Vísir - 16.05.1981, Side 2
2
Laugardagur 16. maí 1981
VlSIR
IJT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — UT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPIN
Kóngsbænir
Laugardagur 16. mai er 136.
dagur ársins en ber ekkert sér-
stakt nafn. Dagurinn i gær hét
aftur á mdti kóngsbænadagur i
eina tið og var helgidagur sam-
kvæmt konunglegri tilskipan frá
árinu 1686, allsherjar iðrunar- og
bænadagur. Þann dag mátti ekki
versla, ekki fara á krá (tilgangs-
laus fyrirskipan hérlendis, þvi
miður!) og ekki vinna. Og þann
dag átti að fasta.
I „Sögu daganna” segir:
„Opinbert nafn dagsins var hinn
almenni bænadagur en Islend-
ingar höfðu innan áratugs fundið
honum nafnið kóngsbænadagur.
Þetta stafar liklega af þvi að hann
var ekki einn af hefðbundnum
helgidögum kirkjunnar, heldur
skipaður sérstaklega af kon-
ungi.” Þessi dagur var óvinsæll,
e.t.v. vegna föstunnar, sbr. þessa
visu:
Innan sleiki ég askinn minn
ekki erfullur maginn.
Kannast ég við kreistinginn
kóngs- á bænadaginn.
Annað erindi og lengra er til um
það, hvernig fara skyldi i kring
um föstuna:
Um ísalönd
Aukast nií vandræðin
Fer i hönd
föstudagssulturinn.
Fyrir þvikviða margur má
matbráður dóni
að enga skuli hann fæðslu fá
frá föstudagsnóni
til laugardags
lifandi nauða
ég sé það strax
þeirsvelta tildauða.
Annars lags
má leita við kauða:
að skammta þeim fullan
skattinn sinn
áður en kirkju fara á fund
svo fullursé maginn
og kreiki þeir svo með
káta lund
á kóngsbænadaginn.
Dagurinn var numinn úr gildi
sem helgidagur á Alþingi árið
1893.
{
þ íi,,
k'ííL i( Vo
Brádnaudsynleg*
ar upplýsingar
Allt er nií til! M.a.s. verðkönn-
un á frihafnarvarningi. Flottræfl-
ar með veröskyiið i lagi geta nú
skipulagt ilmvatnskaupin fyrir
ferðalagið, e.t.v. sparað sér stór-
pening með þvi aö fljúga i ódýr-
ustu frihafnirnar eins og maður-
inn sem sparaði svo mikið i
brennivinskaupum með þvi að
sigla með Gullfossi.
Samkvæmt nýútkominni bók,
sem heitir The Best ’n ’Möst in
Perfumes and Cosmetics 1981
(Mest og best i ilmvötnum og
snyrtivörum) kostar 108 gr. af
„Signoricci”ilmvatninu um 150.-
kr. I frihöfninni i London en
aðeins 87.- kr. i Madrid. Allir
r v
j
\ ^ ......................................._.
Sitt synist hverjum
Vikingasýningin umtalaða,
sem ku hafa slegið i gegn i
London og New York, er nú á leið
til Svfþjóöar. Hún verður i
Historiska museet frá 21. júni til
októberloka.
Sviar taka á móti sýningunni
eins og þeir væru aö endurheimta
týnda soninn og ætla m ,a. að sýna
10 kafla framhaldsþátt um
vikingana i sjónvarpinu. 1 auglýs-
ingu frá safninu segir m.a.:
„Flestir vilcinganna voru bænd-
ur. Þegar voraði fóru þeir i
viking. Sviarnir sigldu með mik-
inn flota til Rússlands, til Svarta
hafsins og þessa kaspiska. Þeir
sneru aftur með alls kyns fjár-
sjóöi: krydd, perlur, lifur o.fl.
Norskir og danskir vikingar
fóru til suðurs eða vesturs. Þeir
settust aö i Skotlandi og á nálæg-
um eyjum og i Englandi og
Irlandi. Þeir voru höfðingjar og
óðalsbændur. Þeir stofnuðu riki
og reistu borgir og breyttu York
og Dublin i mikilvægar
verslunarmiðstöövar. Þeir gerðu
óbyggö eylönd að nýlendum sin-
um, t.d. Færeyjar og Island,
stofnuðu blómstrandi byggöarlög
á Grænlandi og bjuggu jafnvel i
Ameriku um nokkurt skeiö.”
þangað!
Þessi merka 500 bls. bók birtir
töflur yfir frihafnir og verð.
Aftast i bókinni er vinsældalisti
ilm- og rakvatna og þar stendur
svart á hvitu að „L’Air Du
Temps” frá Ninu Ricci sé nr. 1
hjá kvenfólkinu og „Pour
Homme” frá Rabanne nr. 1. hjá
karlmönnunum. Þaö er ekki vitað
hvort frihöfnin i Kef lavik er með i
bókinni. En ef einhver hefur hug á
að eignast ritið, þá er það gefiö út
hjá Generation Publications i
Sviþjóð og hún kostar litlar 450,-
kr.islenskar. Það er sama verðog
er á 30 millilitrum af „Chamade”
ilmvatninu i pólskum frihöfnum!
Auðvitað
Einhvern tima gekk sú saga, aö
Nútimalistasafnið i New York
hefði hengt upp málverk eftir
frægan franskan nútima málara
þannig, að það var á hvolfi. Mis-
tökin uppgötvuðust ekki fyrr en
eftir 2 vikur. Hvort sem þetta er
sönn saga eða ekki er ekki gott að
vita. Aftur á móti héldu gestir á
Listaakademiunni I London aö
sömu mistök hefðu átt sér staö,
þegar þeir sáu mynd eftir þýska
málarann George Baselitz á yfir-
litssýningu þar nýlega.
Svo var þó alls ekki. Baselitz
vill hafa myndina svona. „Til
þess aö listneytandinn veröi aö
leggja sig allan fram til aö njóta
myndarinnar” segir hann. Að-
spurður hvort hann hefði málað
myndina „rétt” og snúiö henni
viö siöar, svaraði Baselitz þvi
neitandi „ég málaði hana á
hvolfi” sagði hann, auðvitað”.
Ur afmælis-
dagbókinni
„Þú hefur öflugan og aðlaðandi persónuleika, enda ertu bæði
vinsæll og vinamargur. Þú ert glaðlyndur og gefinn fyrir spaug og
kfmni. Þú ert listelskur, en líklega ekki gæddur verulegri sköpunar-
gáfu. Þú ert gefinn fyrir tilbreytni 1 störfum og umhverfi. Þú ert
ástriðuheitur, en elskar aðeins einu sinni á lffsleiöinni.”
ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPIN