Vísir - 11.06.1981, Síða 6

Vísir - 11.06.1981, Síða 6
Fimmtudagur 11. júní 1981 vism Jón Þór fer til SKoiiann Matthias hefur jafnao Stefán Stefánsson — lands- liðseinvaldur unglinga i golfi, hefur valið Akureyringinn, Jón Þór Gunnarsson, til að keppa fyrir hönd tslands i Doug Sanders-golfkeppninni i Aberdeen, en keppni sú er fyrir kylfina, sem eru 17 ára og yngri. Frimann Gunnlaugsson, formaður GA, mun fara til Skotlands með Jóni Þór. Þeir munu siðan sjá islenska lands- liðið i Evrópukeppninni á St. Andrews-golfvellinum, en sú , keppni stendur yfir dagana I 24.-27. júni. — SOS | Dómara- tríóið var kvenkyns... Strákarnir, sem mæta til j leiks i knattspyrnu á Akranesi I á næstunni, geta átt von á þvi að fá stúlkur sem dómara og j linuverði i leikjum sinum. t knattspyrnudómaranám- skeiði, sem þar var haidið á dögunum, tóku nokkrar stúik- ur dómarapróf og þær eru all- ar byrjaðar að dæma. Þrjár þeirra tóku að sér leik i yngri! flokkunum á dögunum og fórst það vel úr hendi. Þar var Ragnheiður Jónsdóttir með flautuna, en þær Brynja Helgadóttir og Laufey Sigurð- ardóttir veifuðu fánunum á linunni. Þetta mun hafa verið i fyrsta sinn, sem dómaratrió- ið er allt skipað kvenfólki i is- lenskri knattspyrnu... —klp Hjónorúm Geysilegt úrvol Myndalistar HVS6A6NA BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVÍK HÖLLIN SÍMAR: 91-81199 -81410 HERMANN GUNNARSSON Austur Danir -Þjððveriar og koma í vetur log ísland mun taka bátt i tveim sterkum mótum í handknattleik karlai A ársþingi Handknattleiks- sambands íslands um helgina kom ma. fram, að ákveðið er að islenska karlalandsliðið taki þátt i tveim sterkum keppnum i vetur. Sú fyrri fer fram i Tékkó- slówakiu 1. til 7. nóvember og veroa þar m.a. landslið Austur- Þýskalands, Tékkóslóvakiu og Sovétrikjanna. Er þetta 6-landa keppni, þar sem allir leika við alla. Hin keppnin verður i Búlgariu um mánaðamótin janúar-febrú- ar. Er það einnig 6-landa keppni, þar sem verða, auk ís- lands og Búlgariu, landslið Júgóslaviu, Rúmeniu, Noregs og Sviss. Ekki er búið að ákveða alla landsleiki hér heima i vetur, en nokkuð öruggt er, að bæði Danir og Austur-Þjóðverjar muni koma. Þá er ákveðið, að Norð- urlandamót pilta verði hér á ts- landi næsta vetur. Ýmsar hug- myndir eru uppi um breytt fyrirkomulag á þeirri keppni og m.a.a að hún verði haldin annað hvert ár á móti heimsmeistara- keppni unglinga, og að aldurs- takmark i henni verði hækk- að.... — klp — I I I I I I I I M Skagamaðurinn marksækni, Matthias Hallgrimsson, sem leik- ur með Valsmönnum, jafnaði markamet Hermanns Gunnars- sonar,, þegar hann skoraði mark fyrir Valsmenn á Akranesi, Þeir- félagar hafa nú skorað 94 mörk i 1. deildarkeppninni i knatt- spyrnu. Matthias þarf þvi aðeins að skora 6 mörk, til að ná 100 marka markinu. Matthias