Morgunblaðið - 05.03.2004, Side 54

Morgunblaðið - 05.03.2004, Side 54
DAGBÓK 54 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Skógafoss kemur og fer í dag. Jökulfell og Spruttenberg koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Arklow Wave fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 14 bingó. Hársnyrt- ing, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16,30 smíðar. Bingó spilað 2. og 4. föstudag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 bað, kl. 9–12 vefn- aður, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 13–16 vefnaður og frjálst að spila í sal. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðslustofan opin, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Kl. 13 sagan, kl. 14.15 koma Jóhanna Ósk Valsdóttir messó- sópran og Bjartur Logi Guðnason píanóleikari í heimsókn með söng og spil. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa, kl. 9–16.30, gönguhópur, kl. 9.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 opið hús, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Félagsvist í Garðabergi á vegum Félags eldri borgara kl. 13, ullarþæfing kl. 13.30, fótaaðgerðastofa, s. 899 4223. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, tréútskurður og brids kl. 13, billjard kl. 13.30, dansleikur í kvöld, 5. mars, kl. 20.30. Caprí tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Snúður og Snælda sýna „Rapp og rennilása“ í dag kl. 14. Uppselt. Næsta sýning sunnudag kl. 15. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. spegla- skreytingar og fata- skreytingar og fl., kl. 10 létt ganga, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 myndvefnaður, kl. 9.30 málm- og silfur- smíði, kl. 13 bókband. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlist, kl. 10 ganga, kl. 13 brids- kennsla. Kl. 14 Gleði- gjafarnir syngja. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, baðþjónusta, fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 bingó. Hvassaleiti 58–60. Fótaaðgerðir virka daga, hársnyrting þriðju- til föstudags. Norðurbrún 1. Kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrýdans, kl.13.30 sungið við flygilinn við undirleik Sigurgeirs, kl. 14.30 dansað í kaffitím- anum við lagaval Sigvalda, gott með kaffinu. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9. 30 bókband og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir, kl. 13.30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 10–14. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Kvenfélag Grens- ássóknar. Fundur mánudaginn 8. mars kl. 20 í safnaðarheimili Grensákirkju, spiluð fé- lagsvist, kaffiveitingar. Framsóknarfélag Mos- fellsbæjar. Félagsvist í kvöld í Framsóknarsalnum í Mosfellsbæ að Háholti 14, 2. hæð, kl. 20.30. Tekin verða saman 5 efstu kvöldin af 8 (frá 13. feb. til 2. apríl) og fyrir þau veittur ferða- vinningur. Félag einhleypra. Fundur á morgun kl. 21 í Konnakoti, Hverf- isgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Heitt á könnunni. Munið göng- una mánu- og fimmtu- daga. Borgfirðingafélagið í Reykjavík. Spiluð fé- lagsvist á morgun, laugardaginn 6. mars, kl. 14 í Síðumúla 37. Í dag er föstudagur 5. mars, 65. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út fara frá bú- stað sínum, mun ofan stíga og ganga eftir hæðum jarðarinnar. (Míka 1, 3–4.)     Þorbjörg Helga Vigfús-dóttir segir á vefrit- inu Tíkinni að þriggja ára fjárhagsáætlun borg- arinnar, sem nýlega var samþykkt, sýni enn og aft- ur fram á að R-listinn ráði ekki við skuldaþróunina í Reykjavík. „Skuldir halda áfram að hækka og fyr- irtæki borgarinnar (þar með talin Orkuveita Reykjavíkur) eiga eftir að bera hitann og þungann af þeim skuldabagga. Samkvæmt áætluninni mun veltufé frá rekstri ekki standa undir áform- uðum fjárfestingum. Þetta boðar einfaldlega áframhaldandi skulda- aukningu.     