Vísir - 11.06.1981, Page 5

Vísir - 11.06.1981, Page 5
Fimmtudagur 11. júni 1981 VÍSIR Árásin á Osirak dregur dilk á eftir sér: Gæti hait áhrlf á kosninga* baráttu Beglns Bani-Sadr hefur greinilega tapað valdabaráttunni við klerkaveldiö. Bani-Sadr orðinn valúalaus leiðtogi Khómeini, erkiklerkur, hefur nú sett Bani-Sadr ai sem æðsta yfirmann hersins, og telja menn, að hann sé nú orðinn valdalaus þjóðhöfðingi. Tilkynning þessa efnis var gef- in út á miðnætti i nótt að staðar- tima, og var jafnframt tilkynnt.að Khómeini æðstiklerkur hefði tek- ið við yfirstjórn land-, sjó- og N-lrland: Alta skæruiiðar struku úr fangelsi flughers lrana. Það er þvi ljós, aö Bani-Sadr hefur borið lægri hlut i valdabaráttunni við klerkavaldiö. Bani-Sadr sem er 48 ára gamall og menntaður i Paris, sagði fyrir fáeinum vikum, að ef hann yrði gerður að valdalausum þjóðhöfð- ingja, þá yrðu iranir aö kjósa sér nýjan forseta. Enn hafa israelsk stjórnvöld ekki gefið út neina yfirlysingu vegna þeirrar ákvörðunar Bandarikjamanna, að fresta af- hendingu fjögurra herílugvéla vegna árásar lsraela á kjarn- orkustöðina Osirak i írak. Það virðist þó nokkuö ljóst, aö ákvörðun Bandarikjamanna á eftir að valda miklum úlfaþyt i Israel. Þetta er nefnilega i fyrsta skipti sem Bandarikjamenn fresta afhendingu á hergögnum til Israel. Begin, forsætisráðherra, og rikisstjórn hans hafa einmitt und- anfarna mánuði hrósað stjórn Reagans i hástert og sagt hana vera þá rikisstjórn Bandarikj- anna, sem sýnt hafi Israelum mestan velvilja. Talið er aö ákvörðun Banda- rikjamanna eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir Begin. Þing- kosningar eiga að fara fram i Israel 30. júni og er taliö, að kjós- endum liki ekki við forsætisráð- herra, sem eyðilagt hefur góð samskipti við Bandarikin. Þó er þess að geta, að árásin á Osirak mæltist yfirleitt vel fyrir i Israel og fögnuðu margir henni ákalt. Lestarslysið mlkla: Árekstur við kýr orsðkin? Enn er ekki ljóst hversu margir fórust i járnbrautarslysinu á Ind- landi um helgina eöa hvað olli slysinu. Nú er þó ljóst, aö fjöldi látinna er ekki undir átta hundr- uðum, en sú tala á þó liklega eftir að tvöfaldast og jafnvel vel þaö. Nú er talið, að stormsveipur sé ekki orsök slyssins, heldur hafi kýrveriðá sporinu og lestarstjór- inn þvi orðið að hemla á meðan sjö lestarvagnar voru enn á brúnni. Lestarstjórinn, sem komst lifs af, er nú i haldi hjá lög- reglunni. Þetta er mesta lestarslys sög- unnar — það stærsta til þessa var þegar herflutningalest fór úl ai sporinu i Frakklandi áriö 1917. Þá fórust 543 menn. Lögregla og hermenn leita nú ákaft átta skæruliða, sem brutust út úr Crumlin-fangelsinu i Belfast i gær. Fleiri fangar hafa ekki strokið úr fangelsi á einu bretti á írlandi i sjö ár, og sagöi lögreglan i gær, að flótti þessi hefði verið þaulskipulagður og timasetningin verið afar nákvæm. Tveir flóttamannanna voru klæddir fangavaröabúningum, sem þeir tóku af vörðum. Fang- arnir voru vopnaðir byssum, sem smyglað hafði verið inn i fangels- ið. Þeir yfirbuguðu sem fyrr sagði tvo fangaverði, afklæddu þá og stálu fötunum. Siðan tóku þeir nokkra verði til viðbótar i gisl- ingu og þannig löbbuöu þeir sér að útgöngudyrum fangelsisins. Þar biðu þeirra þrir bilar og fangarnir átta hurfu á svip- stundu. Lögreglan lokaði i gær landa- mærunum við Irska lýðveldiö og leitaði i öllum bilum, sem þangaö áttu leið. Þá var gerð skipuleg húsleit i Belfast, en ennþá hafa engar visbendingar borist. Nýlokið var réttarhöldum yfir sjö strokumannanna en þeir voru sakaðir um ýmis afbrot, þeirra á meðal morð. Dómsúrskurðar var að vænta i næstu viku. Áttundi skæruliðinn beið einnig dóms, en hann er sakaður um morð. Forlani tókst ekki aö mynda rfkisstjórn Arnaldo Forlani, forsætisráð- herra.Italiu, gafst i gær uppviö að mynda nýja rikisstjórn, en hann baðst lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt 26. mai vegna þess að tveir ráðherrar hans voru við- riðnir frimúrarahneykslið mikla. Búister við, að forseti landsins, Sandro Pertini, biðji i dag for- mann Repúblikanaflokksins, Gio- vanni Spadolini, um að reyna aó mynda rikisstjórn. Hún yrði þá 41. rikisstjórn Italiu frá striðslok- um. Spadolini, þingmaður, er 55 ára gamall. Flokkur hans, Repúblik- anaflokkurinn, er írekar litill miðlinuflokkur. Spadolini er álit- inn umbótasinni og hefur sérstak- an áhuga á að endurreisa efna- hagslif Itala. Hann er sagður op- inn fyrir samvinnu við Kommún- istaflokkinn, sem hefur verið i stjórnarandstöðu sem kunnugt italía: ÞRIR MENN SKOTNIRIFÆTURNA Þrir karlmenn og ein kona, sem sögðust vera skæruliðar Rauðu herdeildanna, réðust i gær inn á skrifstofur flutningafyrirtækis á Italiu i gær og skutu þrjá menn i fæturna. Fjórmenningarnir voru grimu- klæddir. Þegar þeir höföu brotist inn i fyrirtækið, tóku þeir fram- kvæmdastjórann og hengdu skilti um hálsinn á honum, en á þvi voru ásakahir á hendur fyrirtæk- inu um að starfsfólki væri mis- munað. Siðan skutu skæruiiðarnir framkvæmdastjórann i fæturna og siðan tvo aðra starfsmenn, áð- ur en skæruliðarnir flúðu af hólmi. Að sögn lækna voru meiðsli starfsmannanna ekki alvarleg. Fimmtudagskvöld í Jli húsinu Opið í öNum deðdum lil kl. 22.00 Byggingavörur Rofíjós Teppi — Raftœki Húsgögn Við bjóðum einstæð greiðslukjör, allt niður i 20% útborgun og eftir- stöðvar lánum við i allt að 9 mánuði. Matvörur — Fatnaður Flestir þekkja okkar lága verð á matvörum og nú bjóðum við einnig ýmsar gerðir fatnaðar á sérstöku markaðsverði. Frá 1. júni verður lokað á laugardögum, á föstudögum er opið til kl.22 i Matvörudeild, aðrar deildir eru opnar til kl.19. Á fimmtudög- um eru allar deildir opnar til kl.22. A A A A. A A Jón Loftsson hf. : a íi ia i 5 z ,.J l_f«ILnjJ-J j LL.u-i i- — □ EJ iKIHriHIIIUHHUÍIIIIIi Hringbraut 121 — Sími 10600

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.