Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 57 PAUL Sturrock var í gær ráðinn knattspyrnu- stjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Southampt- on. Hann tekur við af Gordon Strachan sem sagði starfi sínu lausu fyrir skömmu. Steve Wigley hefur stýrt Southampton í undanförnum leikjum. Sturrock er 47 ára Skoti sem lék um árabil með Dundee United og spilaði 20 landsleiki fyr- ir Skotland. Hann náði góðum árangri sem knattspyrnustjóri St. Johnstone og Dundee United í Skotlandi en tók síðan við enska liðinu Plymouth í október árið 2000. Það var þá neð- arlega í 3. deild en hann skilur nú við það á toppi 2. deildar, og Plymouth er það félag sem hefur fengið flest stig og skorað flest mörk í ensku deildakeppninni í vetur. Sturrock var samningsbundinn Plymouth til ársins 2008 en hann var með ákvæði í samningi sínum um að hann gæti farið til félags í úrvals- deildinni, kæmi sú staða upp. Sturrock tekur við Southampton  PÁLMI Freyr Sigurgeirsson, sem hefur verið í aðalhlutverki hjá Breiðabliki í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í vetur, lék ekki með í Grindavík í gærkvöld og heldur ekki gegn Tindastóli í síðustu umferð. Pálmi meiddist á hné og í ljós hefur komið að liðband er slitið.  MICHAEL Owen, sóknarmaður Liverpool í knattspyrnu, segir að því miður séu morðhótanir orðnar dag- legt brauð hjá frægum knattspyrnu- mönnum og öðru þekktu fólki. „Ég hef nokkrum sinnum orðið fyrir slíku, ekki aðeins fengið bréf, heldur upplifað enn verri hluti en það,“ sagði Owen á vef Liverpool í gær en útskýrði atvikin ekki nánar.  SANDIE Richards frá Jamaíku, sem hefur þrívegis tekið þátt á Ól- ympíuleikum, hætti skyndilega við að taka þátt á heimsmeistaramótinu innanhúss í Búdapest í Ungverja- landi. Richards var ekki ánægð með að fá ekki tækifæri til þess að taka þátt í 400 metra hlaupi en þess í stað hafði landsliðsþjálfarinn ætlað henni að hlaupa í 4x400 metra boðhlaupi.  STJÓRNARFORMAÐUR enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, Phil Gartside, er bjartsýnn á að lands- liðsmaðurinn frá Nígeríu, Jay-Jay Okocha, muni semja á ný við félagið en samningur hans við félagið renn- ur út í sumar. Á heimasíðu félagsins segir Gartside að hann vonist til þess að hægt verði að ganga frá öllum smáatriðum á næstu dögum.  YOURI Djorkaeff og Okocha eru sagðir hafa velt fyrir sér tilboðum frá knattspyrnuliðum í Katar en þar eru miklir fjármunir í boði fyrir þekkta leikmenn sem eru að ljúka ferli sínum.  DAMIEN Duff, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, er ekki sáttur við að Arjen Robben hafi ver- ið keyptur til félagsins enda leikur hollenski landsliðmaðurinn í sömu stöðu og Duff. Í viðtali við The Sun segir Duff að hann hafi ekki átt von á því að annar leikmaður yrði keyptur í þessa stöðu á næstunni enda var Duff keyptur frá Blackburn sl. sum- ar fyrir um 2,2 milljarða kr.  ALLAR eignir enska 1. deildar- liðsins Bradford hafa nú verið aug- lýstar til sölu af skiptastjóra en liðið hefur verið í greiðslustöðvun undan- farnar vikur. Liðið er í næstneðsta sæti í 1. deild og er fjárhagur liðsins í molum.  FJÁRFESTAR sem hafa hug á því að kaupa enska úrvalsdeildarliðið Leeds United ætla að tilnefna, Peter Lorimer, fyrrum leikmann liðsins í stjórn nái þeir samningum við nú- verandi eigendur. Væntanlegir kaupendur vilja þannig gera tengsl stjórnar og stuðningsmanna einfald- ari en Lorimer er gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna liðsins. FÓLK Þegar Tindastóll var fyrr í vetursektaður um 100 þúsund krón- ur fyrir að brjóta reglur um launa- þakið í úrvalsdeild karla í körfu- knattleik lá fyrir að félagið gæti ekki endað fyrir ofan lið sem væru jöfn því að stigum. Þetta kemur fram í reglugerð KKÍ um launaþak- ið. Þessi þáttur málsins var hins- vegar ekki kynntur Tindastóls- mönnum þegar KKÍ birti þeim úrskurðinn um refsinguna og þeir telja því að þetta ákvæði sé ekki í gildi. Þar sem greint er frá viðurlögum, í grein 4.2.1 í reglugerðinni, segir: „Fyrir fyrsta brot skal félagið greiða allt að kr. 100.000 í sekt til KKÍ og allt að fjögur stig skulu dregin af liðinu. Endi brotlega liðið með jafn mörg stig og annað skal það brotlega teljast neðar í töflunni og innbyrðis viðureignir ekki skipta máli.