Vísir - 24.04.1981, Blaðsíða 19

Vísir - 24.04.1981, Blaðsíða 19
Föstudagur 24. april 1981 VÍSIR 19 verður haldið laugardaginn 25. apríl kl. 2 á Reykjavíkurflugvelli Ókeypis aðgangur Bifreiðaiþró ttaklúbbur Re ykja vikur Rallý Special ORCHNOI STðRMEISTARA I SKAK kjark og festu aö valda þvi.” ,Þvi má skjðta hér aö, aö Friörik Ólafsson forseti Fide er einmitt nýfarinn austur til Moskvu i annaö sinn á nokkurra mánaöa bili, efalaustm.a. til þess aö leita úrlausnar I þessu máli. Stanslaust að tafli Ég spyr Korchnoi hvort hann tefli mikiö og hvort hann skrifi mikiö um skák. ,,Ég tefli mikiö en skrifa litiö. Ég tefli stanslaust. Ég hef átt hlut aö útgáfu tveggja skákbóka, aöallega þó sem eins konar ráögjafi, en aftur á móti skrifa ég dálitiö i timarit um skák. Þaö fellur betur aö heimaverkefnum minum milli móta og á mótum. Þiö þekkiö þó bókina mina um einvigið við Karpov á Filippseyj- um, sem kom hér út núna, Fjand- skák. Hún er auðvitað ekki skák- bók, hún er um allar þessar uppátektir Sovétmanna og fylgi- fiska þeirra siöustu árin og eink- um i þessu einvigi, til þess aö klekkja á mér andlega sem skák- meistara og áskoranda um heismmeistaratitilinn. Og ég hef raunar skrifað aðra bók um lifs- reynslu mina sem skákmanns, Skákin er lif mitt, en hún hefur ekki komiö út á Islensku. Ég kom hingað frá Lone Pine mótinu, þar sem ég sigraði, með viðkomu i Barcelona, en þar tefldi ég við 91 andstæðing á sam- fleytt 19 klukkutimum og sigraði alla! Héöan fer ég til Þýskalands þar sem ég bý mig undir einvigið viö Karpov. Þar veröur fyrst mót 6 manna i Bad Kissingen, siöan annað mót i júli. Og svo setjumst viö Karpov niöur i Merano i byrj- un september. Þar veröa aöalaö- stoðarmenn minir þeir Seierman og Stein.” Reykjavík átti að vera með í hattinum Af hverju kaustu Merano og hvers vegna helduröu aö Karpov hafi lagt ofurkapp á aö keppa i Las Palmas? ,,Ég kaus Merano einfaldlega af þvi aö það er örstutt frá Sviss, sem er eins konar miöstöö min siöan Svisslendingar tóku mig upp á sina arma. Ég hef vegabréf frá þeim. En ég valdi Reykjavik að öörum kosti og gat vel sætt mig viö aö tefla hér. ,,Það verður þykkt loft” þér Viötal: Herbert Guömundsson Karpov? Þaö má geta sér þess til, aö Sovétmenn hafi talið auöveldast að tefla honum fram þar, aö þar væri af ýmsum ástæöum léttara um vik en á hin- um stööunum aö beita þeim bardagaaðferðum, sem þeir hafa tekið upp gegn mér. Og ég er viss um aö Reykjavik hefur hrætt þá, eftir aö Spasský tapaöi fyrir Fisher um áriö. En ég er þeirrar skoðunar, að fyrst dregiö var milli staöa, hafi átt aö setja Reykjavik I hattinn lika.” ,,Ég varö aö brjóta af mér kröfur og kúgun...” ,,Ég er sigurviss... og ég ætla mér aö vinna...” Hvernig list Merano-einvigiö? ,,Ef viö sitjum viö sama borö, eins og reglurnar kveða á um, þ.e.a.s. ef einkamál min hafa hlotið réttláta lausn, þá er ég viss um sigur. Ef ég lendi i þvi einu sinni enn aö berjast viö misréttið auk and- stæöingsins, þá er aö taka þvi, ég er miklu betur undir þaö búinn en áöur, og ég er þá jafn sigurviss. Og þá þýöir sigurinn þaö m.a., aö mér opnast nýjar leiöir til þess aö sækja fjölskyldumál mitt til sigurs. Það mun lyfta undir meö mér, ef svo vill veröa. Helduröu aö andrúmsloftiö veröi magnað? „Þaö verður a.m.k. þykkt, já, liklega þrungiö. En ég er viö öllu búinn. Ég er viöbúinn sendingum eins og Dr. Zukhar eða öörum uppátækjum, ef Sovétmenn telja sig ennþá þurfa aö styöja „sinn” mann með brögöum. Ég á raunar ekki von á þvi aö þeir sööli um fyrir þetta einvigi og taki upp háttalag siðmenntaöra manna, en svo sannarlega óska ég þess aö sá timi sé skemmra undan en ég óttast, okkar allra vegna og þjóða Sovétrikjanna.” Samtalinu er lokið, Korchnoi veröur aö bregöa sér I matstofuna til þess aö fá sér snarl áður en hann leggur til atlögu viö áttmenningana i Sjónvarpinu. Hann teflir 78 skákir á þrem dög- um, talar sinu máli við forseta okkar og ráðherra... og hverfur siöan annaö i baráttu sinni viö taflborðin tvö, þaö með göfugu manntaflinu og hitt meö refskák „kerfisins”. HERB Viö ljósmy ndarann: „Þú segir SIS, þegar þú vilt aö ég brosi, en veistu, þeir segja VISA (vegabréf) kollegar þinir I Sovét- rikjunum, viö svona tækifæri, og þá hljóta allir að brosa...” Bílskúrshurðajárn NORSK GÆÐAVARA AKARN H.F., Snekkjan OPIÐ TIL KL. 3 í NÓTT Hin vinsæla hljómsveit DANSIBANDIÐ skemmtir SNEKKJAN SUZUKI fyrir handhafa öryrkjaleyfa Strandgötu 45, Hafnarfiröi, sími 51103 Sá sparneytnasti og ódýrasti frá Japan 5 Htrar á 100 km. Áætlað verð til öryrkja 2ja dyra fólksbill kr. 38.500.-. 4ra dyra fólksbíll kr. 39.900.- Það er ársábyrgð á öllum SUZUKI bílum Komið og skoðið SUZUKI Sveinn Egi/sson hf. suzÚkiI Skeifan 17. Sími 85100

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.