Vísir - 24.04.1981, Side 3
f'östudagur 24. aprll 1981
VÍSIR
3
Kar/mannaskor
Teg: 3480
Litur: natur-leður m/hrágúmmísólum
Stærðir: 41-45
Verð kr. 380.00
Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795 - 4^
SKlluðu 15-20 lóðum á Elðsgranda:
Vildu fá aðrar
lóðir
i
en var
Undanfarna mánuði hafa
allmargir þeirra er fengu út-
hlutað lóðum á Eiðsgranda skilað
þeiminn aftur.Mun þetta vera að
hluta til vegna þess hve djúpt er
niður á fast á svæðinu og því talið
kostnaðarsamt að byggja þar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Visir aflaði sér i gær, hefur 15—20
lóðum verið skilað inn. Sóttu
sumir viökomandi um að fá nýjar
lóðirf öðrum hverfum, en borgar-
ráð hafnaði þeim umsóknum.
,,Á siðasta ári var óvenjumörg-
um lóðum skilaö inn á öllum
svæðum”, sagði Hjörleifur
Kvaran hjá Borgarverkfræðingi,
aðspurður um þetta. „Það er
e.t.v. heldur meira á Eiðs-
staonn
netao
grandanum en annars staðar, þvi
þar var úthlutað 99 lóðum á sinum
tima. En I Hólahverfi og Selja-
hverfi var hlutfallslega um 10%
af lóðunum var skilað aftur”.
Sagði Hjörleifur enn fremur, að
sumir hefðu sent inn skýringar,
þegar þeir skiluðu lóðunum, og
ekki talið sig ráða við þennan
mikla jarðvegskostnað. Hefðu
þeir jafnframt farið fram á að fá i
staðinn lóðir á betri svæðum, en
borgarráð hefði hafnað þvi.
Ennfremur sagði Hjörleifur að
umræddar lóðir hefðu nú verið
auglýstar aftur. Ekki hefðu boris
sérlega margar umsóknir, en þó
nóg til þess að hægt yrði að úthlua
öllum lóðunum aftur.
Mörgum lóðarhöfum þóttí heldur djúpt ofan á fast >».g :skiluöu þvi lóðun-
um. (Visism. EÞS).
Það hefði komið nokkuð á
óvart, hversu margir hefðu skilað
lóðum sinum, vegna hertra
reglna um úthlutun. Samkvæmt
undlrskrlftlr tll stuðnings fjfllskyldu Korchnoi:
S0VESKA SENDIRÁÐIÐ NEIT-
AÐI AÐ TAKA VID ÞEIM!
þeim komi sá aðili, sem skilað
hefur inn lóð, ekki til greina við
næstu tvær úthlutanir. Auk þess
falli þau stig, sem hann hafi aflað
sér með fyrri umsóknum öll
niður.
„Ein skýringin á þessu getur
veri sú að menn séu hreinlega
hræddir við að fara út i bygginga-
framkvæmdir, þvi yfirleitt báðu
þeir sem skiluðu lóðum, ekki um
aðrar, aö Eiðsgrandadæmunum
frátöldum”, sagði Hjörleifur.
— JSS.
Súra mjðikin:
Fðr 15.
aprfl frð
Sam-
sölunni
Oddur Magnússon
mjólkurbússtjóri hjá
Mjólkursamsölunni hafði
samband við blaðið og óskaði
eftir leiðréttingu á þvi að
mjólk sem stimpluð var 21.
apríl siðastliðinn fór frá
Samsölunni miðvikudaginn
15. april en ekki 14. april eins
og hann hafði sagt i samtali
við Visi á þriðjudag. Félag
islenskra matvörukaup-
manna hefur óskað eftir þvi
að fram komi, að það telur
mjólkina sem stimpluð var
21 og reyndist vera orðin súr
áður, ekki hafa súrnað vegna
slæmrar geymslu hjá kaup-
mönnum, enda var eldri
mjólk á sömu geymslustöö-
um ósúr á sama tima.
— AS
Eitt hundrað valinkunnir
íslendingar lögðu nafn sitt
við ávarp til stuðnings
kröfunni um að fjölskyldu
skákmeistarans Viktors
Korchnoi verði leyft að
flytjast búferlum frá
Sovétríkjunum.
