Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 62

Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 62
ÞETTA „hús“ sem ég hitti Mín- usstrákana í; þá Bjarna, Bjössa, Frosta, Krumma og Þröst, er tón- leikastaðurinn Carling Academy í Islingtonhverfi Lundúna. Þetta voru lokatónleikar sveitarinnar í Bret- landi eftir að hafa dvalið þar í um mánuð þar sem leikið var á fjölda tónleika ásamt því að sinna allra handa kynningarstarfsemi. Þriðja plata Mínuss, Halldór Laxness, er nefnilega nýkomin út í Bretlandi í nýju umslagi á vegum Smekkleysu/ Bad Taste SM Ltd sem er útibú sem Smekkleysa rekur í Bretlandi. Tónleikarnir fóru fram mánudag- inn 16. febrúar og var það Kerrang!, biblía þungarokksins, sem stóð fyrir tónleikunum. Aðalnúmerið var Auf der Maur, hljómsveit sem Melissa auf der Maur, fyrrum bassaleikari Hole og Smashing Pumpkins leiðir. Mínus var bætt á listann vegna þeirra góðu viðbragða sem sveitin hafði verið að fá í þessari Bretlands- heimsókn sinni. Erfiðir áhorfendur Eftir dálítið stapp í miðasölunni kom Frosti aðvífandi og leysti úr þeirri flækju. Hann fagnaði Íslend- ingunum og við sammæltumst um að hittast eftir tónleika. Tónleikasal- urinn var á stærð við Nasa og var hann fleytifullur af fólki. Mínusmenn spiluðu stutt sett en kraftmikið og lá vel á þeim uppi á sviðinu. Maður skynjaði ákveðinn feginleik yfir því að Bretland væri loks að baki enda viðurkenndu þeir síðar að þeir væru orðnir pínu þreyttir. Það var því allt gefið í lokin og svona „partí“-stemning í gangi. Hins vegar voru áhorfendur dálít- ið uppskrúfaðir, líkt og þeir áttuðu sig ekki alveg á hlutunum. Horfðu t.a.m. forviða á Þröst sem fór á kost- um í rokkstælunum. „Tough crowd“ er þetta víst kallað á ensku en ekk- ert kom þetta þó við Mínusmenn sem skiluðu sínu vel. Götugengið („Street Team“) gekk á milli fólks á meðan á tónleikunum stóð og dreifði límmiðum, barmmerkjum og fleira með nafni sveitarinnar á. Popp/rokkbransinn úti er talsvert umfangsmeiri en hér heima á Fróni. Þröskuldarnir miklu fleiri og þú hringir ekkert í gemsann hjá Thom Yorke og biður um spjall, aðferð sem dugar glettilega vel hérlendis þegar á að tala við íslenska poppara. Að tónleikum loknum var farið með okkur baksviðs, niður ganga, upp stiga, í gegnum þetta herbergi og hitt. Loks hittum við strákana fyrir í litlu herbergi og þar ríkti gleði. Um leið þó einhver undarleg ró, líkt og menn væru loks komnir á endastöð- ina. Og það var hörku bransi í gangi. Mikilvægt fólk! Ljósmyndari frá NME kom til að smella mynd og þarna var staddur Mark nokkur Chung, varaforseti Sony í Þýska- landi, fyrrum bassaleikari Ein- stürzende Neubauten. Þá kemur að- vífandi hörkusvöl eldri kona og er mér tjáð að þetta sé blaðafulltrúinn þeirra. Og sér hún víst líka um Me- tallicu! Ný lög „Maður er kominn með pínu heimþrá,“ segir Bjarni gítarleikari þar sem við stöndum utan við bún- ingsklefann ásamt Bjössa trommu- leikara. Þeir félagar eru afslappaðir og rifja upp fyrir mig heimsókn Jóns Ársæls til þeirra en hann fór utan og spjallaði við þá í þætti sínum Sjálf- stætt fólk sem sýndur er á Stöð 2. Þeir bera Jóni vel söguna og segja hann hafa verið svalan gaur. „Maður er auðvitað orðinn lang- þreyttur á bransanum hérna úti,“ segir Bjössi svo. „Töfraljóminn er fljótur að gufa upp.