Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 30

Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Á TUTTUGU ára afmæli sínu setur leik- félagið Hugleikur upp enn eina sýninguna sem slagar hátt upp í að vera atvinnusýning. Upp á síðkastið hefur félagið gert tilraunir með stílfærðar sýningar þar sem nokkur áhætta er tekin með heildarsvip í búningum og sviðsmynd og hefur tekist vel til. Hér er gengið lengra en áður; stílfærslan gengur í gegnum sviðsmynd, búninga og leik á þann hátt að furðu og aðdáun vekur. Tónlistin er sirkusleg og fallega framandi og söngtext- arnir smellnir. Leikritin eru alltaf frumsamin hjá Hugleik og fjalla um íslenskan veruleika fyrr og nú í gamansömum tón. Hér er engin undantekning á því en höfundarnir fjórir segja að Sirkus loki þríleiknum sem hófst með frægasta leikriti félagsins: Stútunga- sögu. Í mjög stuttu máli fjallar þetta bráð- skemmtilega og spennandi verk um það sem gerist þegar leynileg leyniþjónusta er stofn- uð á Íslandi árið 1949, á fimm ára afmæli lýð- veldisins, og kemur sér fyrir á skrifstofu jafnvægisstjóra. Rússahræðsla gegnsýrir samfélagið og uppnám verður þegar rússn- eskur sirkus heimsækir landið. Það er auð- velt að fara í ýmsar áttir með leikrit eins og Sirkus þar sem grínið, orðaleikirnir og út- úrsnúningarnir ná út yfir öll mörk. Þetta er þó ekki bara bull og vitleysa heldur er nokk- ur ádeilubroddur til staðar, eins og vera ber, en hann beinist einkum að svart/hvítri heims- myndinni sem ríkti á þessum árum í afstöðu smáborgara á Íslandi til Rússa og Kana. Óvæntar lausnir og undarlegar tilviljanir eru óspart notaðar í leikritinu eins og í fleiri Hugleiksverkum, svo mjög að ,,Guð í vélinni“ eða ,,Deus ex Machina“ svífur allt um kring. Viðar Eggertsson leikstjóri er þekktur fyr- ir að stýra góðum leiksýningum og nám- skeiðum hjá Hugleik eins og víðar. Hér fær hann tækifæri til að koma að þeirri hugmynd sinni að hafa sviðsmynd og búninga í svart/ hvítu en eins og gefur að skilja samræmist það efni verksins í hvívetna. Þetta hefur heppnast mjög vel; sviðið fær framandi yf- irbragð og leikararnir, sem eru hvítmálaðir í andliti, minna á trúða. Búningahönnun Hrefnu Friðriksdóttur setur svo punktinn yf- ir i-ið með glæsibrag. Það tekur dálitla stund að venjast þessu óvenjulega útliti en skemmtilegar hreyfingar í upphafssöngnum kynna persónur til leiks í rólegheitunum áður en atburðarásin skellur á. Það er einnig vel gert hvernig persónur ganga yfir sviðið í ljósabreytingum og minnir þessi skemmti- lega tækni ásamt tónlistinni sem fylgir á svart/hvítar kvikmyndir tímabilsins. Satt að segja er þessi stílfærsla svo áhugaverð að það er endalaust hægt að skoða smáatriðin en eitt verður að nefna: Þegar bóndinn Há- varður Karl tók upp rauðan klút varð hann jafn óþægilegt uppbrot á svartri og hvítri myndinni og rauður Rússi var í augum sann- færðra á sínum tíma. Þegar á líður verða óvæntar breytingar útliti sýningarinnar, svo ánægjulega óvæntar að kliður fór um salinn á frumsýningu. Viðar gerir athyglisverðar til- raunir með leikstílinn í samræmi við hið stíl- hreina útlit og kemur það oftast mjög vel út, til dæmis í látbragði leyniþjónustumannanna Njarðar og Skjaldar og í öllu atferli skemmtilegustu persónu verksins: Þuríðar skúringakonu frá Hvammi. Hins vegar er farið dálítið yfir strikið í ýktu látbragði per- sónanna Elínar, ritara Jóhannesar jafnvæg- isstjóra, og Diddu, eiginkonu hans. Trúðslegt látbragð í heilli sýningu er vandmeðfarið og svo virðist sem lengri æfingatíma hefði þurft til þess að fínpússa. Aðalatriðið er þó að trúðaleikstíllinn er áhættunnar virði í heild- ina þar sem hann er ómissandi hluti af heild- arhugmyndinni. Af fimmtán ágætum leikurum verður að nefna nokkra sem skáru sig úr. Skúringakon- an