Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 64
64 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára.
FRUMSÝNING
Frá framleiðendum
Fast and theFurious og XXX
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16.
Sýnd kl. 6.
SV MBL
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Kvikmyndir.com
SV MBL
Sýnd kl. 10.30 B.i. 14 ára.
Heimur farfuglanna
DV
Renée Zellweger
besta leikkona
í aukahlutverki
Sean Penn
besti leikari
í aðalhlutverki
Tim Robbins
besti leikari
í aukahlutverki
-Roger Ebert
„Bráðfyndin“
HJ. MBL
„Ótrúlega áhrifarík.
Frumleg, fyndin og
elskuleg.“
-BÖS, Fréttablaðið
Skonrokk
„Hundrað sinnum
fyndnari
en Ben Stiller á
besta degi.“
-VG. DV
Sýnd kl. 5.45.
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
i i .i
Sýnd kl. 9.20. Sýnd kl. 8. B.i. 16.
WARNER-kvikmyndarisinn hefur
nú staðfest að tökur á fimmtu
myndinni um Leðurblökumanninn,
Upphaf Leðurblökumannsins, séu
hafnar. Enn einn stórleikarinn hef-
ur nú bæst í stjörnum prýddan leik-
arahópinn en það er Gary Oldman,
fyrir eru þeir Michael Caine, Liam
Neeson, Morgan Freeman og að
sjálfsögðu aðalleikarinn, Christian
Bale.
Tökustaðir eru þrír, Ísland,
London og Chicago.
Mira Husseini, upplýsingafulltrúi
Warner Brothers, segir um 200
manns nú starfa við gerð myndar-
innar hér á Íslandi, þar séu allir
sem koma að þessu, bæði íslenskir
og erlendir aðilar, taldir. Um hundr-
að erlendir starfsmenn eru hér
staddir en þeir eru í
tækniliði og leikaraliði
sem kom frá London.
„Þetta er auðvitað
minna af liði en þegar
við förum á fullt í
stúdíóinu í London.
Þetta er svona
smækkuð mynd fyrir
þennan stutta tíma
sem við vinnum hér.
Við verðum hér í
nokkra daga. Ísland er
frábær bakgrunnur
fyrir alla vinnuna hér.
Veðrið var með
nokkur leiðindi við
okkur, en í rauninni
var þetta betra fyrir
gæði myndarinnar,
þótt það hafi verið
erfitt að vinna í þess-
um skilyrðum í regni,
snjókomu, slyddu og
roki. Við náðum miklu
af góðu efni sem nýt-
ist vel í stemninguna í
myndinni.
Það býr mikill und-
irbúningur að baki og
fólk kom hingað
snemma til að sinna
honum, en flestir
komu í lok síðustu
viku. Við sjáum síðan
hvernig þetta fer á
næstu dögum og síð-
an fljúgum við aftur
til London.
Við erum með tvo
af aðalleikurunum hér á Íslandi, þá
Christian Bale, sem leikur Bruce
Wayne, og Liam Neeson, sem leikur
Henri Ducard, sem er kennari
Bruce Wayne.
Upptökurnar ganga mjög vel og
leikararnir spjara sig vel.
Íslendingar hafa verið mjög gest-
risnir og hjálpfúsir og samstarfs-
aðilar okkar í Saga Film hafa verið
mjög fagmannlegir í sinni vinnu.
Heimafólkið er líka mjög tilbúið að
hjálpa okkur og afar vingjarnlegt og
hjálpsamt. Bílstjórar á svæðinu
voru alveg til í að breyta út af van-
anum og gera okkur ýmsa greiða.“
Með önnur veigamikil hlutverk í
myndinni fara Cillian Murphy, Ken
Watanabe, Katie Holmes og The
Edge, gítarleikari U2.
Upplýsingafulltrúi Warner staðfestir að tökur séu hafnar á Leðurblökumanninum
„Íslendingar hafa verið mjög gestrisnir“
SPURNINGUM rigndi yf-
ir J.K. Rowling er hún
tók þátt í netspjalli við
aðdáendur Harry Potter-
bókanna í gær. Alls bár-
ust 16 þúsund spurningar
og reyndi Rowling af
veikum mætti að svara
því sem hún svarað gat.
Að sjálfsögðu gaf hún
lítið upp um sjöttu bókina
um galdradrenginn gáf-
aða. Sumir voru það
bjartsýnir að spyrja hana
hvort Voldemort myndi
deyja í bókinni. En hún svarað
bara: „Haldiði virkilega að ég fari
að gefa það upp?“
En hún reyndi ekki að draga dul
á það að Harry ætti eftir að lenda í
meiri óförum en nokkru sinni áður
– og hefur hann þá marga
fjöruna sopið blessaður.
„Ef ég væri Potter færi ég
í felur – því ég veit hvern-
ig þetta fer allt saman.“
Hún sagði að það mundi
reyna ennþá meira á
töframátt Harrys en áður
og að hans eigin tilfinn-
ingar ættu eftir að skipta
miklu máli.
Þá var Rowling beðin
um að setja sig í spor
sögupersóna sinna og
velja sér einn af töfra-
mætti þeirra: „Ég vildi geta flogið.
Og stundum geta skrúfað niður í
fólki sem er að tala við mig.“ Og ef
hún fengi tækifæri til að hitta
Harry segist hún vilja bjóða honum
út að borða og biðja hann afsök-
unar á öllu því sem hún er búin að
láta hann ganga í gegnum.
Hún þvertók svo fyrir það að
fleiri bækur ættu eftir að fylgja eft-
ir lokabókinni sjöundu. Og það yrði
engin forsaga skrifuð: „Hennar er
ekki þörf. Þegar ég verð búin með
söguna hefur öll sólarsagan verið
sögð.“
J.K. Rowling í netspjalli í gær
Aðdáendur Harry
Potter geta vart beð-
ið þess að vita hvað
næsta bók hefur að
geyma.
Harðnar enn
í ári hjá Harry
Gary Oldman mun fara
með hlutverk í myndinni.
BROADWAY Borfirðingafjör.
JÓN FORSETI (GAMLA Vídalín):
Hljómsveitin HRAUN! spilar í kvöld
en ekki á morgun eins fram kom í
blaðinu í gær.
KRINGLUKRÁIN Pálmi Gunnarsson
og hljómsveit.
NASA Straumar og Stefán í sál-
arstuði.
PLAYERS Austfirðingaball. Sú Ell-
en, Dúkkulísur, Búálfar, Simmi Idol-
kynnir, Tommi Tomm úr Rokk-
abillý-bandinu o.fl.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is