Morgunblaðið - 05.03.2004, Page 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 59
STUÐNINGSMENN ensku knatt-
spyrnuliðanna Liverpool og New-
castle komast á sólarströnd síðar í
þessum mánuði. Liðin drógust gegn
liðum sem staðsett eru við Miðjarð-
arhafið í 16-liða úrslitum UEFA-
bikarsins í gær. Liverpool leikur
við Marseille frá Frakklandi og
Newcastle við Mallorca. „Við slupp-
um við Barcelona og Valencia en
Mallorca verður samt mjög erfiður
mótherji,“ sagði Bobby Robson hjá
Newcastle. Þessi lið drógust saman:
Celtic – Barcelona
Genclerbirligi – Valencia
Bordeaux – Club Brugge
Newcastle – Mallorca
Auxerre – PSV Eindhoven
Inter Milano – Benfica
Liverpool – Marseille
Sólarferðir hjá ensku
liðunum í UEFA-keppninni
Villarreal – Roma
Leikirnir fara fram 11. og 25.
mars.
Enn fremur liggur fyrir hvaða lið
geta mæst í 8-liða úrslitum 8. og 14.
apríl en það er sem hér segir:
Bordeaux eða Club Brugge
– Genclerbirligi eða Valencia.
Liverpool eða Marseille
– Inter Mílanó eða Benfica.
Celtic eða Barcelona
– Villarreal eða Roma.
Auxerre eða PSV
– Newcastle eða Mallorca.
Þá er ljóst að ensku liðin Liver-
pool og Newcastle geta ekki mæst í
úrslitum keppninnar. Komist þau
bæði í undanúrslit, mætast þau þar,
og sama er að segja um spænsku
liðin Barcelona og Valencia.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn afmiklum krafti, skoruðu fyrstu
sjö stigin og náðu mest tíu stiga for-
skoti áður en heima-
menn vöknuðu til
lífsins. Haukarnir
náðu að jafna og
komast yfir í öðrum leikhluta en gáfu
eftir undir lok hans – skoruðu aðeins
tvö stig á móti tólf gestanna – og
staðan í hálfleik 42:49. Fyrir síðasta
fjórðunginn voru gestirnir yfir með
sex stigum, 65:71, og þegar fimm
mínútur voru eftir til leiksloka skildu
sjö stig liðin að, 74:81. Þá var komið
að Whitney Robinson, sem hafði lítið
látið fyrir sér fara í leiknum, aðeins
skorað fimm stig. Hann hitti úr
tveim þriggja stiga skotum – jafnaði
leikinn í 88:88 þegar 30 sekúndur
voru eftir. Í næstu sókn gerði Nick
Bradley sig sekan um slæm mistök
þegar hann ætlaði að gefa boltann á
Hjört Harðarson fyrir utan þriggja
stiga línuna – sending hans fór yfir
Hjört og út af á vallarhelming Kefl-
víkinga. Haukarnir voru fljótir að
átta sig, Robinson dansaði í gegnum
vörn Keflavíkur og lagði boltann
auðveldlega í körfuna – fimm sek-
úndur eftir. Keflvíkingar misstu
boltann aftur og sigur Hauka stað-
reynd, 90:88.
„Þetta var glæsilegur sigur hjá
okkur og við nýttum tækifærið okk-
ar í fjórða leikhluta vel. Við áttum í
erfileikum með þá og vorum undir
mestan hluta leiks þannig að sigur-
inn var mjög sætur. Nú tekur úr-
slitakeppnin við og erfiðir leikir á
móti Njarðvík framundan – höfum
ekki unnið þá í vetur þannig að það
er kominn tími til,“ sagði Reynir
Kristjánsson, þjálfari Hauka.