Árið 2007 stefna hreinarskuldir Reykjavík- urborgar í 74 milljarða króna. Miðað við hvernig áætlanir R-listans hafa staðið hingað til má gera ráð fyrir að þessi upphæð verði mun hærri þegar þar að kemur. Hreinar skuldir voru um 4 millj- arðar árið 1993 en verða um 68 milljarðar árið 2005,“ segir Þorbjörg, og bætir við að skuldir borg- arsjóðs segi ekki alla sög- una. „Horfa verður á millifærslur á skuldum úr borgarsjóði yfir í dótt- urfélög borgarinnar, út- gjöld dótturfélaga til átaksverkefna og stór- auknar arðgreiðslur Orkuveitu Reykjavíkur í borgarsjóð. Til að eðlileg þróun skulda sé rétt skýrð verður að tala um heild- arskuldir. Ef ekki er rætt um heildarskuldir er felu- leikurinn sambærilegur því að húsmóðir ræddi góða skuldastöðu heim- ilisins með því að skoða aðeins fasteignaskuldir en ekki neysluskuldir eða bifreiðagreiðslur. Það er ekki heldur til neins fyrir borgarfulltrúa R-listans að benda á auknar fjár- festingar eða eignir til að réttlæta skuldir borg- arinnar enda munu þeir tæpast selja götur, hol- ræsakerfið eða skóla- byggingar til að grynna á skuldabagganum. Ef fram heldur sem horfir stefnir í að Reykjavíkurborg skipi sér sess meðal þeirra sveitarfélaga sem hæstar skuldir hafa á íbúa.“     Þorbjörg segir ástæðuraukinna skulda fyrst og fremst vera út- gjaldaþenslu og fram- úrkeyrslu í fram- kvæmdum. „Sérstök sparnaðarnefnd sem skila átti niðurstöðum fyrir rúmu ári hefur engu kom- ið til leiðar nema sum- arlokunum grunnskóla sem sparaði borgarkerf- inu 12 milljónir en jók samfélagslegan kostnað um ómældar upphæðir. Valdasamstarf þriggja flokka og skortur á skýrri sýn í málefnum höf- uðborgarinnar leiða til dekurverkefna og sér- sjóða sem kosta Reykvík- inga stórfé. Á meðan R- listinn eyðir útsvari Reyk- víkinga í dekurverkefni og starfshópa hækka skuldir borgarbúa svo um munar,“ segir Þorbjörg að lokum. STAKSTEINAR R-listinn eyðir útsvari í dekurverkefni Víkverji skrifar... Víkverji sagði frá því á dögunum aðbrennivín, sem hann keypti í ÁTVR, hefði frosið í frystinum hjá honum. Hjálpsamur lesandi sendi Víkverja krækju á vef ÁTVR, þar sem fjallað er um frostmark áfengis. Samkvæmt upplýsingunum, sem þar koma fram, hefur frostið í frysti Vík- verja verið a.m.k. 21 gráða, hafi brennivínið verið jafnsterkt og fram kemur á flöskunni. Nú verður Vík- verji að fylgjast betur með frystinum sínum. x x x Sendingin vakti annars athygli Vík-verja á því hversu margvíslegan gagnlegan fróðleik má finna á vef ÁTVR. Víkverji hefur ekki verið mjög mikið fyrir að hrósa þessari stofnun, sem honum finnst að eigi ekki að vera til, en má til að gefa Rík- inu nokkur prik fyrir vefinn. Fyrir utan fróðleikinn um frostmark áfeng- is má þar finna svör við spurningum á borð við hvernig eigi að geyma rauð- vín og hvítvín, hvernig eigi að um- hella, hversu mörg glös séu í flösku, hvaða hitastig eigi að vera á víni þeg- ar það er framreitt, hvað þurfi mikið vín í veizlur og hversu lengi megi geyma vín í opnum flöskum. Þetta finnst Víkverja allt til fyrirmyndar. Víkverji las á dögunum grein íbrezku blaði eftir blaðamann sem hafði verið boðið í flugferð til Ís- lands með Flugleiðum – eða Ice- landair eins og flugfélagið kýs víst nú að kalla sig jafnt á Íslandi sem er- lendis. Í greininni býsnaðist blaða- maðurinn mikið yfir stefnu Flugleiða varðandi verðlagningu á drykkjum í flugvélinni. Hann hafði beðið um flösku af vatni og fékk þau svör að hann þyrfti að borga fyrir hana. Þá bað hann um vatnsglas og fékk það fyrir ekki neitt. Blaðamaðurinn spurði eðlilega hvort það borgaði sig frekar fyrir flugfélagið að láta flug- freyjuna trítla fram og aftur með vatn í glösum, sem kostaði ekki neitt, en að láta farþegana hafa vatns- flösku, sem innihéldi nokkur glös og sparaði starfsfólkinu sporin. x