Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 61

Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 61 Stórsýning frá leikhúsborginni London. 2. og 3. apríl. Forsala miða hafin á Broadway. Þessari sýningu má enginn missa af. Matseðill: Indversk sjávarréttasúpa m/kúmen og kókostónuð . Kjöttvenna; balsamickryddaður lambavöðvi og púrtvínslegin svínalund með camembert-grapesósu og karamellueplum . Súkkulaðiturn m/engifertónaðri kirsuberjasósu. Verð: sýning 2.500 krónur Verð: matur og sýning 6.400 krónur í forsölu á Broadway Veisluþjónusta; ferminga- og brúðkaupsveislur. Funda- og ráðstefnusalir af öllum stærðum. www.broadway.is - broadway@broadway.is St af ræ na hu gm yn da sm ið ja n /4 28 1 Sýningin sem er að gera allt vitlaust á Hornafirði Hljómsveitin Fjörmenn og Glærurnar slá í gegn. „Með allt áhreinu” Föstudaginn 19. mars Öll laugardagskvöld! Le’Sing (Syngjandi þjónar) alla laugardaga. Sýning sem hefur slegið rækilega í gegn. Yfir 70 sýningar stutt í 10.000 gestinn sem verður leystur út með veglegum gjöfum. Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa. kynnir sunnudaginn 7. mars Sjá vefinn http://www.fashiontv.is/ fyrir nánari upplýsingar. Glæs i leg sýning á því ný jasta og ferskasta í heimi tískunnar Sími 533 1100 broadway@broadway.is www.broadway.is Matseðill Indversk sjávar- réttasúpa. Balsamic lambafille með kara- melluepli. Eftirrétta fantasía. Matur ogskemmtun: 5.900. Skemmtun: 2.500. Ball: 1.500. Húsið opnað kl. 19.00 - Borðhald kl. 20.00 Skemmtun kl. 22.00 Kynnir Gísli Einarsson grínari með meiru. Snorri Hjálmarsson Syðstu-Fossum syngur lög af nýjum diski. Atriði úr Bifróvison. Nemendur úr Viðskiptaháskólanum Bifröst skemmta. Jóhann Sigurðarson leikari og Þorsteinn Gauti píanóleikari. Freyjukórinn syngur lög úr söngleikjum, stjórnandi Margrét Pálmadóttir. Þorvaldur Jónsson skemmtir. Danshópur úr Kleppsjárnsreykjaskóla. Karlakórinn Söngbræður. Sigurlag Dægurlagakeppni Borgarfjarðar. Gospelband Akraness. Hljómsveitin Stuðbandalagið á ekta sveitaballi fram á nótt. í kvöld 3. sýning lau. 6. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS • 4. sýning sun. 14. mars kl. 19 - NOKKUR SÆTI LAUS 5. sýning fös. 19. mars kl. 20 - NOKKUR SÆTI LAUS • 6. sýning sun. 21. mars kl. 19 - NOKKUR SÆTI LAUS ATH. Aðeins fáar sýningar Þegar amma var ung - Íslensk revíutónlist Hádegistónleikar þriðjudaginn 9. mars kl. 12.15 Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran, Ólafur Kjartan Sigurðarson baritón, Davíð Ólafsson bassi, Davíð Þór Jónsson píanó, Hjörleifur Valsson fiðla DVD-sýning í boði Vinafélags Íslensku óperunnar Sunnudaginn 7. mars kl. 14.00 Óperan Don Carlo eftir Verdi sýnd af DVD-diski - á hliðarsvölum Íslensku óperunnar. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. ÓPERUVINIR - munið afsláttinn! Brúðkaup Fígarós eftir Mozart Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. IGBY Slocumb (Kieran Culkin), er kaldhæðinn, skynsamur, dekur- drengur úr auðmannastétt í ráð- villtri uppreisn gegn hræsni, vald- kúgun og hroka þeirra sem standa honum næst. Minnir óneitanlega á nútímaútgáfu Holdens Caulfield í Bjargvættinum í grasinu því Igby er aukinheldur brotlentur um sinn í New York eftir brottrekstur úr hverjum uppaskólanum á eftir öðr- um, síðast herskólanum í West Point. Auðkýfingurinn, faðir hans (Bill Pullman) er út úr heiminum á geðveikrahæli og ástandið er lítið skárra á móðurinni (Susan Sar- andon), þó hún gangi laus í pillu- vímu og illskeyttri veruleikafirr- ingu. Stóri bróðir (Ryan Phillippe), er þriðji fjölskyldumeðlimurinn og jafnóþolandi á flesta lund. Igby á skjól um sinn hjá guðföður sínum (Jeff Goldblum) og viðhaldinu hans (Amanda Peet), í Greenwich Vill- age. Igby reynir að bjarga sér á því sem hann hefur yfir að ráða, góð- um gáfum, kaldhæðni og snotru út- liti. Hann er á löngum köflum vel skrifuð og heilsteypt persóna sem Culkin túlkar firnavel. Hann reyn- ir að finna leið út úr þeim spillta og yfirborðskennda ríkramanna heimi sem hefur mótað hann og Igby hefur skömm á – þó svo að maður hafi á tilfinningunni að bylt- ingin standi ekki langt fram yfir táningsárin og risti grunnt. Hvað sem því líður þá dregur nýliðinn, handritshöfundurinn og leikstjór- inn Burr Steers upp spaugilega og óvenjulega mynd af ljúfu lífi í alls- nægtum sem sannkölluðu helvíti á jörðu. Þar ríkja ekki mannlegar tilfinningar, heldur mannfyrirlitn- ing, gyðingahatur, allt falt fyrir rétt verð eða umsemjanlegt. Þetta er kaldhæðnisleg sýn, sett fram af Steers, ungum manni og vel ætt- uðum af Nýja-Englands auð- mannaaðlinum, sem þekkir þetta umhverfi eins og fingurnar á sér. Lengst af er hann trúverðugur og heldur sig á áhugaverðri braut ef undan er skilinn þátturinn af dóp- salanum Igby. Leikhópurinn er nánast óaðfinnanlegur, jafnvel Ryan Phillippe tekst glíma við hlutverk litla repúblikanans, fasist- ans, eins og litli bróðir kallar hann. Goldblum, Sarandon, Danes og Ja- red Harris eru hvert öðru betra. Í lokin stefnir Igby á fyriheitna landið. Vonandi finnur hann enda- mörkin og kemst aftur til manna. Igby við endamörkin KVIKMYNDIR Sambíóin, Háskólabíó. Leikstjórn og handrit: Burr Steers. Kvik- myndatökustjór: Wedigo von Schultzen- dorff. Tónlist: Uwe Fahrenkrog-Peterson. Aðalleikendur: Kieran Culkin, Claire Dan- es, Jeff Goldblum, Jared Harris, Amanda Peet, Ryan Phillippe, Bill Pullman, Susan Sarandon. 98 mínútur. United Artists. Bandaríkin 2002. IGBY á NIÐURLEIÐ/Igby Goes Down  Kieran Culkin fer firnavel með hlutverk Igbys, reyndar líkt og aðr- ir leikarar fara með sín hlutverk í hinni skemmtilegu Igby á niðurleið. Sæbjörn Valdimarsson ÞEIR eru hressir, Hvanndals- bræður. Og það einlæglega hressir að þeir komast upp með þennan frum- burð, sem heitir ágætlega lýsandi nafni, Út úr kú. Platan kemur eins og út úr kú að því leytinu til að í raun er tónlistin hér ein- stök. Að einum þriðja sígilt pön- krokk, að einum þriðja þjóðlagarokk og að einum þriðja ósvikinn, íslenskur æringja- háttur eins og hann gerist bestur hjá eldhressu náttúrufólki að norðan. Svona eins og Ramones og Þrjú á palli í góðu eftirápartíi eftir vel heppnað þorrablót. Út úr kú er fyrst og síðast skemmtilegur diskur. Og þegar best lætur, mjög skemmtilegur. Fyrsta lagið, þar sem sungið er um dásemdir Svarfaðardals og fórnarlund kátlegra bænda þar í sveit, er sprenghlægilegt. Platan dansar að vísu listavel á lín- unni; einkaflippið og tilheyrandi húm- or gæti mögulega verið óþolandi í eyr- um sumra. En eins og áður segir koma viss atriði, og það afar mikil- væg, í raun í veg fyrir þetta. Atriðin eru að 1) spilagleðin er ósvikin, 2) spilamennskan er hressilega af hendi leyst og hljómur er lifandi og góður og 3) lögin eru skemmtileg og sniðug, textarnir skondnir og galgopalegir. Innan eins og sama lagsins er t.a.m. oft vísað glettilega í hinar og þessar áttir. Í „Ríðum heim til Hóla“ er upp- runalega laginu blandað saman við „Anarchy in the U.K.“ með Sex Pistols. „Hafið bláa hafið“ er þá sett saman með „Hí á þig“ með Ómari Ragnarssyni og „All kinds of everything“, sigurlaginu í Evróvisjón árið 1970 sem Dana söng. Norðan- mönnum er greinilega ekkert heilagt. Já, það má meira að segja hlæja að falda Færey- ingagríninu! Alíslensk fyndni, alíslensk hljómsveit. Og al- vöru lopapeysur. Hvanndalsbræður eru líka með eina góða og gamla reglu alger- lega á hreinu, regla sem gleymist æ oftar í poppinu. Hafðu það stutt, hafðu það einfalt, hafðu skemmtilegt („Keep it short, simple and fun“). Þessi gullna regla, ásamt áðurgreind- um meðmælum gerir Út úr kú að fyr- irtaks partíplötu. Og hún er meira að segja í vönduðum pakkningum! Er hægt að biðja um það betra? Hei … stuð! Tónlist Alíslenskt þjóðlaga- pönk Hvanndalsbræður Út úr kú Pinku-ponsu plötur Hvanndalsbræður eru Valur Freyr Hvann- dal (trommur, söngur), Sumarliði Hvann- dal (bassi, söngur) og Rögnvaldur Gáfaði Hvanndal (gítar, söngur). Lög eftir ýmsa erlenda og innlenda höfunda og sum þeirra eru þjóðlög. Rögnvaldur á þá nokk- ur lög og texta. Hljóðupptaka og -blönd- un var í höndum Venna Vestfirðings. Hægt er að panta diskinn með því að senda tölvupóst á hvanndalsbraedur@- simnet.is. Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lopapeysupönk? Hvanndalsbræður í stuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.