Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Pabbi minn hefði orð- ið 55 ára í dag. Hann bar aldurinn vel og hafði gaman af tilver- unni. Gott dæmi um það hve unglegur hann var er að fyrir nokkrum árum var ég með honum í verslun og hitti kunningjakonu sem brosti mjög kankvíslega til mín. Stuttu seinna spurði hún hvort þetta væri nýi kær- astinn – ég skellihló og sagði henni rígmontin að þetta hefði verið pabbi minn! Á þessum 55. afmælisdegi hans eru HERMANN SVEINBJÖRNSSON ✝ Hermann Þor-valdur Svein- björnsson fæddist í Neskaupstað 5. mars 1949. Hann lést á heimili sínu í Garða- bæ 16. júlí 2003 og var útför hans gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 22. júlí. tæpir átta mánuðir frá því hann dó og mér finnst það alltaf jafn- undarleg tilhugsun að hann sé ekki lengur hérna, að ég sjái hann ekki aftur. Oftar en ekki hugsa ég um hvað það væri ómetanlegt að geta hitt hann einu sinni enn. Bara til að faðma hann eins og við gerðum, segja honum hvað hann skipti mig miklu máli, hvað stingurinn í mag- anum er sár í hvert sinn sem eitthvað minnir mig á hann og hversu innilega mér tekst stundum að hlæja að skemmtilegum minningum okkar saman. Hvað ég sakni hans sárt. Við pabbi vorum sammála um að hingað værum við komin til að læra og á þessu öllu hef ég lært, svo sann- arlega, bara ef hann gæti séð til mín. Í veikindum sínum tókst pabba hvað eftir annað í öllu andstreyminu að líta björtum augum á tilveruna. Mér fannst þetta jákvæða viðmót hans stundum svo furðulegt miðað við að- stæður að það hvarflaði að mér að hann væri að þykjast – en svo var ekki. Hann átti sína daga sem voru ekki auðveldir, það skildu allir, en alltaf tókst honum að snúa því við og ná í brosið aftur. Með því að fylgjast með honum og taka þátt í lífi hans lærði ég á mjög skömmum tíma að það er hægt að vera jákvæður þrátt fyrir erfiðleika. Ég held reyndar að litli labbakútur, hann Máni Freyr, hafi oft verið uppspretta þeirrar ein- lægu gleði og þakklætis sem afinn fann fyrir. Já, Máni Freyr er að missa af miklu. Það sást strax að þarna var að- dáun tveggja einstaklinga gagnkvæm og pabbi hefði líklega haft þó nokkur áhrif á líf þessa litla snáða. Pabbi var farinn að velta fyrir sér hvernig skíði sá stutti ætti að fá og ég mun gera eins og ég get til að kenna honum listina að skíða niður brekkurnar eins og afinn gerði svo frábærlega. Það kæmi mér ekki á óvart að kennsluað- ferðir hans yrðu í aðalhlutverki í brekkunum! Faðmaðu dalinn, Katrín, kallaði hann á eftir mér. Hann var stoltur af mér og leiðbeindi mér af sinni alkunnu skíðasnilld. Dags daglega var pabbi einn af mínum dyggustu stuðningsmönnum. Hann gagnrýndi mig, oft að mér fannst á óvæginn hátt en alltaf kom hann inn á eitthvað jákvætt líka og hvatti mig áfram. Þessi lífsreyndi maður trúði á mig og fannst ég vera að feta rétta braut í lífinu. Ég sakna nærveru hans og okkar ótal samtala sem voru innihaldsrík og gefandi. Bíltúrarnir í Heiðmörk gleymast aldrei og ekki heldur ristaða brauðið sem hann bar fram eins og það væri dýrindis máltíð, sem það var – þegar hann bar það á borð. Ég sakna pabba. Elsku hjartans pabbi minn – þú ert í huga mér og hjarta, alltaf. Ég held áfram að segja Mána Frey frá þér – hann fær afmælisútgáfu í kvöld. Þín dóttir Katrín Brynja. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ BERGSVEINSDÓTTIR, Hornbrekku, Ólafsfirði, sem lést miðvikudaginn 25. febrúar, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 9. mars kl. 13.30. Kveðjuathöfn verður í Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 6. mars kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega bent á að láta Horn- brekku í Ólafsfirði eða Hólmavíkurkirkju njóta þess. Björk Arngrímsdóttir, Guðbjörn Arngrímsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Reynir Arngrímsson, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORGEIR JÓN EINARSSON, Hrafnistu, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mið- vikudaginn 3. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Einar Þorgeirsson, Sigrún Edvardsdóttir, Magnús Ingvar Þorgeirsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Ingigerður Þorgeirsdóttir, Ingólfur Guðnason, Anna Þorgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, ARNBJÖRN ÁRNI KJARTANSSON, Sólvallagötu 28, Keflavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 19. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Guð blessi ykkur. Gunnhildur Þ. Hjarðar, Sigurður Arnbjörnsson, Kjartan Arnbjörnsson, Kristín Róbertsdóttir, Salóme B. Arnbjörnsdóttir, Scott Davidsson, Guðfinna B. Arnbjörnsdóttir, Arnoddur Jónsson, Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir, Guðmundur Björnsson, Arnbjörn Barbato, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR JÓNASSON, Skúlagötu 4, Stykkishólmi, lést á St. Franciskusspítala Stykkishólmi mið- vikudaginn 3. mars. Jarðarför auglýst síðar. Sigríður Pétursdóttir, Eggert Halldórsson, Þórir Halldórsson, Erla Halldórsdóttir, Gyða Stefanía Halldórsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, MAGGA ALDA ÁRNADÓTTIR frá Núpakoti, lést mánudaginn 1. mars. Útförin fer fram frá Eyvindarhólakirkju miðviku- daginn 10. mars kl. 14.00. Þorvaldur Sigurjónsson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Matthías Jón Björnsson, Guðlaug Þorvaldsdóttir, Árni Gunnarsson og barnabörn. Einn af öðrum kveðja þeir gömlu vin- irnir og félagarnir. Það var það fyrsta sem að mér hvarflaði þegar Jóhannes, tengdasonur Garðars, hringdi til að segja mér að tengda- pabbi hans væri látinn og hann vildi að ég vissi það beint frá fjölskyld- unni, vegna vinskapar og tengsla okkar Garðars um margra ára skeið. Garðar, eða Gæi Ben eins og margir kölluðu hann, var mikill sómamaður í öllu sínu lífi, barst ekki mikið á en var traustur og góður þjóðfélagsþegn. Þessi orð eiga við hann og marga aðra sameiginlega vini sem fallnir eru frá og voru okkur samtíða um áratugaskeið, m.a. í Sementsverksmiðju ríkisins. Þegar okkar leiðir lágu fyrst sam- an þá var Garðar afgreiðslumaður í pökkunarstöðinni, síðar varð hann afgreiðslustjóri, öll sín verk leysti hann af sömu alúð. Við áttum saman gleðistundir með bridgefélögunum og á árshátíðum og ferðum á vegum SFSR. Fjölskyldu Garðars kynntist ég eftir því sem árin liðu og bera af- komendur öll merki foreldra sinna með alúð og virðingu fyrir þeim sem þau eiga samskipti við. Undirritaður naut frá því fyrsta leiðsagnar á pólitískum vettvangi af ✝ Garðar Berg-mann Benedikts- son fæddist á Akra- nesi 27. júlí 1919. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 17. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akranes- kirkju 24. febrúar. hálfu Garðars. Hann var jafnaðarmaður eins og hugtakið lýsir best, og var mjög umhugað um að rétta hlut þeirra sem minna máttu sín í þjóðfélaginu, einnig bar Garðar mikla um- hyggju fyrir framgangi og framförum á Akra- nesi. Mér eru minnis- stæð mörg viðtöl sem við áttum um bæjar- málin, t.d. sagði Garðar strax í upphafi að gott samgöngukerfi, hreinn og snyrtilegur bær og góð þjónusta bæjaryfirvalda væri grunnurinn að góðu samfélagi. Hann var óþreyt- andi að aðstoða undirritaðan þau ár sem ég sat í bæjarstjórn fyrir Al- þýðuflokkinn hér á Akranesi. Garðar fylgdi fast eftir málefnum Alþýðuflokksins og var einn af mörg- um traustum félögum á bak við þing- fulltrúa hans á Vesturlandi. Ekki var Garðar sáttur við hvernig samruna flokkanna á bak við Samfylkinguna bar að en persónulegur stuðningur brást aldrei engu að síður. Við leiðarlok viljum við þakka góð- um dreng samfylgdina. Við vottum Ástu og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Megi góður guð styðja ykkur á þungbærri kveðju- stund. Edda og Gísli S. Einarsson, Akranesi. Elsku afi. Nú þegar þú ert farinn er svo margs að minnast, allar þær stundir sem við áttum saman eru ómetanleg- ar og gleymast seint. Þegar við vorum lítil var alltaf svo gaman að koma til ykkar ömmu á Stekkjó. Þú varst alltaf til í leiki, sama þótt við vildum fara upp á háaloft eða út í garð í fótbolta. Sveitarúntar og tjaldútilegur verða lengi í minnum hafðar, þá var mikil keppni hjá okk- ur krökkunum um að fá að vera í bíl hjá ykkur ömmu. Nú á seinni árum hefur þú verið fyrirmynd okkar. Þú varst alltaf svo lífsglaður, hlýr og duglegur. Þú varst mesti snyrtipinni, alltaf svo fínn til fara með hatta eða fínar derhúfur, og að sjálfsögðu var allt á sínum stað í bílskúrnum. Það er skrítið að hugsa til þess að hitta þig ekki aftur. Þín verður sárt saknað elsku afi. Við biðjum góðan guð að veita ömmu Ástu styrk á þessum erfiðu tímum. Er finna vil hlýju, ég hugsa til þín þó harmur og sorg reyna að villa mér sýn, þá hugsa ég til þess, hvernig brostir til mín ég fyllist af hlýju er ég hugsa til þín. Þú áfram munt lifa í hjarta mér þar að eilífu varðveita mynd af þér þú bjartasta stjarna í guðsenglaher við hittumst á ný, þegar kemur að mér (Maren Hauksdóttir.) Ástarkveðjur. Rakel og Styrmir. Elsku afi. Ég vil þakka þér fyrir hvað þú varst mér góður. Mér fannst alltaf notalegt að vera hjá þér og spjalla við þig. Það var gaman að safna jók- erum fyrir þig og ég ætla að halda áfram að safna þeim fyrir þig og passa vel upp á allt safnið. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Prestshólum.) Þín Kristrún. GARÐAR BERGMANN BENEDIKTSSON AFMÆLIS- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á út- farardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Þar sem pláss er takmark- að getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minningargreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.