Þuríður í Hvammi er einna best sköpuð af persónum leikritsins. Hún var óaðfinnanlega leikin af Huldu Björgu Hákonardóttur sem er ein reyndasta leikkona Hugleiks og hefur kómíska tækni algerlega á valdi sínu. Hulda var alveg óborganleg í einbeitni Þuríðar við að verja landið fyrir kommúnisma. Tvíeykið Njörður og Skjöldur var leikið af Birni Sig- urjónssyni og Einari Þór Einarssyni. Einar Þór hefur mikla reynslu og tækni til að bera sem leikari og átti fína spretti, einkum í til- burðum ballettdansmeyjar. Björn er nýliði í Hugleik en það er ekki oft sem önnur eins tilþrif sjást og aulahátturinn og líkamsbeit- ingin sem hann lék sér að. Björn kom, sá og sigraði þetta kvöld. Sem Jóhannes jafnvæg- isstjóri var Jóhann Hauksson yndislega sannfærður og einlægur embættismaður. Leyniþjónustustjórann mág hans lék Sigurð- ur H. Pálsson og hafði hann þetta mikilvæga hlutverk mjög vel á valdi sínu, jafnt í líkams- beitingu sem framsögn. Í hlutverki Rússa- hatarans Hávarðs Karls var Rúnar Lund ein- staklega einlægur og blóðheitur. Gaman var að fá að sjá hina flinku hljómsveit sýning- arinnar slást í hóp sígaunanna sem lita verk- ið svo eldrautt sem raun ber vitni með frá- bærum búningum en þannig voru þeir upplífgandi og samstilltir þótt þeir væru al- varlegir og agaðir um of. Með uppfærslu sinni nú hefur félagið stigið enn eitt skrefið fram á við og kemur dyggum áhorfendum sínum verulega á óvart með því að taka áhættu tilraunaleikhússins. Tilraunin heppnast verulega vel og er að- eins hægt að óska félögunum Hugleik og Við- ari til hamingju. Er lífið betra í lit? LEIKLIST Hugleikur Höfundar: Ármann Guðmundsson, Hjördís Hjart- ardóttir, Sævar Sigurgeirsson, Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri: Viðar Eggertsson. Tónlist: Þorgeir Tryggvason, Ármann Guðmundsson. Söngtextar: Sævar Sigurgeirsson, Hjördís Hjartardóttir. Leik- myndahönnun: V. Kári Heiðdal, Hrefna Friðriksdóttir, Hanna Kr. Hallgrímsdóttir, Viðar Eggertsson. Bún- ingahönnun: Hrefna Friðriksdóttir. Hönnun lýsingar: Guðmundur Steingrímsson. Frumsýning í Tjarnarbíói 28. febrúar 2004. SIRKUS Morgunblaðið/Jim Smart „Með uppfærslu sinni nú hefur félagið stigið enn eitt skrefið fram á við og kemur dyggum áhorfendum sínum verulega á óvart með því að taka áhættu tilraunaleikhússins.“ Hrund Ólafsdóttir „ÆTLI mér hafi ekki dottið þetta í hug af því að ég þurfti sjálfur að fara út til að læra að syngja. Ég gat ekki lært að syngja hér heima. Ég var ekki að hugsa um að fara út svo ég gæti komið heim og stofnað söngskóla. Það sem boðið er upp á í söng í mörg hundruð ára tónlistarskól- um úti er svo stórkostlegt að þegar heim var komið varð það draumurinn að búa til skóla.“ Það er Garðar Cortes sem hér segir frá. Hann kom heim frá tónlistarnámi í Bretlandi árið 1969; hafði lokið einsöngvara- og söngkenn- araprófi frá Trinity College og Royal Academy of Music í London. Örfáum árum síðar, haustið 1973, var Söngskólinn í Reykjavík stofnaður fyrir draum og dug Garðars. „Ég sá þetta bara fyrir mér þá verða eins og það er í dag. Þetta er nákvæmlega það sem ég ætlaði mér. Ég er þó ekkert skapaður til að reka svona skóla. Ég var svo hamingjusamur að fá það samstarfsfólk sem er búið að vera með mér öll þessi ár, og hefur þann talent umfram mig, að geta búið til heimili hér og gert það að þeirri stofnun sem hún er.