Vísir - 24.04.1981, Blaðsíða 1
A sjðstðng
í Flóanum
Þaö má furðulegt heita að
sjóstangaveiði skuli ekki vera
meira stunduð hér á landi en
raun ber vitni. Hér við land ér
sjórinn hreinni og fiskurinn
betri en viðast annars staðar.
1 bliöskaparveðrinu um
páskana brugðu Visismenn
sér i sjóstangaveiðitúr með
nokkrum valinkunnum veiði-
görpum og árangurinn má sjá
i opnu blaðsins i dag.
Viðtai við
Korchnoi
BIS. 18-19
Slgurður og
Ragnar
óánægðir hjá
Homhurg
- og eru á leláinnl
helm
S|á ihróiiir bis. 6-7
Vildu skipta
á lóðum
Sjá bls. 3
Visir tekur undir með þeim.sem fullyrða að fallegar stúlkur séu
einhver fegurstu sumarblómin. Við höfum þvi ákveðið að birta
myndir af sumarstúlkum blaðsins á hverjum föstudegi og sú sem
fyrst varð fyrir valinu, er Asdis Loftsdóttir.
(Visism. GVA) — Sjá bls. 31.
Vísisstúlka vikunnar
Aðaltundur Flugleiða hf:
Hluthafar glugga í ársskyrslu félagsins viö setningu aðalfundarins i morgun.
(Vlsism. GVA)
Sextán
melddusl
I tveimui*
ápeksbnim
Sextán menn voru fluttir á
Slysadeild eftir tvo árekstra að-
faranótt fimmtudags og var að-
eins hálftimi á milli árekstranna.
Meiðsli voru mismikii, en enginn
slasaðist þó alvarlega.
Fyrriáreksturinn varð á gatna-
mótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar klukkan tæplega
hálf eitt aðfaranótt fimmtudags-
ins. Eins og gjarnan er á næt-
urnar voru gul blikkandi ljós á
gatnamótunum i stað hefðbund-
inna umferðarljósa. Bil var ekið
norður Kringlumýrarbraut og
öðrum austur Miklubraut, og átti
sá réttinn.
Báðum bilunum var ekið greitt
og hiklaust inn á gatnamótin og
par skullu þeir saman. Sex ung-
menni voru i öðrum bilnum og
þrir voru i hinum. Allir voru flutt-
ir á slysadeild þar sem meiðsli,
aðallega beinbrot og skurðir,
voru rannsökuð.
Tæpum hálftima siðan var ekið
aftan á kyrrstæðan bil á Vestur-
landsvegi nálægt Gufunesvegin-
um. Við áreksturinn hentist bill-
inn, sem hafði verið kyrrstæður,
út af veginum. I þeim bil voru sex
manns og voru allir fluttir á
Slysadeild,auk eins manns úr hin-
um bilnum. Enginn hlaut þó
alvarleg meiðsli.
Bilarnir fjórir, sem lentu i þess-
um árekstrum, eru allir mikið
skemmdir eða jafnvel ónýtir.
—ATA
70 milljona tao
h'lugleiöamenn settust á aðal-
fund félagsins klukkan hálf tiu i
morgun. I gögnum um reksturinn
i fyrra kom m.a. fram, að tapið
varð 70 milljónir (sjö gamlir
milljarðar), sem er til muna hag-
stæðari niðurstaða en árið þar áð-
ur.
Stjórnarkjörs er beðið með
eftirvæntingu. Fjórir stjórnar-
menn af niu voru kosnir i fyrra og
sitja áfram til næsta aðalfundar,
þeir Halldór H. Jónsson, Kristinn
Olsen, Bergur Gislason og Grétar
B. Kristjánsson. I lausu sætunum
nú hafa setið Alfreð Eliasson,
Orn Johnson, Sigurður Helgason,
Óttar Möller og Sigurgeir Jóns-
son. Kunnugt er um að Kristjana
Milla Thorsteinsson, eiginkona
Alfreðs, mun sækjast eftir hans
stól. Þá mun rikið eiga að fá
annan, hvort sem i hann sest nýr
maður eða ekki. HERB
Korchnoi
tapaði
elnni
skðk
tslenskir skákmenn riðu ekki
feitum hesti frá þeim fjölteflum
sem þeir háðu við stórmeistarann
Viktor Korchnoi i gær og i fyrra-
dag, — af samanlagt 65 skákum
vann meistarinn 57, gerði sjö
jafntefli og tapaði einni.
Korchnoi tefldi við 30 banka-
menn i fyrradag, — vann 26
þeirra, en gerði jafntefli við Vil-
hjálm Þ. Pálsson, Jóhann Orn
Sigurjónsson, Hilmar Karlsson og
Björgvin ölafsson.
I gær tefldi meistarinn svo við
35 félaga i Taflfélagi Reykjavik-
ur, — vann 31 skák, gerði jafntefli
við þá Stefán Aðalsteinsson,
Þröst Þórhallsson og Braga Hall-
dórsson, en varð að lúta i lægra
haldi fyrir Erlingi Þorsteinssyni
frá Kópavogi. Að sögn fróðra
manna var sigur Erlings mjög
sannfærandi og var hann kominn
með gjörunnið tafl þegar Korch-
noi lagði niður vopnin.
1 gærmorgun átti Korchnoi fund
með stjórn Skáksambands Is-
lands, og að sögn Ingimars Jóns-
sonar, forseta Skáksambandsins,
var það nánast bundið fastmæl-
um að Korchnoi yrði meðal þátt-
takenda i næsta Reykjavikurmóti
i febrúar á næsta ári.
Ingimar sagði. að Korchnoi
hefði einnig rætt um málefni fjöl-
skyldu sinnar við Skáksambands-
menn, og þeir lýst yfir fullum
stuðningi sinum við hann i tog-
streitunni viö sovésk yfirvöld.
— P.M.