“ Eftirlitsnefnd KKÍ úrskurðaði í fyrrakvöld að Tindastóll gæti ekki endað fyrir ofan Njarðvík og náð 4. sæti úrvalsdeildar, þótt liðið yrði með betri útkomu úr innbyrðis við- ureignum liðanna. Í yfirlýsingu frá Tindastóli sagði meðal annars að þessi „aukarefs- ing“ kæmi algjörlega flatt upp á Tindastólsmenn, sem auk þess þætti ansi hart að fá ekki tilkynn- ingu um þetta frá KKÍ í stað þess að þurfa að lesa um málið á vef KKÍ. Pétur Hrafn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri KKÍ, sagði að um misskilning væri að ræða hjá Tinda- stólsmönnum og í tilkynningu frá KKÍ sagði meðal annars: „Ekki er verið að bæta við refs- ingu Tindastóls. Um er að ræða af- leiðingu af refsingunni sem þeir hafa þegar fengið. Refsingin var fjársekt. Afleiðing refsingarinnar er m.a. sú að verði þeir jafnir að stigum öðru félagi í deildinni geta þeir ekki orðið fyrir ofan það lið, þrátt fyrir að þeir hafi betur gegn því liði úr innbyrðis leikjum þeirra.“ Hjalti Árnason, talsmaður og fyrrum stjórnarmaður körfuknatt- leiksdeildar Tindastóls, sagði við Morgunblaðið að félagið hefði ekki ákveðið hvað gert yrði í málinu en það sætti sig ekki við þessi málalok. „Við sættum okkur við refs- inguna á sínum tíma en í úrskurð- inum sem þá var birtur okkur kom hvergi fram þetta ákvæði sem nú útilokar okkur frá fjórða sæti deild- arinnar. Lið sem refsað er eiga að geta treyst því að refsing sem þeim er birt sé endanleg, og geti hún haft einhverjar frekari afleiðingar í för með sér, þá sé þess getið á skýran hátt í úrskurðinum. Það er grund- vallaratriði í málum sem þessum,“ sagði Hjalti. Tindastóll telur ákvæðið ekki í gildi Ég var boðaður á fund með stjórnliðsins og í raun kom þessi ákvörðun nokkuð á óvart. Sérstak- lega í ljósi þess að ég gerði samning við stjórnina í lok jan- úar. Í þeim samtöl- um sem ég átti við stjórnarmenn á þeim tímapunkti var ekki lagt hart að mér að ná því að koma liðinu í umspil um laust sæti í fyrstu deild. Markmið ársins var að skapa félaginu fjárhagslegt öryggi og ég taldi að mínar aðgerðir hefðu skilað sínu á þeim vettvangi. Við höfðum fækkað töluvert í leikmanna- hópnum til þess að lækka rekstrar- kostnað voru ódýrari leikmenn fengnir til liðsins,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið seint í gærkvöldi, en hann sagði að viðskilnaður sinn við Barnsley væri í sátt og samlyndi við þá sem þar stjórna. „Ég get ekki breytt því sem ég hef ekki stjórn á. Við ræddum um ým- islegt á þessum fundi en ég tel að sá árangur sem liðið skilað af sér í upp- hafi tímabilsins hafi orðið til þess að væntingarnar eru of miklar til þessa liðs. Ég vissi það sjálfur að þessi leikmannahópur myndi aldrei halda veturinn út með þessum hætti. Við vorum með of fáa leikmenn og marg- ir þeirra voru ekki tilbúnir í þessa baráttu. Lánsmenn voru sóttir í hin og þessi lið þegar sjö til átta leik- menn af um tuttugu manna hópi voru meiddir. Á þeim tíma var fátt um fína drætti í liðinu“ Guðjón segir að janúar og febr- úarmánuðir hafi verið strembnir og lítið hafi gengið upp hjá liðinu á þeim tíma. „Ég er að missa þrjá til fjóra lykilmenn í meiðsli í byjun árs og við náum okkur aldrei á strik í kjölfarið. Félagið hefur ekki burði til þess að kaupa aðra leikmenn og lánsmenn- irnir voru frískir ungir strákar. En þeir voru ekki með þá reynslu sem til þarf í þessa baráttu.