Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur næman skilning á líð-
an annarra. Þú ert einnig ná-
kvæm/ur og skýr í hugsun.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að
koma skipulagi á hlutina bæði í
vinnunni og á heimilinu. Þú
ættir einnig að huga að heilsu
þinni. Þú vilt bæta lífsstíl þinn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður dagur til
skemmtana. Leggðu þig fram
um að njóta dagsins með góðu
fólki. Farðu í hádegismat með
vinnufélögum þínum og heim-
sæktu vini þína í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þig langar til að gera eitthvað
sérstakt fyrir einhvern í fjöl-
skyldunni. Þú þarft ekki endi-
lega að kaupa dýra gjöf til að
gleðja viðkomandi og sýna
honum/henni að þér þyki vænt
um hann/hana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er mikill kraftur í þér í
dag. Þú ert í skapi til að tala
við fólk og koma hlutunum í
verk. Dagurinn hentar því sér-
lega vel til innkaupa og samn-
ingaviðræðna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt hugsanlega kaupa
eitthvað fallegt handa sjálfri/
sjálfum þér eða fyrir heimilið í
dag. Það eru mestar líkur á að
það sem þú kaupir eigi eftir að
veita þér mikla ánægju.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Tunglið er í merkinu þínu og
það gerir þig sérlega sjálfs-
örugga/n. Á sama tíma hefurðu
óvenju sterka þörf fyrir að
deila tilfinningum þínum með
öðrum. Það er óþarfi fyrir þig
að halda aftur af þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að gefa þér tíma til að
vera ein/n með sjálfri/sjálfum
þér í dag. Stundum þurfum við
bara á því að halda að hugsa
málin í ró og næði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Njóttu þess að vera með vinum
þínum í dag. Þú hefur mikla
þörf fyrir að deila hugsunum
þínum með einhverjum. Þetta
á sérstaklega við um það sem
er að gerast í sambandi þínu
við maka þinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að líta sem best út í
dag. Eitthvað mun örugglega
verða til þess að draga athygl-
ina að þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Breyttu á einhvern hátt út af
vananum í dag. Farðu aðra leið
heim úr vinnunni og í aðrar
búðir en venjulega. Ef þú hef-
ur tækifæri til ættirðu jafnvel
að drífa þig í stutt ferðalag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert að eyða meiri peningum
þessa dagana en þú ert vön/
vanur. Reyndu að fylgjast með
stöðunni á reikningnum og
ekki fara niður fyrir núllið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að sýna fólkinu í kring
um þig sérstaka þolinmæði í
dag. Á morgun verður tunglið
fullt og því er hætt við að það
sé einhver spenna í loftinu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
EKKJAN VIÐ ÁNA
Hví skyldi ég ekki reyna að byrla Braga full
og bræða, steypa og móta hið dýra feðra gull,
ef heimasætan kynni að horfa á aðferð mína
og hlusta á stutta sögu um mömmu og ömmu sína.
– – –
Á bakkanum við ána hún bjó við lítil völd
og barðist þar við skortinn í næstum hálfa öld.
Á hrífuskafti og prjónum var höndin kreppt og bogin
og hartnær þorrin brjóstin, – af tíu munnum sogin.
Og meðan inni í sveitinni bústöðum var býtt
og býlin sneydd og aukin, af kappi um völdin strítt,
hún undi sér við heiðina og elfarstrauminn bláa,
en annars vegar hraunið, – í kotinu sínu lága.
– – –
Guðmundur Friðjónsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 6. mars, er sextugur
Magnús Ólafsson, forstjóri
Osta- og smjörsölunnar,
Hringbraut 79, Reykjavík.
Af því tilefni hafa hann og
eiginkona hans, Edda Árna-
dóttir, opið hús í AKOGES-
salnum, Sóltúni 3, milli kl.
12 og 14 á afmælisdaginn og
vonast þau eftir að sjá þar
ættingja, vini og samstarfs-
fólk.
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 6. mars, er áttræð Jón-
ína Ragúels frá Hauganesi,
til heimilis að Tjarnarlundi
11 á Akureyri. Jónína tekur
á móti ættingjum og vinum í
safnaðarsal Glerárkirkju á
afmælisdaginn frá kl. 15–19.
PÓLVERJINN Cezary
Baliki er öflugur spilari og
mjög útsjónarsamur í hlut-
verki sagnhafa. Hann varð
sagnhafi í þremur gröndum
í spilinu að neðan, sem er
frá NEC-mótinu í Japan:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠3
♥ÁDG8
♦K8
♣ÁK10632
Suður
♠ÁG2
♥K63
♦G942
♣754
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði Dobl 3 spaðar Pass
Pass Dobl Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Út kom smár spaði og Baliki
drap drottningu austurs
með ás. Hann spilaði laufi að
blindum í öðrum slag og
stakk auðvitað upp ás, en þá
henti austur óvænt tígli.
