli Fljóta og Ólafs-
fjarðar varð fær sl. þriðjudag. Snjó-
mokstur á heiðinni hófst á mánu-
dagsmorgun, en þá var mokað með
snjóblásurum frá báðum endum. Á
miðvikudag var unnið við að breikka
moksturinn og laga skemmd sem
Ólafsfjarðará hafði unnið á veginum
skammt frá fjárréttinni.
Að sögn Guðmundar Ragnars-
sonar tæknifræðings hjá Vegagerð-
inni á Sauðárkróki er mikill snjór á
heiðinni og giskaði hann á að stálið
fjallsmeginn væri allt að fimm
metra hátt en hálfur til einn metri á
fremri kantinum. Hann sagði að
talsvert væri um svell á veginum og
stóð til að rífa það niður í gær,
fimmtudag, og hugsanlega þyrfti að
sandbera verstu kaflana. Þá yrði
einnig haldið áfram mokstri og von-
aðist hann til að búið yrði að moka
allan veginn yfir heiðina tvíbreitt í
kvöld.
Guðmundur sagði að þetta væri
eflaust með dýrari og tímafrekari
mokstrum á heiðinni, hins vegar
yrðu menn bjartsýnir þegar sumar-
veður væri dag eftir dag þannig að
gott útlit væri fyrir að vegurinn yfir
heiðina héldist opinn, a.m.k. yrði
mun minna verk að opna aftur þótt
eitthvað snjóaði hér eftir. Þess má
geta að Lágheiðin er búin að vera
lokuð síðan um miðjan desember.
Hún er raunar oftast lokuð yfir vet-
urinn en í hagstæðri tíð hefur leiðin
stundum verið opnuð eins og nú.
♦♦♦