Vísir - 11.06.1981, Blaðsíða 28
íFftefM
Fimmtudagur 11. júní 1981
síminn er86611
veðurspá
dagsins
Við strönd Grænlands vestur
af Reykjanesi, er nærri kyrr-
stæð 1007 mb smálægö, en 1020
mb hæð 400 km suður af landinu,
þokast austur. Litið eitt hlýnar
veðri norðanlands og austan.
Veðurhorfur næsta sólar-
hring:
Suðurland til Stranda og Norð-
urland vestra, Suðvesturmið og
Norðvesturmið: Sunnan gola
eða breytileg átt, viðast skúrir
einkum siðdegis.
Norðurland eystra og Norðaust
urmið: Sunnan gola eða hæg-
viðri, skýjaö með köflum og
skúrir sumstaðar siðdegis.
Austurland að Glettingi, Aust
firðir, Austurmið og Austfjarð
armið: Sunnan gola, skýjað
með köflum.
Suðausturland og Suðaustur
mið: Suðvestan gola, skýjað að
mestu og skúrir vestan til.
Veðrið hér
og har
Veöriö kl.6 I morgun:
Akureyri skýjað 7, Bergen skúr
á siöustu klukkustund 7, Hels-
inki skýjað 7 Kaupmannahöfn
skýjað 13, Osló léttskýjað 14,
Revkjavik skýjaö 6, Stokkhólm-
ur, skýjað 12.
Veðrið kl. 18 i gær:
Aþena léttskýjað 24, Bcrlinlétt-
skýjað 20, Chicago hálfskýjað
24, Feneyjarheiðrikt 27, Frank-
furt skýjað 19, Nuuk skýjað 6,
London rigning 15, Luxemburg
skýjað 15, Las Palmas léttskýj-
aö 23, IYlallorka heiðrikt 26,
Montreal léttskýjað 21, New
Yorkskúr á siðustu klukkustuntí
19, Parisskýjað 18, Róm skýjað
24, Malaga heiðrikt 23, Vinskýj-
að 20, Winnipeg úrkoma i
grennd 15.
Læknar eru nú að verða
stærstu vinnuveitendur lögfræö-*
inga meöan fjármálaráöuneytið
segist ræða viö lækna um allt —
nema kaupið.
Þegar sæstrengurínn slitnar rofnar samband við Bretland:
Simtoiin fara ekki
fram um larðstöðlna
„Það er samkomulag við Stóra
norræna simafélagiö um aö nota
Scotice til að halda samtölum
uppi við Bretland. Þegar Scotice
bilar getur það tekið nokkurn
tima að skipta yfir á jaröstöðina
Skyggni”, sagði Jón Valdimars-
son, deildartæknifræðingur hjá
Pósti og sima, við Visi i morgun,
en ýmsum kom á óvart, þegar
Scotice slitnaði um hvitasunnu-
helgina, að ekki var hægt að
skipta fyrirvaralaust yfir á
Skyggni.
Strengurinn slitnaði á mánu-
dagsmorgun og simasamband
var ekki komið i samt lag fyrr en
tveim sólahringum siðar og m.a.
var ekki hægt að hringja til Bret-
lands. Jón sagði, að i gegn um
Skyggni hefðum við 24 rásir fyrir
almenn simtöl til annarra Norð-
urlanda, 10 rásir til Þýskalands
fyrir meginland Evrópu og eina
rás til Bandarikjanna. 1 gegn um
Scotice höfum við 14 rásir fyrir
almenn simtöl til Bretlands. Loks
eru simtöl svo afgreidd i gegn um
sæstrenginn Icecan vestur um
haf.
Strax og Scotice slitnaði voru
nauðsynlegustu samtöl og telex-
skeyti til Evrópu afgreidd i gegn
um Icecan. Á þriðjudaginn feng-
ust leyfi hjá Intersat fyrir viðbót-
arrásum i gegn um Skyggni til
Evrópu ogá miðvikudagsmorgun
hafði Skyggnir leyst af allar rás-
irnar 14 fyrir Scotice.
Þessi töf varð m.a. vegna þess,
að fullkomin tæki til að flytja
samtöl írá Múlastöðinni að Land-
simastöðinni vantaöi. Jón sagði,
að nú væri verið aö kaupa þessi
tæki, þannig að framvegis ætti
það ekki að taka nema hluta úr
degi að skipta yfir á Skyggni, ef
Scoticebilaði. Þá hefði þaö einnig
tafið fyrir, að óhappiö varð á fri-
degi, annan i hvitasunnu.
Scotice slitnaði skammt austur
af Vestmannaeyjum. Viðgerðar-
skip fór af stað i gærkveldi og
sagði Jón, aö viðgerð tæki um
fimm daga.
— KS
Kolbrún Anna Jónsdóttir, heitir stúlkan sem keppist viö að þrifa búöargluggann I Lækjargötu, svo kúnn-
arnir geti betur virt fyrir sér varninginn. ( Visism. ÞG)
„Fór alll
I háaioft”
- sagöi
Þorvaldur Garðar
„Þeir voru búnir aö hafa þau
orð um Nató i ræðum sinum að ég
taldi mig ekki geta setiö undir þvi
lengur og gerði grein fyrir minu
sjónarmiði. Við það fór allt i háa-
loft”, svaraði Þorvaldur Garðar
Kristjánsson spurningu Visis
vegna orðaskipta sem uröu i
heimsókn Þorvalds og l'leiri full-
trúa Alþingis til Sovétrikjanna nú
fyrir skömmu.
Þorvaldur sagðist hafa tekið
fram i ræðu sinni að Islendingar
væru friðarins menn og vildu
vernda friðinn,ekki sist i Evrópu.
Hann sagðist hafa bent á, að
Sovétmenn ættu að geta skilið
hvers vegna íslendingar væru i
Nató, vegna Varsjárbandalags-
ins, sem þeir segðu að væri til að
vernda friðinn.
„Við þessi ummæli fór allt i
háaloft og þeir þráspuröu til
varnar gagnvart hverjum við
værum i Nató. Talsverðar um-
ræður urðu i kjölfar þessa en ég
svaraði fullum hálsi og sagðist
eiga við þegar ég talaði um varn-
arbandalag, bandalag gegn
hverjum sem væri.”
Þorvaldur sagði að þessar um-
ræður hefðu tekið all nokkra
stund, nokkur æsingur hefði orðið
út af þessu og andrúmsloftið
spennuþrungið á meðan.
— ÓM
Samið vlð Belga?
„Belgisku embættismennirnir
fóru ekki i neinn launkofa með
þaðað togaraeigendur hefðu ekki
staðið við gerða samninga”,
sagði Hannes Hafstein formaður
islensku samninganefndarinnar i
viðræðum við Belga um veiði-
heimildir.
Viðræðurnar hófust i gær og
lauk siðdegis með þvi aö báðar
nefndirnar samþykktu drög að
samningi. Þau drög voru lögö
fram á fundi rikisstjórnarinnar i
morgun. —-Gsal
hressir betur.