“ Guðjón bar sig vel í gær er Morg- unblaðið ræddi við hann og sagðist ætla að slappa aðeins af á næstu vik- um. „Nú fer maður af krafti í golfið og ég ætla að lækka mig í forgjöf. Líkamsrækt er eitthvað sem ég þarf sjálfur á að halda og hef nú tíma til að sinna og síðan er það að sjálf- sögðu fjölskyldan. Það hafa verið langir vinnudagar hjá Barnsley á undanförnum mánuðum, þar sem að fáir vinna á skrifstofu félagsins og ég hef þurft að vinna mikið í hlutum sem hefur þurft að klára.“ Þegar Guðjón er spurður að því hvað taki við og hvort hann telji sig eiga möguleika á starfi hjá öðrum liðum er Skagamaðurinn bjartsýnn og staðráðinn í að vera áfram á Eng- landi. „Það hefur aldrei hjálpað að væla. Ég mun nota mín sambönd til þess að fá aðra vinnu, kannski þarf ég að banka á einhverjar dyr til þess. Ég tók við Barnsley er liðið var í tuttugusta sæti og nú er liðið í tíunda sæti og hef tekið þátt í að laga fjár- hag liðsins með því að skera niður á öllum vígstöðvum. Eftir átta mánaða starf hjá Barnsley tel ég mig hafa gert góða hluti með félagið og tel mig vera í stakk búinn að takast á við ný verkefni,“ sagði Guðjón Þórðarson. Ridsdale þakkar Guðjóni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarn- aðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur. „Ákvörðun stjórnar Barnsley um að segja mér upp kom mér á óvart,“ segir Guðjón Þórðarson sem kvíðir ekki framtíðinni á Englandi „Fæ ann- að starf á Englandi“ PETER Ridsdale, stjórnarformaður enska 2. deildarliðsins Barnsl- ey, sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem hann segir að samningi félagsins við Guðjón Þórðarson knattspyrnustjóra hafi verið rift og mun Paul Hart, fyrrverandi knattspyrnustjóri Nott- ingham Forest, taka við starfi Guðjóns. Ridsdale segir að þrátt fyrir góða byrjun á keppnistímabilinu hafi Barnsley aðeins unnið einn leik af síðustu 13 og því sé nauðsynlegt að gera breytingar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Peter Ridsdale, aðaleigandi og stjórnarformaður Barnsley, ræðir við Guðjón fyrir leik liðsins í Colchester 10. janúar. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson leikur með liðinu en hann er annar marka- hæsti leikmaður deildarinnar, með 108 mörk. Á leið inn á rétta braut „Eftir slæma lífsreynslu á EM í Slóveníu þá var það yndislegt að sjá hvað spil okkar gekk vel og finna um leið fyrir sigurtilfinn- ingunni. Þetta var fyrsti leikur okkar á leið inn á rétta braut á nýjan leik,“ sagði Róbert í samtali við Århus Stiftstidende í gær, en hann var með íslenska landsliðinu á EM í Slóveníu en lék lítið, aðeins tæpar sex mín- útur í síðasta leiknum sem var við Tékka. Århus GF er í 9. sæti af 14 liðum í úrvals- deildinni með 17 stig. Það á leik til góða við neðsta lið deildarinnar, Otterup. Annar Íslendingur, Þorvarður Tjörvi Ólafsson, leikur með Århus GF. Hann skor- aði 2 mörk í fyrrgreindum leik. ÞUNGU fargi var létt af Erik Veje Rasmus- sen, þjálfara Århus GF, og lærisveinum hans, þegar liðið vann TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld, 34:27. Nærri þrír mánuðir voru liðnir frá síðasta sigri liðsins í deildinni en þá vann það Bjerringbro. Róbert Gunnarsson fór á kostum hjá År- hus GF í leiknum og skoraði 12 mörk. Dagblaðið Århus Stiftstidende segir að leikmenn Århus GF hafi loks „sýnt tennurnar“ og Ró- bert hafi sýnt allar sínar bestu hliðar og að leikur hans hafi „minnt á þá gömlu góðu daga“ þegar hann fór hamförum á línunni, örugg- ur í skotum og alltaf frír í opnum færum. Þetta er þriðja leiktíðin sem Róbert Róbert Gunnarsson fór hamförum og skoraði 12 mörk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.