Vísir - 16.05.1981, Síða 12
Laugardagur 16. maí 1981
VÍSIR
BOB MARLEY:
Hann
reykti
sig
í hel
Fyrir örfáum vikum bárust
þær fregnir af Bob Marley að
hann væri að sigrast á krabb-
anunrv hann væri óðum að ná
sér eftir erfiöa sjúkrahúslegu
og innan tiðar yrði hann búinn
að ná sinu fyrra starfsþreki.
Því miður reyndust þessar
batahorfur ekki á rökum reist-
ar, þessi kóngur reggae-tón-
listarinnar lést i vikunni,
aðeins 36 ára gamall, — og
verður ekki annað sagt en
hann hafi reykt sig í hel. Bob
Marley fór ekki dult með
eiturlyf janeyslu sína hann var
stórreykingamaður á marijú-
ana og barðist leynt og Ijóst
fyrir þvi að það yrði boðið til
sölu á frjálsum markaði.
Lungnakrabbi leiddi hann í
gröfina.
Journey To
Glory-Spandau
Ballet/ Chrysalis
CHR 1331.
Nýir og ferskir vindar hafa
blásiö i breskri popptónlist
siöustu misserin og fjölmargir
nýjar hljómsveitir skotiö rót-
um. Einkanlega er athyglis-
verö breyting á danstónlist-
inni, þar sem einhæfni vél-
rænnar diskótónlistar hefur
veriö yfirþyrmandi um langt
skeiö. Nýja linan i danstón-
listinni er bæöi frumleg og
nýtiskuleg, aukin heldur en
listrænt gildi hennar aö minu
mati mun meira en „bjartsýn-
ustu menn hafa þoraö aö
vona”, eins og þar segir.
Spandau Ballet er vafalltiö
sterkust þessara hljómsveita,
þar fer saman kunnatta, tækni
og hugvit aö ógleymdum hæfi-
leikum, en þegar þessir þættir
spila vel saman getur
árangurinn aldrei oröiö annaö
en framúrskarandi. Gary
Kemp og fjórir félagar han i
Spadau Ballet hafa allt til
þess aö bera sem prýtt getur
goöa hljómsveit og þessi
fyrsta plata vitnar vissulega
um sannleiksgildi þeirrar
staöhæfingar.
The Who-Face
Dances/ Polydor 2311
065.
The Who er gömul i hettunni
en afkastagetan á siðustu
árum hefur nú ekkert veriö til
aö hrópa húrra fyrir. Og
tæpast kveða við húrrahróp
þegar hlustað hefur verið á
þessa nýju breiöskifu þeirra
„ofan i kjölinn”. Þær hljóm-
sveitir sem komnar eru á
svipaöan aldur og Who (ég
nefni engin nöfn) eru flestar
hverjar (að Rollingunum und-
anskildum) orönar lúnar I
meira lagi og hafa uppá fátt
nýtilegt aö bjóöa. The Who er
á hinn bóginn enn leitandi og
Pete Townsend er enn aö
þreifa fyrir sér I tónlistar-
sköpun sinni, bæöi i lagasmiö
og útsetningum. Þvi er margt
á þessari plötu einkar áhuga-
vert, til að mynda lögin „You
Bettar You Bet og „Can You
Do It Alone.” Þá svikja textar
hans ekki nokkurn mann frek-
ar en fyrri daginn og fyrir þá
sem smekk hafa fyrir söng
Daltreys heyrist mér hann
fremur hafa vaxiö en hitt. En I
heildina eru Who söm viö sig.
0 Bob Marley — hann lætur
eftirsig eiginkonu og unn-
ustur og sæg barna.
Galopnaði augu manna
Bob Marleys verður fyrst og
siðast minnst fyrir tónlist sina
hvaö sem öllutali um eiturlyf og
neyslu þeirra liður. Marley var
helsti og mesti boðberi reggae-
tónlistar og ótvirætt sá tón-
listarmaður sem opnaöi augu
Vesturlandabúa fyrir þeirri tón-
list. A undan honum höfðu að
sönnu komið fram tönlistar-
menn frá Jamaica, til að mynda
Johnny Nash og Jimmy Gliff,
sem höföu kynnt þessa tegund
tónlistar nokkuð, — en fullyrða
má alltént að Bob Marley hafi
verið sá tóniistarmaður sem
galopnaði augu fólks á Vestur-
löndum fyrir reggae-tónlist.
Það var á árunum uppúr 1970
sem reggae-lög fóru fyrst að
heyrast hér á vesturslóðum.
Eitt fyrsta lag i þessum dúr var
flutt af breska gitarleikaranum
Eric Clapton og nefndist „I Shot
The Sheriff”, en höfundur þess
var einmitt Bob Marley, þá ger-
samlega óþekktur utan sins
heimalands, Jamaica, þar sem
hann var á hinn bóginn feyki- £ Siðastliðið haust hné Marley niður á hljómleikum í Banda
vinsæll. Á þessum árum hafði ríkjunum, þa var ljóst að sjúkdómurinn var alvarlegur.
Einsfðasta myndin
af Bob Marley, eins
og glöggt má
greina var hann
farinn að láta
mjög á sjá.
Bob Marley þegar langan tón-
listarferil að baki, eða hartnær
tug ára. Ásamt Toots og
Maytals voru Bob Marley og
Wailers kunnustu reggae-leik-
arar á Jamaica. Straumhvörf
urðu I tónlistarsköpun Marleys
árið 1967erhann hvarf frá krist-
inni trú og gekk til liðs við sér-
trúarsöfnuð er kenndi sig við
Rastafarianisma. Nafnið er
fengið frá fyrrum keisara
Eþiópiu, Haile Selassie, en
gælunafn hans var Ras Tafari.
Bob Marley var ólatur við að út-
breiða trúarleg viðhorf sin i
textum og einnig hefur hann
einlægt verið ákaflega pólitiskt
þenkjandi, eins og heyra má I
flestum texta hans. Eitt fyrsta
lagið sem sló i gegn á Jamaica
meö Bob Marley og Wailers
heitir „Rude Boy” og fjallar um
glæpasamfélagið sem þrifst i
skjóli fátæktar I verst þokk-
uðustuhverfum Jamaica. Þetta
lag var aðeins það fyrsta af
mörgum um svipaö efni. Póli-
tiskar skoðanir hans fæddu af
sér övini og árið 1976 varð hann
fyrir fólskulegri skotárás i
heimalandi sinu meðan
kosningarimma fór þar fram.
Marleyog unnusta hans, þáver-
andi „Ungfrú Alheimur”
særðust óverulega en ferðunum
til fósturjarðarinnar fækkaði.
i fáum skrefum.
Bob Marley tók heimsfrægð-
ina I fáum skrefum. Eftir að
plötur hans urðu fáanlegar á
Vesturlöndum, fyrir tilstilli Is-
land fyrirtækisins, varð hann
svo að segja á augabragði dáður
meðal milljóna tónlistarunn-
enda. Reggae-tónlist er snar
þáttur i tónlist samtimans,
meira en tfunda hvert lag sem
fæst útgefið i Bretlandi til að
mynda er af þessum tónlistar-
meiði. En þrátt fyrir mikla
grósku og marga frábæra flytj-
endur skyggði raunar aldrei
neinn á Bob Marley. Hann var
kóngur reggae-tónlistarinnar til
dauöadags.
— Gsal
tt m 11 •
9,0 7,0