Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 65 KRINGLAN Sýnd kl. 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 4. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára Myndin er uppfull af kolsvörtum húmor auk þess sem hún er skemmtilega djörf og dramatísk. Besta teiknimyndin AMON Amarth koma frá helsta bak- landi hinnar harðari gerðar þunga- rokks, Svíþjóð, og hafa verið að síðan 1992. Þeir leika skemmtilega blöndu af hörðu dauðarokki og hefbundnu, melódísku þungarokki og krydda það með textum sem sækja mikið til í ásatrú. Lagatitlar á borð við „The Fall Through Ginnungagap“, „Thor Arise“ og „The Arrival of the Fimbul Winter“ gefa til kynna að hérna verði þeir á heimavelli! Stundum er þessi gerð þungarokks meira að segja kallað víkingarokk þó að Amon-limir sjálfir séu ekkert alltof hrifnir af þeim merkimiða. Blaðamað- ur spjallaði stuttlega við gítarleikara sveitarinnar, Olavi Mikkonen. Tónlistin er í senn þung og grípandi hjá ykkur. Ágætlega af sér vikið! „Takk kærlega fyrir það. Þunga- rokk snýst auðvitað aðeins um einn hlut: Að geta hrist hausinn við það.“ Hvernig hafið þið þróast í gegnum árin? „Aðallega erum við orðnir betri hljóðfæraleikarar. Við höfum alla tíð reynt að spila mjög þunga en um leið grípandi og melódíska tónlist. Það er samt frekar erfitt fyrir mig að svara þessu – mér finnst þetta bara verða betra og betra!“ Af hverju Ísland? „Vinir okkar í Heaven Shall Burn (sem hafa komið hingað tvisvar) báru landinu góða sögu. Við höfum aldrei komið hingað áður þannig að við er- um í góðum gír.“ Eruð þið mikið á flandri? „Já, alltaf nokkra mánuði á ári. Tvisvar sinnum höfum við svo spilað á Wacken-hátíðinni (Mikil þunga- rokkshátíð í Þýskalandi) og það var alveg rosalegt!“ Ég segi bara að lokum: Sparkið í rassa! „Að sjálfsögðu. Við spörkum alltaf í rassa!“ Þeim sem hugnast níðþungt en þó melódískt þungarokk, með ræturnar í hinu sígilda bárujárni, ættu ekki að verða sviknir af Amon Amarth. Þess má svo geta að lokum að út- sendarar frá hinum ýmsu þunga- rokksblöðum munu fylgja Amon Am- arth til landsins, m.a. koma fulltrúar frá Terrorizer og Metal Hammer. Ekki nóg með það heldur kemur og útsendari frá Metal Blade, því stórefl- isútgáfufyrirtæki og einhverjir kvik- myndatökumenn líka, en tekið verður upp efni fyrir væntanlegan mynddisk Amon Amarth. Það væri því þjóðráð fyrir unga þungarokkstónlistarmenn að slá tvær flugur í einu höggi, sækja tónleika og taka með sér kynningardiska í leið- inni. Hver veit … kannski verður ein- hver heppinn? Amon Amarth frá Svíþjóð spilar hér um helgina Vígalegir meðlimir Amon Amarth. Sparkað í rassa Haldnir verða tvennir tónleikar með Amon Amarth. Hinir fyrri verða föstu- daginn 5. mars á Grand Rokk og þeir seinni 6. mars í Tónlistarþróun- armiðstöðinni á Granda. Á fyrri tónleikunum sjá Brain Police, Changer og Múspell um upphitun en á þeim síðari eru það Andlát, Dark Harvest og Sólstafir. Ekkert aldurstakmark er á seinni tónleikana. Aðgangseyrir verður 1.200 krónur á hvort kvöld. arnart@mbl.is SJÓRÆNINGJAR Karíbahafsins hafa kveikt áhugann á ævin- týramyndum og hefur Disney þeg- ar ákveðið að maka krókinn og ákveðið að framleiða víkingamynd. Myndin, sem vera á í anda Sjóræn- ingjanna, á að fjalla um æsilegar svaðilfarir norrænna víkinga um heimsins höf og þar munu víst koma fram vísanir í norrænu goða- fræðina og fullt af sæskrímslum, tröllum, valkyrjum og berserkjum. Handritið að myndinni var skrifað að þeim sömu og gerðu hrollvekj- una Freddie vs. Jason en hvorki hefur verið ráð- inn leikstjóri né aðalleikarar … Britney Spears segir foreldra sína alltof ráð- ríka og telur sig búa í hálfgerðu fangelsi. Hún segist hafa gert ýmislegt, sem hafi komið fólki á óvart, til þess að streitast gegn yfirgangi foreldra sinna. „Foreldrar geta ekki vernd- að börn sín endalaust því annars getum við aldrei lært af þeim vandamálum sem upp koma,“ segir hinn 22 ára söngkona í samtali við unglingatímaritið Seventeen. Britney segist hafa gert mömmu og pabba fokreið þegar hún giftist Jason Alexander í Las Vegas, en hjónabandið stóð yfir í tvo sólar- hringa. Hún segist hafa lært mikið af þessum mistökum. Sacha Baron Cohen, sem er þekktur í hlutverki sínu sem Ali G í samnefndum sjónvarpsþáttunum í Bretlandi, hyggst ganga að eiga unnustu sína Isla Fischer á næst- unni. „Við ætlum að gifta okkur að hætti gyðinga. Ég geri hvað sem er, skipti um trú, til þess að eiga þess kost að vera með honum [Sacha]. Við eigum framtíð saman og trúin er í öðru sæti á eftir ástinni,“ segir Isla. Þau hafa hlotið blessun for- eldra Sacha, sem eru strangtrúaðir gyðingar. FÓLK Ífréttum KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Gamanmynd eins og þær gerast bestar !  Kvikmyndir.com  HJ MBL „Fínasta skemmtun“ B.Ö.S. Fréttablaðið KRINGLAN Sýnd kl. 10. KRINGLAN Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.20. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 8. AKUREYRI kl. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.  Kvikmyndir.com B.i. 16 ára. SV MBL DV FRUMSÝNING LÆRÐU AÐ ROKKA!! Renée Zellweger besta leikkona í aukahlutverki Frábær gamanmynd frá höfundi Meet the Parents EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 9. Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! Ben Stiller Jennifer Anistonill i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.