Guðjóni Skúlasyni, þjálfara Kefla-
víkur, var greinilega brugðið eftir
leikinn. „Við gáfum þeim þennan leik
og höfum enga afsökun, bara aum-
ingjaskapur. Vorum eins og litlir
hræddir strákar inni á vellinum síð-
ustu fimm mínúturnar og það geng-
ur ekki. Menn hafa líklega haldið að
þeir væru of góðir til að spila þennan
leik. Ef menn ætla að spila svona í
úrslitakeppninni verður það erfið
rimma. Það er mjög erfitt að spila á
móti Tindastól, þeir eru með hörkul-
ið, og það verður að vera hugarfars-
breyting ef menn halda að það sé nóg
að vera í Keflavíkurbúningnum og
mæta,“ sagði Guðjón.
Tuð í Vesturbænum
Helst verður minnst úr leik KR ogÍR er að leikmenn voru oft eins
og óþekkir leikskólakrakkar svo að
dómarar þurftu að
lesa þeim pistilinn
þegar leikmenn
gerðu meira af því að
tuskast á, rífast og
röfla í dómurum. Vesturbæingar
byrjuðu betur og virtust ekki ætla að
hafa mikið fyrir sigrinum svo að ÍR
minnkaði muninn í 1 stig rétt fyrir
hálfleik. Á þriðju mínútu þriðja leik-
hluta munaði ennþá einu stigi en þá
hrökk KR í gang án þess að Breið-
hyltingar fengju rönd við reist.
Hjá KR var Joshua Murray í aðal-
hlutverki með 8 fráköst og Elvin
Mims spilaði í 24 mínútur og gerði 21
stig, tók 5 fráköst og varði 2 skot.
Jesper Sörensen var einnig góður
með 12 stoðsendingar, Ingvaldur M.
Hafsteinsson tók 9 fráköst og Baldur
Ólafsson varði 6 af 16 skotum KR.
„Við sýndum góða kafla og líka
skelfilega en okkur vantaði sigur til
að fara með inn í úrslitakeppnina því
við höfum tapað nokkrum leikjum í
röð og leikmann vantaði sjálftraust,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari
KR eftir leikinn. „Við höfum viku til
að undirbúa okkur og þurfum að
nýta hana vel til að slípa liðið saman.
Við erum með breiðan hóp og það
mun nýtast okkur í úrslitakeppninni.
Sú keppni er nýtt tímabil og nú er í
okkar höndum að snúa taflinu við.
Ég skal vera fyrstur til að viður-
kenna að árangur í vetur er ekki
nógu góður. Ég get varla sagt að við
höfum verið óheppnir en það hafa
verið miklar mannabreytingar, sem
er aldrei gott og hlutverkaskiptin
hafa ekki gengið nógu vel. Við höfum
samt verið á uppleið þrátt fyrir töp
og vonandi náum við okkur á strik
gegn Grindavík, hvort sem þeir hafa
þrjá eða fjóra útlendinga.“
Fannar Helgason og Maurice Ing-
ram, með 14 fráköst, drógu vagninn
fyrir ÍR en Eiríkur Önundarson tók
góða spretti og Ómar Sævarsson 12
fráköst. „Þessi leikur skipti okkur
engu máli en við höfum spilað
hörmulega í allan vetur og ætluðum
að enda tímabilið með góðum leik en
það gekk ekki eftir,“ sagði Fannar
eftir leikinn.
Morgunblaðið/Golli
Sævar Haraldsson úr Haukum brýst að körfunni þar sem Derrick Allen úr Keflavík er til varnar.
Whitney var
hetja Hauka
HAUKAR unnu ævintýralegan sigur á Keflavík, 90:88, í lokaumferð
Intersportdeildar karla á Ásvöllum í gærkvöldi. Úrslitin réðust fimm
sekúndum fyrir leikslok þegar Whitney Robinson skoraði fyrir
Hauka úr auðveldu lagskoti eftir að Keflvíkingar töpuðu boltanum
vandræðalega í stöðunni 88:88. Í vesturbænum unnu KR-ingar ÍR
örugglega, 114:90, og mæta Grindavík í úrslitakeppninni – ÍR-ingar
eru hins vegar komnir í sumarfrí. Úrslitakeppnin hefst 11. mars og
þar mætast í átta liða úrslitum keppninnar sem hefjast 11. mars.
Snæfell - Hamar, Keflavík - Tindastóll og Njarðvík - Haukar.
Andri Karl
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar