Vísir - 11.06.1981, Blaðsíða 18

Vísir - 11.06.1981, Blaðsíða 18
18 mannlíf VISIR ** i r ; , I nr'M n Fimmtudagur 11. júni 1981 höfuddjásn Það fór kliður um salinn á hárgreiðslusýningu hjá We i New York nú nýverið er unglingastjarnan Brooke Shields gekk inn með hárgreiðslu sem skreytt var k höfuðdjásni úr demöntum, rúbinum og safirum ■L að verðmæti yfir milljón dollara. Þetta var a fyrsta sýning hennar sem fyrirsæta hjá Æ VV'ella og auðvitað vakti hún allra a athygli, eins og ráð hafði verið fyrir gert ... Wella l oke J ar M / Umsjtín: Sveinn Ouftjtínsson Hachel ásamt einum af fyrri fylgisveinum sfnum David Kennedy. Burt ásamt leikkonunni Sally Field, sem hann hefur nú yfirgefið vegna hinnar 23 ára gömlu fyrirsætu. Vélmennið frá Kók i létri sveiflu með einni blómarósinni á staðnuin. Vélmenni byd — á kynningarkv Svo bar við i Hollywood á fimmtudegi i siðustu viku að vél- menni sveif út á dansgólfið með dömu upp á arminn og steig þar dansspor viðstöddum til mikillar undrunar. Við nánari eftirgrensl- an kom i ljós að hér var komin fulltrúi Coca Cola verksmiðjanna og var sýningin liður i kynningu á framleiðslunni sem fram fór i veitingahúsinu þetta kvöld. En það var fleira en svala- drykkurinn góðkunni sem kynnt var og má segja að kvöldið hafi verið ein alsherjar vörusýning. Kynntar voru snyrtivörur frá versluninni Nana i Breiðholti, fatnaður frá versluninni Torgið, Emmessis, gæðadrykkurinn Vodka og Laddi kom fram og kynnti nýju plötuna sina „Deió”. Ljósmyndari Visis, Emil Þór Sig- urðsson, tók meðfylgjandi mynd- ir á kynningarkvöldinu i Holly- wood. Kynning á snyrtivörum frá Nana. Burt og brjóst- góöa Rakel Burt Reynold er ekki viö eina fjölina felldur i kvennamálum, eins og fram hefur komið hér á siðunni og þar sem við vitum að margir lesendur siðunnar láta sér mjög annt um velferö leikarans, skal hér með kynnt nýjasta vin- konan. Hún heitir Rachel Ward, bresk tiskusýningardama, sem er sögð svo kynæsandi að karlmenn gangi á veggi er hún gengur framhjá. Eina vandamálið sem hún á við að glima er hversu brjóstamikil hún er, og þar sem íatahönnuðir nútimans vilja flatbrjósta konur, verður Raehel að fletja brjóstin niður við störf sin. Eins og Burt, hefur hún ekki orðið útundan hvað varðar ástar- málin, og meðal fyrri fylgisveina hennar eru Andrew bretaprins og David Kennedy, sonur Roberts heitins. Rachel hefur sem minnst viljað tala um samband sitt við Burt, en aftur á móti segir hann að hún sé yndislegt fljóð með mikla hæfi- leika. Við þetta má svo bæta, aö Rakel er 23 ára gömul og þvi 22 árum yngri en hjartaknúsarinn mikli. Rachel Ward, nýja konan I llfi Burts Glaumgosinn Carolina prinsessa af Monaco virðist hafa lært af misheppnuðu hjónabandi sinu að vera ekki að flika um of einkamálum sinum i fjölmiðlum. Hún virðist einnig hafa róast og fer fáum sögum af þátttöku hennar i skemmtanalif- inu. En maöur hennar fyrrver- andi er samur við sig og er ekkert að fela ástarmál sin, þvert á móti virðist hann hreykinn af mikilli yfirferð sinni i þeim efnum. Siðan að Christine Onassis sparkaði honum hefur hann farið hamför- um i skemmtanalifinu og fer ekki dult með samband sitt við ungar og fagrar konur. A meðfylgjandi myndum sjáum við annars vegar Carolinu yfir- gefa veislu eina ásamt systur sinni Stefaniu og fylgir það sög- unni að hún hafi fylgt systur sinni til að gera ekki of mikið úr sam- bandi sinu við Robertino Rossellini sem sagður var vera meðal veislugesta. Á hinum myndunum getur hins vegar að lita Philippe Junot á veitingastað i Paris. Junot dansar frá sér nóttina með enn einni stúlkunni. Carolina yfirgefur veisluna i fylgd Stefaniu systur sinnar til að slá á orð- róminn um samdrátt þeirra Rosselin- is.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.