Vísir - 24.04.1981, Blaðsíða 20

Vísir - 24.04.1981, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 24. april 1981 VÍSIR LflTUM HflRflLD OG JÓNflS SVARA NÆST Eldhress útvarpshlust- andi hringdi: Þökk sé Rikisútvarpinu fyrir frábæra spurningaþætti. Hve vel tókst til, tel ég fyrst og fremst vera að þakka fróðleik þeirra, er sátu fyrir svörum. Ekki var ég alls kostar sáttur við sumar spurningarnar og nokkurrar tregðu fannst mér gæta hjá stjórnanda og dómara. Skora ég þvi á Rikisútvarpiö að hafa einn (eða fleiri) aukaþátt (eða þætti) og legg til að þar sitji fyrir svörum herra Jónas Jónas- son útvarpsmaður og herra Haraldur ólafsson dósent. Stjórn- andi verði Baldur Simonarson og spurningagjörning fremji Guð- mundur Gunnarsson. Með bestu kveðju. ,,Ég skora á islenska ráðamenn aöstyöja Anker á allan hátt.” STVBJUM ANKER ,,Nato sinni” skrifar: Við Islendingar erum meðlimir i Nato, og er það vissulega gæfa okkar, og ættum við að vera virk- ir i Nató, til dæmis mætti leyfa Nató full afnot af Hvalfirði og þar sem kæmi Nató aö mestu gagni. Slfkt er sjálfsagður hlutur og smáframlag okkar i vörnum okk- ar og annarra. Það á eindregið að reisa flug- stöö sem bæði við og Nató höfum Griskur 19 ára piltur óskar eftir bréfasamskiptum við stúlku er ritará ensku. Ahugamál hans eru sport, músik, frimerki, ferðalög og póstkort. Nafniö er Dinos Doropulos Gauogionni 53-55 Goudi Athens. Greece t þlnu frjóa rlki, þar veröur allt svo fallegt not af, og svo sannarlega á ekki að spyrja kommana um eitt eða neitt, varnir Islands eru þeim al- veg óviðkomandi, það ættu lýð- ræðissinnar að muna. Við eigum að vera virkir og heilir i Nató. En eitt er það sem við Islendingar eigum alls ekki aö þola, en það er að sumir i Nató hafa verið að kasta skit i Anker Jörgensen for- sætisráðherra Danmerkur, og brigsla honum um að hann hafi rauðliða i stjórn sinni. Ég skora á islenska ráðamenn aö styðja Anker á allan hátt á næsta ráð- herrafundi i Nató og það kröftug- lega. Hvers vegna var lokað um páskahelgina? BEKKI Vlfl HOFÐA uamall sjomaður hringdi: Við erum fullorðin hjón hér i austurbænum, sem höfum gaman af að fara i gönguferðir. Við leggjum gjarnan leið okkar niður að Höfða. Þar er hvergi hægt að setjast niður nema i rennblautt grasið. Fyrir austan húsið er nóg rými, og mig langar að fara fram á það við háttvirt borgaryfirvöld að þar yrði komið íyrir bekkjum. Þar gæti fólk tyllt sér og horft út yfir sjóinn, þvi útsýni frá Höfða er ákaflega fallegt. Menntskælingur hringdi: Hvers vegna var lokað á Borgarbókasafninu frá 16.-20. april, einmitt á þeim tima þegar skólafólk þarf mest á húsnæðinu að halda til próflesturs? Ég er utanbæjarmaður við nám i Reykjavik og hef þvi fremur slæma aðstöðu til náms þar sem ég bý, ásamt fleirum. Þvi hef ég notað Borgarbókasafnið mikið og þótt mjög þægilegt að vera þar. Nú þegar páskahelgin kom, greip ég fritimann fegins hendi til þess aðfaraaðlæra,en þá var alltlok- að. Menn hljóta að taka tillit til námsmanna, þegar slik stofnun, sem bókasafn er annars vegar eða hvað? Frjð- skln - ort í tilefni sumar- dagsins fyrsta 1981 Mig langar til að læra, og lesa ljóðin þin, ó þú jörð, i þinu frjóa riki, það verður allt svo fallegt, er sumarsólin skin, en þó ei hægt, að gera, sumum liki. Mig langar til að læra, og lesa hvert eitt spor, er gengið er til náttúrunnar linda, á fyrsta degi sumars, er liðið sérhvert vor, og kveikti lif til blárra hæstu rinda. 20.4. 1981 BYOUR ENGINN TIL SJÚ- STANGAVEIÐI? Maður, að eigin sögn illa hald- inn af veiðibakteriu, hringdi og bað Visi að spyrjast fyrir um veiðiþjónustu. Er nokkur á höfuðborgarsvæð- inu, sem býður til sjóstangveiði? Og þá e.t.v. fyrir fjölskyldur. Hefur nokkur á sama svæði i hyggju að efna til einfaldra leið- beininga i stangveiði i ám og vötnum, fyrir byrjendur og við- vaninga? Þá er ekki aðeins átt við kennslu i fluguköstum ... sem gjarnan mætti bjóðast á öðrum tima en sunnudagsmorgnum. Að hvaða félögum, sem starfa að þessum málum, hafa menn að- gang? Visir kemur þessum spurning- um hér með á framfæri og vonast til þess að svör berist frá þeim, sem hér kunna að geta greitt úr. I LEIT A0 STÚLKU Gunnar Sverrisson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.