Hallgrimsson ...skor- aði sitt fyrsta 1. deildarmark 1965 gegn Valsmönnum á Akranesi. Hermann Gunnarsson ... skor- aði sitt fyrsta 1. deildarmark 23. júni 1963 gegn Akureyri i Reykja- vik, en hann skoraði þá tvö mörk i leiknum. Hermann hefur nú lagt skóna á hilluna og draumur hans um 100 mörk er úti. Þess má geta til gamans, að Hermann hefur einn- ig skorað 2 mörk i aukaleikjum um Islandsmeistaratitilinn. Ingi Björn Albertsson... kemur næstur á listanum, yfir mestu markaskorara 1. deildarkeppn- innar — hann hefur skorað 89 mörk. Allir þessir þrir leikmenn eiga það sameiginlegt, að hafa leikið með erlendum félögum og þá hafa þeir átt við meiðsli að striða á keppnisferli sinum. Ef þeir hefðu ekki farið erlendis, þá væru þeir búnir að ná 100 marka mark- inu. —SOS FriálsiÞróttaiandsliðin valin fyrir EM: Þeír fara til Luxemborg SIGURÐUR P. SIGMUNDS- SON... 5000 m hlaup. AGUST ÞORSTEINSSON... 10.000 m hlaup. ÞORVALDUR ÞÓRISSON... 110 m og 400 m grindahlaup. AGÚST ASGEIRSSON... 3 km hindrunarhlaup. UNNAR VILHJALMSSON... hástökk. JÓN ODDSSON... langstökk. FRIÐRIK ÞÓR ÓSKARSSON... þristökk. SIGURÐUR T. SIGURÐS- SON... Stangarstökk. HREINN IIALLDÓRSSON... kúluvarp. ÓSKAR JAKOBSSON... kringlukast og sleggjukast. SIGURDUR EINARSSON... spjótkast. Oddur Sigurðsson keppir i fjór- um greinum á Evrópumeistara- mótinu i frjálsum iþróttum karla, sem fer fram i Luxemborg 20. og 21. júni. Oddur keppir i 200 og 400 m hiaupi og 4x100 og 4x400 m boð- hiaupi, en það hefur ekki enn ver- ið ákveðið, hvernig boðhlaups- sveitirnar verða skipaðar. Þeir Sigurður Sigurðsson, Vilmundur Vilhjálmsson og Hjörtur Gislason verða þó boðhlaupsmenn. Þá heíur ekki verið ákveðið enn, hver keppir i 100 m hlaupi. Aðrir, sem skipa landslið Is- lands, eru: GUNNAR PALL JÓAKIMS- SON... sem keppir i 800 m hlaupi. JÓN DIDRIKSSON... 1500 m hlaup. • MATTHtAS HALLGRIMS- SON... sést hér fagna einu 1. deildarmarka sinna. markamet Hermanns Þæp fara tii Barcelóna... Kvennalandsliðið i frjálsum iþróttum, sem tekur þátt i Evrópumeistaramótinu i Barcelona 20. júni, hefur veriö valiö, og verða þar þessar stúlk- ur: Oddný Arnadóttir ... sem kepp- ir i 100 m hlaupi og 4x100 og 4x400 m boðhlaupi. Geirlaug Geirlaugsdóttir sem keppir i 200 m hlaupi og 4x100 m hlaupi. Sigriöur Kjartansdóttir ... 200 m hlaup og 4x100 og 4x400 m boð- hlaupi. Hrönn Guðmundsdóttir... 800 m hlaup. Ragnheiður ólafsdóttir ... 1500 m hlaup. Guðrún Karlsdóttir ... 3000m hlaup. Helga Halldórsdóttir ... 100 m grindahlaup og 4x100 og 4x400 m boðhlaup. Valdis Ilallgrimsdóttir... 400 m grindahlaup og 4x400 m boðhlaup Þórdís Gisladóttir ... hástökk. Bryndis Hólm ... langstökk. Guðrún Ingólfsdóttir kúluvarp og kringlukast. tris Grönfeld... spjótkast.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.