Hvað er nú til ráð Baliki var
ekki lengi að leysa málið.
Hann vissi að vestur átti tíg-
ulásinn og ekki nema fjögur
rauð spil. Með hliðsjón af
því var sennilega hægt að
láta vestur leysa samgangs-
vandann. Balicki tók hjarta-
ás, fór heim á hjartakóng til
að spila laufi. Vestur stakk
upp gosa og fékk að eiga
slaginn:
Norður
♠3
♥ÁDG8
♦K8
♣ÁK10632
Vestur Austur
♠K10975 ♠D864
♥96 ♥10742
♦ÁD ♦107653
♣DG98 ♣–
Suður
♠ÁG2
♥K63
♦G942
♣754
Ef vestur brýtur spaðann
fær suður innkomu til að
svína lauftíu. Og ekki er
vestur betur settur með því
að spila tígli, því þá má hann
fá annan slag á lauf.
Einfalt og stílhreint.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Þessi ungi drengur, Úlfar
Logi Hafþórsson, safnaði
dósum og flöskum á Akur-
eyri til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðust
711 krónur.
Þessi duglegi strákur, Ein-
ar Aron Fjalarsson, safnaði
flöskum á Akureyri fyrir
Rauða kross Íslands og
söfnuðust 1.074 krónur.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6
6. Bc4 e6 7. a3 b5 8. Ba2
Bb7 9. De2 Rc6 10. Rxc6
Bxc6 11. Rd5 Bb7 12.
Rxf6+ Dxf6 13. 0-0 Be7 14.
c3 0-0 15. Bd2 De5 16.
Hae1 Bf6 17. f4 Dc5+ 18.
Kh1 Bh4 19. Be3 Dc6 20.
Bf2 Bf6 21. Dg4 Had8 22.
He3 a5 23. Bb1 g6 24. Hh3
Bg7 25. Dh4 h6 26. Hg3 d5
27. e5 b4 28. Bd4 Ba6 29.
He1 bxc3 30. bxc3 Hb8
Staðan kom upp í
lokuðu alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir
skömmu í Jakarta í
Indónesíu. Denny
Juswanto (2.505)
hafði hvítt gegn
kínversku skák-
drottningunni Zhu
Chen (2.495). 31.
f5! Snjöll framrás
sem svartur fær
ekki ráðið við. 31. –
exf5 32. Bxf5! g5
(hvítur ynni líka
eftir 32. – gxf5 33.
e6) 33. Hxg5! Kh8
34. Hxg7! Kxg7 35. e6+ f6
36. Dg3+ Kh8 37. Dg6 Dc7
38. e7 og svartur gafst upp
enda óverjandi mát. Glæsi-
leg sóknaratlaga hjá heima-
manninum og alþjóðlega
meistaranum. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1.–2.
Antoaneta Stefanova
(2.478) og Denny Juswanto
(2.505) 6½ v. 3. Utut Adi-
anto (2.591) 6 v. 4. Zhu
Chen (2.495) 5 v. 5. Thanh
Trang Hoang (2.447) 4 v. 6.
Susanto Megaranto (2.458)
2 v. Seinni hluti Íslands-
móts skákfélaga hefst í
Menntaskólanum í Hamra-
hlíð í kvöld kl. 20.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Hann?
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir,
fjölskylduráðgjafi
Skemmtilegt námskeið fyrir konur á öllum
aldri af öllum stærðum og gerðum verður
haldið í Brautarholti 4a,
laugardaginn 6. mars frá kl. 13-17.
Efni námskeiðsins er m.a:
Eigi vil ek hornkerling vera
BE- ástandið
„Þóknast þér“ skeiðið
Seinkunartæknin
Hverjir voru heimsmeistarar
í sektarkennd 2003
Skráning í símum 588 2092 og 862 7916
Stuttir fyrirlestrar með léttu ívafi.
Kaffi og meðlæti
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396,
lögg. fasteignasali.
500 FM ATVINNU- EÐA
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
ÓSKAST
Mér hefur verið falið að leita eftir atvinnuhús-
næði í Reykjavík, eða Kópavogi, fyrir fjársterkan
kaupanda. Húsnæðið má þarfnast lagfæringa
að innan eða vera fokhelt. Helmingur húsnæðis
má vera gluggalaust rými. Æskilegt að eignin
sé með góðu aðgengi að bílastæðum eftir kl.
19.00. Verðhugmynd allt að 60,0 millj. Áhuga-
samir vinsamlega hafið samband og ég mun
fúslega veita nánari upplýsingar.