Það var Islandsdeild stuðnings-
nefndar fjölskyldu Viktors
Korchnois sem stóð að undir-
skriftasöfnuninni, og um fram-
kvæmd hennar sá sérstök nefnd
skipuð þeim Halldóri Blöndal, al-
þingismanni, Margeiri Péturs-
syni, skákmeistara, og Páli Heið-
ari Jónssyni, útvarpsmanni.
t ávarpinu segir meðal annars
að „íslandsdeild stuðnings-
nefndar fjölskyldu Viktors
Korchnoi er nú stofnuð til þess aí
herða baráttuna fyrir þvi að þetta
mál verði leyst á farsællegan
hátt. Viktor Kochnoi á fyrir
höndum að tefla erfitt einvigi um
heimsmeistaratitilinn i skák
næsta haust. Ollum má vera ljóst
að ekkert jafnræði er með kepp-
endum þegar rikisstjórn annars
heldur fjölskyldu hins nánast i
gislingu.
Nefndin hvetur skákhreyfing-
una og allan almenning i landinu
að styðja viðleitni Alþjóðaskák-
sambandsins og rikisstjórnar Is-
lands, til að tryggja fjölskyldu
Korchnois ferðafrelsi”.
Þess má geta að sovéska sendi-
ráðið I Reykjavik neitaði að taka
við ofangreindu ávarpi, — sagð-
ist engin afskipti vilja hafa af
stuðningsnefndinni og ekki taka
við neinum plöggum. Þess hefur
verið farið á leit við utanrikis-
ráðuneytið að það komi ávarpinu
og undirskriftunum á framfæri
við sovésk yfirvöld.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi með aðstandendum undir-
skriftasöfnunarinnar, að allir
þeir, sem leitað hafi verið til með
undirskrift hafi tekið þvi vel, en
þó hafi Sigurjón Pétursson, for-
seti borgarstjórnar, ekki treyst
sér til að leggja nafn sitt við
ákveðið orðlag i ávarpinu. Hann
styddi þó efnislega þær kröfur
sem settar eru fram um ferða-
frelsi fjölskyldu Kortsnojs.
— P.M.
Tónleikar
Tónlistar-
skólans
Strengjasveit Tónlistarskólans
í Reykjavik heldur tónleika i sal
Menntaskólans v/Hamrahlið
föstudaginn 24. april kl. 8.30 sið-
degis. Stjórnandi er Mark Reed-
man. Á efnisskrá eru eftirtalin
verk: Concerto Grosso eftir
Vivaldi, einleikarar Auður Haf-
steinsdóttir og Sigrún Eðvalds-
dóttir, Concerto Grosso eftir
Ernst Bloch og Die Verklartc
Nacht op. 4 eftir Arnold Schoen-
berg. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
KYNNIR
TUNGUMÁLA
TÖLVUNA
CZTSAIG.
Craig M 100 er fyrsta tölva sinnar tequndar í vasaútgáfu.___________
Hún var fyrst kynnt í Bandaríkjunum árið 1978. Arið eftir, 1979 seldust yfir
1 milljón eintaka og salan 1980 er áætluð annað eins.
Hún er hagstæð sem tungumála „uppsláttarrit“ þar sem orðaforði hvers
tungumáls er 2400 orð. Hvert tungumál er geymt í sjálfstæðum minnis-
kubbi og tölvan hefur 3 tungumál að geyma hverju sinni.
Skipting-kubba er mjög einföld. Valmöguleikar í tungumálum eru 20
nú þegar og sífellt bætast fleiri f hópinn. Sá íslenski er í vinnslu, væntan-
legur í apríl, maí 1981 og þá verður að sjálfsögðu hægt að þýða af
íslensku yfir á skandinavísku málin auk hinna 14 málanna: ensku,
spænsku, ítölsku, frönsku, þýsku, japönsku, hollensku, arabísku, rússn-
ésku, kínversku, portúgölsku,grísku og finnsku.
Málakubbarnir eru á hagstæðu verði.
Hentug fyrir: Viðskiptalífið, skrifstofuna (t.d. við samningu verslunar-
bréfa og við telexogskeyta sendingar), öll erlend samskipti, hjálpartæki
fyrir skólafólk-að því ógleymdu að vera góður vasatúlkur ít.d.viðskipta-
ferðum og sumarleyfum erlendis.
Leitið frekari upplýsinga. Útsölustaðir:
Rafrás hf.Fellsmúla 24,sími 82980. Rafiðjan hf.Kirkjustræti8B,sími19294
Þessi talvaer ólík öllum öðrum tölvum því hún skilur ekki tölvumál en hún
skilur þig- og þú skilur hana. Hún talar 20 ólík tungumál.
Einkaumboð á islandi- Rafrás hf.
Sími-82980