Vísir - 16.05.1981, Page 7
Laugardagur 16. mai 1981
‘ ' vtÉm
Síðasta frumsýning Þjóðleikhússins
Söngleikur-
inn Gustur
Síðasta frumsýning Þjóðleik-
hússins á þessu ári verður nk.
miðvikudagskvöld, þegar söng-
leikur inn „Gustur” verður
færður upp.
Leikurinn er unninn i kringum
sögu Tolstoi en Mark Rozovsky
færði hann ásamt fleirum I núver-
andi búning og sá um tónlistina.
Hesturinn Gustur er orðinn
gamall og lúinn, búinn að skila
sinu hlutverki i lifinu. 1 byrjun
leiksins sjáum við hvar hann
kemur aftur i hesthúsin á búgarð-
inum þar sem hann fæddist og
hittir engan kunnugan, utan eina
gamla hryssu sem minnist hans
frá yngri árum. Bráttfer hann að
rifja upp lif sitt og segja sögu sina
þeim ungu hestum sem nú eru að
byrja feril sinn i þessu sama hest-
húsi. Við fylgjumst með honum
frá „vöggu til grafar”, en hann
hefur átt sina góðu og slæmu daga
eins og flestir. Einu sinni var
Frekar
lelkrit
meö
söngv-
um
. segir
Þórhildur
Þorleifsdóttir,
leikstjóri
„Leikritið er byggt á litilli sögu
eftirTolstoj og það voru nemend-
ur við leiklistarskóla I Leningrad
sem i hópvinnu færðu það i núver-
andi búning”, sagði Þórhildur
Þorleifsdóttir, leikstjóri um söng-
leikinn, „Gust”.
Hún kvað leikinn hafa verið
frumsýndan 1976 en siðan barst
hann fljótlega til Vesturlanda,
fyrst til Bandarikjanna, þar sem
hann var lengi vel sýndur á
Broadway, og hefur einnig verið
sýndur við góðan orðstir viða á
Norðurlöndum.
„Þetta er engan veginn dæmi-
gerður söngleikur eins og við ger-
um okkur þá i hugarlund, hvorki
að efni né stil. Frekar mætti kalla
þetta leikrit með söngvum. Upp-
færslan á þessu er ansi viðamikil
og erfið, margar ólikar senur.
Það var lika erfitt að ná fram
réttri mynd af hestunum án þess
að farið væri út i neinar nákvæm-
ar eftirlikingar, hreyfingar á
sviðinu eru miklar allan tim-
ann”.
„En eins og allt sem er erfitt,
hefur þetta lika verið mjög
skemmtilegt verkefni að fást
við”, sagði Þórhildur að lokum.
—JB
Dansinn dunar I Gusti.
hann stæltur og viljugur gæð-
ingur, sem fáir eða engir hestar
stóðust samanburð v:o. En það
fór fljótt að halla undan fæti,
blómaskeiðiö stóð stutt. Hann
gekk kaupum og sölum, hlaut
misjafna meðferð og þjónaði
mörgum hlutverkum. Að lokum
er hann engum til gagns og endar
ævi sina undir hendi slátrarans.
Með hlutverk Gusts fer Bessi
Bjarnason, en alls taka um 26
manns þátt i sýningunni, þ.á.m.
fjögurra manna hljómsveit sem
er á sviðinu mest allan timann.
Leikbúninga gerði Messiana
Tómasdóttir en leikstjóri er Þór-
hildur Þorleifsdóttir. — JB
Erfitt ad
vera hestur
— segir Bessi
„Það er örugglega erfitt að
vera hestur”, sagði Bessi Bjarna-
son, er við gripum hann dauð-
þreyttan strax að lokinni æfingu
nú i' vikunni, en hann fer einmitt
með aðalhlutverkið I leikritinu.
„Sagan er um hestinn Gust um
góða og slæma tima i lifi hans og
lýsir þvi hvernig hann gengur
kaupum og sölum. i lokin lendir
hann á sama býli og hann kom frá
i upphafi og þar þekkir hann eng-
inn, nema ein hryssa. Er það ekki
alltaf eitthvað svoleiðis?”, segir
Bessi og brosir.
„Þetta gæti allt eins verið saga
um mann, við eigum jú öll okkar
blómaskeið og upplifum einnig
daprari ti'mabil á lifsleiðinni”.
Bessi kvað hlutverkið vera
erfitt og margslungið. Hann er
nokkurs konar sögumaður lika og
þarf þar að tala bæði i 1. og 3.
persónu, svo það eru miklar og
híraðar skiptingar, „einsgottað
fylgjast vel með”, sagði hann að
lokum.
—JB
VÖRUBÍLAR
SENDIBÍLAR
7
og allir BÍLAR
^tGasaGak
Skúlagötu 40 — við Hafnarbíó — Símar 15014 19181
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Rakarastofan
Klapparstíg
PANTANIR 13010
.
‘ ~ ' rH-
■ ■
.;>■■■;■.;■:
í:,;.
verölækkun
a oli og
gosdrykkjum
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON