Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 33
Ef að líkum lætur verðaþær blómlegar blómarós-irnar í laugunum á hlýj-um sumardögum í ár því
nýjasta vor- og sumarlínan í sund-
fatatískunni kallar á blómabikiní í
björtum og skærum sumarlitum.
Þrátt fyrir að Íslendingar búi enn
við frost, snjó og kulda er sumar-
tískan í sundfötunum nú þegar farin
að berast í verslanir og því ekki úr
vegi að kanna nýjustu straumana.
„Hér er allt fullt af blómum,“
sagði Sigrún Karlsdóttir, versl-
unarstjóri í Benetton. „Við erum
komin með tvær tegundir af bik-
iníum. Önnur tegundin er þessi
hefðbundna með spöngum og lyft-
ingapúðum, en hin er alsett áprent-
uðum blómum í skærum litum.
Barnasundfötin eru líka í skærum
sumarlitum með blómum.“
„Bikiníin eru skrautleg í ár og lit-
irnir sterkir. Blóma-
mynstur er áberandi svo
og röndótt mynstur,“
sagði Hanna Sigurgeirsdóttir hjá
H&M Rowells. „Blómabikiní voru
líka til í fyrra, en þau eru mun
skrautlegri í ár og í stað hlýra er
gjarnan bundið um hálsinn og í boði
eru þrjú buxnasnið, g-strengur,
venjulegar og svo boxersnið. “
Allt leyfilegt í ár
Tómas Torfason, framkvæmda-
stjóri heildverslunarinnar T.Ó., sem
flytur inn Speedo-sundfatnað, tekur
í sama streng og talar um bjarta og
skæra liti í sundfatatísku sumarsins,
en það er ekki svo ýkja langt síðan
Speedo fór að feta sig inn í há-
tískuna meðfram framleiðslu á
keppnissundfötum, sem í
flestra huga er líklega
svartur sundbolur
með krossi í bak-
ið og rönd á hlið-
inni. „Annars er allt leyfilegt í ár. Nú
koma sterkt inn bikiní með blóma-
mynstrum og hjá strákunum fara
vinsældir sundbuxna vaxandi og því
síðari sem þær eru því betra. Þetta
er eins og að vera með troll í eftir-
dragi. Maður syndir 200 metrana
ekki auðveldlega. Sundlaugarmenn-
ingin snýst á hinn bóginn ekki bara
um hreyfingu. Hún snýst ekki síður
um að sýna sig og sjá aðra, leika sér
og slaka á. Fólk er jafn misjafnt og
það er margt og það góða við þetta
er að enginn þarf að vera hallæris-
legur í laugunum því allt er í gangi
og úrvalið mikið,“ segir Tómas.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 33
B-vítamín og C-vítamín eru nauðsynleg til að viðhalda sterkum og góðum taugum,
auk þess að vera undirstaða ótal annara þátta líkamsstarfseminnar.
Vítamínin í B-STRESS eru sérvalin næringarefni fyrir taugarnar.
Þau gegna auk þess mikilvægu hlutverki fyrir heilbrigð efnaskipti, gróskumikinn
hárvöxt, heilbrigt og fallegt hörund og heilbrigða starfsemi hjarta og æða.
Avena er nærandi fyrir taugarnar og kjörið að nota áður en lagst er til hvíldar.
B-Stress kr. 916,-
Avena kr. 885,-
K
R
A
F
TA
V
E
R
K
Sykurskertar
- en sætar!
Örfáar
hitaeiningar
fiú getur alltaf fengi› flér
gómsæta kökusnei› úr
sykurskerta bökunarduftinu frá
- einfaldlega létt og gott!
Au›vita› Kathi
Allt á léttu nótunum
Auðvelt að baka
Engin rotvarnarefni
Engin litarefni
Söluaðilar: Verslanir Hagkaupa
- Fræið, Fjarðarkaupum - Gripið og greitt
- Vöruval, Vestmannaeyjum - Hlíðarkaup,
Sauðárkróki - Nesbakki, Neskaupstað.
Blómlegar í björt-
um bikiníum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumar:
Bikiní
blómum
skreytt.
Benetton.
Sumarleg
sundföt:
Sundbuxur
frá Inter-
sport og bik-
iní f́rá H&M.
Suðræn stemning:
Sígilt frá Speedo.
Sundbuxur: Í sumar
verða boxerbuxur vin-
sælar. Intersport.
Blómarós: Í
blómabol frá
Benetton.
TÍSKA