x x Á sínum tíma þurfti að borga fyriráfenga drykki á almennu farrými hjá Flugleiðum. Þegar svo var komið að fá önnur flugfélög rukkuðu fyrir léttvín og bjór, var þessi stefna stundum varin með því að drykkju- menning Íslendinga væri svo frum- stæð að þeim væri ekki treystandi fyrir ókeypis áfengi í flugi. Kannski eitthvað til í því. Svo juku Flugleiðir þjónustuna og buðu upp á ókeypis léttvín og bjór. Nú þarf að borga fyrir alla drykki í vélum Flugleiða, meira að segja ávaxtasafa með morg- unmatnum – nema hvað vatn í glös- um er ókeypis. Víkverja finnst þetta hæpinn sparnaður. Pirringurinn, sem hleypur í farþega þegar þeir þurfa að standa upp úr sætinu, af- saka sig við sessunautana og sækja veskið í farangurshólfið hlýtur þegar upp er staðið að kosta flugfélagið meira en það græðir á því að rukka fyrir djúsið – nema að Víkverji hafi misskilið eitthvað og umtalsverður hluti góðs hagnaðar Flugleiða komi af sölu drykkja um borð í flugvélum flugfélagsins. Spaugstofan yfir strikið ÉG hlakka alltaf til laug- ardagskvöldanna í sjón- varpinu. Fyrst kemur Lottóið, svo Gísli Marteinn og svo Spaugstofan þar á eftir. En svo bregðast krosstré sem önnur tré. Laugardaginn 28. febr- úar fóru Spaugstofumenn yfir strikið í viðureign Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra. For- setaembættinu var sýnd þvílíkt virðingarleysi að það hálfa væri nóg. Þeir hafa ýjað að þessu í und- anförnum þáttum en þarna tók út yfir allan þjófabálk. Þetta er fyrir neðan virð- ingu Spaugstofumanna, þeir hljóta að hafa úr nógu öðru að moða. Mér fannst þetta ekkert fyndið. Ein íslensk. Þjóðin vill forseta BESTU þakkir fyrir myndir af hinum ýmsu kirkjum, sem birtast í helg- arblöðum Morgunblaðsins. Gaman væri fyrir safnara að sjá í meira mæli myndir af kirkjum á landsbyggð- inni. Svo er það forsetaemb- ættið. Sem almennur íbúi þessa lands vil ég koma því á framfæri að auðvitað á Ís- land, fullvalda ríki, að hafa þjóðhöfðingja, forseta. Tal um að það sé of dýrt er bara bull ef við íhugum alla þá peninga sem fara í alls konar utanríkisþjónustu. Ef eitthvað væri ætti for- seti að hafa fleiri metnað- arfull verkefni og aðeins meiri völd. Ég held að þjóðin vilji forseta, eins og hefur sýnt sig í kosningum. Þjóðin vill hafa á tilfinningunni að hún ráði einhverju um hver sit- ur í hinu æðsta embætti. Það hefur hún ekki í al- mennum kosningum til al- þingis. Hér með vil ég lýsa yfir stuðningi við sitjandi forseta, hr. Ólaf Ragnar Grímsson. Hann hefur reynst okkur hinn ágætasti forseti, þrátt fyrir hrak- spár margra. Vegna um- ræðna og vangaveltna und- anfarið um heimastjórn- armálin þá vil ég bara segja að þjóðin er ekki svo heimsk að hún sjái ekki í gegn um fjaðrafokið og til- búninginn. erlaoskars@strik.is Tapað/fundið Hringur í óskilum HRINGUR fannst á göngustíg í Heiðmörk. Nánari upplýsingar í síma 565 7158. Dýrahald Kettlingar fást gefins TVEIR elskulegir kettling- ar fást gefins á gott heimili. Þeir eru kassavanir, sprell- fjörugir og yndislegir. Upplýsingar í síma 568 3198 á kvöldin. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 öndunarfæri fiska, 4 þvaga, 7 skrökvar, 8 renningurinn, 9 gríp, 11 ástundun, 13 ókeypis, 14 krumla, 15 drukkin, 17 þvættingur, 20 amboð, 22 giskar á, 23 frí, 24 reglu- systir, 25 fræða. LÓÐRÉTT 1 hindrun, 2 form, 3 kropp, 4 seglskip, 5 tek- ur, 6 mikið annríki, 10 æsir, 12 reið, 13 spor, 15 ánægð, 16 sett, 18 reyfið, 19 hefja upp, 20 grenja, 21 gaffal. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hjáleigan, 8 seppi, 9 iglan, 10 fen, 11 krapi, 13 aktar, 15 nauts, 18 flaga, 21 tía, 22 gaddi, 23 liðug, 24 fangbrögð. Lóðrétt: 2 japla, 3 leifi, 4 ilina, 5 aflát, 6 ósek, 7 knár, 12 pot, 14 kál, 15 nagg, 16 undra, 17 sting, 18 falar, 19 auð- ug, 20 auga. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.