Vísir - 11.06.1981, Blaðsíða 3
3
Fimmtudagur 11. júni 1981
Göngudagur Uölskyidunnar:
Búist er viö
nokkur Þúsund
Þátttakendum
Göngudagar fjölskyldunnar
verða haldnir viða um land um
næstu helgi. Sunnudagurinn 14.
júni er hinn raunverulegi göngu-
dagur en i sjávarplássunum
verður 13. júni fyrir valinu vegna
sjómannadagsins sem er hinn 14.
Ungmennafélag Islands gekkst
fyrir göngudegi fjölskyldunnar i
fyrra og þótti sá dagur, sem
einnig var 14. júni, takast mjög
vel. Um fjögur þúsund manns
tóku þátt i gönguferðum sem
farnar voru viða um landið.
Gerðar voru ágætar göngu-
lýsingar, getið um örnefni staða,
náttúrufræði, söguleg atriði,
þjóðsögur og margt fleira.
Að þessu sinni verður höfð sam-
vinna við Ferðafélag Islands um
gönguna i Reykjavik og ferða-
félagsdeildir út um land munu
einnig starfa með ungmenna-
félögunum þar sem þær starfa.
78 ungmennafélög efndu til
gönguferða þennan dag s.l.
sumar og nú standa vonir til að
enn fleiri verði með. Ungmenna-
félögin á hverjum stað munu
skipuleggja gönguleið, útvega
göngustjóra og sjá um leiðar-
lýsingar.
Um 40 Norðmenn og Sviar
munu koma hingað til lands i til-
efni göngudagsins, og munu þeir
taka þátt i göngu Ferðafélags Is-
lands, sem farin verðu á sunnu-
daginn.
Lagt verður af stað frá Um-
ferðamiðstöðinni klukkan 10.30 á
sunnudaginn og önnur ferð verður
klukkan 13.00 sama dag. Ferðin
kostar kr. 50 með rútu en innifalið
GÖNGUDAGUR
FJÖLSKYLDUNNA
er merki göngudagsins. Einnig
geta menn ^jrið á einkabilum.
Leiðin liggúr eftir góöum
vegi að Djúpavatni. Þaðan verð-
ur gengið um Grænavatnseggjar,
fram hjá Grænavatni, Spákonu-
vatni og niður að Sogaselsgig,
þar sem áð verður. Gigurinn er
hringlaga, og þar voru áöur
þrjú sel frá bæjunum á
Vatnsleysuströnd, upplagðir án-
ingarstaðir. Þá verður gengið
aftur um Sogin og niöur að
Djúpavatni að bilunum. Leiðin er
8-10 kilómetra löng en fyrir hina
léttstigari eru ótal möguleikar.
vísm
Jón E. Karlsson, flugvirki, Jóhannes Fossdal og Sigurður Aöalsteinsson, flugmenn, og allir meðal eig-
enda Flugfélags Norðurlands, ásamt William Muilen, þjálfunarflugmanni, viö nýju vélina.
„Kann mjög vei
við Dessa vél”
Hraðfleyg véi
I flugfiota
Flugfélags
Noröuplands
,,Ég kann mjög vel við þessa
vél og ég bind vonir við aö hún
reynist okkur vel”, sagði Sigurð-
ur Aðalsteinsson, en hann og
Jóhannes Fossdal komu i gær-
morgun til Akureyrar með nýja
vél i flota Flugfélags Norður-
lands.
Vélin er af gerðinni Mitsubishi
MU 2 L og er keypt litið notuð frá
Bandarikjunum. Jafnþrýstibún-
aður er i vélinni og hún er með
turbinuhreyfla, þannig að l'lug-
hraðinn er ivið meiri en hjá
Fokker vélum Flugleiða, svo not-
uð sé kunn samliking. Að sögn
Sigurðar verður vélin notuð á
lengri áætlunarleiðum félagsins,
til Egilsstaða, Isafjarðar og um
ólafsfjörð til Reykjavikur. Að
visu verður spurningarmerki við
Ólafsfjörð til að byrja með, þar
sem yfirborð flugvallarins þar er
mjög gróft og brautin auk þess i
styttra lagi. Sagðist Sigurður
vonast til að þetta yrði lagfært á
næstunni. Væntanlega verður
byrjað að nota vélina i áætlunar-
flugi um helgina.
Willian Mullen flugmaöur kom
með vélinni að utan. Mun hann
þjálfa flugmenn FN á nýju vélina,
en hann var fyrsti flugmaðurinn
utan Japan, sem fékk réttindi á
Nefndsú er Hæstiréttur skipaði
ekki alls fyrir löngu og fékk þann
starfa að koma saman starfs-
aldurslista flugmanna situr enn
að störfum. Guðmundur Jónsson
borgardómari og formaður
nefndarinnarsagði að gagnaöflun
stæði yfir þegar Visir sló á þráð-
slikar vélar þegar framleiðsla
þeirra hófst 1967. Hefur hann sið-
an verið þjálfunarflugmaður hjá
Mitsubishi verksmiðjunum. Þá
hefur Jón E. Karlsson flugvirki
dvalið ytra og sótt námskeið i við-
haldi vélanna.
G.S./Akureyri
inn til hans, en að öðru leyti
kvaðst hann ekki geta tjáð sig um
málið.
Með Guðmundi i nefndinni eru
Bárður Danielsson verkíræðingur
og Guðmundur Magnússon há-
skólarektor.
— Gsal
Starfsaldurslistl flugmanna:
Nefndin enn aö störfum
Sumarskór^ný sending
Teg: 86
Litur: Svart leður
Stærðir: 36-41
Verö kr: 215.-
Teg: 702
Litir: Svart og blátt rússkinn
Stærðir: 36-41
Verð: kr: 273.-
Teg: 6052
Litir: Svart og bordó leður
Stærðir: 36-41
Verð kr. 320.-
Teg: 1105
Litur: Hvitt og gull
Stæröir: 36-41
Verö kr: 199,-
Teg: 37002
Litur: Hvitt leður
Stæröir: 36-41
Verö kr. 247.-
Teg: 37001
Litur: Blátt leður
Stæröir: 36-41
Verð kr: 247.-
Teg: 501
Litur: Hvitt og beigeleður
Stæröir: 36-41
Verð kr. 360.-
Teg: 3700
Litur: Kaki grænt leöur
Stæröir: 36-41
Verö kr: 247.-
PÓSTSENDUM
STJÖRNUSKÓBÚÐIN
Laugavegi 96 — Viö hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795