“ Það gengur erfiðlega að koma öll- um fimm meðlimum saman í mynda- töku. Bjarni segir að Þröstur sé að róta upp í sviðinu og segist ekkert skilja í honum. Hann nenni ekki að standa í svoleiðis lengur, þegar að- stoðarmenn til þeirra starfa séu á annað borð komnir. Þessi törn þeirra hófst í Man- chester 23. janúar og Bjarni segir brosandi að þeir hafi verið í rútu sem rapparinn Busta Rhymes hafi verið í á undan þeim. Bjössi bætir því svo við að þeir hafi ekki setið með hend- ur í skauti þennan tíma og sjö ný lög hafi fæðst. Daginn eftir þessa tónleika voru Mínus-menn svo komnir yfir til Þýskalands þar sem þeir léku á þrennum tónleikum með pönksveit- inni The Distillers. Ritstjóri Kerrang! Halldór Laxness heldur innreið sína til fleiri landa á næstu mán- uðum. Samningur hefur verið gerð- ur við SINE (Sony Independent Network) sem kemur til með að gefa plötuna út á flestum öðrum mark- aðssvæðum en Bretlandi. Hún kem- ur þó út undir merkjum Sony í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og Pól- landi og er útgáfa þar áætluð í apríl. Þess má geta að aðalritstjóri Kerrang!, Ashley Bird, kemur sér- staklega til Íslands til að gera kvöld- inu í kvöld skil. Það má því með sanni segja að allt sé gerast hjá Mín- us um þessar mundir. Mínus spilar á Kerrangkvöldi á Gauknum í kvöld Erfitt … en gaman Mínus hefur sáð rokkfræjum af miklum dugnaði í Bretlandi að undanförnu og er Kerranguppákoman uppskera af þeim akri. Arnar Eggert Thoroddsen hitti á sveitarmenn í London og tók hús á þeim. Ásamt Mínus spila DJ Ace (fyrr- um gítarleikari Skunk Anansie) og velska rokksveitin Jarcrew. Tónleikarnir fara fram á Gauki á Stöng, húsið opnað klukkan 21.00 og miðaverð er 1200 kr. www.noisyboys.net www.kerrang.com arnart@mbl.is Krummi og meðlimir úr „götugenginu“ („street team“) sem eru sjálfboðaliðar sem sjá um að dreifa veggspjöldum, lím- miðum og auglýsingamiðum fyrir hljómsveitina. Ljósmynd/Móheiður Hlíf Hressir Mínusmenn, ánægðir með gifturíkan mánuð. 62 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6. Þau eiga 12 börn og mamman er fjarverandi - þetta endar með ósköpum! Frábær skemmtun! Vinsælasta fjölskyldumynd ársins í USA! FRUMSÝNING Hvernig leysir þú morðmál þegar öll vitnin og allar vísbendingar benda á þig? Óskarsverðlaunahafinn Denzel Washington MÖGNUÐ SPENNUMYND! Fleiri börn...meiri vandræði! Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára. FRUMSÝNING Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS kl. 5 og 9. Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4 og 6. Með íslenskum texta Fleiri börn...meiri vandræði! Vinsælasta fjölskyldumynd ársins í USA! H A L L E B E R R Y Þau eiga 12 börn og mamman er fjarverandi - þetta endar með ósköpum! Frábær skemmtun! Yfir 94.000 gestir! 11 Óskarsverðlaun þar á meðal besta myndin, besti leikstjóri og besta handrit Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. FRUMSÝNING Hvernig leysir þú morðmál þegar öll vitnin og allar vísbendingar benda á þig? Óskarsverðlaunahafinn Denzel Washington MÖGNUÐ SPENNUMYND!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.