“ Allt frá stofnun skólans hafa margir okkar mestu söngvara og söngkennara starfað við hann. Í upphafi voru Kristinn Hallsson, Þuríður Pálsdóttir, Guðrún Á. Símonar, Rut Magnússon og Þorsteinn Hannesson í kennaraliðinu, en fleiri bættust við: Sigríður Ella Magnúsdóttir, Guðmundur Jónsson, Sigurveig Hjaltested og fleiri. Í dag skipta kennararnir tugum. „Ég var svo lánsamur að fá til liðs við mig alla þá söngvara, sem voru svo miklu, miklu meira virði fyrir okkur en við nokkurn tíma munum komast að. Þetta voru söngvarar af svo háum staðli; búnir að vinna mikið, en margir að kom- ast á aldur. Margt af þessu fólki hafði verið að kenna heima hjá sér, en það kvartaði enginn yf- ir því. Mér fannst þó alltaf að það hlyti að vera dragbítur á söngkennsluna að fólk þyrfti að vera að þessu á heimilum sínum. Þarna voru því tvær flugur slegnar í einu höggi; að skapa at- vinnutækifæri fyrir söngvara sem voru flestir að hætta að syngja, og finna jafnframt samastað fyrir þá sem langaði til að læra að syngja.“ Fyrsta haustið komust um 100 manns að í Söngskólanum – í dag eru nemendurnir tvöfalt fleiri, og um þrjú þúsund nemendur hafa stund- að þar nám á árunum þrjátíu. Garðar segir að alls konar fólk sæki um skólavist, bæði fólk sem dreymir stóra drauma um sjálft sig og söng- listina, en líka fólk með annars konar markmið. „Ég man eftir presti að austan sem kom í skól- ann sér til heilsubótar. En svo kemur líka ungt fólk sem vill verða söngvarar. Enn aðrir koma bara til að fá einhverja undirstöðu og til að geta sungið betur. Sumir verða alvöru söngvarar. Aðrir, sem eru bara að leita að dægradvöl, finna kannski allt í einu röddina sína, og eitthvað sem gagntekur þá í söngnum. Það eru milli 35 og 40 manns sem hafa útskrifast héðan, sem fljóta nú um heiminn og syngja í óperuhúsum, og fjórir af fimm fastráðnum söngvurum Íslensku óp- erunnar koma héðan.“ Garðar segir það alltaf jafnótrúlega upplifun að skynja það að einhver nemendanna sér sér- staklega hæfileikaríkur og efnilegur. „En svo er það stundum þannig að fólk hefur hæfileikann, og það er því nóg. Það eru sorglegustu nemend- urnir. En ef hæfileikinn og neistinn fara saman, þá er kennarinn fljótur að grípa það um leið og gefa nemandanum ómældan tíma.“ Söngáhuginn á Íslandi berst í tal og Garðar kveðst telja hann mun meiri hér en annars stað- ar sé miðað við fólksfjölda. Hann segir kóralífið í landinu til dæmis ótrúlega öflugt. En hann kann enga skýringu á því hvers vegna svo virð- ist vera. „Engar – ég kann engar skýringar á þessum mikla söngáhuga þjóðarinnar. Við erum jafnmörg hér og íbúar svefnbæjar við stórborg úti og í því ljósi er ótrúleg hvað margir leggja tónlistina fyrir sig. Þetta er eins í Færeyjum. Hér eru líka svo margir góðir söngvarar, sé aft- ur miðað við höfðatöluna. Agentar og óp- erustjórar erlendis eru farnir að taka eftir Ís- lendingum og fylgjast með okkur. Það er góður vitnisburður um tónlistarskólana okkar.“ Og enn vex söngáhuginn. Idol-stjörnuleitin skilaði til dæmis nokkrum keppenda inn í Söngskólann og Garðar segir það einn af framtíðardraum- unum að bæta við deild fyrir þá sem vilja leggja dægurlagasöng fyrir sig. Hann sagðist ekki vita hvers vegna við vær- um svona söngelsk en annað er hann viss um. „Þetta er meinhollt. Meðan við búum við þetta súrefnisríka loftslag er það hollt og gott að þenja lungun og syngja. Og svo er það auðvitað satt sem sagt er að sá sem syngur er hamingju- samur maður og gerir í það minnsta ekkert slæmt af sér á meðan.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Árni Sæberg Garðar á æfingu fyrir afmælistónleika Söngskólans, einsöngvara, Kórs Söngskólans, Óperu- kórsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar sem verða í kvöld kl. 19.30 og 15.30 á morgun. Þetta er meinhollt Söngskólinn í Reykjavík fagnar 30 ára afmæli með stórtónleikum í Háskólabíói í kvöld og á morgun. Berg- þóra Jónsdóttir ræddi við Garðar Cortes skólastjóra. Kristinn Sigmundsson verður í hópi einsöngvara á tónleikunum. Hinir eru Eivör Pálsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Snorri Wium, Þorgeir J. Andrésson og Ólafur Kjartan Sigurðarson. begga@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.